Morgunblaðið - 11.08.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Mikið Ijdn þegar frystitogarinn Ýmir lagðist á hliðina í Hafnarfjarðarhöfn
NOKKRIR kranar voru fengnir til að halda við Ými en engu að síður flæddi sjórinn inn í skipið.
Morgunblaðið/Júlíus
„Lagðist á hliðina á
nokkrum sekúndum“
„SJÓR flæddi inn á millidekkið og
það lagðist á hliðina á nokkrum sek-
úndum,“ segir Oddur Andrésson
annar vélstjóri frystitogarans Ymis
HF-343, sem lagðist á hliðina við
Suðurbakkann í Hafnarfjarðarhöfn
um klukkan 10.30 í gærmorgun.
Skipið, sem er 541 brúttótonn, sökk
í höfninni á örfáum klukkustundum
en efsti hluti þess stóð upp úr og
héldu þrír kranar því í skorðum í
gærkvöldi.
Talið er að sjór hafí flætt inn um
slorlúgur skipsins þegar verið var
að dæla olíu um borð. Botntankar
skipsins voru tómir sem hafði áhrif
á jafnvægi skipsins.
Sjórinn braut sér leið um stóran
hluta Ymis, þar á meðal káetur
skipverja, og eru skemmdir taldar
miklar. Um tíu manns voru við
vinnu í borð í skipinu þegar það
lagðist á hliðina, en verið var að yf-
irfara vélabúnað þess, skipta um
fiskvinnsluvélar á millidekkjum o.fl.
Ekki urðu umtalsverð meiðsli á
mönnum.
„Við skulum forða okkur“
Magnús Erlingsson og Sigurður
Pétursson, vélvirkjar hjá Tækni-
stáli í Garðabæ, voru að vinna við að
hreinsa upp túrbínur í vélarúmi
skipsins þegar það tók að hallast
laust eftir klukkan tíu í gærmorgun.
Sigurður kveðst fljótt hafa gert sér
grein fyrir að ekki væri allt með
felldu.
„Skipið fór að halla allt í einu. Við
héldum að verið væri að hífa eitt-
hvað þungt um borð og héldum
áfram að vinna. En síðan hélt það
áfram að hallast og þá sagði ég við
Magnús, „við skulum forða okkur
héðan, það er eitthvað miklu meira
að en verið sé að hífa einhvern
þungan hlut“. Þetta var ekki eðli-
legt,“ segir Sigurður.
Þeir segja að um tíu manns hafi
verið við vinnu í skipinu þegar það
lagðist á hliðina. Þeir flýttu sér frá
borði. „Við vissum að eitthvað væri
að gerast og þorðum ekki að fara
stjómborðsmegin og fórum þess í
stað upp bakborðsmegin. Við príl-
uðum upp á gálgann og stukkum
niður á bryggjuna, og þá var skipið
svo að segja alveg lagst. Það datt á
augnabliki og allt hefur þetta tekið
innan við mínútu. Okkur gekk vel
að klifra upp á bryggjuna, skipið
var ekki alveg stoppað en það var
lítil hreyfing á því,“ segir Magnús.
Hafsteinn Stefánsson, skipstjóri
Ýmis, segir að skipið hafi verið við
bryggju í vikutíma meðan á viðhaldi
stóð. „Það var búið að opna síðuna á
honum til að lagfæra slorstokk og
svo virðist sem sjór hafl farið inn
um lúgumar,“ segir hann.
Eftir að meta skemmdir
Eftir að Ýmir lagðist á hliðina
hófust menn handa við að koma
taugum í skipið til að skorða það af
og í kjölfarið var reynt að þétta
hliðina þannig að hægt væri að dæla
vatninu úr því, til að það rétti sig af
af sjálfsdáðum. „Skemmdimar
verða fyrst metnar af einhverri ná-
kvæmni þegar búið er að rétta skip-
ið og losa það af sjó, en það er þó
ljóst að sjór hefur komist í vélar-
rúmið og annars staðar neðan þilja.
Það má búast við að tjónið sé tals-
vert mikið,“ segir Hafsteinn.
Skipið hélt áfram að sökkva síð-
degis og voru tilraunir til að lyfta
því upp árangurslausar. Ágúst Sig-
urðsson, útgerðarmaður hjá Stál-
skipum ehf. sem gerir út Ými, segir
að ákveðið hafí verið í kjölfarið að
reyna að bjarga verðmætum úr
brúnni, tölvukosti, stýritækjum og
öðram búnaði, og bíða þess síðan að
skipið fylltist.
„Skipið sat á viðlegukantinum í
fyrstu en rétti sig ekkert og hélt
áfram að fyllast. Við tókum því
ákvörðun um að bíða þar til fjaraði
út og höfum gert ráðstafanir til að
lyfta því upp í kvöld [gærkvöldi] eða
nótt. Á meðan verðum við að sitja
aðgerðarlaus og horfa á það
sökkva,“ segir Ágúst.
Hann segir of snemmt að segja til
um fjárhagslegan skaða, en kveðst
óttast að fjárhagstjón hlaupi á tug-
um milljónum króna. Fyrirtækið sé
hins vegar með traustar tryggingar.
Á móti komi fjárhagstjón fyrirtæk-
isins vegna sjálfsábyrgðar. „Þetta
er mikið áfall fyrir okkur en fyrir-
tækið er auðvitað tryggt. Við eram
hins vegar með ákveðna eiginá-
hættu, þannig að um eitthvert fjár-
hagstjón verður að ræða, auk taps
vegna hlés frá veiðum,“ segir
Ágúst.
Tveir tugir í björgunarliði
Um klukkan 19 í gærkvöldi var
hafist handa við að dæla úr véla-
rúmi skipsins, en þá vora slökkvi-
liðsmenn og kafarar enn í brúnni að
reyna að bjarga verðmætum, að
sögn Steindórs Ögmundssonar
hafnarvarðar í Hafnarfírði. Lág-
fjara var klukkan 23 í gærkvöldi.
„Við vitum ekki hvort lúgurnar
muni koma upp úr á lágfjöra,
þannig að öll áform um að lyfta
skipinu geta verið háð miklum
breytingum," segir hann. Að sögn
Steindórs unnu um eða yfír tuttugu
manns við að reyna að rétta skipið í
gærkvöldi, undir eftirliti trygginga-
félags skipsins.
/ ♦ j^r/INNLENT
Konur á miðjum
aldri handteknar í
Borgarnesi
Fóru um
bæinn
rænandi
og ruplandi
TVÆR konur á miðjum aldri
voru handteknar í Borgarnesi
eftir að þær höfðu farið ráns-
hendi um bæinn og stolið vær-
mæti úr sundlaug staðarins,
verslunum, heimahúsi og bíl.
Að sögn lögreglu höfðu kon-
urnar stolið fatnaði úr búnings-
herbergjum sundlaugarinnar,
úr heimahúsi stálu þær t.d.
myndbandstæki, skartgripum
og Visa-korti, þá stálu þær
verkfæram og símtæki úr bfl og
úr verslununum stálu þær einu
og öðra.
Upp komst um konumar
þegar komið var að annarri
þeirra í heimahúsi, stelandi, en
að sögn lögreglu sagði hún við
íbúa hússins þegar hann kom
að henni að hún væri frá heimil-
ishjálpinni. Eftir þessa uppá-
komu leiddi eitt af öðra og í ljós
kom að konurnar höfðu farið
um bæinn rænandi og ruplandi.
Konurnar vora ölvaðar þegar
lögreglan handtók þær og
grunur leikur á að þær hafi
einnig verið undir áhrifum
fíkniefna.
Konurnar, sem höfðu aðsetur
í hjólhýsi í sumarbústaðahverf-
inu í Eskiholti, eru úr Reykja-
vík og hafa báðar komið við
sögu lögreglu áður. Málið telst
upplýst.
Erfíðleikar hjá
Strætisvögnum
Reykjavíkur
Ekki tókst
að ráða
í afleys-
ingastörf
ERFIÐLEGA hefur gengið að
ráða vagnstjóra til Strætisvagna
Reykjavíkur og segir Þórir Jón
Hall, trúnaðarmaður starfs-
manna SVR, að ferðir hafi fallið
niður í sumar vegna manneklu.
Þessu vísar staðgengill forstjóra
SVR á bug. Þórir Jón segir að
það sé fyrst og fremst vegna
lágra launa sem vagnstjóram
bjóðast sem svo illa gangi að
manna vaktir.
Þórir Jón segir að ekki hafi
tekist að ráða í afleysingastöður
fyrir sumarið með þeim afleið-
ingum að álag hafi aukist á þeim
sem fyrir eru.
Hörður Gíslason, staðgengill
forstjóra SVR, segir það rétt að
erfíðlega hafí gengið að ráða í
afleysingastöður og ekki sé full-
mannað. Hins vegar hafí engin
ferð fallið niður enn. 160 vagn-
stjórar eru í starfí hjá SVR. Það
fari mikið eftir atvinnuástandi
hvernig gangi að ráða í afleys-
ingastöður. Þegar næga vinnu
er að hafa, eins og nú hátti til, sé
það í járnum að það takist að
manna allar stöður. Málin séu
leyst með aukavinnu þegar svo
standi á. Hörður segir að dæmið
snúist við á veturna og þá sé
meira framboð af vagnstjóram
en SVR getur ráðið.
Þú hefur aldrei kynnst öðru eins:
íMafasía - (BýLLI - Sinjjapore
TÖFRAR 1001 NÆTUR Á DEGISEM NÓTTU
5 stjörnu gæði allt í gegn og fararstjórn Ingólfs.
Örfá viðbótarsæti á GJAFVERÐI17. okt. 18 d.
ef staðfest er núna!
UNDUR MALASÍU - SUMARAUKINN 29. ág. 6 sæti
TÖFRAR THAILANDS - SUMARAUK. 2. sept.- UPPSELT!
STÓRA THAILANDSFERÐIN 16. sept.-upplifun! 8 sæti
- w m m m m FCRDASKRIfSTOfAN _
Þu gerir ekki jU$%Mp PRJMA" s,mi
betri kaup! HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS 562 0400
Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN TRAVEL