Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 17
LANPIÐ
Litlu munaði að illa færi þegar eldur kom upp í húsi í Siglufírði
Faðir og tveir syn-
ir sluppu ómeiddir
Morgunblaðið/Sigríður Ingvadóttir
HREFNA Guðmundsdóttir inni í ibúðinni sem er
illa farin af sóti og reyk.
Siglufirði - Heppni má teljast að ekki fór verr er eldur
braust út í íbúðarhúsi á Túngötu 20B á Siglufirði að-
faranótt sunnudagsins 8. ágúst sl. Tvö börn, tveggja og
fjögurra ára, voru sofandi í húsinu ásamt föður sínum
og björguðust þau öll úr húsinu. Slökkvilið staðarins var
kallað út um kl. 2 og tókst því fljótlega að ráða niðurlög-
um eldsins en húsið er talsvert skemmt af reyk og sóti.
íbúarnir höfðu nýlega flutt til Siglufjarðar og tekið
húsið á leigu er óhappið átti sér stað. Börnin, Ludwig
Leó, 4 ára og Tómas Muller, 2 ára, voru gengin til náða
þetta afdrifaríka kvöld ásamt föður sínum Ludwig Al-
fredssyni en húsmóðirin Hrefna Guðmunsdóttir skrapp
út. Gangandi vegfarendur tóku eftir að reyk lagði út um
glugga hússins og vöktu þau íbúana og gerðu síðan
slökkviliðinu viðvart. Greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um eldsins, en húsið, sem er tveggja hæða steinhús, er
talsvert skemmt, sérstaklega efri hæðin.
Orsök brunans er ekki fullkönnuð, en talið er að
kviknað hafi í út frá kerti sem staðsett var ofan á hljóm-
flutningstækjum í stofunni.
Innbúið óvátryggt
Að sögn Hrefnu Guðmundsdóttur er þetta gríðarlegt
áfall þar sem innbúið var ótryggt og þau voru nýbúin að
ílytjast búferlum frá Reykjavík og koma sér fyrir í nýj-
um húsakynnum.
„En það má þakka Guði fyrir að allir sluppu ómeiddir,
ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvað hefði gerst
ef þessir vegfarendur hefðu ekki átt leið þama hjá og
náð að vekja fólkið mitt því að sögn slökkviliðsmanna
þarna á staðnum voru rúðurnar við það að springa og
gífurlegur hiti var orðinn inni í íbúðinni. Það er ljóst að
mest allt úr eldhúsinu og stofunni er ónýtt af sóti og
hita þó að þessir dauðu hlutir skipti að sjálfsögðu minna
máli, en dísargaukur sem við áttum dó en tveggja mán-
aða hvolpur bjargaðist. Um næstu skref er ég lítið farin
að hugsa en ég ætla þó að reyna að koma okkur aftur
fyrir í þessu húsnæði er það hefur verið lagað,“ sagði
Hrefna.
Alþjóðleg
ferðamarkaðsfræði
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli (slands leiðandi skóli fyrir þá, sem
vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu. Ferðamálaskóli íslands
var fyrstur skóla til að þyrja með alþjóðlegt IATA/UFTAA
(Alþjóðasamband flugfélaga) nám, sem er viðurkennt um allan
heim og hlotið hefur miklar vinsældir hér á landi.
Ferðamálaskóli íslands hefur nú fyrstur skóla fengið samþykki
IATA/UFTAA til að bjóða uppá nýtt námsefni, sem IATA/UFTAA
hefur hleypt af stokkunum og á örugglega eftir að verða hagnýtt
og eftirsótt nám.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
Söluráðar Verðlagning
Markaðsrannsóknir
Markaðsumhverfið
Markaðshlutun
Arðsemi
Árstíðarsveiflur
Dreifing
Auglýsingar
Samkeppni
Markaðsáæltanir
Markaðsvirkni
Sölustjórnun
Sölutækni
Markmið
Stefnumótun
Ferðaþjónusta á Islandi
Námið er alls 300 stundir og kennt verður þrisvar í viku frá
kl. 18.15-22.00.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekið er próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem
áhuga hafa og vilja auka _ _ „ . + ,
þekkingu sína á ferðaþjónustu. úerðamalaskoll Islands
Bfldshöfða 18
© 567 1466
vg)mbUs
LLTAf= e/TTH\SA£J f\JÝT7
Komdu og sjáðu
Landsvirkjun í réttu Ijósi
Ratar þú?
Ekið er eftir þjóðvegi nr. 1 í gegnum Selfoss
og beygt til norðurs upp veg nr. 30 í átt
að Flúðum. Þá er farið veg nr. 32, Árnes,
upp í Þjórsárdal og áfram inn á hálendið
Sprengisandsleið.
Opið hús í Hrauneyjafossstöð
iaugardag og sunnudag, 14. og 15. ágúst, ki. 12 -18
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Ragnheiður Ólafsdóttir,
umhverfisstjóri, og Edvard G. Guðnason, deildarstjóri, ræða við gesti um
virkjanir og umhverfismál. Björn Sverrisson, yfirvéifræðingur, og hans fólk
sýnir stöðina.
Hefur þú komið inn á hálendi íslands?
Hrauneyjafossstöð stendur á fallegum stað í jaðri hálendisins og er annað stærsta orkuver landsins. Nú
er komið bundið slitlag alla leið frá Reykjavík í Hrauneyjar og þangað er einungis um tveggja tíma
akstur.
Við mælum með
fjölskylduferð um helgina þar sem mætti skoða sig um í Þjórsárdal, t.d. Stöng, Sögualdarbæinn eða
Hjálparfoss og aka áfram að Hrauneyjafossstöð framhjá framkvæmdasvæðinu við Sultartanga. Þá er
kjörið að heimsækja fjölskylduhátíðina Töðugjöld við Hellu.
C
Landsvirkjun
www.lv.is