Morgunblaðið - 11.08.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 19
VIÐSKIPTI
Eftirmálar fjárfestingar Orca S.A. í 26,5% hlut í FBA
Ovissan hefur
neikvæð áhrif
umræðu um takmörkunarreglur.
„Öll umræða um inngrip stjóm-
valda í frjálsan verðbréfamarkað
hlýtur að hafa skaðleg áhrif á þau
bréf sem um er að ræða,“ segir
Tryggvi.
Markmið Orca að
styrkja stöðu FBA
Rósant Már Torfason, sérfræð-
ingur hjá íslandsbanka F&M, telur
rúmlega 5% lækkun gengis hluta-
bréfa FBA í fyrradag stafa af þeirri
umræðu sem verið hefur síðustu
daga um takmörkun á eignarhlut
hvers hluthafa í fyrirtæki eins og
FBA. „Öll óvissa getur haft nei-
kvæð áhrif, bæði hvað varðar um-
ræðuna undanfama daga og líka
óvissan um það hverjir standa á bak
við Orea S.A. En það hefur að
minnsta kosti komið fram að mark-
mið kaupendanna er að styrkja
stöðu bankans enn frekar."
„Hlutfall annarra rekstrartekna í
heildartekjum FBA hefur verið að
aukast og er nú 67%. 66% af því er
gengishagnaður hlutabréfa sem
getur sveiflast mjög á milli tímabila.
Að mínu mati er markaðsverð bank-
ans of hátt, sé miðað við rekstraraf-
komuna. En sjái menn fyrir sér ein-
hverja sameiningarmöguleika, get-
ur það réttlætt verðið,“ segir
Rósant Már að lokum.
VIÐSKIPTI með hlutabréf í FBA
voru töluverð í gær eða fyrir um 33
milljónir í 29 viðskiptum. Gengi
bréfanna stóð í stað frá deginum áð-
ur og var 2,76. Á mánudag lækkaði
gengi bréfanna um rúm 5% frá
föstudegi en viðskipti mánudagsins
námu um 6,8 milljónum. Þrír sér-
fræðingar á verðbréfamarkaði sem
rætt var við í gær, voru sammála
um að takmarkanir á eignaraðild
einstakra aðila að fyrirtækjum
væru óæskilegar. Ennfremur kom
fram í máli þeirra sú skoðun að
markaðsverð FBA væri of hátt. All-
ir töldu þeir þá óvissu sem ríkir um
hverjir standi á bak við eignar-
haldsfélagið Orca S.A. sem á rúman
fjórðungshlut í FBA, hafa fremur
neikvæð áhrif á FBA.
Mikið framboð í
kjölfar milliuppgjörs
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar, segir lækkun
mánudagsins óverulega. „Það voru
sáralítil viðskipti á bak við það þeg-
ar gengi bréfanna fór hæst í 2,99 á
fóstudag." Jafet telur áhrif umræðu
um takmörkun á eignaraðild að
FBA ekki stórvægileg. „Það er frek-
ar að mikið framboð af hlutabréfum
í kjölfar milliuppgjörs FBA hafi
dregið gengið niður, Sumir taka þá
ákvörðun að selja í kjölfar góðs
milliuppgjörs, eins og var hjá FBA.
Svo er líka hitt að það er ekki klárt
hverjir eiga bankann." Jafet spáir
litlum breytingum á gengi FBA og
segir það sína skoðun að gengið
hafi náð ákveðnu tímabundnu jafn-
vægi í gær.
Umræðan vegur þyngra
en gott uppgjör
Tryggvi Tryggvason, forstöðu-
maður markaðsviðskipta Lands-
bankans, segh- þá óvissu sem skap-
ast hefur um það hverjir standa á
bak við rúmlega fjórðungs eignar-
hlut í FBA, hljóti að koma öðrum
hluthöfum illa. „Ef einhver tak-
mörkun verður sett á viðskipti á eft-
irmarkaði með hlutabréf í FBA eða
öðrum hlutafélögum hlýtur það að
draga úr verðgildi þeirra.“
Tryggvi segir ekki óeðlilegt að
ætla að gengi bréfanna hefði átt að
hækka í kjölfar góðs milliuppgjörs
sem birt var á föstudag. Það hefur
hins vegar ekki gerst og er gengi
bréfanna nú lægra en það var áður
en uppgjörið var birt. „Það er
greinÖegt að öll umræða um tak-
markanir á eignaraðild vegur
þyngra en mjög gott uppgjör FBA.“
Tryggvi telur jafnvel mögulegt að
gengi hlutabréfa í FBA lækki enn
frekar ef eignaraðild skýrist ekki á
næstunni og niðurstaða fæst ekki í
Bakkavör hf. kaupir franska fyrirtækið
Comptoir Du Caviar að fullu
Kaupverð
133 milljónir
BAKKAVÖR hf. í Njarðvík hefur
eignast franska fyrirtækið Compto-
ir Du Caviar að fullu. Bakkavör til-
kynnti í gær um kaup á 80% hlut í
félaginu fyrir 133 milljónir króna en
Bakkavör átti fyrir 20% hlut. Stefnt
er að því að ljúka sameiningu
franska fyrirtækisins og dótturfyr-
irtækis Bakkavarar, Bakkavör
France, fyrir 1. október. Comptoir
Du Caviar er stærsti aðilinn á
franska markaðnum í framleiðslu
og sölu á laxa- og styrjukavíar og
selur auk þess ýmsar aðrar tegund-
h' kældra sjávarafurða, eins og fram
kemur í tilkynningu.
Að sögn Ágústs Guðmundssonar,
stjórnarformanns Bakkavarar, var
dótturfyrirtækið Bakkavör France
stofnað í september árið 1997. „Við
hófum þar framleiðslu, sölu og
dreifíngu á ýmsum kældum sjávar-
afurðum og höfum átt gott samstarf
við Comptoir Du Caviar sem leiddi
til þess að við keyptum 20% hlut í
fyrirtækinu í fyiTa. Nú ákváðum við
að ganga skrefið til fulls og sameina
félögin undir merkjum Bakkavör
France. Félögin dreifðu þegar sam-
eiginlega en við kaupin nú verður
allt sameinað,“ segir Ágúst.
Að sögn Ágústs hefur fjárfesting-
in töluverða þýðingu fyrir Bakka-
vör. „Nokkrar nýjar stórmark-
aðskeðjur bætast í hóp viðskipta-
vina Bakkavarar og við fáum
þannig betri aðgang að markaðnum.
Þetta hefur þá þýðingu fyrir okkur
að við náum meiri hagkvæmni út úr
framleiðslunni og breikkum vöru-
línu fyrirtækisins verulega."
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu til Verðbréfaþings í gær, hefur
rekstur Comptoir Du Caviar gengið
vel undanfarin ár og er eiginfjár-
staða fyrirtækisins traust. Að sögn
Ágústs verður eiginfjárstaða sam-
einaðs fyrirtækis, Bakkavör
France, um 95 milljónir króna.
Ágúst segir jafnframt að bæði félög
hafi skilað hagnaði á síðasta ári og
er búist við að svo verði áfram.
Áætluð velta Bakkavör France á
næsta ári er um 900 milljónir króna.
Framkvæmdastjóri Bakkavör
France hefur verið ráðinn Philippe
Chauvin en hann var áður fram-
kvæmdastjóri Comptoir Du Caviar.
Að sögn Ágústs verða engar breyt-
ingar á starfsfólki fyrirtækisins. Nú
er unnið að breytingum á húsnæði
fyrirtækjanna í Mulcent, 60 km
vestur af París, og er stefnt að því
að ljúka framkvæmdum fyrir haust-
ið en þá fer aðalsölutími fyrirtækis-
ins í hönd.
Komdu og sjáðu
Landsvirkjun í réttu Ijósi
*'T"'—
HSS;
Blöndustöð er á margan hátt einstætt
mannvirki en stöðvarhús hennar stendur
rúmlega 200 metra niðri í jörðinni.
Aðgengi er um lyftu og 800 metra löng
jarðgöng.
Opið hús í Blöndustöð
laugardag og sunnudag, 14. og 15. ágúst, kl. 12 -18
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi, og
Örlygur Þórðarson, lögfræðingur, ræða við gesti
um virkjanir og umhverfismál. Guðmundur
Hagalín, stöðvarstjóri, og hans fólk sýnir stöðina.
Ratar þú?
Að stöðinni er tveggja tíma akstur frá Akureyri og þriggja og hálfs
tíma akstur frá Reykjavík. Beygt er af þjóðvegi 1, syðst í Langadal
austan Blönduóss, inn á veg 731 inn í Blöndudal, leiðina upp á Kjöl.
Prófaðu rafbíl Landsvirkjunar
Auk heimsóknar í stöðina gefst
gestum færi á að prufukeyra
rafbíl Landsvirkjunar, knúinn
hreinni orku fallvatnanna.
Við mælum með
fjölskylduferð um helgina þar sem staldrað verður við í Vatnsdalshólum og gengið um Þórdísarlund
eða ekinn hringur um Vatnsdal. Áhugavert er að skoða Þingeyrarkirkju og einnig er ódýr og góð veiði
í fjölmörgum ám og vötnum í Húnavatnssýslum.
B
Landsvirkjun
www.lv.is