Morgunblaðið - 11.08.1999, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Aldrei hefur fleiri jarðarbúum gefíst tækifæri til að berja almyrkva á sólu augum en einmitt í dag
Sólmyrkvi
við lok 20.
aldarinnar
Fyrir langa löngu var sólmyrkvi talinn
merki um að sólin hefði yfirgefíð jörðina
og látið hana í hendur myrkrahöfðingjan-
um og árum hans. Fólk grét örlög sín er
dró fyrir sólu, stjörnufræðingar voru
teknir af lífí fyrir að koma ekki í veg
fyrir myrkvann og óvinir lögðu niður
vopn sín í blóðugum bardaga þar sem
sólmyrkvi var talinn fyrirboði um frið.
Hrund Gunnsteinsdóttir segir frá orsökum
sólmyrkva, uppgötvunum honum tengdum,
goðsögnum og dómsdagsspádómum sem
honum hafa fylgt frá örófí alda.
‘Edinborg
>Belfast%
Norður-
sjór
Hreyfing
skuggans
VILNIUS,
kaupmaSjahöfn
S V ,
MINSK
DUBLIN
VARSJÁ
LONÐON,
Amsterdam
•líille Brussel
KÆNUGARÐUR
Frankfurt
layre;
Svæði þar sem
almyrkvi verður:
110 km breitt belti
Guernseyí
;Lúxemborg
PRAG
[Stuttgart
BRATISUWA
•vyJ Strasbourg^aVí
BERNE ' kl. 10:<«r
• Tórínó f
Bologna
Marseillejy,,~^N\ '^' \
~Allantshaf
k# Nantes
/ • Clermoht-
'Bordeaux Ferrand
Svartahaf
79 til 70%
myrkur
Bilbao
Andorra.
Ajaccio
Tímasetning"""
almyrkva, að
íslenskum tímai
Jstanbui
MADRÍD
LISSABÓN'
Valencia'
Seville
Palermó
APENA 0
Miðjarðarhaf
.................................................^
Skammt frá
NovaScotia
um 9:30 að
í Bengalflóa
kl. 12:36
Sést fyrst í
Evrópu um
kl. 10:10
Tunglið.
Sólin
SOLMYRKVINN YFIR EVROPU 11. AGUST
Sólmyrkvinn varir í rúmar þrjár klst
Skugginn af tunglinu mun færast yfir Atlantshafið
til Indlandshafs á 2.850 km hraða á klst.
Lok myrkvans
atmyrkvi
99 til 100% myrkur
FYRIR um það bil eitt þús-
und árum var sólmyrkvi
almennt álitinn ógnvekj-
andi og yfírnáttúrulegur
atburður sem leiddi úr læðingi dul-
ræn öfl, oft af trúarlegum toga, sem
hefðu í för með sér örlagaríkar af-
leiðingar. I dag er hins vegar flest-
um kunnugt um hvað það er sem
veldur sólmyrkva og hafa fjölmarg-
ir lagt leið sína til þeirra staða þar
sem myrkvinn mun sjást hvað best,
sér til skemmtunar og fróðleiks.
Ef við gefum okkur að geimverur
séu til og ennfremur að þeim verði
litið til jarðar yfir morgunmatnum
klukkan eina mínútu yfir hálf tíu á
íslenskum tíma í dag, eiga þær svo-
lítið skemmtilegt í vændum.
Svartur skuggablettur mun
snögglega birtast skammt undan
ströndum Nova Scotia í Suðaustur-
Kanada og færa sig þvert og endi-
langt yfir Atlantshafið á 2.850 km
hraða á klst. Áfram mun hann
leggjast yfir suðvesturhluta Bret-
lands, Frakkland, Mið-Evrópu og
alla leið yfir Tyrkland, írak, íran,
Pakistan og Indland, rétt áður en
hann hverfur, einhvers staðar yfir
Bengalflóa.
Séu nágrannar okkar jarðarbúa
með öflugan sjónauka við hönd
mun þá vafalaust reka í rogastans
er fyrir bregður tveimur Concord-
þotum á vegum British Airways
sem elta munu sólmyrkvann á
hljóðhraða með áhugasömum far-
þegum innanborðs, er greitt hafa
um 175.000 krónur fyrir
að fylgja skugganum á
ferð sinni.
En hvað veldur þess-
um ósköpum? Sólmyrkvi
Almyrkvi næst
við ísland
árið 2026
verður er tunglið er á milli jarðar
og sólu og jörðin gengur inn í
skugga tunglsins. Almyrkvi verður
svo er tunglið er fyrir miðju sól-
kringlunnar og skyggir á hana alla.
Sólin er fjögur hundi-uð sinnum
stærri en tunglið en þar sem hún er
um fjögur hundruð sinnum lengri í
burtu frá jörðu en tunglið, virðist
hún álíka stór og tunglið í augum
jarðarbúa.
Af þessum sökum nær tunglið
stundum að hylja sólina algerlega,
en er almyrkvi verður nær hann yf-
ir 260 km breitt belti hið mesta og
varir lengst í sjö og hálfa mínútu.
Sólmyrkvinn í dag mun vara í rúm-
ar þrjár klukkustundir, þótt tunglið
muni ekki fela sólina að fullu nema í
andartak. Almyrkvinn nær yfir 111
km breitt belti en lengst er hægt að
virða hann fyrir sér í Rúmeníu, þar
sem hann mun vara í 2 mínútur og
23 sekúndur.
Sólmyrkvar verða 2-5 sinnum á
ári og að meðaltali líða 360 ár milli
þess að almyrkvi verði á sama stað.
Almyrkvi verður næst við vestur-
strönd íslands árið 2026.
Ringulreið í
dýraríkinu
Það sem er sérstakt við sólmyrk-
vann í dag, við lok 20. aldarinnar, er
að skuggi tunglsins mun breiða sig
yfir fjölbýlt svæði sem gerir að
verkum að aldrei hafa fleiri jarðar-
búar barið hann augum.
„Mér leið líkt og við værum gam-
alt fólk við endalok heimsins ...
Það voru engin litbrigði. Jörðin var
dauð. Svo kom birtan aftur og það
var sem heimurinn væri endur-
heimtur ..Þannig skrifaði rithöf-
undurinn Virgina Wolf um reynslu
sína af almyrkva í Bretlandi 29.
júní árið 1927.
Þeir sem vitni hafa orðið að al-
myrkva eiga vart orð tO að lýsa
upplifun sinni. Það er líkt og dökk-
blá tjöld falli snögglega yfir upp-
lýstan himininn að degi til er sól,
tungl og jörð mætast í beinni línu.
Breytingarnar á því svæði sem
almyrkvi verður verða gífurlegar á
þeim tuttugu mínútum sem líða áð-
ur en almyrkvi verður. Plánetur og
stjörnur sem venjulega sjást ekki
vegna birtu sólarinnar
verða sjáanlegar á him-
inhvolfinu. Skömmu áð-
ur en algjört myrkur
skellur á myndast ljós-
jaðri tunglsins, þekktir
hans Baileys, en
blettir á
sem perlúrnar
Francis Bailey var fyrstur manna
til að lýsa þeim á prenti árið 1836.
Á ógnarhraða færir tunglið sig úr
vesturátt í veg fyrir sólina og í ör-
skamma stund er almyrkvi yfir
hluta jarðarinnar og hitastig lækk-
ar. Sólin verður líkt og svart, hring-
laga tómarúm sem næfurþunnur
bjarmi umlykur og er kallaður kór-
óna sólarinnar. Væri tunglið stærra
myndi sólkórónan ekki sjást og í
staðinn fyrir þessi fjarstæðu-
kenndu ljósaskipti sem verða við al-
myrkvann myndi hversdagslegt
næturmyrkrið hylja jörðina.
Ótímabært myrkur setur dag-
legt líf í dýraríkinu úr skorðum.
Hundar spangóla, fuglar hætta að
syngja, greifingjar yfirgefa bæli
sín, leðurblökur fljúga inn í
skammvinna nóttina og áttavOltar
kýrnar leggjast til svefns. f bresk-
um dýragórðum verða mörg stærri
dýranna lokuð inni í búrum sínum
svo þau verði sér ekki að voða og
mannfólkinu er víða ráðlagt að
leggja bflum sínum meðan á myrk-
vanum stendur, tfl að skapa ekki
hættu í umferðinni.
Goðsagnafyrirbæri
og friðarboði
Fyrir vísindamenn er sólmyrk-
vinn ekki síst áhugaverður fyrir
þær sakir að við hann fá þeir tæki-
færi tO að kanna frekar sólkórón-
una og aðra hluti sem á öðrum
stundum eru huldir mannsauganu
vegna birtunnar.
Almyrkvar eru í raun sjaldgæfir í
augum jarðarbúa og í gegnum ald-
irnar hafa þeir verið tilefni tO goð-
sagna og dómsdagspádóma, leitt
fólk i dauðann en stundum verið
taldir friðarboði.
Það var fyrir 2.583 árum, síðdeg-
is í Tyrklandi, sem á okkar dagatali
væri 28. maí. Herir Lydíu og
Medeu áttu í blóðugum átökum,
einum af mörgum í sex ára stríði
þeirra. Allt í einu var sem dregið
væri fyrir sólu fyrir ofan orrustu-
völlinn og eftir var lítið annað en
svart sár á himninum. Að sögn
Heródótusar varð þetta furðuverk
að eins konar váboða í augum her-
mannanna, sem lögðu niður vopn
sín hið snarasta og sömdu frið.
í elstu söguritum er fyrirbærinu
lýst með óhug og í fornu kínversku
riti voru áhyggjur manna af því að
„máni og sól væru ekki samstillt“
viðraðar. Líklegt er að þessi um-
mæli hafi átt við um sólmyrkva sem
átti sér stað 22. október 2134 fyrir
Krists burð. Kínverjar höfðu veru-
legar áhyggjur af sólmyrkvum og
réðu þeir til sín mann að nafni Hsi-
Hso, sem tekinn var í guðatölu, en
hann hafði það hlutverk eitt að
koma í veg fyrir sólmyrkva. Voru
þeir ófáir spámennirnir sem teknir
voru af lífi í Kína fyrir að bregðast
skyldu sinni.
Víða var sólmyrkvi talin merkja
að sólin væri að yfirgefa jörðina og
láta hana í hendur myrkrahöfðingj-
anum og árum hans. I ritum Asteka
er að finna heimOdir um það hvern-
ig konur og karlar grétu yfir því að
djöflar væru á leið til jarðar tO að
„éta okkur“.
Aðrar goðsagnir geymdu sögur
af skrímslum sem átu sólina, - líkt
og úlfurinn Sköll meðal Morse-
þjóðflokksins, dreki eða djöflahöfuð
í Indlandi, risafroskur í Víetnam og
vampíra í Síberíu.
Chippewa-indíánarnir í norðaust-
urhluta Bandaríkjanna brugðu á
það ráð að kveikja aftur í sólinni
með því að skjóta logandi örvum í
átt til hennar er sólmyrkvar áttu
sér stað. Astekar fórnuðu fólki með
kryppu og dvergum til að friða
Xolotl, aðstoðarmann sólarinnar, og
fá sólina til að skína á ný.
Sólmyrkvinn færði
Kólumbusi mat
Til eru heimOdir um að Babýlon-
íumenn hafi skráð upplýsingar um
sólmyrkva á 21. öld fyrir Krists
burð. Þá finnst það í ritum að menn
hafi spáð fyrir um sólmyrkva fyrir
u.þ.b. 2.500 árum og hefur gríski
heimspekingurinn Thales (625-546
f.Kr.) verið nefndur í því sambandi
þótt um það sé deilt. I augum
flestra voru sólmyrkvar hins vegar
yfirnáttúrulegt fyrirbæri og því
notuðu þeir sem til þekktu gjarnan
tækifærið til að sýna mátt sinn og
megin og ná sínu fram með því að
hræða aðra með vitneskju sinni.
Kristófer Kólumbus var einn af
þeim. Árið 1503, í fimmta leiðangri
sínum á Jamaíka, komst Kólumbus
í vandræði er indíánar í Santa
Gloria-flóanum neituðu
að skipta á mat og varn-
ingi. Kólumbus átti í fór-
um sínum dagatal þar
sem spáð var fyrir um
sólmyrkva 29. febrúar 1504. Til að
koma í veg fyrir hungur meðal
manna sinna brá Kólumbus á það
ráð lýsa því yfir að Guð væri í þann
mund að sýna vanþóknun sína á
hegðun indíánanna.
Loks kom að því að sólmyrkvinn
hófst og í örvæntingu sinni sárbáðu
indíánarnir landkönnuðinn um fyr-
irgefningu og Kólumbus „sann-
færði Guð um að hætta við að draga
fyrir sólu“ og fékk í staðinn gnægð
matar.
Vísindaleg þróun við
könnun á sólmyrkva
Edmond Halley, konunglegui-
stjörnufræðingur í Bretlandi, spáði
í smáatriðum fyrir um hvar sól-
myrkvi myndi verða í Englandi árið
1715. Frá þessum tíma var sól-
myrkvi þekkt fyrirbæri meðal vís-
indamanna víðs vegar og þeir hófu
að ferðast um heiminn með stjörnu-
sjónauka í fórum sínum til að kanna
fyrirbærið frekar. Margar uppgötv-
anir fylgdu í kjölfarið.
Prisma var með í fórum margra
vísindamanna eins og Jules Jans-
sen og Normans Lockyer. Þeir not-
uðu prismað til að tvístra ljósinu frá
sólkórónunni eftir lit við sólmyrk-
vann til að greina hvaða efni þar
væri að finna. Þetta var árið 1868
og þeim til mikillar undrunar birt-
ist gulur litur sem var svo skær að
frekari leit þeirra að efninu lauk
ekki fyrr en þeir komust að hvers
eðlis það væri. Efnið sem þeir
fundu skýrðu þeir helíum, í höfuðið
á gríska sólguðinum, Helios. Fund-
urinn var merkilegur fyrir þær sak-
ir að helíum er eitt algengasta
frumefni heims á eftir vetni.
Það var svo árið 1895 að Charles
Young sá græna línu í sólkórónunni
við sólmyrkva. Efnið var óþekkt og
skýrði hann það coronium. Árið
1939 komst sænskur eðlisfræðingur
svo að því að efnið var í raun járn,
en vegna hita þess í sólkórónunni
hafði enginn borið kennsl á það áð-
ur. Þetta þýddi að hiti sólkórsón-
unnar hlyti að vera yfir einni millj-
ón gráða á Celsíus, miklu meiri en á
yfirborði sólarinnar sem er um
5.500 gráður. Enn í dag er ekki vit-
að hversu heit sólkórónan er og er
það eitt af helstu rann-
sóknarefnum vísinda-
manna á sólmyrkvum.
Ekki má gleyma af-
stæðiskenningu Alberts
Einsteins, en árið 1919 tókst fimm
breskum vísindamönnum að færa
sönnur á hana er þeir fylgdust með
sólmyrkva frá Principe-eyjunum í
Gíneuflóa og Sobral undan strönd-
um Brasilíu.
Guillermo Gonzalez, stjörnufræð-
ingur við háskólann í Washington,
spáir því að sólmyrkvar muni líða
undir lok. Tunglið færist um fjóra
sentimetra frá jörðu á ári hverju og
sólin gildnar um allt að sex senti-
metra á ári. Samkvæmt kenningum
Gonzalez hefur mannkynið því „að-
eins,“ með þessu framhaldi, um 250
milljónir ára til viðbótar til að berja
fegurðina augum, hræðast dulræna
atburðinn eða fylgja myrkvanum í
Concord-þotum.
Spádómar um
að sólmyrkvar
líði undir lok