Morgunblaðið - 11.08.1999, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
JÓNA KRISTÍN JÓNASDÓTTIR,
Brúarflöt 7,
Garðabæ,
andaðist á heimili sínu mánudaginn 9. ágúst.
Sigurður Jónas Elíasson, Guðbjörg G. Guðmundsdóttir,
Kristinn Þór Elíasson,
Elín Dóra Elíasdóttir, Karl Gissurarson,
Linda Björg Elíasdóttir, Haukur Valdimarsson
og barnabörn.
"1“
Ástkaer eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR LÁRA JÓHANNSDÓTTIR
frá Lárusarhúsi Hellissandi,
Langeyrarvegi 20,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 12. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Styrktarfélag vangefinna.
Sverrir Örn Valdimarsson,
Guðmundur Ingvi Sverrisson, Kristín Karlsdóttir,
Valdimar Örn Sverrisson, Ingunn Hauksdóttir,
Þórður Sverrisson, Lilja Héðinsdóttir,
Lára B. Sverrisdóttir Borthne, Roald Borthne,
Vilborg Sverrisdóttir, Guðmundur Rúnar Guðmundsson,
Aðalsteinn Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 1. ágúst, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
12. ágúst kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á Styrktarfélag vangefinna.
Björn Stefánsson,
Stefán Björnsson, Gyða Guðbjörnsdóttir,
Heiga Björnsdóttir, Stefán Ágústsson,
Sveinn Björnsson,
Örn Björnsson, Þórdís Vilhjálmsdóttir,
Jón Björnsson, Svana Júlíusdóttir,
Þórdís Björnsdóttir, Stefán Sæmundsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og langalangömmubarn.
Innilegar þakkir til allra sem heiðruðu minningu
systur okkar,
FRÍÐU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Ljósalandi, Vopnafirði,
Stigahlíð 28,
Reykjavík.
Helgi Þórðarson,
Guðbjörg Þórðardóttir,
Steingrímur Þórðarson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför bróður okkar,
ALBERTS FERDINANDS ÓLAFSSONAR,
Leiðarhöfn,
Vopnafirði.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Steindór Ólafsson.
SIGURLINA ERLA
KRIS TINSDÓTTIR
+ Sigurlína Erla
Kristinsdóttir
fæddist á Siglufirði
8. júlí 1935. Hún lést
af slysförum 3.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Sigur-
björg Sigmundsdótt-
ir frá Vestarihóli í
Fljótum, f. 3. mars
1907, d. 16. febrúar
1984, og Kristinn
Zophanias Jóakims-
son frá Hvammi í
Fljótum, f. 27. maí
1902, d. 2. septem-
ber 1967. Systkini Sigurlínu
Erlu eru: Eufemia, f. 2.1. 1930,
Stefán Anton Eysteinn, f. 31.5.
1933, d. 28.3. 1934, Halldór
Baldur, f. 4.8.1939, d. 6.2.1983.
Hinn 29. mars 1959 giftist
Sigurlína Erla Jóni Bjarna
Jónssyni, f. 24. janúar 1933, og
eignuðust þau fjögnr börn. Þau
slitu samvistum 1996. Börn
þeirra eru: 1) Sigurbjörg Krist-
fn, f. 21.10. 1958, maki Daniel
Friðrik Haraldsson. Börn
Umferðarslysin gera ekki boð á
undan sér. Fólki er kippt svo snögg-
lega og óvænt í burtu, þegar síst er
von á því og maður heldur að slíkt
komi fyrir alla aðra en einhvem ná-
kominn sér. Nú var það móðir okk-
ar, sem lést svo snögglega. Hún
keyrði inn í eilífðina án þess að
nokkuð væri hægt að gera. Eftir
sitjum við böm, tengdaböm og
barnaböm og segjum bara ef, ef að-
eins, ef, ef. Við áttum okkur á því,
að það á enginn neitt í þessu lífi
nema andartakið. Við fæðumst til að
deyja og öðlast eilíft líf, en að sætta
sig við það er ekki alltaf auðvelt.
Móðir okkar átti góða bernsku á
Siglufirði. Hún ólst þar upp ásamt
systur og bróður við góðan aga for-
eldra sinna. Hún upplifði þar síldar-
árin, ástina og flutti til Akraness,
þar sem hún bjó æ síðan. Henni
þótti mjög vænt um bemskustöðvar
sínar og talaði oft um fjörðinn sinn
og fjöllin há. Ævi mömmu var eins
og hjá flestum, bæði súr og sæt, en
móðurhjartað var stórt og hún stóð
alltaf uppi sem sigurvegari. Við
gætum notað fjölmörg lýsingarorð
til að lýsa henni, en einfaldast er að
segja, að hún var falleg og góð kona
sem við elskuðum ákaflega mikið.
Móðir okkar hafði einstakan hæfí-
leika til að hlusta. Það var sama á
hvaða aldri barnabömin vora, hún
fór niður á þeirra plan og setti sig í
þeirra spor. Hún sat með þeim
yngstu á gólfinu við leik og samræð-
ur og hlustaði á unglingana segja
frá sínum leyndustu málum, sem við
hin í hraða lífsins sinnum ekki
nægilega vel.
Við upplifðum mömmu sem ung-
an heimsborgara. Hún vildi vera á
ferðinni. Henni þótti ákaflega vænt
um bílinn sinn, því hann var hennar
tengill við frelsið, sem hún sóttist
eftir hin síðari ár. Keyrt var út í
buskann á vinafund í Reykjavík eða
í Borgamesi. Þá leið henni best, á
ferðinni. Það var einmitt á slíkri
stundu sem hún lést, á leið að hitta
kæra vini, sæl og glöð, komin í sum-
þeirra eru: Erla
Björk Gunnarsdótt-
ir, Lilja Gunnars-
dóttir, Sigríður
Lína og Harpa Rós.
2) Lovísa Vilhelm-
ína, f. 27. júní 1960,
maki Sigurður Hall-
dórsson. Börn
þeirra eru: Aðal-
lieiður, Halldór Jón,
Aron Orn og Kon-
ráð Freyr. 3) Jón
Bjarni, f. 10. nóv-
ember 1961, maki
Eyrún Signý Gunn-
arsdóttir. Börn
þeirra eru: Eva Björg og Sædís
Björk. 4) Erlingur, f. 10. októ-
ber 1969, maki Hrafnhildur Erl-
ingsdóttir. Barn þeirra er Arn-
arHaukur.
Á Akranesi starfaði Sigurlína
Erla um árabil á Sjúkrahúsi
Akraness, en er hún lést var
hún starfsmaður Fjöliðjunnar á
Akranesi.
Útför Sigurlinu Erlu fer fram
frá Akraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
arfrí. En enginn veit sína ævi fyrr
en öll er.
Fasti punkturinn í lífi mömmu
var vinna hennar hjá Fjöliðjunni.
Þar leið henni vel og við færam öll-
um hennar vinnufélögum þakkir.
Og elsku vinir, Sigríður og Albert,
Sigríður og Bjöm og einkavinur
Þröstur, hafið elskulegar þakkir
fyrir allt sem þið vorað móður okk-
ar. Þið auðguðuð líf hennar og veitt-
uð henni bæði gleði og styrk.
Við óskum þeim er lentu í slysinu
Guðs blessunar og öllum þeim sem
hafa sýnt okkur samúð og stuðning
við andlát okkar yndislegu móður,
tengdamóður og ömmu. Drottinn
blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
Elsku amma mín. Þegar ég hugsa
um þig rifjast upp margar góðar
minningar. Þú varst mér alltaf svo
góð og vildir allt fyrir mig gera. Eg
kom oft til þín upp á Skaga og
dvaldi hjá þér dögum saman og
alltaf tókstu á móti mér með fallega
brosinu þínu og með útbreiddan
faðminn.
Við gerðum alltaf eitthvað
skemmtilegt saman, stundum keypt-
um við okkur ís og keyrðum upp í
sveit. Yfirleitt þykir mér leiðinlegt í
bíl, en þegar við voram að keyra
saman leið mér mjög vel. Við gátum
talað um allt og alltaf hafðir þú
áhuga á því sem ég hafði að segja.
Á kvöldin sátum við oft í stofunni
og spiluðum. Aldrei léstu á því bera
að þér fyndist það ekki skemmti-
legt. Svona varstu, elsku amma mín,
allt vildirðu gera til að gleðja aðra.
Mér finnst erfitt að hugsa til þess
að þú hafir látist í þessu hörmulega
slysi, en þú skildir eftir þig svo
margar góðar minningar, sem of
langt væri að telja upp hér, en þær
munu alltaf koma mér til þess að
brosa.
Elsku amma mín, ég vil þakka
þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina
inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt
til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
mig og allar þær stundir sem við
áttum saman.
Ástarkveðjur.
Þín,
Eva Björg.
Elsku amma.
Það er svo ótrúlegt að ég sitji nú
og skrifi minningargrein um þig,
þetta er allt enn sem í draumi. það
var bara fyrir nokkram dögum sem
við stóðum á afleggjaranum að
Hvammstanga, þú svo sólbrún og
falleg með bros á vör segjandi mér
að lifa lífinu og að vera hamingju-
söm. Ef ég hefði vitað að þetta yrði
okkar síðasta stund hefði ég aldrei
sleppt þér. En ég þakka góðum
vættum fyrir þessa ferð okkar sam-
an. Við náðum að tala og deila svo
miklu, eftir að hafa verið aðskildar í
hálft ár. Rifjuðum upp okkar. góðu
stundir, m.a. þegar við bjuggum
saman, og allt það sem við höfum
gengið saman í gegnum. Þó svo að
það hafi verið erfiðar stundir á
tímabili, er ég þakklát fyrir hverja
mínútu af þeim, því þær færðu okk-
ur nær hvor annarri og mynduðu
sérstök tengsl á milli okkar sem
aldrei, aldrei verða tekin frá okkur.
Eg er að reyna, elsku amma, að
vera sterk, það er bara svo erfitt
þegar einum af máttarstólpum lífs
míns er kippt undan mér án nokk-
urs fyrirvara, alltof snöggt. Ég
hefði aldrei getað trúað þeim sárs-
auka og því tómarúmi sem því fylg-
ir, því ég er ekki aðeins að missa þig
sem ömmu, stórglæsilega konu með
hlýjan, dýrmætan persónuleika og
útgeislun sem hreif alla með sér,
heldur varstu mín besta vinkona.
Það var svo gott að koma hlaup-
andi í fangið á þér og smjúga undir
vangann þinn. Þú varst alltaf til
staðar og naust þess að hlusta á öll
smáatriði sem á gengu í lífi mínu,
ástarsorg, vandamál, velgengni,
hamingja, ósætti...þú lagaðir allt og
samgladdist svo innilega.
Elsku amma, takk fyrir allt. Ég
er óendanlega þakklát fyrir að eiga
þig að, ög þótt þú sért nú á öðram
og fjarlægum stað ertu ætíð hjá
mér. Minningin um þig brosandi,
hlæjandi og fellandi gleðitár, lifir að
eilífu. Ég þarf ekki annað en að loka
augunum og þá heyri ég í þér og sé.
Góða ferð í gullvagninum.
Þín elskandi,
Aðalheiður.
Elsku amma.
Það er svo margt sem ég vil fá að
segja þér að ég veit varla hvar ég á
að byrja. Ég vil byrja á því að
þakka þér fyrir allar minningarnar
sem að þú skilur eftir hjá okkur, all-
ar ökuferðimar upp í Borgames,
gönguferðimar, öll samtölin við eld-
húsborðið, hláturinn þinn, brosið
þitt og hlýja vangann. Þessar yndis-
legu minningar um þig, elsku
amma, hafa verið mér mikill styrk-
ur í gengum þetta erfiða tímabil.
Þú hafðir alveg einstaka þolin-
mæði gagnvart okkur bamabömun-
um, þú gafst þér alltaf tíma til að
deila með okkur gleði og sorg. Þér
fannst ekkert sjálfsagðara en að
koma og slást í hópmn og þú varst
alltaf svo velkomin. Ég veit ekki um
margar ömmur sem fresta því að
hengja út þvottinn bara til að
barnabömin geti notað allar
þvottaklemmumar hennar í bíla-
leiki, eða leyft okkur að hertaka
stofugólfið undir dúkkuleik. En
þetta fannst þér svo sjálfsagt því
allt vildir þú fyrir okkur gera.
Ég man eftir síðustu stund okkar
saman. Þú stóðst við bflinn þinn og
varst á leiðinni norður með Aðal-
heiði. Ég sé þig svo greinilega fyrir
mér, svo geislandi fallega og glaða.
Ég man sérstaklega eftir síðasta
faðmlaginu rétt áður en þið rennduð
úr hlaði. Það var svo gott að fá að
kúra undir vanganum þínum.
Ég tel mig og fjölskyldu mína hafa
notið mikillar blessunar að hafa
fengið að kynnast svo yndislegri
manneskju sem amma mín var.
Hvíl í friði, elsku amma, ég elska
þig-
Þín að eilífu,
Lilja.