Morgunblaðið - 11.08.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 45
________ _________________________ C
FRÉTTIR
Kvöldferð út
í óvissuna
FERÐAFÉLAG íslands efnir í
kvöld, miðvikudagskvöldið 11.
ágúst, til fróðlegrar og spennandi
kvöldgöngu út í óvissuna. Heim-
sóttur verður forn aftökustaður í
nágrenni Reykjavíkur undir leið-
sögn Páls Sigurðssonar lagapró-
fessors.
Brottför frá BSÍ, austan megin,
og Mörkinni 6. Verð er 1.000 kr.
og frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna.
--------------
Gengið á
milli fjarða
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur íyrir gönguferð í kvöld,
miðvikudagskvöld, frá Hafnarhús-
inu að vestanverðu kl. 20. Farið
verður upp Grófina, Ingólfstorg og
Víkurgarð, með Tjörninni, um
Hljómskálagarðinn og eftir Njarð-
argötunni suður í Litla-Skerja-
fjörð.
Til baka með Sundskálavík í
Skerjafirði, um Grímstaðaholtið og
Melana og Suðurgötu niður á höfn.
Allir velkomnir.
Stofnfundur „Verndum
Laugardalinn“
STOFNFUNDUR samtakanna
„Verndum Laugardalinn“ verður
haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, mið-
vikudaginn 11. ágúst kl. 18.
Á fundinum verður kosið í
stjórn, lög samtakanna samþykkt
og hugmyndir að aðgerðum
kynntar.
Nánari upplýsingar um fund-
inn má fá á heimasíðu samtak-
anna, www.laugardalurinn.is, og
með tölvupósti, verndum@laug-
ardalurlnn.is.
Lýst eftir
bifreið
RAUÐU Suzuki Baleno GL
fólksbifreiðinni OU-307 var
stolið af Smiðjuvegi 56, Kópa-
vogi, annaðhvort 6. eða 7.
ágúst sl. Þeir sem verða bif-
reiðarinnar varir eru beðnir
um að hafa samband við lög-
regluna í Kópavogi.
# _ Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Tveir fyrir emn
SEM kunnugt er bjóða veitingastaðir stundum upp ferðamannapar, sem var á göngu í rigningunni í
á svonefnd tveir-fyrir-einn-tilboð, tveir matargestir Reyjavík, virðist hafa rekist á svipað tilboð í úti-
greiða aðeins verð einnar máltíðar. Þetta samrýnda vistarverslun.
Skólastjórnendur
áhyggjufullir veg'na
menntunar barna
FJÓRÐA þing ICP, alþjóðasam-
taka skólastjórnenda, var haldið í
Helsinki, höfuðborg Finnlands, 12,-
15. júlí síðastliðinn. Þingið sátu yfir
900 skólameistarar, skólastjórar,
aðstoðarskólameistarar, aðstoðar-
skólastjórar, aðstoðarstjórnendur,
yfirkennarar frá 40 löndum víðs-
vegar um heiminn - Evrópu, Amer-
íku, Afríku, Eyjaálfu og Ásíu, þar á
meðal sex fulltrúar frá Islandi.
Á þinginu voru rædd ýmis mál er
snerta menntun, skólastarf og áhrif
þess á mannkynið um víða veröld.
Af því tilefni var gerð eftirfarandi
samþykkt á lokadegi þingsins:
„Þingfulltrúar ICP hafa þungai-
áhyggjur af þeim áhrifum sem
stríð, borgaraleg óeirð, fordómar
og óréttlæti hafa á menntun millj-
óna barna um allan heim. Nefna má
þjóðernishreinsanir á Balkanskaga,
aflimanir og aðrar líkamsmeiðingar
í Sierra Leone, tilviljanakenndar
skotárásir ökuþóra í Los Angeles,
vinnuáþján barna og þrúgandi fá-
tækt í Suður-Asíu, flóttamannabúð-
ir um víða veröld svo nokkuð sé
nefnt. Börn eru rifin frá heimilum
sínum, foreldrum, menningu og
þannig komið í veg fyrir að þau geti
sótt skóla, nám, - komið í veg fyi-ir
að þau geti lagt grunn að betri
framtíð sér til handa og samfélaga
sinna.
ICP skorar því á Sameinuðu
þjóðirnar að þrýsta á þátttökuþjóð-
ir sínar að sjá tO þess að innan
námskrár viðkomandi ríkja og í
námsefni því sem þar er notað frá
lægstu þrepum náms til hinna
efstu, séu þættir sem blása æsk-
unni í brjóst anda friðsamlegrar
sambúðar, löngun til að læra um og
virða aðra menningarhópa, án til-
lits til þjóðernis, kynþáttar, litar-
hafts, trúarbragða, sögulegs bak-
sviðs, eða annars sem gerir mann-
kynið jafn fjölbreytt og raun ber
vitni. Ef einungis broti þess fjár-
magns, sem nú er varið í styrjaldir
og hatur, yrði varið til þess að reisa
skóla, útbúa námsgögn og til þess
að kenna börnum um fegurð og afl
mannlegrar fjölbreytni myndu
fleiri börn eiga sér bjartari fram-
tíð. Það er því von þingfulltrúa
ICP, að stigin verði skref til þess
að ýta undir slíka þróun og opna
þannig huga barna til þess að
virkja þá miklu möguleika sem í
þeim búa. Við verðum að mennta,
ekki einungis með staðreyndum og
tölum heldur einnig til að efla þol-
inmæði. Án þessa mun mannkynið
dæmt til að eyðileggja einu ómet-
anlegu auðlindina sem það sannar-
lega á, - börn sín og þar með fram-
tíð sína.“
Vinstri hreyfingin -
grænt framboð
Sumarferð að
Eyjabökkum
og Dimmu-
gljúfrum
VINSTRIHREYFINGIN - grænt
framboð efnir til tveggja daga ferð-
ar um hálendið norðan Vatnajökuls
helgina 14.-15. ágúst nk.
Lagt verður upp frá Egilsstöð-
um að morgni laugardags, farið að
Hafrahvömmum og Kárahnjúkum
og þaðan í Snæfellsskála þar sem
hópurinn gistir yfir nóttina. Að
morgni sunnudags verður svo far-
ið í gönguferð um Eyjabakka-
svæðið.
Nú þegar hafa á milli 50 og 60
manns skráð sig í ferðina og gisti-
rými í skálanum er þrotið. Þeim
sem vilja slást í hópinn er bent á að
taka með sér tjöld og tilkynna þátt-
töku. Þessi ferð er samvinnuverk-
efni framkvæmdastjórnar flokks-
ins og kjördæmisfélagsins á Aust-
urlandi. í tengslum við ferðina
mun þingflokkur Vg funda á Egils-
stöðum nk. föstudag.
Verð frá 8.995,-
stærðir 36-42
STEINAR WAAGE
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Reykjavík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjavík
Simi 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
pirrmi kaisi:k
HAUST- OG
VETRARLlNAN
inrii
Bankastræti 9 • Sími 551 1088
HÉR & NÚ / SÍA