Morgunblaðið - 11.08.1999, Síða 46
J 46 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
BRÉF TIL BLAÐSINS
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósm.: G.L. Ásg.
GLÆSILEGT bjálkahúsið var reist á bæjarstæði þessarar aldar í
Furufirði, en þar stóðu, sambyggð að kalla, stofúhús frá 1913 og húsið,
sem enn er uppi, byggt 1933. Notalegur sumarbústaður 1972-1994.
Bænhúsið í Furufírði
- 100 ára bygging
Frá Ágústi Sigurðssyni:
AUSTURSTRANDIR Hornstranda
eru í Grunnavíkursveit og voru þar
kallaðir Strandabæirnir í sókn og
hreppi. Ytrisveitin, sem Stranda-
menn kölluðu megin byggðina, er í
™ Jökulfjörðum, en Austurstrandir
nyrzt við Húnaflóann, milli Geir-
hólms og Horns í (Norður-)ísafjarð-
arsýslu og prófastsdæmi.
Strandabæirnir voru útnári í Stað-
arsókn í Grunnavík og með fádæm-
um afskekkt og afskipt byggð, en
einangrunin því tilíinnanlegri, að
hvert hinna sex fombýla var heimur
út af íýrir sig með þeim landamær-
um, að sæbrött hamrafjöll aðskilja
firði og víkur.
I greinaflokki í Heima er bezt í
haust og vetur mun Agúst Sigurðs-
* son frá Möðruvöllum rekja
söguminni frá Austurströndum, en
hér skal þess getið, að í þessum mán-
uði eru liðin 100 ár frá því er bænhús-
ið í Fururfiði var reist. Var Strönd-
ungum mikil nauðsyn á guðshúsi og
kirkjugarði, því að hálf önnur þing-
mannaleið er til sóknarkirkjunnar á
Stað, nær 56 km, frá Reykjarfirði og
Smiðjuvík yfir heiðar og háskörð að
sækja um jökulósa og miklar torfær-
ur, en jafnvel frá Furufirði, þaðan
sem kirkjuvegurinn er „aðeins“ ein
þingmannaleið, var líkflutningur að
Stað 5 daga erfið og dýr ferð, gat orð-
ið 9 daga harðræði á vetur.
Loks varð úr byggingu bænhúss-
ins 1899. Var Benedikt Hermanns-
4 son í Reykjarfirði yfirsmiður og
verkinu að fullu lokið í ágústmánuði.
Dróst úr hömlu, nær 3 ár, að bæn-
húsið yrði vígt, þjónustan veitt og
unnt að jarða lík i Furufirði. Verður
síðar sagt frá þeirri auðmýkingu og
íþyngjandi bið.
Hinn 11. júlí sl. var aldargamallar
byggingarinnar minnzt, er undirrit-
aður flutti kirkjudagsræðu í
Furufirði í messulok á fermingar-
degi Einars Birkis Sveinbjömsson-
ar, sem í móðurætt er frá Furafirði
og Reykjarfirði. Séra Magnús Erl-
ingsson á ísafirði messaði og fermdi
sóknarbarn sitt. Forsöngvari var
Reynir Ingason og Bjöm Teitsson
skólameistari las ritningargreinar.
. Meðhjálpari var Valgerður Jakobs-
dóttir frá Reykjarfirði, en hún var
síðasta fermingarbam séra Jón-
mundar Halldórssonar í bænhúsinu,
þegar Furufjörður var að fara í eyði.
3 bændur fóm þaðan 1949, hinn 4. og
síðasti árið eftir. Reykjarfjörður hélzt
áratug lengur í byggð og voru síðustu
búendur þar Ragnar Jakobsson og
Sjöfn Guðmundsdóttir, sem raunar
hafa jafnan verið þar á summm, unn-
ið rekavið og byggt upp ferðaþjón-
ustu. í Reykjarfirði var fyrrum bæn-
hús, þar sem heitir á Kirkjubóli og
þar var yngsta dóttir þeirra hjóna
i fermd 1992, en krosstákn reist á hinu
* ævagamla kirkjustæði.
í Furufjarðarsókn, eins og séra
Jónmundur skráði endranær þenna
afskekkta hluta sóknarinnar á bæk-
ur, vom 116 manns á sálnaregistri á
aldamótum, en aðeins 2 búendur
taldir sæmilega bjargálna. Lífsskil-
yrðin vora kröfuhörð og aðstæðum-
ar gáfu sjaldnast undanfæri.
Fyrir 4 ámm söng séra Magnús
FERMINGARDRENGURINN á
aldarafmæli bænhússins, for-
eldrar hans og sóknarprestur
þeirra. Minningarhempan (t.h.)
var skilin eftir á helgisetri
hinnar auðu sveitar.
Erlingsson einnig fermingarmessu í
Furafirði og á hásumri 1993 sókti
mikið fjölmenni kirkjudaginn, en þá
messaði sóknarpresturinn, séra Sig-
urður Ægisson í Bolungarvík, séra
Jón Isleifsson í Árnesi las ritningar-
lestra og prófasturinn, séra Baldur
Vilhelmsson í Vatnsfirði, predikaði,
sem lengi mun minnzt, en kollega
þeirra á Prestbakka flutti hátíðar-
ræðu í ljósi liðinnar sögu á Austur-
ströndum. Var þá nýreist á staðnum
mikið, norskt stokkahús og smíði alit
vandað og fallegt. Vel nýtt sumar-
langan daginn í hinum einangraða
eyðifirði, en afkomendur síðustu bú-
enda þar margir og samstíga um
hvaðeina, sem má verða til sóma
Furafjarðar og hinnar fornu byggð-
ar „á hala veraldar" eins og Þórleif-
ur Bjarnason kallaði Homstrandir. -
Á messu- og minningardaginn nú
efndu foreldrar fermingardrengsins,
Hlíf Guðmundsdóttir og Sveinbjörn
Björnsson, til veglegrar veizlu og
var hátíðarbragur í hinum glæsilegu
húsakynnum.
í tilefni aldarafmælis bænhúss-
ins gaf undirritaður Furufjarðar-
sókn og kirkju prestshempu og
kraga, er vaðveitt skal á staðnum,
presti og heimamönnum til léttis,
en hemputaskan sígur í á þriggja
stunda göngu yfir Skorarheiði milli
kirkjustaðarins og Skipeyrar í
Hrafnsfirði. Gjöfin er til minningar
um saumakonuna Helgu Maríu
Eyjólfsdóttur, sem var 4 ára barn í
Smiðjuvík, þegar bænhúsið var
byggt.
Hempan þókti mjög vönduð, þeg-
ar Kristinn Einarsson klæðskeri,
síðast í Skjaldarvík við Eyjafjörð,
saumaði hana á séra Ingólf Þor-
valdsson á Ólafsfirði 1950. Eftir
daga síra Ingólfs, 1968, gaf ekkja
hans, frú Anna Nordal, vini þeirra
hjóna hempuna, en hann bænhúsinu
nú í minningu Maríu frá Smiðjuvík,
sem hann kynntist í hæstum aldur-
dómi hennar í öðra landi.
ÁGÚST SIGURÐSSON
frá Möðruvöllum.
VELVAKAJVDl
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kynningii
ábótavant
EG vil vekja athygli á því
að síðastliðið laugardags-
kvöld var sýnd í sjónvarp-
inu norsk sjónvarpsmynd
þar sem þrir íslendingar
áttu m.a. þátt í gerð
myndarinnar. Það voru
þau Karl Júlíusson, sem
sá um leikmyndagerð,
ásamt Skúla Magnússyni
og Guðrúnu Benónýsdótt-
ur. Sjónvarpið var ekki
með kynningu um þessa
mynd og nefndi hvergi að
að þessari mynd stæðu
þessir íslendingar. Það
hefði einhvern tíma þótt
saga til næsta bæjar að
Islendingar kæmu að gerð
svona góðrar myndar. Það
hefði verið gaman að fá að
vita meira um þetta fólk
áður en myndin var sýnd
og hefði sjónvarpið mátt
vera betur vakandi.
Sjónvarps-áhorfandi.
Tiskublöð og snið
ÁSA hafði samband við
Velvakanda og sagðist hún
vegna flutninga þurfa að
losna við tískublöð og snið
sem hún hefur safnað til
margra ára, bæði ný og
gömul. Þeir sem hefðu
áhuga á að eignast þessi
blöð og snið geta haft sam-
band við Ásu í síma
567 5863.
Dýrahald
Ljósgrá kanína í
óskilum í Langagerði
LJÓSGRÁ kanína með
brúnan blett á hnakkanum
og hvítan dindil er í óskil-
um í Langagerði 72. Þeir
sem kannast við kanínuna
hafi samband við Guð-
mund í síma 581 4454 eða
695 2664.
Konni er týndur
SVARTUR, geltur högni,
8 ára með hvíta bringu,
kvið og hvíta sokka á fót-
um, hvarf að heiman frá
sér í Hólahverfi í Breið-
holtinu 27. júlí og hefur
ekki komið heim síðan.
Hann er eymamektur
R3H069. Hann er forvitinn
og gæti hafa leitað í bíl-
skúra eða kjallara og jafn-
vel farið langt að heiman
en hann átti heima í mið-
bænum fyrir tveimur ár-
um. Þeir sem hafa orðið
varir við kött sem þessi
lýsing á við vinsamlega
hringi í síma 587 7553 eða
894 1567. Fundarlaun.
Steingrár kettlingur
í óskilum
6 mánaða steingrár kett-
lingur, afar blíður og gæf-
ur, hefur verið í vanskilum
við Ásholt við Laugaveg
undanfarna daga. Þeir sem
kannast við kisu hafi sam-
band við Kattholt í síma
567 2909.
Kettlingur í óskilum
í Hveragerði
LITILL kettlingar, svört
og hvít læða, með svarta
hálsól ómerkt ca tveggja
til þriggja mánaða fannst
fyrir utan Eden í Hvera-
gerðmi sl. fóstudag. Þeir
sem kannast við kisu hafi
samband í síma 483 5116.
Tapað/fundið
Græn úlpa týndist
við Langá
ÞUNN græn úlpa með
hvítu fóðri týndist nálægt
Langá á Mýrum 5. ágúst
sl. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 553 8607.
Á Austurvelli.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji skrifar...
KJALVEGUR hefur lengstum
ekki verið mjög fjölfarinn en
umferð hefur þó farið vaxandi um
hann ár frá ári þótt fjallvegur sé.
Eftir að Seyðisá var brúuð árið
1994 jókst umferðin að mun enda
má nú fara um Kjöl á fólksbíl. Vík-
verji mælir hins vegar ekki með
því að leggja þá raun á fólksbíla al-
mennt. Skrifari er það gamall í
hettunni að hann man Kjalveg án
brúar yfir Sandá og Seyðisá og
þegar farið var um þessar slóðir
fyrir aðeins tveim til þremur ára-
tugum var hending að mæta bíl.
Hægt var að aka frá Bláfellshálsi
og jafnvel allt norður að vegamót-
unum að Kerlingarfjöllum án þess
að sjá til ferða annarra. Ef einhver
var á ferð var sjálfsagt að stöðva
og skiptast á upplýsingum um veg-
inn.
Þetta er liðin tíð. Um síðustu
helgi var umferðin slík að á fárra
mínútna fresti mættu Víkverji og
samferðarmenn bílum og oft vildi
einhver komast framúr. Þá voru
hestamenn á ferð og fólk á reið-
hjólum. Þetta eru vinsælar slóðir
enda stórkostleg fjallasýn á svo
björtum degi sem síðasti laugar-
dagur var.
Vegagerðin telur öðru hverju
umferð á hálendinu og þannig jókst
umferð frá sumrinu 1990 úr 64 bíl-
um á dag í 102 bíla fimm árum síð-
ar. Þetta er mikil aukning og mun
meiri en almenn umferðaraukning
í vegakerfinu þennan tíma. Árið
1997 var mest umferð 190 bílar á
dag norðarlega á Kjalvegi seint í
júlí en sé umferðinni jafnað út er
hún kringum 30 bflar á dag að
meðaltali. Ekki er talið reglulega á
hálendinu, heldur á nokkurra ára
fresti og ræður fjárveiting tíðni
talningarinnar.
xxx
UR því farið er að tala um akst-
ur má minnast á þann hvim-
leiða sið sumra ökumanna að gera
enga tilraun til að hægja á sér þeg-
ar þeir mæta bílum á malarvegum.
Menn þekkja vitaskuld að sé haldið
fullri ferð ausa bflar möl og grjóti
yfir þann sem á móti kemur sé fæt-
inum ekki sleppt af bensíngjöf rétt
á meðan bílar mætast. Það á ekki
síst við ef menn mætast í beygju
þannig grjótkastið leitar enn frek-
ar yfir á hinn vegarhelminginn.
Víkverji varð nokkrum sinnum fyr-
ir þessu á norðurhluta Kjalvegar
þar sem vegurinn er vel uppbyggð-
ur og leyfir ágætan hraða en það
leysir ökumenn ekki undan þeirri
skyldu að sýna þessa sjálfsögðu til-
litssemi. Hitt er ruddaskapur.
XXX
ÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi á
þriðjudagskvöld í síðustu viku
áhugaverða mynd um danska
heimspekinginn Soren Kierke-
gaard. Framlag Ríkissjónvarpsins
til myndarinnar var íslenskur texti.
Það vakti athygli kunningja Vík-
verja að þýðanda Sjónvarpsins
tókst ekki svo mikið sem einu sinni
að stafsetja rétt í þýðingu sinni
nafn hins danska heimspekings.
Ávallt stóð Kirkegaard en ekki
Kierkegaard.