Morgunblaðið - 11.08.1999, Page 56
Heimavörn
Sími: 580 7000
SfafggnMiifeife
Drögum næst
24. ágúsl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 66911S1
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Breikkun Vesturlands-
vegar gengur vel
Lokið hálfu
*ári á undan
áætlun
FLEST bendir til að framkvæmdum
við breikkun Vesturlandsvegar við
Grafarholt ljúki í nóvember næst-
komandi, sex mánuðum á undan
áætlun.
„Ráðgert var að opna veginn 15.
júní árið 2000 en við áætlum að skila
af okkur verkinu í nóvember næst-
komandi,“ sagði Eiður Haraldsson,
framkvæmdastjóri verktakafyrir-
tækisins Háfells, sem vinnur að þvi
að breikka veginn á um 1,5 km kafla
austan Víkurvegar að Suðurlands-
U*fegi.
Vegna framkvæmda hefur Víkur-
vegi verið lokað og umferð í Grafar-
vog eingöngu farið um Gullinbrú.
Samkvæmt umferðardeild lögregl-
unnar í Reykjavík hefur Gullinbrú
haft vel undan að bera umferðina.
■ Sex mánuðum /16
■ Umferðin gengið/16
Piltur féll
fjóra metra
ÁTJÁN ára piltur féll fjóra
metra niður af þaki húss, sem
hann var að vinna við á Kirkju-
bæjarklaustri, síðdegis í gær.
Pilturinn var við vinnu á þak-
inu er hann rann til og féll nið-
ur. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var kölluð til og flutti hann á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Að
sögn lækna þar er hann illa
slasaður og liggur á gjörgæslu-
deild en er ekki talinn í lífs-
hættu.
, Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FRYSTITOGARINN Ymir nam nánast við botn Hafnarfjarðarhafnar síðdegis í gær, eftir að sjór hafði flætt inn í hann með þeim afleiðingum að á
hann kom slagsiða og hann valt í kjölfarið. í gærkvöldi var unnið að því að dæla sjó úr skipinu og var vonast til að það rétti sig af á fjöru í nótt.
Tugriiilljóna tjón er Ymir
sökk í H a fn ar íj ar ð a rh ö fn
TUGMILLJONA króna tjón er talið hafa orðið þegar frystitogarinn Ýmir
HF-343 lagðist á hliðina við Suðurbakkann í Hafnarfjarðarhöfn um klukkan
10.30 í gærmorgun. I gærkvöldi var unnið að því að dæla sjó úr skipinu.
•- Rafstrengur að Leifsstöð skemmdist við skurðgröft í gær
Truflanir urðu í þriggja
tíma rafmagnsleysi
RÚMLEGA þriggja
tíma rafmagnsleysi í
flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar, viðhalds-
stöð Flugleiða, Suð-
urflugi og víðar í
gær olli margs kon-
óþægindum en
varaaflstöðvar fóru í
gang og varð því
ekki nein truflun að
ráði á afgreiðslu
flugfarþega eða
flugvéla. Orsökin
var að kapall
skammt frá flugvell-
inum skemmdist
þegar grafíð var fyr-
ir umferðarskilti.
Rafmagn fór af
laust fyrir hádegi en
var komið á að nýju
jjjjokkru eftir klukkan þrjú. Ómar Kri-
stjánsson, settur forstjóri Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar, tjáði Morgun-
blaðinu að rafmagnsleysið hefði vald-
ið ýmsum óþægindum en dísilrafstöð
í Leifsstöð hefði strax tekið við og því
hefði rafmagn verið á öllum nauðsyn-
legum starfsstöðvum en lýsing í hús-
inu í lágmarki. Innrita þurfti flugfar-
Jiega handvirkt um tíma en brátt
Tomust tölvur í gagnið á ný og
Morgunblaðið/Golli
VINNA mátti í flugeldhúsi við Ijóstýru fremur en vera verklaus
meðan rafmagns naut ekki við.
flugupplýsingakerfið einnig. Af-
greiðslukassar í verslunum fengu
líka fljótlega rafmagn frá dísilstöð-
inni. Omar sagði bilunina hafa komið
á góðum tíma, mitt á milh álagstíma
morguns og eftirmiðdags.
Aukið öryggi með varastreng
Ekki varð mikil truflun á af-
greiðslu flugfarþega og búið var að
afgreiða mat frá flugeldhúsinu fyrir
síðdegisferðirnar. Þá
varð lítils háttar
truflun í tölvum í við-
haldsstöð Flugleiða
en engar skoðanir
véla áttu að fara
fram fyrr en síðast-
liðna nótt. Ekki varð
heldur truflun hjá
Suðurflugi þar sem
ekki var von á vélum
þangað síðdegis í
gær en þar hefur
vararafstöð ekki ver-
ið komið upp ennþá.
Skuggsýnt var á
nokkrum stöðum í
flugstöðinni og lá
verslun niðri um
tíma en bjargast var
við kertaljós á
nokkrum stöðum í
húsinu.
„Við höfum af þessu tilefni velt
fyrir okkur einu sinni enn hvort leiða
ætti vararafstreng að flugstöðinni,11
sagði Ómar, „hvort rafmagnsveitan
ætti ekki að koma fyrir varastreng
svo að óhöpp sem þessi, sem eru
okkur algjörlega óviðkomandi, trufli
ekki starfsemina. Það væri enn eitt
skrefið í átt að auknu rekstraröryggi
stöðvarinnar."
Skipið, sem er 541 brúttótonn,
sökk í höfninni á örfáum klukku-
stundum en efsti hluti þess stóð upp
úr og héldu þrír kranar því í skorð-
um í gærkvöldi, þegar freista átti
þess að ná því upp á lágfjöru. Fyrri
tilraunir í gærdag til að koma því á
réttan kjöl höfðu farið út um þúfur.
Um tíu manns voru við vinnu í
skipinu þegar það tók að hallast en
þeim tókst að komast klakklaust upp
á hafnarbakkann. Áttu sumir þeirra
fótum sínum fjör að launa.
Jafnvægi skipsins úr skorðum
„Skipið fór að halla allt í einu. Við
héldum að verið væri að hífa eitthvað
þungt um borð og héldum áfram að
vinna. En síðan hélt það áfram að
hallast og þá sagði ég við Magnús,
„við skulum forða okkur héðan, það
er eitthvað miklu meira að en verið
sé að hífa einhvern þungan hlut.“
Þetta var ekki eðlilegt," segir Sig-
urður Pétursson vélvirki sem var við
vinnu í vélarrúmi skipsins ásamt fé-
laga sínum.
Talið er að sjór hafí flætt inn um
slorlúgur skipsins þegar verið var að
dæla olíu um borð. Að sögn Ágústs
Sigurðssonar útgerðarmanns skips-
ins voru botntankar skipsins tómir
sem hafði áhrif á jafnvægi þess.
Sjórinn braut sér leið um stóran
hluta Ýmis, þar á meðal káetur skip-
veija og vélarrúm.
I gærkvöldi var unnið við að dæla
sjó úr skipinu og um klukkan 23.30
var farið að dæla úr vélarhúsi og
lest. Ekki var sjáanlegt að skipið
væri farið að rétta sig af en von var á
fjöru níu mínútum eftir miðnætti. Að
sögn Ásgeirs Sölvasonar skipstjóra á
hafnsögubátnum Þrótti, sem fylgdist
með aðgerðum, hafði nokkuð af olíu
lekið úr skipinu í flotgfrðingu en
unnið var að því á dælubflum að dæla
henni jafnóðum upp.
Það slys varð á hafnarbakkanum í
Hafnarfirði í gærkvöldi að maður
sem þar var að fylgjast með
aðgerðum datt illa og er talinn
fótbrotinn. Hann var fluttur á slysa-
deild.
I Lagðist á hliðina/6
Morgunblaðið/Jim Smart
Sjúkrabíll í árekstri
ENGINN slasaðist þegar sjúkrabíll
og fólksbíll lentu saman á gatna-
mótum Snorrabrautar, Miklubraut-
ar og Bústaðavegar á niúnda tfm-
anum í gærkvöldi. Sjúkrabílinn var
í útkalli þegar hann ók með blikk-
ljósum og sírenum yfir gatnamótin
en enginn sjúklingur var í bflnum.