Morgunblaðið - 01.10.1999, Side 14

Morgunblaðið - 01.10.1999, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Leikskólarnir Sólbrekka og Mánabrekka eru frumkvöðlar í tölvuvinnu barna Kennslan þótti fráleit í upphafi Á LEIKSKÓLUNUM Sól- brekku og Mánabrekku hefur á undanförnum miss- erum verið unnið að þróun verkefnis sem kallast „Skapandi notkun tölvu í ieikskólastarfí." Markmið- ið með tölvuvinnu barna í leikskólum er að veita þeim forskot á framtíðina og gera öllum kleift að kynnast notkun tölvu á uppbyggilegan og skap- andi hátt. Notkun tölva í leikskólastarfí er nýjung hérlendis og eru leikskól- arnir á Selfjarnarnesi fnimkvöðlar á þessu sviði. Að sögn Ásdísar Þorsteins- dóttur aðstoðarleikstjóra á Sólbrekku og verkefnis- stjóra hefur vinnan gengið sérlega vel, þó svo að ýms- um hafi í upphafi þótt fá- ránlegt að hefja tölvu- kennslu í leikskólum. Ásdís segir að Sólbrekka og Mánabrekka séu einu leikskólarnir sem hafi unn- ið skipulega að þróun tölvuvinnu meðal barna í leikskólum fram að þessu. Verkefnið fékk styrk frá menntamálaráðuneytinu í fyrravetur og framhalds- styrk til að halda þróunar- starfínu áfram í vetur. Börnin áhugasöm og læra mikið „Þetta hefur gengið al- veg rosalega vel og mikil ánægja verið með verkefn- ið, enda hefur það fengið að þróast áfram hægt og rólega,“ segir Ásdís. Hún segir að áhersla sé lögð á að tölvurnar séu ekki sett- ar á sérstakan stall þar sem börnin einangri sig í einhverri tölvuveröld. Far- ið er með tölvurnar eins og hvert annað leiktæki og börnin læra að vinna sam- an á tölvurnar og umgang- ast þær sem eðlilegan Börn að leik í tölvuveri Sólbrekku. Þau vinna ævinlega tvö og tvö saman á tölvurnar. því að vinna á tölvu og er það eitt meginmarkmiðjð með verkefninu, segir Ás- dís. Hún segist ekki sjá mun á strákum og stelpum hvað tölvufærni varðar, en hins vegar sjáist greinileg- ur munur á börnum eftir því hvort tölva er fyrir á heimilinu eða ekki. Soffía Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Sól- brekku, telur að tölvuvinna barna á Ieikskólum sé hluti af þeirri þróun sem eigi sér stað f þjóðfélaginu. „Fyrir nokkrum árum gat enginn skilið af hverju leikskólastjórar þyrftu tölvur. Það sama var uppi á teningnum þegar við vildum fá tölvur fyrir börnin. Þetta þótti alveg fáránlegt. En þróunin er bara svo ör allt í kringum okkur, að við verðum að fylgjast með,“ segir Soffía. Morgunblaðið/Eiríkur P. Evu Björk Davíðsdóttur og Hjalta Ragnarssyni þykir skemmtilegt að vinna í tölvunni og voru áhugasöm. Arn- ar Þór fylgdist vel með. Hafnarfjördur Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála Frestun fram- kvæmda við Fjarð argötu hafnað hluta umhverfisins. Börnin hafa lært mikið, að sögn Ás- dísar, og verið áhugasöm. Þau kynnast því hvemig tölvan starfar og hvemig tölvuhlutirnar starfa saman sem ein heild. Bömin læra að kveilqa á tölvunni og ganga frá henni eftir notkun. Þau læra hvað táknin á skjá- borðinu merkja og vita að það er forrit á bak við hveija táknmynd. Þá læra þau að opna forritin og hvemig á að vinna með þau. Þau læra að vista verkefnin í möppur og sækja þau aftur síðar. Ásdís segir að áhersla sé lögð á að bömin læri að fikra sig áfram í stað þess að kenna þeim hveija hreyfingu. í dag em það aðeins elstu bömin í leikskólanum sem nota tölv- urnar reglulega. Hluti af þróun þjóðfélagsins Á leikskólanum vinna börnin með tölvurnar sem skapandi leiktæki en heimafyrir hafa þau oft kynnst tölvum í gegnum stríðsleiki og ofbeldisleiki. Með tölvuvinnu á leikskól- um er einnig stefnt að því að jafna stöðu barnanna á þann hátt að allir kynnist ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og byggingar- mála hefur hafnað kröfu um að framkvæmdir við bygg- ingu hússins Fjarðargötu 19 verði stöðvaðar meðan nefndin leggur efnislegt mat á kæru 16 Hafnfirðinga vegna málsins. Nokkrir nágrannar og eigendur nálægi-a húsa kærðu ákvörðun bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar frá 29. júní sl. um að samþykkja breytingu á deiliskiplagi miðbæjar hvað varðar Fjarðargötu 19 og veitingu byggingarleyfis á lóðinni og kröfðust þess að þær yrðu felldar úr gildi. Síðar kröfð- ust kærendur þess að fram- kvæmdir yrðu stöðvaðar en jarðvinna á lóðinni er hafin og framkvæmdir við bfla- kjallara og undirstöður hússins. Kærendur telja að grenndarkyningu hafi verið áfátt og að ekki sé fullnægt kröfum um bílastæði fyrir nýbygginguna, auk þess sem formaður skipulagsnefndar bæjarins og nefndarmaður í byggingamefnd hafi verið vanhæfir í málinu. Meiri kynning en Iögskylt var Úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingarmála hef- ur kæruna enn til efnislegr- ar meðferðar en felldi á mið- vikudag úrskurð þar sem kröfunni um stöðvun fram- kvæmda var hafnað. I niður- stöðu nefndarinnar segir að sú málsástæða kærenda að grenndarkynningu hafi verið áfátt eigi ekki við í málinu en í kynningu á tillögunni, sem fram fór samkvæmt auglýs- ingu, hafi m.a. verið sýndir deiliskipulagsuppdrættir svæðisins fyrir og eftir aug- lýsta breytingu. Kynningar- fundur með nágrönnum hafi verið haldinn, umfram það sem lögskylt er. „Er það álit úrskurðarnefndarinnar að kynning umræddrar breyt- ingar á deiliskipulagi hafi fullnægt ákvæðum greinar 5.5. í skipulagsreglugerð nr. 400/1998 um form og efni,“ segir í niðurstöðunni. Þá segir: „Við mat á því hverjar kröfur um bflastæði eigi að gera vegna hinnar umdeildu nýbyggingar verð- ur að líta til þess að sam- kvæmt gildandi deiliskipu- lagi miðbæjar Hafnarfjarðar er almennt ekki gert ráð fyr- ir því að bflastæðum sé ætl- aður staður á lóðum ein- stakra húsa á svæðinu norð- an Lækjargötu og vestan Strandgötu heldur er þeim komið fyrir á opnum svæð- um í eigu bæjarins. Slíkt fyr- irkomulag er heimilt að ákveða í deiliskipulagi og verður ekki talið að með samþykkt umdeildrar ný- byggingar hafi, svo augljóst sé, verið gengið gegn ákvæð- um skipulagsreglugerðar eða skilmálum gildandi deili- skipulags. Verður ákvörðun um stöðvun framkvæmda því ekki reist á þessum ástæðum, en úrskurðar- nefndin mun við efnisúr- skurð í málinu taka afstöðu til þess hvaða áhrif aukið byggingarmagn á lóðinni nr. 19 við Fjarðargötu kunni að hafa á kröfur um fjölda bfla- stæða miðbæjarsvæðisins og að hvaða marki líta beri til ákvæða skipulagsreglugerð- ar nr. 400/1998 við ákvörðun um fjölda stæða á svæðinu. Ekki verður heldur fallist á að vanhæfi nefndarmanns eða nefndarmanna leiði hér sjálfstætt til þess að fallast beri á kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda, en nánar verður fjallað um þá málsástæðu kærenda í efnis- úrskurði.11 Seltjarnarnes Foreldrar motmæla hækkun leikskólagjalda Vitanlega hrekkur fólk við, segir bæjarstjóri Seltjarnarnes FORELDRAR á leikskólan- um Mánabrekku á Seltjarn- arnesi héldu fund í gær til að mótmæla 20% hækkun leik- skólagjalda, sem taka gildi í dag. I ályktun fundarins er þess krafist að hækkunin verði dregin til baka. „Þessi hækkun er að mati fundar- manna úr öllum tengslum við eðlilega þróun verðlags hér á landi síðastliðin miss- eri,“ segir í ályktuninni. Þá segir m.a. að ekkert sveitar- félag á landinu hafi eins háar útsvarstekjur á hvern greið- anda og Seltjarnarnes og því hljóti að vera hægt að hlífa þeim fjölskyldum sem eru viðkvæmastar fyrir hækkun- um sem þessum. Einnig kemur fram í mótmælunum að foreldrafélagið óskar eftir fundi með bæjarstjórn til að finna farsæla lausn á málinu. „Vitanlega hrekkur fólk við þegar það sér svona tölur. Það gerðum við líka,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri í samtali við Morgun- blaðið aðspurður um mót- mæli foreldranna. I Morgunblaðinu í gær gagnrýndi Hermann Vals- son, formaður foreldrafé- lagsins, hækkunina, m.a. á þeim forsendum að ekki hafi verið haft samráð við for- eldra, sem eigi að bera helm- ing rekstrarkostnaðarins, og vegna hins að útsvarstekjur Seltjarnarness hefðu hækk- að svo mikið að eðlilegt væri að bærinn tæki á sig stærri hluta hækkunarinnar. Skil sjónarmið foreldra „Ég skil sjónarmið for- eldra mæta vel en eins og fram hefur komið höfum við verið að reyna að auka gæði þjónustunnar sem voru að vísu ágæt fyrir en alltaf er hægt að bæta um betur,“ sagði Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum fjölgað þarna verulega fag- lærðu fólki og gert viðbótar- kjarasamninga, við faglært starfsfólk og ófaglært, sem hefur fengið töluverðar hækkanir út úr nýju starfs- mati. Þannig að þetta er sá blákaldi veruleiki sem við horfðumst í augu við.“ í ályktun foreldra segir að bæjarstjórninni hafi borið að hafa samráð við foreldra áð- ur en ráðist var í kostnaðar- auka vegna þeirrar hefðar að foreldrar beri helming rekstrarkostnaðar við leik- skólann á móti bænum. „Samráð er ágætt,“ sagði bæjarstjórinn, „og á vissu- lega fullan rétt á sér en ég held að það sé mjög óalgengt í svona rekstri að það sé haft vegna þess að þarna erum við að selja ákveðna þjón- ustu og þetta eru okkar við- Morgunblaðið/Árni Sæberg Foreldrafundur var haldinn á Mánabrekku vegna hærri leikskólagjalda. skiptavinir þótt þeir séu eig- endur fyrirtækisins líka.“ Um þá gagnrýni foreldra að Seltjarnarnesbær hafi hæstar útsvarstekjur á hvern greiðanda á landinu og hafi aukið útsvarstekjur sínar um 52% frá 1996 og hefði því átt að geta tekið á sig hækkunina sagði Sigur- geir að hækkunarþörfín hefði verið metin 29,8% en bærinn hefði tekið á sig þriðjung. Um útsvarshækk- anirnar sagði hann málflutn- inginn bera vott um þekk- ingarleysi á málefninu: „Á árinu 1997 þegar aðalhækk- unin er tekur bæjarsjóður, eins og aðrar sveitarstjórnir, við rekstri grunnskólans og þá fáum við frá ríkinu 2,70% skattstig til að standa undir kostnaði við rekstur gi-unn- skólans. Það er inni í þessari mynd og skekkir hana veru- lega. Sá hluti, sem bæjar- sjóður hefur tekið með eigin skattlagningu, hefur verið óbreyttur allan þennan tíma. En vitanlega hrekkur fólk við þegar það sér svona töl- ur. Það gerðum við líka.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.