Morgunblaðið - 01.10.1999, Blaðsíða 50
*>0 FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 1999
MINNINGAR
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞORGRÍMUR
* KJARTANSSON
+ Þorgrímur
Kjaitansson
fæddist í Hvammi í
Þistilfirði 26. sept-
ember 1920. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 22.
ágúst síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Þórshafn-
arkirkju 28. ágúst.
- Þó að árin séu orð-
in mörg og tíminn
hafi ef til vill verið
kominn er alltaf sárt
að kveðja. Sérstaklega ef um jafn
góðan mann og hann Togga afa
okkar er að ræða.
Minningarnar um stundirnar
með afa eru ótalmargar. Þær
fyrstu að norðan, frá Þórshöfn
þar sem þau Día amma bjuggu.
Það var erfitt og þreytandi fyrir
okkur ungar að sitja í bíl og bíða
eftir að komast á áfangastað, til
ömmu og afa. Ferðirnar virtust
engan enda ætla að taka. Þegar
þvottahúsdyrnar hjá þeim opnuð-
ust og á móti okkur tóku tveir út-
-*breiddir faðmar var þreytan þó
fljót að hverfa. Tíminn sem við
áttum með þeim á Þórshöfn var
fljótur að líða því alltaf var nóg að
gera og ýmislegt brallað. Veiði-
ferðirnar á Snætindinum þar sem
við nutum fumlausrar handleiðslu
sjómannsins hans afa okkar eru
ógleymanlegar. Á sjónum naut
Toggi afi sín best. Ekki sakaði
heldur að fá barnabörnin í heim-
sókn á sumrin og leiða þau í gegn-
um leyndardóma sjósóknarinnar.
;J^kki má heldur gleyma veiðiferð-
unum sem farnar voru á landi, þar
sem mesta spennan var sú hvort
fiskur fengist. Það brást sjaldan
því afi var glúrinn veiðimaður og
hafði næmt auga fyrir umhverfi
sínu. Afi var mikið náttúrubarn.
Göngur um fjöll og firnindi hvort
sem þær voru til þess að færa
björg í bú eða njóta náttúrunnar
gáfu honum mikið. í okkar huga
voru fáir sem þekktu sveitina sína
eins vel og hann og
unnu henni meira.
Eftir að amma dó
og afi flutti suður
fjölgaði samveru-
stundunum. Afi fór að
vinna hjá pabba og
var mikið hjá okkur.
Við búum lengi að því
að hafa haft hann hjá
okkur eins nærgæt-
inn og góðan og hann
var, alltaf tilbúinn að
leika eða ærslast.
Fátt gladdi fjöl-
skyldu afa meira eftir
að hann hætti að vinna en þegar
hann fór að venja komur sínar á
púttvöllinn. Það að hann hafði
alltaf eitthvað fyrir stafni og gat
notað tímann sér og öðrum til
ánægju var ómetanlegt. Afi var
hæverskur maður og dró úr frek-
ar en að ýkja. Það er þó ekki hægt
að neita því að fáir voru betri en
hann í púttinu, hvað sem hann
sagði. Verðlaunagripirnir hans
eru ótalmargir og bera vitni um
það. Afa verður án efa einnig sárt
saknað af félögum sínum á pútt-
vellinum.
Eftirminnilegustu stundirnar
okkar með afa síðustu árin voru á
Þorláksmessu. Tilhlökkunin um
að fara til afa, skreyta jólatréð,
hitta ættingjana, gæða sér á „hol-
lenska" hangikjötinu hans og
skiptast á gjöfum og kveðjum var
æðri þreytunni eftir jólastússið.
Hossandi barnabarnabörnunum á
hnjánum sagði hann „þetta eru
sko mín jól“. Þannig var hann afi.
Það verður tómlegt að setjast nið-
ur á Þorláksmessu án hans.
Sáttur við lífið og tilveruna hef-
ur hann kvatt okkur og gengið á
vit feðranna. Það er sárt að hugsa
til þess að eiga aldrei eftir að sjá
Togga afa aftur en allar góðu
minningarnar sem við eigum um
hann verða ekki frá okkur teknar
og við þær yljum við okkur um
ókomna tíð.
Helga, Oktavía og
Guðrún Kristín.
+
Hjartkær eiginkona mín,
HÓLMFRÍÐUR GÍSLÍNA HARALDSDÓTTIR,
Skeljastöðum 11,
Búrfellsvirkjun,
sem lést fimmtudaginn 23. september sl., verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstu-
daginn 1. október, kl. 13.30.
Helgi Arason.
+
JÓHANNA SIGRÍÐUR RUNÓLFSDÓTTIR
frá Háarima,
Þykkvabæ,
andaðist á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, föstudaginn 10. september.
Útförin hefur farið fram.
Systkinin frá Háarima.
+
Ástkær sambýliskona mín,
RANNVEIG INGIBJÖRG
SIGURVALDADÓTTIR,
frá Eldjárnsstöðum,
Safamýri 39,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju í dag,
föstudagínn 1. október, kl. 13.30.
Jón Vídalfn Karlsson.
A
Arsþing LH
Frestur til að
skila tillögum
rennur út í dag
LANDSSAMBAND hestamannafé-
laga heldur ársþing sitt í Borgar-
nesi 29.-30. október nk. Allar tillög-
ur sem leggja á fyrir þingið þurfa
að hafa borist skrifstofu LH í dag.
Að sögn Sigrúnar Ögmundsdótt-
ur á skrifstofu Landssambands
hestamannafélaga áttu öll kjörbréf
að hafa borist fyrir 25. september
sl. en einhver misbrestur er á því.
Þeir sem ekki hafa sent inn kjörbréf
geta gert það við þingsetningu en
þeim verða hins vegar ekki send
þinggögn fyrirfram eins og hinum.
Aðeins ein tillaga hafði borist
skrifstofu LH á miðvikudaginn en
frestur til að skila inn tillögum
rennur út í dag, 1. október. Þær
verða sendar þingfulltrúum og for-
mönnum félaganna 15. október nk.
og einnig skýrsla stjórnar og
skýrslur nefnda, en það hefur ekki
áður verið gert. Þingfulltrúar eiga
því þess kost að vera búnir að
kynna sér efni þeirra fyrir þingið.
Ný útflutnings-
og markaðs-
nefnd
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
hefur skipað nýja útflutnings- og
markaðsnefnd íslenska hestsins.
AJlir nefndarmenn eru nýir.
AÐ sögn Hákons Sigurgrímssonar
deildarstjóra í landbúnaðarráðu-
nejitinu sem er formaður nefndar-
innar er það algjör tilviljun að allir
sem störfuðu með nefndinni áður
séu hættir og aðrir teknir við.
Auk Hákons eru í nefndinni þeir
Ágúst Sigurðsson hrossaræktar-
ráðunautur og bóndi í Kirkjubæ
fyrir Bændasamtökin, Jón Vil-
mundarson bóndi í Skeiðháholti
fyrir Félag hrossabænda, Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir og Sig-
urður Sæmundsson bóndi í Holts-
múla fyrir Félag hrossaútflytj-
enda.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Skagfirskt stóð á heimleið af fjalli. Réttað verður i tveimur vinsælum
stóðréttum fyrir norðan á morgun, laugardag. Réttin í Víðidalstungu í
V-Húnavatnssýsiu hefst kl. 10 og Laufskálarétt í Skagafirði kl. 13.
Samninganefnd um
eflingu hrossaræktar
Fyrsti fundur nefndar sem landbúnaðarráðherra
hefur skipað til að semja við fagfélög í hesta-
mennsku um eflingu hrossaræktar í landinu var
haldinn á miðvikudaginn. Ráðherrann hefur
einnig farið fram á að Byggðastofnun kanni raun-
verulega veltu hrossaræktarinnar.Ásdís
Haraldsdóttir ræddi við Hákon Sigurgrímsson,
formann nefndarinnar.
NEFNDINNI er ætlað að gera
samning við Félag hrossabænda,
Landssamband hestamannafélaga
og Félag tamningamanna um efl-
ingu íslenskrar hrossaræktar.
Markmiðið er að stuðla að aukinni
fagmennsku innan greinarinnar,
laga stærð hrossastofnsins að
markaðsaðstæðum, ræktunar-
markmiðum og markmiðum um
hæfilega nýtingu landsins, styrkja
félagslega samstöðu hrossabænda
og bæta fjárhagslega afkomu
greinarinnar.
Að sögn Hákons Sigurgrímsson-
ar, deildarstjóra í landbúnaðar-
ráðuneytinu, formanns nefndarinn-
ar, var á þessum fyrsta fundi farið
yfir markmið samningaviðræðn-
anna. Næsti fundur hefur verið
boðaður eftir tvær vikur. Aðspurð-
ur hvort nefndin muni fjalla um til-
lögur Skagfirðinga um eflingu
hrossaræktar þar sagði Hákon að
óhjákvæmilega yrðu þær ræddar
og reynt yrði að samræma aðgerð-
ir svo ekki væri verið að vinna
sama hlutinn á mörgum stöðum.
Auk Hákons sitja í nefndinni
Bjarni Guðmundsson, formaður
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Skúli Skúlason, skólameistari
Hólaskóla, og Björn Barkarson,
beitarsérfræðingur hjá Land-
græðslu ríkisins.
Viðsemjendur nefndarinnar eru
Ágúst Sigurðsson, hrossaræktar-
ráðunautur fyrir Bændasamtökin,
Kristinn Guðnason, formaður Fé-
lags hrossabænda, Jón Albert Sig-
urbjömsson, formaður Landssam-
bands hestamannafélaga, og Ólafur
H. Einarsson, formaður Félags
tamningamanna.
Hákon sagði að nú væri verið að
vinna að ýmsum málefnum hrossa-
ræktarinnar í landbúnaðarráðu-
neytinu. Hann sagði að Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
teldi að mikil auðlind væri fólgin í
hrossaræktinni og vinna bæri að
því að greiða fyrir þróun innan
greinarinnar. Ekki væri fyrirhugað
að taka hrossaræktina á spena hins
opinbera heldur að liðka fyrir hlut-
um svo hægt sé að skapa forsendur
til að nýta þessi tækifæri.
Farið hefur verið fram á það við
stjórn Byggðastofnunar að gerð
verði könnun á raunverulegri veltu
innan hrossaræktarinnar. Sagðist
Hákon vona að sú vinna færi í gang
sem fyrst enda nauðsynlegt að
hægt væri að gera sér grein fyrir
hvaða verðmæti greinin skapar.
Ljóst sé að hestatengd ferðaþjón-
usta skapi til dæmis mikil verð-
mæti, einnig vinna við tamningar
og fleira. Þá væri forvitnilegt að
vita hvaða þýðingu landsmót hafa
fyrir byggðirnar þar sem þau eru
haldin.
Auk þess má nefna að unnið er
að því í ráðuneytinu að fá tolla af
hestum fellda niður í Evrópusam-
bandinu og að aflétta eða stytta
mjög sóttkví í Bandaríkjunum.