Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Varði
sig með
skæmm
MAÐUR á fertugsaldri var
fluttur á slysadeild með
stunguáverka á hálsi og hand-
legg eftir átök við jafnaldra
sinn og kunningja við Hag-
kaup í Skeifunni í Reykjavík í
gærmorgun. Meiðsl hans
reyndust ekki alvarleg.
Voru tiidrög átakanna þau
að maðurinn, sem slasaðist,
kom að máli við hinn, sem er
starfsmaður Hagkaupa og
spratt upp ágreiningur þeirra í
millum, sem endaði með því að
aðkomumaðurinn réðst á
starfsmanninn. Greip hann
skæri sér til vamar með þeim
afleiðingum að aðkomumaður-
inn fékk grunn stungusár. Þeir
voru báðir teknir til yfir-
heyrsiu lögreglu og sleppt að
þeim loknum.
Flækingar á
ferð og flugi
UM SÍÐUSTU mánaðamót fimdu
fugiaskoðarar sandþemu í Sand-
gerði. Þetta er í annað sinn sem þessi
stóra kríutegund finnst hérlendis en
sú fyrsta var í Eyjum 1987.
Sandþernur eru mjög ólíklegir
flækingsfuglar hér á landi enda
eru þær mest umhverfis Miðjarð-
arhafið í Evrópu að undanskild-
um lit.Ium stofni í Danmörku og
Þýskalandi.
Síðan ráku menn augun í am-
erískan söngfugl á stærð við
þúfutittling við Hvalsnes á Mið-
nesi. Sá fugl er af skríkjuætt og
heitir krúnuskríkja. Hún þekkist
m.a. á skærgulum gumpi. Þetta
er algengasta flækingsskríkjan á
Islandi en þetta er tólfti fuglinn
sem finnst hér.
Skríkjur vekja ailtaf mikla
hrifningu meðal evrópskra fugla-
skoðara enda ótrúlegt að svona
smáfuglar lifi af flugið yfir Atl-
antshaf. I Evrópu hafa fundist 24
skríkjutegundir, flestar á fslandi
og Bretlandseyjum.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá afhendingu úr Skógarsjóðnum á Bessastöðum í gær. Frá vinstri eru forseti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, Þorvaldur S. Þorvaldsson, Una Einarsdóttir, sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Skógrækt-
arfélags Breiðdæla, Magdalena Sigurðardóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd Skógræktarfélags ísfirð-
inga, Óðinn Elísson, sonur Sigrúnar Ein'ksdóttur, sem tók við styrknum fyrir hennar hönd, Guðmundur Hall-
dórsson og Magnús Gíslason, sem veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd Ræktunarfélags Arnarholts.
Morgunblaðið/Yann Kolbeinsson
Krúnuskríkja við Hvalsnes á Miðnesi.
Skógarsjóðurinn úthlutar styrkjum fyrir á sjöundu milljón
Styrkir hugsjónafólk
til að stunda skógrækt
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Islands og verndari Skógar-
sjóðsins, afhenti þeim sem hæstu
styrki hlutu úr sjóðnum viðurkenn-
ingarskjöl á Bessastöðum í gær. Er
þetta fyrsta starfsár Skógarsjóðsins
og voru að þessu sinni veittir styrk-
ir að andvirði á sjöundu milljón
króna.
Þorvaldur S. Þorvaldsson, for-
maður framkvæmdastjórnar Skóg-
arsjóðsins, sagði við afhendingu
styrkjanna í gær að markmið sjóðs-
ins væri að veita hugsjónafólki, sem
vildi rækta landið, styrki til þess.
Hann sagði að 40 umsóknir hefðu
borist sjóðnum og allir umsækjend-
ur hefðu hlotið styrk. Hæstu styrk-
ina að þessu sinni, að andvirði 500
þúsund krónur, hlutu Ræktunarfé-
lag Arnarholts, Sigrún Eiríksdóttir
að Hlíðarási í Kjós, Skógræktarfé-
lag Isfirðinga og Skógræktarfélag
Breiðdæla. Rannsóknarstyrk hlaut
rannsóknarhópur þriggja sérfræð-
inga, Guðmundar Halldórssonar,
Halldórs Sverrissonar og Guðríðar
Gyðu Eyjólfsdóttur. Hópurinn
stundar rannsóknir sem miða að því
að finna vamir gegn ryðsvepp á ösp
og gljávíði. Markmið rannsóknar-
innar er að finna með tilraunum
þær arfgerðir þessara tegunda, hér-
lendis og erlendis, sem hafa mikinn
viðnámsþrótt gegn ryðsjúkdómum.
Aflar fjár meðal annars
með gírótombólu
Skógarsjóðurinn aflar fjár með
frjálsum framlögum almennings. Á
þessu ári aflaði sjóðurinn fjár með
gírótombólunni en hagnaður af
henni nam um 15 milljónum króna.
Af því hefur verið úthlutað á sjö-
undu milljón, mest til skógræktar í
formi trjáplantna. Þorvaldur sagði
að aflað yrði fjár fyrir næstu styrk-
veitingu með annarri gírótombólu
sem ýtt yrði úr vör í lok október nk.
Þorvaldur sagði að sjóðurinn
ynni nú að því að eignast jarðir í
öllum landshlutum svo hægt yrði
að úthluta skikum til fólks sem
vildi vinna að því að græða upp
landið. Jafnframt miðaði sjóðurinn
að því að styrkja gerð náttúru-
farsúttekta og skipulags á svæðum
sem fólk ætlaði að gróðursetja í og
útgáfu upplýsingabæklinga um
málefnið.
3,5 milljónir
í sekt vegna
skattsvika
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
mann á fimmtugsaldri til fjögurra
mánaða fangelsisvistar, skilorðs-
bundið til tveggja ára, og til
greiðslu 3,5 milljóna króna sektar
til ríkissjóðs fyi-ir að hafa svikið all-
háar fjárhæðir undan tekju- og
virðisaukaskatti. Við ákvörðun refs-
ingar leit Hæstiréttur m.a. til bágs
heilsufars mannsins, sem og þess að
verulegur dráttur varð á meðferð
málsins í höndum skattyfirvalda.
Maðurinn rak eigið fyrirtæki frá
1992 til 1995. Hann var ákærður
fyrir að hafa komið sér undan
greiðslu virðisaukaskatts, fyrir að
færa virðisaukaskattskýrslur rang-
lega og fyrir að telja tekjur sínar
ekki rétt fram. AUs kom hann sér
undan að greiða nær 8 milljónir
króna í opinber gjöld.
Hæstiréttur segir brotin hafa
verið framin á löngum tíma og sýni-
lega af ásetningi. Maðurinn hafi
hins vegar ekki áður sætt refsingu.
Þá bendir Hæstiréttur á, að skatt-
yfirvöld hafi lokið rannsókn á brot-
um mannsins með skýrslu 15. nóv-
ember 1995, en hafi þó ekki beint
málinu til ríkislögreglustjóra fyrr
en með bréfi 25. júní 1998.
Að teknu tilliti til þessa, sem og
bágs heilsufars mannsins, staðfesti
Hæstiréttur dóm héraðsdóms um
fjögurra mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið til tveggja ára. Sektina
hækkaði Hæstiréttur hins vegar.
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 1 Reykjanesbæ
Skólamál og fjármál efst á baugi
Keflavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Frá upphafi aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem haldinn er um helgina í Reykjanesbæ.
„MÉR sýnist að málefni skóla, svo
og fjármál sveitarfélaganna verði
þau mál sem verða efst á baugi á
þessum aðalfundi," sagi Ellert Ei-
ríksson bæjarstjóri Reykjanesbæj-
ar við upphaf tuttugasta og annars
aðalfundar Sambands sveitarfélaga
á Suðumesjum sem hófst í Reykja-
nesbæ í gær. Ellert Eiríksson sagði
að ný lög um auknar kröfur í skóla-
málum kölluðu á aukin útgjöld
sveitarfélaga sem þau yrðu síðan að
finna lausn á og þessi mál yrðu
vafalítið í brennideplinum að þessu
sinni.
Við upphaf fundarins sagði Skúli
Þ. Skúlason formaður stjómar SSS
frá því sem efst hefði verið á baugi á
síðasta ári og að stjómin hefði fjall-
að um 174 mál. Meðal þess efnis
sem kom á borð stjómarinnar var
vargfugl á svæðinu og sagði Skúli
að sílamávur hefði bæði verið sveit-
arfélögum og íbúum til óþæginda.
Fuglinn hefði hafið varp við Faxa-
flóa um 1950. í talningu sem gerð
hefði verið 1990-92 frá Grindavík,
vestur fyrir og að Akranesi hefði
stofninn verið áætlaður 80.000 til
110.000 fuglar. Allar tilraunir til að
fækka fuglinum hefðu eingöngu
leitt til þess að hann færði sig til
innan svæðisins. Til að ná árangri
þyrfti að fella um 22.000 fugla á ári
og kostnaður við það yrði ekki undir
12 milljónum króna.
Meðal gesta við setningu fundar-
ins voru alþingismennimir Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra,
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra, Rannveig Guðmundsdóttir,
Þorgerður Gunnarsdóttir og Krist-
ján Pálsson. Auk annarra gesta má
nefna Vilhjálm Vilhjálmsson for-
mann Sambands íslenskra sveitar-
félaga, Magnús H. Guðjónsson for-
stöðumann Heilbrigðiseftirlits Suð-
urnesja og Eirík Hermannsson
skólamálastjóra.