Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 9
FRÉTTIR
Alþjóðleg-
ur upplýs-
ingadagur
um stam
ALÞJÓÐLEGUR upplýsingadag-
ur um stam verður föstudaginn 22.
október. Þá standa félög þeirra
sem stama víða um heim fyrir
kynningu á stami og stöðu og
vandamálum þeirra sem stama.
Á Netinu stendur nú yfir ráð-
stefna um stam og stendur hún til
22. október. Þangað má komast í
gegnum heimasíðu Málbjai-gar:
http77www.ismennt.iVvefir/malbjorg/.
Þessi dagur er eitt af mörgu sem
gert er til að kynna þetta vandamál,
sem of lengi hefur verið of falið.
Málbjörg, félag þeirra sem stama á
íslandi, stendur íyrir opnu húsi
fimmtudaginn 21. október kl. 16-19
í Þjónustusetri líknarfélaga að
Tryggvagötu 26, 4. hæð. Þar verða
flutt nokkur stutt erindi um stam,
auk þess sem færi gefst á að tala við
fólk sem stamar, foreldra barna
sem stama og talmeinafræðinga um
stam og aOt sem því tengist.
Vanþekking er eitt mesta
vandamálið
„Að 1% fullorðinna og 4% barna
stama vissir þú e.t.v. fyrir. Að ýms-
ar þekktar persónur eins og Win-
ston Churchill, Marilyn Monroe og
Albert Einstein stömuðu vissir þú
e.t.v. líka. En vissir þú að vanþekk-
ing er ennþá eitt stærsta vandamál
þeirra sem stama, sérstaklega
barna? Vissir þú að margir kennar-
ar vita lítið um stam og vanmeta
getu nemendanna vegna þess?
Vissir þú að foreldrar fá ennþá þau
svör víða á heilsugæslustöðvum að
þetta muni „eldast af“ börnunum
þeirra? Vissir þú að margt fólk
heldur ennþá að þeir sem stama
séu andlega vanheilir, taugaveikl-
aðir eða líkamlega fatlaðir? Vissir
þú að þeir sem stama, stama ekki
alltaf, t.d. ef þeir eru einir, syngja,
tala við dýr eða jafnvel þegar þeir
standa á sviði? Ög vissir þú að þú
getur á einfaldan hátt hjálpað þeim
sem stama til að stama minna?“
segir m.a. í frétt frá Málbjörg.
Síðan segir: „Það er alltof margt
sem almenningur veit ekki um,
sem leiðir til þess að þeir sem
stama eru lagðir í einelti, eru ekki
metnir að verðleikum og fá ekki að
þroskast á sama hátt og aðrir.
Margir fullorðnir velja sér störf
sem krefjast minni getu en þeir
hafa og draga sig út úr öllu félags-
lífi. Nemendur fá gjarnan einkunn-
ir eftir þátttöku og umræðu í
bekknum og einkunnir í lestri eru
enn víða gefnar eftir leshraða þótt
ótrúlegt sé.“
------♦♦♦
Eins árs
fangelsi fyrir
fíkniefnainn-
flutning
RÚMLEGA fertugur fyrrverandi
skipverji á togara frá Vestmanna-
eyjum var dæmdur í eins árs fang-
elsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær
fyrir brot gegn lögum um ávana-
og fíkniefni með því að hafa flutt til
landins 4 kíló og 948,8 grömm af
hassi og 1,6 grömm af marijúana í
janúar síðastliðnum.
Maðurinn faldi fíkniefnin um
borð í togaranum, sem kom til
Vestmannaeyja frá Bremerhaven
hinn 9. janúar, flutti efnin frá borði
og setti í bifreið, en upp komst um
smyglið þegar lögreglan stöðvaði
bifreiðina.
Fyrir dómi játaði ákærði brot
sitt og kvaðst hafa tekið að sér að
flytja fíkniefnin til landsins gegn
greiðslu. Hann hefur tvívegis hlotið
sekt fyrii- líkniefnabrot og einnig
verið dæmdur í skilorðsbundið
fangelsi fyrir auðgunarbrot.
DBAGTIR
ökr. 32.900 til 14.90of;
ÍS5S$1Í ú" j
JKUT kr. 6.900.
' kr. 5.900.
I.ítjr. Gáttagaact
POLARNO
El EIGNAMIÐLUNIN
Sverrir Kristinsson, lögg. fastsali.
Sími 588 9090 - Fax 588 9095 - Síðumúla21
OPIÐ I DAG LAUGARDAG KL. 12-15
PARHÚS 1 3JA HERB.
Samtún. Mikið endurnýjað 107 fm
parhús á 2 hæðum sem skiptist í 5-
6 herbergja íbúð auk stúdíóíbúðar í
kjallara sem er í leigu. Rúmgott
sérbýli á góðu verði. V. 9,9 m. 9088
HÆÐIR
Kambsvegur - sérhæð. 6-7 herb.
falleg um 182 fm efri sérhæð í bakhúsi
með innb. 30 fm bílskúr. Fallegt útsýni.
Ákv. sala. V. tilboð. 1561
4RA-6 HERB.
Bólstaðarhlíð. Vorum að fá í
einka-sölu u.þ.b. 85 fm 4ra herb.
íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Góð
sameign. Vesturvalir. Þrjú svefnher-
bergi. (búðin getur losnað fljótlega.
V. 7,5 m. 9064
Framnesvegur. Vorum að fá í
einkasölu fallega u.þ.b. 113 fm íbúð
á tveimur hæðum við Framnesveg í
vesturbænum ásamt stæði í
bílageymslu. Eignin er vönduð og er
m.a. parket á gólfum, góð innrétting
í eldhúsi, baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, snyrting og góð herbergi,
m.a. fataherbergi innaf. Vönduð
eign. 9078
Skógarás. Vorum að fá í
einkasölu fallega 5-6 herb. íbúð á
tveimur hæðum við Skógarás.
Eignin er alls u.þ.b. 140 fm og
skiptist hún m.a. í fjögur herbergi,
stofu, sjónvarpshol, eldhús með
búri innaf, snyrtingu og bað-
herbergi. V. 12,0 m. 9083
Kjarrhólmi. Vorum að fá í
einkasölu góða 3ja herb. íbúð á 3.
hæð við Kjarrhólma í Kópavogi.
Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús,
tvö herbergi, baðherb. og þvottahús
í íbúð. Blokkin er í góðu ástandi. V.
7,8 m. 9032
Maríubakki - góð. 3ja herb. um
78 fm falleg íbúð á 3. hæð.
Sérþvottah. innaf eldhúsi. Nýl. eld-
húsinnr. og parket. Ákv. sala. V. 7,5
m. 9086
2JA HERB.
Ljósvallagata. Vorum að fá í
einkasölu 50,5 fm 2ja herb.
kjallaraíbúð rétt við Háskólann.
Eignin skiptist í herbergi, stofu, bað-
herbergi og eldhús. Góð lofthæð.
Fín fyrir háskólanema. V. 5,5 m.
9014
Grettisgata. Vorum að fá í
einkasölu skemmtilega 67,6 fm
risíbúð við Grettisgötu. Eignin
skiptist í herbergi, stofu, bað-
herbergi og eldhús sem er opið inn í
stofuna. Parket og flísar á gólfum.
Nýtt rafmagn og nýjar pípulagnir. V.
5,9 m. 9016
Austurströnd m. bílskýli.
Vorum að fá í einkasölu fallega og
bjarta u.þ.b. 63 fm íbúð á 2. hæð i
lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu.
Parket og góðar innréttingar. Hús
og sameign í góðu ástandi. Getur
losnað fljótlega. V. 7,6 m. 9087
Síðir kjólar
Stærðir: Med.—XXL
Svartir, gráir, rauðir, bláir, grænir, hvítir
Síðar og stuttar kápur yfir
Eddufelli 2 - sími 557 1730.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15.
Buxnadragtir — pilsdragtir
kjóldragtir — hettudragtir
dragtir með pilsum og buxum
Allar með
15% afslætti
hJá^QýOafiihíUí
Engjatcigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
mm m ly m
miiuTÖ
kuldaskór
Teg. 8178
Litir: Svart/grátt og svart/svart
Fóöur: Ull
Sóli: Gúmmí
Stærðir: 22—35
Verð 3.990 kr.
samdægurs
Mikið úrval af barnaskóm
SKÓUERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 55A 1751
LauraStar +
Bylting í meðferð fatnaðar
Nýja línan frá
LauraStar er komin
LauraStar Compact
Árangurinn kemur á óvart
LauraStar Magic
Auðvelt á allan fatnað
LauraStar Steamax
Helmingi styttri strautími
Kynningar og sértilboð
í verslun okkar
dagana 18-22 október
Alþjóða Verslunarfélgið ehf.
Skipholti 5, 105 Reykjavík sími: 511 4100