Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Eiga kost á ferð Fyrirhuguð álbræðsla á Austurlandi Ekki sérstaklega leitað álits félags- málaráðuneytis EKKI hefur sérstaklega verið leit- að álits félagsmálaráðuneytisins vegna fyrirhugaðra virkjanafram- kvæmda á Austurlandi en Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra sagðist við umræður á þingi á miðvikudag fylgjast grannt með málinu. Greindi hann jafnframt frá því að von væri á niðurstöðum viðamikill- ar könnunar, sem ráðgjafarfyrir- tæki hefur unnið, um áhrif ál- bræðslu á Reyðarfjörð. Þetta kom fram við umræður sem urðu vegna fyrirspumar Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, til félagsmálaráðherra um áhrif stórrar álbræðslu á fámennt samfé- lag. Vakti Kolbrún athygli á því að einungis 700 manns byggju á Reyð- arfirði og aðeins um 3.300 í Fjarða- byggð allri. Gera mætti ráð fyrir að alls myndi íbúum fjölga um næstum 4.000 manns, rísi álbræðsla á svæð- inu, og slíkt myndi vitaskuld hafa miklar félagslegar afleiðingar í for með sér. í svörum Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra við fyrirspumum Kolbrúnar kom fram að ekki hefði verið sérstaklega leitað álits félags- málaráðuneytisins vegna fyrirhug- aðra framkvæmda. Enn fremur sagði Páll að ekki lægju fyrir upp- lýsingar um áhrif stóriðjufyrir- tækja á fámenn samfélög í öðmm löndum. „En mér fmnst mega leiða líkur að því að svipað muni verða uppi þar og hér um fábreytt atvinnulíf, að það sé áhættusamt í litlum byggðarlögum, alveg eins og þegar fiskur bregst eða kvóti fer, eða kvóti tapast, þá getur það haft mjög slæm áhrif á viðkomandi byggðar- lag,“ sagði Páll. Kvaðst hann telja að hið sama gilti um byggðarlög sem byggðust á málmbræðslu. „Ef t.d. vegna breyttrar tækni eða hráefnisskorts, eða af öðmm ástæðum, dregur úr framleiðslu snögglega þá skapast auðvitað mikill vandi.“ Páll vildi hins vegar ekki sam- þykkja það mat Kolbrúnar að fyrst og fremst yrði um hefðbundin karla- störf ef álbræðsla risi á Austfjörð- um. Minnti hann í því sambandi á að álverið í Straumsvík hefði fengið sérstaka viðurkenningu Jafnréttis- ráðs fyrir tveimur ámm. Það væri ennfremur hans mat að íbúum Aust- urlands mætti alveg fjölga. Kom síðan fram í lokaorðum fé- lagsmálaráðherra að ráðgjafarfyrir- tæki væri nú að vinna viðamikla könnun um áhrif á Reyðarfjörð. Skýrslan væri væntanleg og hann myndi að sjálfsögðu fylgjast vel með niðurstöðum hennar. Hafnaði á vegriði ÓHAPP varð á Nýbýlavegi við Álfabrekku í Kópavogi í morg- unumferðinni í gær þegar sendibifreið frá Blindravinnu- stofunni lenti í bleytu á vegin- um og hafnaði á vegriði. Ekki urðu nein slys á fólki að sögn lögreglunnar en nokkrar skemmdir urðu á undirvagni bifreiðarinnar og var hún dreg- in á verkstæði með dráttarbif- reið. Nokkrar tailr urðu á vöru- flutningum Blindravinnustof- unnar vegna óhappsins, en brugðið var á það ráð að taka bifreið á leigu til að annast flutninga dagsins. geisladiskar. Fyrstu vinning- arnir verða dregnir út í mars á næsta ári. „Að auki hvetjum við krakkana til að búa til slagorð gegn reykingum og höfum hugsað okkar að nýta þau slag- orð til dæmis á boli eða á húf- ur. Með þessu viljum við virkja sköpunarkraft nemendanna.“ Utandagskrárumræða um viðnám við byggðaröskun Stjórnvöld sökuð um að reka eyðibyggðastefnu STJÓRNARANDSTÆÐINGAR gerðu harða hríð að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks við utandagskrárumræður um viðnám við byggðaröskun, sem fram fór á Alþingi á miðviku- dag, og sökuðu þeir hana um að reka eyðibyggðastefnu. Davíð Oddsson forsætisráðherra mælt- ist hins vegar til þess að menn sameinuðust um að koma byggða- áætlun, sem gerð hefði verið í góðri sátt, í framkvæmd æsinga- laust og af fullri festu. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingar, var ómyrkur í máli í framsöguræðu sinni en það var hann sem fór fram á utandag- skrárumræðurnar. Hann rakti ný- birtar tölur Hagstofu Islands um búferlaflutninga fyrstu níu mán- uði ársins en þar kemur m.a. fram að 1.320 manns hefðu flutt af landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins á þessu tímabili, eða u.þ.b. fimm manns á hverjum degi. Kristján gerði einnig að umtals- efni mikinn kostnað sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu vegna þessara búferlaflutninga og gagn- rýndi harðlega byggðastefnu nú- verandi stjórnarflokka. Sagði hann að á valdaárum þeirra hefðu tæplega níu þúsund manns flutt frá landsbyggðinni til höfuðborg- arsvæðisins. „Hér áður fyrr var hægt að líta á Framsóknarflokkinn sem lands- byggðarflokk en það er ekki leng- ur hægt. Svik og gleymska fram- sóknarmanna í byggðamálum er alger. Sjálfstæðismenn yppta öxl- um og hafa einnig gleymt lands- byggðinni, enda uppteknir við að breiða út fagnaðarerindið um góð- ærið og reiknaðan metafgang af væntanlegum fjárlögum," sagði hann m.a. Skammur tími sagður til stefnu hélt því fram að orsök „landeyð- ingarinnar" væri sjávarútvegs- stefna stjórnarflokkanna. Einar Már Sigurðarson, Sam- fylkingu, taldi hins vegar að um vendipunkt hefði verið að ræða í umræðu um byggðavandann þeg- ar samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu hefðu á fundi sín- um um síðustu helgi samþykkt ályktun þar sem kallað var á að- stoð frá ríkisvaldinu til að geta tekið við þeim fjölda fólks sem streymdi til höfuðborgarsvæðis- ms. Margir þingmanna stjórnar- andstöðunnar kvöddu sér hljóðs í umræðum og m.a. sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, að ófremdarástand blasti við í byggðamálum. Fullyrti hann að skammur tími væri til stefnu ef bregðast ætti við því byggðahrun blasti við á mörgum stöðum innan 15 ára. Sighvatur Björgvinsson, Sam- fylkingu, sagði að ríkisstjórnin ætti mikla sök á því hvernig kom- ið væri og Jóhann Ársælsson, Samfylkingu, sagði stjórnina reka „eyðibyggðastefnu". Arni Steinar Jóhannsson, Vinstri grænum, sakaði stjórnvöld um að hafa van- rækt að móta stefnu í innanríkis- málum og Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, Morgunblaðið/Ásdís Menn sameinist um að fylgja byggðaáætlun eftir í andsvari við ræðu Kristjáns L. Möllers sagði Davíð Oddsson for- sætisráðherra, sem jafnframt er ráðherra byggðamála, það rétt að of mikið kvæði að flutningi fólks til höfuðborgarsvæðisins. Hann sagði slíka fólksflutninga hins vegar eiga sér skýringar, breytingar hefðu orðið á atvinnuháttum og viðhorf fólks hefðu breyst. Forsætisráðherra lagði áherslu á að nýrra leiða yrði leitað, fundnar yrðu nýjar atvinnugreinar og landsbyggðarbæjum skapað nýtt hlutverk. Undir þetta tók Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Fram- sóknarflokks. Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðisflokki, sagði hins vegar „grátklökkan æsing“ Kristjáns L. Möller ekki styrkja byggð í land- inu. Menn yrðu að hrinda byggðaá- ætlun í framkvæmd en ekki að kenna öðrum um eða frýja sig ábyrgð. Isólfur Gylfi Pálmason, Fram- sóknarflokki, lagði áherslu á að um sameiginlegan þjóðarvanda væn að ræða sem taka þyrfti á hleypidóma- laust og undir þau ummæli tók Da- víð Oddsson forsætisráðherra í lokaorðum sínum þegar hann full- yrti að fullur vilji væri til þess með- al stjórnarflokkanna að snúa vörn í sókn. Sagði hann að búið væri að samþykkja nýja byggðaáætlun og að hennar myndi sjá stað. „Og ég held að við ættum að strengja þess heit hér og nú, eins og við gerðum þá þessi áætlun var í undirbúningi, að fylgja henni fram hleypidómalaus, æsingalaust og aí fullri festu og eindrægni. Þá mun- um við sjá árangur," sagði forsæt- isráðherra m.a. Evrópusamkeppni meðal reyklausra bekkja til Berlínar REYKLAUSUM 7. og 8. bekkj- um grunnskóla landsins gefst kostur á að taka þátt í Evrópu- samkeppni reyklausra bekkja á þessu skólaári og er markmið keppninnar að hvetja nemend- ur til að vera „frjálsa og reyklausa" og fikta aldrei við reykingar. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk ungmenni taka þátt í þessari samkeppni en meðal verðlauna er ferð fyrir heilan bekk til Berlínar í júní árið 2000. Uppruna keppninnar má rekja til Finnlands fyrir níu árum en þátttökulönd eru nú orðin alls 14. Tóbaksvarnanefnd og Krabbameinsfélag Reykjavíkur standa að keppninni hér á landi en verndari hennar er Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra. Guðlaug B. Guðjóns- dóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavík- ur, segir að allir skólar lands- ins ættu að vera búnir að fá upplýsingar um keppnina og bendir á að reyklausir bekkir geti skráð sig til þátttöku til 20. október nk. Þátttakendur eiga siðan að senda staðfest- ingu til aðstandenda keppninn- ar einu sinni í mánuði um að bekkurinn sé reyklaus en sam- hliða því er m.a. ætlast til þess að bekkirnir vinni að verkefn- um í tengslum við tóbaksvarn- ir. Guðlaug segir að fleiri verð- laun verði í boði auk Berlínar- ferðarinnar til að mynda dags- ferðir fyrir tíu bekki á vit ævin- týranna, ferðageislaspilarar og Formaður Tóbaksvarnanefndar, Þorsteinn Njálsson, kynnir Evrópusamkeppnina, en við hlið hans situr Guð- laug B. Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Reyklausir nemendur úr sjöunda og áttunda bekk Álftamýrarskóla fylgjast grannt með.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.