Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.10.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 25 VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Krisyán Guðmundur Pedersen, framkvæmdastjóri Eimskips innanlands, Höskuldur H. Ólafsson, framkvæmdastjóri innanlandssviðs Eimskips, Benedikt Ingi Elísson, forstöðumaður Eimskips á Akureyri og Jón Stefánsson, forstöðu- maður innanlandsþjónustu Eimskips, kynntu nýtt nafn flutninganets VM. Allir bflar verða merktir eins með nafni flutninganetsins, Flytjandi. Flutninganet VM sameinað i Flytjanda FLUTNINGANET VM hefur fengið nýtt nafn, Flytjandi. Flutningsaðilar sem eru í flutn- inganetinu munu sameinast und- ir einu merki og verður ásýnd samræmd um allt land. Á blaðamannafundi í gær kom fram að Vöruflutningamiðstöð VM verður starfrækt áfram en nú sem vöruflutningamiðstöð Flytjanda í Reykjavík. Allir bflar verða merktir og þjónustan verður styrkt og samræmd um land allt. Nýtt farmskrárkerfi verður tekið í notkun sem sam- kvæmt upplýsingum Eimskips hf. mun auka upplýsingagjöf til viðskiptavina og bæta flutninga- stýringu. Að Flytjanda-netinu standa nærri þrjátíu flutningsaðilar og er það víðtækasta flutninganetið á landsvísu. Afgreiðslustaðir eru um 80 talsins og eru daglegar ferðar á flesta staði. Eimskip er stærsti einstaki flutningsaðili netsins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Á vegum Eimskips hefur að undanförnu verið unnið að nýju fyrirkomulagi þjónustu innan- lands. Fyrirtæki í eigu félagsins hafa verið sameinuð og þjónustu- miðstöðvar í hverjum landshluta efldar. Fyrirtækin Dreki hf., Viggó hf., og IsaQarðarleið ehf. hafa sameinast í einni rekstrar- einingu, Eimskip innanlands hf. Um áramót bætist síðan aksturs- deild Eimskips við. Hb LYFJA Lyf á lágmarksverði Frumkvöðull í lækkun lyfjaverðs á íslandi tyfja tágmula i Reykjavtk - Lyfja Setbergi i Hafnarfirði - Lyfja Hsmraborg i Köpavogi - Gœðavara Gjafavara — malar og kaffistell. Allir verðflokkar. . Heirrisfrægir hönnuðir m.a. Gianni Yersace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Áhyggjur vegna sam- keppni á símamarkaði Kaupmannahöfn. Morgunblaðiö. DANSKA símaráðið, sem fylgist með þróun símamarkaðarins hefur áhyggjur af að samkeppni á síma- markaðnum hafi að hluta til leitt til ógagnsæs verðsamanburðar. Tilboðin séu svo mörg og margvísleg að erfitt sé fyrir símanotendur að bera þau saman og velja þau hagstæðustu, þótt öll símafélögin nema Sonofon hafi ný- lega fallist á vissa samræmingu. Nýjasti angi fjölbreytninnar er til- boð Sonofon til fyrirtækja og stofn- ana um mjög ódýr símtöl, þar sem það er hins vegar helmingi dýrara að hringja til þeirra úr símum, sem ekki eru á vegum Sonofon. Það eru því þeir, sem hringja í númerin, sem greiða niður símtölin úr þeim. Stórir viðskiptaaðilar eins og fyr- irtæki og stofnanir eiga kost á marg- víslegum tilboðum frá símafélögum og Sonofon er með lægstu tilboðin. Sonofon lítur svo á að þeir séu að gera viðskiptavinum sínum mjög lág tilboð og sama sinnis eru mörg íyrir- tæki og stofnanir, meðal annars ýmis dönsk bæjarfélög, sem hafa simaá- skrift hjá Sonofon. Sonofon gerir viðskiptavinum sín- um hins vegar ekki glögga grein fyrir því að það eru í raun þeir sem hringja í þessa viðskiptavini Sonofon, sem greiða niður símtölin fyrir þá. Onnur símafyrirtæki taka um 9 aura fyrir þegar viðskiptavinur þeirra hringir í síma, sem er hjá öðru fyrirtæki. Hjá Sonofon kostar það 25 aura. Kostnaði velt yfir á bæjarbúa I viðtali við danska útvarpið sagði starfsmaður Fredericia-bæjarfélags- ins á Jótlandi að bæjarfélagið hefði valið Sonofon sökum þess hve fyrir- tækið byði lága taxta. Bæjarfélaginu hefði hins vegar ekki verið gerð grein fyrir að það væru í raun bæjar- búar, sem með símtölum sínum til bæjarfélagsins greiddu símakostnað bæjarfélagsins niður. Bæjarfélagið treystir sér þó ekki til að skipta um símafélag, því fjár- hagsáætlunin er miðuð við sparnað- inn, sem hlýst af lágum töxtum Sonofon. Það eru því ekki peningar aflögu til að greiða hærri taxta. Bæj- arfélagið hefur hins vegar bent íbú- unum á þennan kostnað, sem aðeins er hægt að losna við með því að skipta sjálfur við Sonofon. Þannig er bæjarfélagið í raun orðið hin besta auglýsing fyrir Sonofon. Þetta verðkerfi getur einnig boðið upp á ýmsa möguleika. I viðtali við Berlingske Tidende tók Allan Koch, aðstoðarframkvæmdastjóri Sonofon, undir að þetta verðkerfi byði upp á ýmsa möguleika fyrir fyrirtækið. Það væri til dæmis einkar freistandi fyrir Sonofon að leita sérstaklega eftir viðskiptum við fyrirtæki og stofnanir, sem hringja lítið út, en sem mikið er hringt í, til dæmis þjónustufyrirtæki af ýmsu tagi. Koch útilokaði ekki að það gæti ein- faldlega borgað sig fyrir Sonofon að greiða slíkum fyrirtækjum fyrir að hafa símaáskrift sína hjá Sonfon. Dönskum símafélögunum er fjálst að verðleggja þjónustu sína að eigin ósk, nema Tele Danmark, sem þarf samþykki ríkisins, því þó það sé nú orðið einkavætt er það langstærsta fyrirtækið á markaðnum. Þessi glæsilegi kaupauki fylgir þegar keyptar eru Lancöme vörur iLHmWdj 1 fyrir 3.500 kr. eða meira. Opið laugardag og sunnudag. H Y G E A Vertu velkomin, við tökum vel á móti þér. jnyrtivðruverélun KRINGLUNNI S ( M 1 533 4533 ❖ ♦ * ❖ ❖ ❖ ❖ Taska Hreinsir fyrir andlit og augu 50 ml HYDRA ZEN krem 15 ml Teint Idole farði 15 ml Varalitur nr. 76 Trésor 5 ml Kinnalitarbursti Verðmætí um 6.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.