Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 27 HÉR fara á eftir þær greinar gild- andi laga um stjórn fískveiða, sem kveða á hámarks aflahlutdeild eig- enda sjávarútvegsfyrirtækja, en það er 11. grein laganna: Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 7. gr. og 11. gr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein- staklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild eftir- talinna tegunda en hér segir: Hámarkstegund aflahlutdeild Þorskur.........................10% Ýsa............................ 10% Ufsi............................20% Karfí...........................20% Grálúða.........................20% Síld ...........................20% Loðna...........................20% Úthafsrækja.....................20% Nemi heildarverðmæti aflamarks annarra tegunda en að ofan greinir, sem sæta ákvörðun um leyfðan heild- arafla samkvæmt lögum þessum, við upphaf fiskveiðiárs hæri'a hlutfalli en 2% af heildarverðmæti aflamarks allra tegunda, sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla, má samanlögð aflahlutdeild fískiskipa í eigu ein- stakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila aldrei nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild viðkomandi tegunda en 20%. Skal ráðherra við upphaf fískveiðiárs til- gi-eina í reglugerð þær tegundir sem um er að ræða. Við mat á heildarverð- mæti aflamarks skal annars vegar miða við hlutfallslegt verðmæti ein- stakra tegunda á viðkomandi fisk- veiðiári eða veiðitímabili, sem ákveðið er af sjávarútvegsráðuneytinu, og hins vegar úthlutað aflamark ein- stakra tegundá á tímabilinu. Þá má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, ein- staklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila ekki nema meira en 8% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda sem sæta ákvörðun um leyfðan heildarafla, samkvæmt lög- um þessum og 5. gr. laga nr. 151/1996. Við mat á heildarverðmæti aflahlutdeildar skal annars vegar miða við hlutfallslegt verðmæti ein- stakra tegunda á viðkomandi físk- veiðiári eða veiðitímabili, sem ákveð- ið er af sjávarútvegsráðuneytinu, og hins vegar úthlutað aflamark ein- stakra tegunda á tímabilinu. Til aflahlutdeildar fískiskipa í eigu einstakra aðila skv. 1., 2. og 5. mgr. telst einnig aflahlutdeild fiskiskipa sem aðilar hafa á kaupleigu eða leigu til sex mánaða eða lengur. Tengdir aðilar teljast: 1. Aðilar, þar sem annar aðilinn, ein- staklingur eða lögaðili, á beint eða óbeint meiri hluta hlutafjár eða stofnfjár í hinum aðilanum eða fer með meiri hluta atkvæðisréttar. Fyrrnefndi aðilinn telst móðurfyrir- tæki en hinn síðarnefndi dótturfyrir- tæki. 2. Aðilar, þar sem annar aðilinn, ein- staklingur eða lögaðili, hefur með öðrum hætti en greinir í 1. tölul. raunveruleg yfírráð yfir hinum. Fyrrnefndi aðilinn telst móðurfyrir- tæki en hinn síðarnefndi dótturfyrir- tæki. 3. Lögaðilar, þar sem svo háttar til að sami aðili eða sömu aðilar, ein- staklingar eða lögaðilar, eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., eiga meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæð- isréttar í báðum eða öllum lögaðilun- um enda nemi eignarhlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæðafjölda í viðkom- andi lögaðilum. Sama á við ef aðili eða aðilar, einstaklingar eða lögaðilar eða tengdir aðilar skv. 1. eða 2. tölul., sem eiga meiri hluta hlutafjár, stofn- fjár eða atkvæðisréttar í lögaðila og hver um sig á a.m.k. 10% hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í lögaðil- anum, eiga ásamt viðkomandi lögað- ila meiri hluta hlutafjár, stofnfjár eða atkvæðisréttar í öðrum lögaðila. Til eignarhluta og atkvæðisréttar ein- staklinga í lögaðilum samkvæmt þessum tölulið telst jafnframt eignar- hluti og atkvæðisréttur maka og skyldmenna í beinan legg. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. má sam- anlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra lögaðila, eða tengdra aðila, nema allt að 12% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda skv. 2. mgr., eigi enginn aðili, einstaklingur eða lögaðili eða tengdir aðilar, meira en 20% af hlutafé, stofnfé eða at- kvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Hámark 20% hlutdeild Engar hömlur mega vera á viðskipt- um með eignarhluta í viðkomandi lögaðilum. Til eignarhluta og atkvæð- isréttar einstaklinga i lögaðilum sam- kvæmt þessari málsgrein telst einnig eignarhluti og atkvæðisréttur maka og skyldmenna í beinan legg. Ef um tengda aðila er að ræða þurfa báðir eða allir að fullnægja skilyrðum þess- arar málsgreinar. Það á þó ekki við um eignarhlut móðurfyrirtækis í dótturfyrirtæki. Samvinnufélög telj- ast fullnægja skilyrðum þessarar málsgreinar ef félagsaðilar þeirra eru 100 eða fleiri. 11. gr. b. Aðila ber, þegar fyrirsjáanlegt er að aflahlutdeild fiskiskipa aðila fari umfram þau mörk sem sett eru í 1., 2. eða 5. mgr. 11. gr. a, að tilkynna Fiskistofu flutning aflahlutdeilda, samruna lögaðila sem eiga fískiskip með aflahlutdeild, kaup á eignarhlut í slíkum lögaðilum og kaup, kaupleigu eða leigu á fískiskipi með aflahlut- deild. Þegar um tengda aðila er að ræða skv. 1. og 2. tölul. 4. mgr. 11. gr. a hvílir tilkynningarskyldan á móður- fyrirtæki en annars á þeim aðila er að gerningnum stendur. Þá ber lög- aðilum, sem eiga fiskiskip með afla- hlutdeild, að láta Fiskistofu reglu- bundið í té upplýsingar um eignar- hluta allra þeirra sem eiga 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæð- isrétti í viðkomandi lögaðila. Jafn- framt skal veita upplýsingar um eignarhluta einstaklinga og maka þeirra og skyldmenna í beinan legg sé samanlagður eignarhluti eða at- kvæðisréttur þeirra 10% eða meira af hlutafé, stofnfé eða atkvæðisrétti í viðkomandi lögaðila. Lögaðilum, sem eiga fískiskip með aflahlutdeild, ber enn fremur að upplýsa Fiskistofu um lögaðila sem þeir eiga eignarhlut eða atkvæðisrétt í og eiga fískiskip með aflahlutdeild. Fiskistofa skal meta þær upplýs- ingar sem aðili hefur látið í té og inn- an hæfilegs frests tilkynna aðila hver aflahlutdeild fiskiskipa hans er. Ef aflahlutdeild fiskiskipa í eigu ein- stakra aðila eða tengdra aðila fer um- fram framangreind mörk skal Fiski- stofa tilkynna viðkomandi aðila að svo sé og hve há umframaflahlutdeild hans er. Aðila skal veittur sex mán- aða frestur, frá því að honum sannan- lega barst tilkynningin, til að gera ráðstafanir til að koma aflahlutdeild- inni niður fyrir mörkin. Hafi aðili ekki veitt Fiskistofu upplýsingar um að fullnægjandi ráðstafanir hafi verið gerðar fyrir lok frestsins fellur um- framaflahlutdeildin niður. Skerðist þá aflahlutdeild fískiskipa í eigu við- komandi hlutfallslega miðað við ein- stakar tegundir. Við úthlutun afla- hlutdeildar í upphafi næsta fiskveiði- árs eftir lok frestsins skal skerðingin koma til hækkunar aflahlutdeildar fiskiskipa í eigu annarra. Hækkunin skal vera í réttu hlutfalli við aflahlut- deild fiskiskipanna af þeim tegund- um sem um ræðir. FRAMÚRSKARANDI, FJÖLVIRK DÍSELOLÍA Fjölvirk btetiefni í Gteðadísel ESSO „Premium DieselH Olíufélagið hf ESSO býður nú aðeins díselolíu sem uppfyllir Evrópustaðalinn EN 590 um umhverfisvemd - og til að auka endingartíma og tryggja þýðan gang vélarinnar bcetir Olíufélagið fjölvirkum bœtiefnum í alla sína dísélolíu. Einstákt frostþol - allt að -24°C Nú eru helstu kuldavandamálin einnig úr sögunni þar sem ESSO Gæðadísel þolir að vetrarlagi allt að 24 stiga frosti. ESS0 Gæðadíselolía inniheldur: • Dreifi- og hreinsiefni. • Cetanetölubcetiefni sem stuðlar að réttum bruna eldsneytis við öll skilyrði. • Smur- og slitvamarefni. • Tœringarvamarefni. • Antioxidant stöðugleikaefni. • Demulsifier vatnsútfellingarefni. • Froðuvamarefni. • Lyktareyði. • Bakteríudrepandi efnú Essoi ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - af hreinni hollustu við vélina og umhverfið. Olíufélagiðhf www.esso.is • Dregur úr reyk- og hávaðamengun. • Fullkomnar eldsneytishrunann vegna hœkkaðrar cetanetölu. • Kemur í vegfyrir að ol freyði við áfyllingu tanka. • Fullkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr eru með eða án forbrunaholfs. • Stenst ströngustu kröfur vélaframleiðenda - oggott betur! inniheldur ekki klór. Ver eldsneytiskerfið gegn sliti. • Iíindrar tœringu í eldsneytiskerfinu. B Héldur kuldaþoli olíunnar í hámarki. Heldur kerfum vélanna hreinum og hreinsar upp óhrein kerfi. DÍSEL ESSO bœtir um betur VEISTU UM AÐRA BETRI?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.