Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 30
30 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Rússar ljúka við að koma upp „öryggisbelti“ í Tsjetsjníu
Næst á dagskrá að upp-
ræta uppreisnarmenn
Moskvu. Reuters.
YFIRMAÐUR hersveita Rússa í
Norður-Kákasus-héruðunum sagði í
gær að hermenn hans hefðu lokið
við að setja upp öryggisbelti um-
hverfis Tsjetsjníu. Herinn myndi nú
ráðast til nýrrar atlögu gegn upp-
reisnarmönnum í sjálfsstjórnarlýð-
veldinu og uppræta þá með öllu.
„Markmið f'yrsta áfanga aðgerða
gegn hryðjuverkamönnum á land-
svæði tsjetsjenska lýðveldisins um
að koma upp öryggisbelti hefur ver-
ið uppfyllt,“ sagði Viktor Kazantsev
í sjónvarpsviðtali frá vettvangi.
Hann sagði rússnesku hersveitimar,
sem nú halda um þriðjungi Tsjetsjn-
íu á valdi sínu, myndu nú hefjast
handa við næsta áfanga aðgerðanna.
„Uppreisnarmennimir verða að
búast við okkur hvar sem er,
hvenær sem er og þeir munu
stöðugt þurfa að þola að við höggv-
um skörð í raðir þeirra,“ sagði
Kazantsev.
Ekki var ljóst hvort þessi nýi
áfangi hemaðaraðgerðanna í Tsjet-
sjníu fæli í sér nýja sókn landhers
inn á yfirráðasvæði uppreisnar-
manna í Mið- og Suður-Tsjetsjníu,
eða hvort um verði að ræða fleiri
smærri aðgerðir og þyngri loftárás-
ir, sem standa yfir nú þegar.
Stjómvöld í Moskvu segja sókn
land- og flughersins í Tsjetsjníu
miða að því að uppræta uppreisnar-
menn múslima, sem auk uppreisnar
er gefið að sök að bera ábyrgð á
sprengitilræðum í rússneskum
borgum, sem kostað hafa fjölda
óbreyttra borgara lífið.
Vjatsjeslav Ochinnikov, yfirmaður
hersveita rússneska innanríkisráðu-
neytisins, sagðist í gær ekki sjá
neina þörf á því að Rússar freistuðu
þess að hernema Grosní í bráð. „Ég
býst við að einhver heilbrigð öfl
komi fram og taki málin í sínar
hendur þannig að hægt verði að
semja um lausn vandans án frekari
blóðsúthellinga," sagði Ochinnikov.
Flóttamenn frá Tsjetsjníu em nú
taldir vera orðnir yfir 150.000, sem
flestir hafast við í bráðabirgðabúð-
um í Ingúshetíu, héraðinu vestan við
Tsjetsjníu.
Þjóðverjar þrýsta á Rússa að
binda enda á hemaðinn
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýzkalands, ítrekaði í gær
áskomn á stjómvöld í Kreml að
binda enda á hemaðinn í Tsjetsjníu
og leita frekar friðsamlegrar lausn-
ar á vandanum. „Við fylgjumst
áhyggjufullir með atburðum í Tsjet-
sjníu,“ tjáði Fischer fréttamönnum í
Pétursborg eftir viðræður við rúss-
neska utanríkisráðherrann Igor
Sergejev. „Við óttumst að stórsókn
landhers og loftárásir geti leitt til
mikils harmleiks fyrir óbreytta
borgara og hindra jafnframt varan-
lega lausn vandans og jafnvel auka
stuðning við öfgamenn múslima,“
sagði Fischer.
AP
Byggingaverkamaður treystir girðingu umhverfis stað í Berlín þar
sem fundist hafa leifar af byrgi Adolfs Hitlers og Evu Braun.
Hluti byrgis Hitlers fínnst í Berlín
Engin áform uppi
um varðveizlu
byrgisins
Bcrlín. AP, Reuters, Daily Telegraph.
Stjórnmálamenn sameinast um „Bretland í Evrópu“
Ursögn, jafngildir efna-
hagslegri limlestingu“
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, á milli þeirra Michael Hes-
eltines, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra í ríkisstjórn íhaldsflokks-
ins, og Kenneth Clarkes, fyrrverandi fjármálaráðherra íhaldsfiokksins.
Hague boðar eigin
herferð, „Barátt-
una fyrir pundinu“
London. Reuters, Daily Telegraph.
BRESKIR Evrópusinnar úr öllum
flokkum með Tony Blair forsætis-
ráðherra í broddi fýlkingar hleyptu í
fyrradag af stokkununum herferð,
sem þeir kalla „Bretland í Evrópu".
Sagði Blair, að það væri „brjálæði"
að loka öllum dyrum á evruna eða
Evrópska myntbandalagið og í gær
sagði hann, að ríkisstjórnin væri
hlynnt aðild að myntbandalaginu ef
vel tækist til með gjaldmiðilinn.
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, ætlar að hefja sína eigin
herferð, „Baráttuna fyrir pundinu“,
um allt Bretland.
Tony Blair; Michael Heseltine,
fyrrverandi aðstoðarforsætisráð-
herra í ríkisstjóm íhaldsflokksins;
Kenneth Clarke, fyrrverandi fjár-
málaráðherra íhaldsflokksins;
Charles Kennedy, leiðtogi frjáls-
lyndra demókrata; Gordon Brown
fjármálaráðherra og Robin Cook ut-
anríkisráðherra sátu allir saman er
baráttan fyrir „Bretlandi í Evrópu“
var kynnt. Blair sagði, að Bretland
ætti að gerast aðili að myntbanda-
laginu en þó því aðeins, að efnahags-
legar aðstæður leyfðu það. Fyrst
yrði þó að sannfæra þjóðina um, að
Bretland ætti að vera fullgildur þátt-
takandi í Evrópusamstarfinu, eink-
um nú þegar andstæðingar þess
væru að leggja á ráðin um úrsögn.
herra íhaldsflokksins, talaði enga
tæpitungu. Sagði hann, að þeir, sem
styddu baráttuna „Bretland í Evr-
ópu“, vildu aðild að myntbandalag-
inu þótt hún væri ekki tímabær á
þessari stundu. Blair kinkaði kolli
við því og sagði, að Evrópa væri ekk-
ert aukaatriði í bresku efnahagslífi,
heldur grundvallaratriði og mikil-
vægið ykist með degi hveijum. ,Að
segja skilið við Evrópu jafngildir
efnahagslegri limlestingu."
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, ætlar að svara herferð
Evrópusinnanna með „Baráttunni
fyrir pundinu" eins og hann kallar
það og hyggst fara um landið allt í
því skyni.
Á LÓÐ rétt sunnan við Branden-
borgarhliðið, þar sem Berlínar-
múrinn lá áður, hafa bygginga-
verkamenn komið niður á leifar
af byrgi því sem Adolf Hitler og
Eva Braun enduðu lífdaga sína í
undir lok siðari heimsstyijaldar.
Þrátt fyrir áskoranir um að
varðveita byrgið og opna það al-
menningi sögðust talsmenn borg-
arstjórnarinnar í gær ekki sjá
neina ástæðu til að varðveita
„foringjabyrgið“ þar sem Hitler
framdi sjálfsvíg hinn 30. aprfl
1945. Rauði herinn reyndi að
eyðileggja það eftir stríðslok, en
mokaði síðan yfir lítið skemmdar
Ieifarnar, þar sem þær lágu siðan
áratugum saman undir „dauða-
svæðinu" svokallaða austan
múrsins.
„Nákvæm staðsetning byrgis-
ins hefur verið kunn í meira en
áratug,“ hefur AP eftir Peter
Strieder, yfirmanni skipulags-
mála Berlínar. „Að þessar járn-
bindingar skuli koma í ljós,“ seg-
ir hann ekki gefa neitt tilefni til
að endurskoða ákvörðun þá sem
tekin var 1994 um að varðveita
byrgið ekki.
Þykkir járnbitar, hluti járn-
bindingar þaks „foringjabyrgis-
ins“, komu í ljós þegar verka-
menn voru að kanna hvort
sprengjur úr heimsstyrjöldinni
væri að finna í jarðveginum þar
sem leggja á nýjan veg í gegn um
miðborgina, en næst við hliðina
er verið að vinna að byggingu
nýrra húsakynna fyrir fulltrúa
nokkra þýzku sambandslandanna
16 í höfuðborginni. „Þeir fóru 30
cm dýpra en til stóð og skröpuðu
þak byrgisins," segir dr. Jörg
Haspel, yfirmaður minjadeildar
borgarstjórnarinnar, í The Daily
Telegraph. „Við erum ekki með
nein áform um að eyðileggja það.
Svæðið verður kortlagt og síðan
grafið yfir það á ný, og það lagt í
hendur síðari kynslóða að ákveða
hvort þær vilji gera eitthvað
meira við þetta en við viljum."
Segir Haspel það forgangsmál
að sinu mati að sjá til þess að
sögulega mikilvægar minjar séu
varðveittar, en að engin áform
séu uppi um að opna byrgið al-
menningi og vegfarendur myndu
ekki sjá nein ummerki um það.
„Þetta má ekki verða að pfla-
grímastað fyrir nýnazista. Stóra
hættan er sú að staðurinn hafi
mest aðdráttarafl á það fólk sem
við síður vildum sjá þar.“
Fleiri byrgi fundin
Þessi nýjasti fundur stríðs-
minja í miðborg Berlínar kemur í
kjölfar margra annarra. Árið
1990 fannst „bfls1jórabyrgið“
svokallaða, sem hýsti bflakost og
bflsljóra nazistastjórnarinnar
undir lok stríðsins. Það var mok-
að yfir það aftur. Og í fyrra
fannst byrgi sem talið er að áróð-
ursmálaráðherrann Joseph
Goebbels hafi dvalizt í. Það ligg-
ur undir lóð sem ákveðið hefur
verið að reisa gríðarstórt minnis-
merki um helförina á.
Musharraf virtur hermaður en
óreyndur stj órnmálamaður
Vitnað í
Winston Churchill
Hart var ráðist á íhaldsflokkinn á
fundinum og Heseltine vitnaði meðal
annars í Winston Churchill og ræður
hans um Bandaríki Evrópu. I íhalds-
flokknum er enginn maður í meiri
metum en Churchill nema ef vera
skyldi Evrópuandstæðingurinn
Margaret Thatcher.
Heseltine sagði, að það, sem gerð-
ist í Evrópu, hefði afdrifaríkar afleið-
ingar fyrir breskt viðskiptalíf, fjár-
festingar og allt atvinnulífið. „Ef við
látum okkur vanta, verða leikregl-
umar ákveðnar án samráðs við okk-
ur. Það er ekki hægt að slá um sig
með handtösku ef enginn er á staðn-
um,“ sagði Heseltine og var þar að
vísa til Thatcher og framkomu henn-
ar á sumum ESB-fundum áður fyrr.
Clarke, fyrrverandi fjármálaráð-
STJÓRNMÁLASKÝRENDUR töldu
Pervez Musharraf, yfirmann herafla
Pakistans, ólíklegan byltingarmann,
þar sem hann hafði aldrei gefið sig að
stjómmálum. Hann hefur nú engu að
síður tekið völdin í landinu, en ýmsir
gera því skóna að hann vilji koma
þeim í annarra hendur sem íyrst.
Pervez Musharraf fæddist í Nýju
Delhí á Indlandi árið 1943, en hann
fluttist á unga aldri til Pakistans
með fjölskyldu sinni og ólst upp í
Karachi. Gekk hann til liðs við
pakistanska herinn árið 1964 og
þjónaði þar í stórskotaliðssveit, eftir
þjálfun í virtum herskóla í Kakul.
Hann barðist í sextán daga stríðinu
við Indverja árið 1965, og hlaut í
kjölfarið heiðursorðu hersins fyrir
hugrekki í bardögum á Khem Khar-
an-svæðinu í Punjab-héraði.
Musharraf sótti námskeið í her-
skóla i Bretlandi og
þjónaði í sérsveit land-
gönguliðsins er
Pakistanar fóm á ný í
stríð við Indverja árið
1971. Naut hann síðan
vaxandi frama innan
hersins. Hann var skip-
aður undirhershöfðingi
í Mangla í Punjab,
skammt frá indversku
landamæranum, árið
1995, og gegndi þeirri
stöðu þar til hann var
skipaður yfirmaður
pakistanska heraflans
árið 1998. Áður hafði
Nawaz Sharif, fyrrver-
andi forsætisráðherra,
neytt forvera hans til að segja af sér
eftir að hann hafði látið í ljós hug-
myndir um veigameira hlutverk
hersins í stjórn lands-
ins.
Lítið er vitað um
einkalíf Musharrafs,
annað en að hann á tvö
börn og að bróðir hans
og sonur búa í Banda-
ríkjunum.
„Enginn bókstafs-
trúarmaður"
Stephen Cohen, sér-
fræðingur um heri Ind-
verja og Pakistana hjá
Brookings-stofnuninni í
Washington, sagði við
The New York Times
að Musharraf virtist
ópólitískari en fyrri yf-
irmenn hersins, sem tekið hefðu
völdin í Pakistan. „Mig grunar að
hann muni vilja komast frá völdum
eins fljótt og unnt er,“ sagði Cohen.
„Þetta er ekki hans sterkasta hlið.
Samstarfsmenn hans líta á hann sem
góðan og faglegan hermann. Hann er
ekki talinn hafa mikla hæfileika til að
gera herfræðilegar áætlanir, eins og
flestir aðrir sérsveitarmenn. Sjón-
deildarhringur hans er þröngur.“
Benazir Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðheri’a Pakistans og svarinn
andstæðingur Nawaz Sharifs, lét vel
af Musharraf í viðtali á sjónvarps-
stöðinni CNN á dögunum. „Mus-
harraf hafði yfirumsjón með aðgerð-
um hersins á valdatíma mínum,“
sagði hún. „Hann var enginn bók-
stafstrúarmaður. Hann var fag-
mannlegur hermaður og ég taldi
hann mjög hugrakkan. Hann hafði
verið í sérsveit landgönguliðsins, og
manneskja sem hefur reynt það er
fær um að taka mikla áhættu."
Islamabad. Reuters.
Pervez
Musharraf