Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 50
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
MINNINGAR
>
GUÐMUNDUR
HÁKONARSON
+ Guðmundur Há-
konarson fædd-
ist á Húsavík 16.
september 1930.
Hann lést á Akur-
eyri 11. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Hákon
Maríusson sjómaður
og Ólöf Kristjáns-
dóttir húsmóðir.
Gumundur missti
móður sína á fyrsta
ári og ólst upp hjá
móðurafa sínum og
ömmu, Kristjáni
Jónssyni og Hólm-
fríði Friðfinnsdóttur í Kvía-
bekk, til 14 ára aldurs. Hann
fluttist með föður sínum og
móðursystur, Fjólu Kristjáns-
dóttur, sem annaðist heimili
fyrir feðgana, að Ásgarðsvegi 1
(húsið Sel). Hálfbróðir Guð-
mundar, Sverrir Hákonarson, f.
1941, ólst þar upp frá sex ára
aldri. Guðmundur varð gagn-
fræðingur frá Laugaskóla 1949.
Hinn 15. maí 1955 kvæntist
Guðmundur Stefaníu Halldórs-
dóttur frá Bala á Húsavík.
Börn þeirra eru: 1) Hákon Óli,
f. 8. júní 1961, kona hans er
Guðlaug Baldvinsdóttir. Dætur
þeirra eru: Björg og Stefanía.
2) Dóra Fjóla, f. 19. febr. 1966,
gift Stefáni Geir Jónssyni.
Börn þeirra eru
Hanna Jóna og Guð-
mundur Árni.
Guðmundur starf-
aði við sjávarútveg
°g byggingarvinnu
framan af ævinni, síð-
an við síldarsöltun og
verslun. Hann var
starfsmaður hjá
Mjólkursamlagi KÞ
1955-1961, fram-
kvæmdastjóri við
Höfðaver hf. sfldar-
söltun, frkvstj.
Prjónastofunnar
Prýði frá 1972-1997.
Hann var varamaður í bæjarstjón
Húsavíkur frá 1954-1958 og síð-
an aðalmaður til 1970. Hann sat í
stjórn og var formaður Alþýðu-
fiokksfélags Húsavíkur um árabil
og einnig í mörg ár í fiokksstjórn
Alþýðuflokksins. Hann var for-
maður stjórnar Fiskiðjusamlags
Húsavíkur í mörg ár og í stjórn
Höfða hf. útgerðarfélags. Hann
var framkvstj. Hlöðufells um
skeið. Guðmundur var mjög virk-
ur í Bridsfélagi Húsavíkur til
fjölda ára. Hann var virkur í
verkalýðsmálum um langan tíma
og sat í stjórn Verkalýðsfélags
Húsavíkur.
Utför Guðmundar fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elskulegi afi minn sem var besti
afi í heimi andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 11. októ-
ber síðastliðinn. Hann var fæddur
og uppalinn á Húsavík, í Kvíabekk.
Hann missti móður sína aðeins níu
mánaða gamall og fór þá í fóstur.
vHann fæddist árið 1930 og var alltaf
svo ljúfur og góður maður. Hann
var mjög mikill útivistarmaður þeg-
ar mamma mín var ung, og eftir að
ég fæddist var hann og fjölskyldan
mjög oft í lautarferðum og berjamó.
Pú varst orðinn svo mikið veikur
þegar þú varst sendur inn á Akur-
eyri með slæmt krabbamein að það
var örugglega gott að þú fékkst að
deyja og þurftir ekki að kveljast
meira. En þú varst mikill spilamað-
ur (brids) og áttir 11 bikara og
óteljandi verðlaunapeninga, og hver
á að kenna mér fleiri spil? En ég
mun alltaf minnast þín og hjálpa
ömmu í sorginni miklu.
Þín
Hanna Jóna.
í dag kveðjum við kæran vin,
Guðmund Hákonarson, sem er lát-
inn eftir að hafa barist við illvígan
sjúkdóm í áratug með þreki og
æðruleysi sem fáum er gefið. Hann
stóð meðan stætt var. Hetjan er
fallin.
Það er skarð fyrir skildi og mikill
missir þeim sem næstir honum
stóðu. Það besta sem maður eignast
í lífinu, næst góðri fjölskyldu, eru
góðir vinir. Betri vin en Guðmund
Hákonarson var vart hægt að kjósa
sér. Hann hafði sterkan persónu-
. leika, var mannblendinn, félags-
'’lyndur og hlýr. Mannúð var honum
í blóð borin, hann var ekki kröfu-
gerðarmaður fyrir sjálfan sig.
Guðmundur var mikill Húsvíking-
ur, unni sinni heimabyggð og lét
málefni bæjarins til sín taka með
ýmsum hætti. Hann sat lengi í bæj-
arstjóm Húsavíkur fyrir Alþýðu-
flokkinn, en hann gerði stefnu þess
stjómmálaflokks að sinni strax á
unga aldri og hvikaði aldrei frá
henni, þótt stundum gæfi á bátinn.
Hann var höfðingi í látleysi sínu,
hann kom til dyranna ein.s og hann
■JKar klæddur, aldrei að þykjast,
hann var öðlingur.
Á kveðjustund leita minningar á
hugann, minningar um góðu sam-
verustundimar sem við áttum með
þeim Stefu. Heimsóknimar á víxl,
samvinna á pólitískum vettvangi,
ferðalög innan lands og utan, en
^pkki síst skemmtilegar stundir við
Tlpilaborðið þar sem á ýmsu gekk.
Guðmundur var snilldar bridgespil-
ari og mátti þar margt af honum
læra. Við sjáum hann fyrir okkur
þegar úr vöndu var að ráða, halla
sér fram á borðið, gefa sér góðan
tíma til að ráða í svip andstæðing-
anna og taka svo nákvæmlega rétta
spilið og henda því á borðið. Hann
hló að þeim sem kenndu vondum
spilum um slaka útkomu og sagði að
það þyrfti nú líka að spila úr lélegu
spilunum, og spurði hvort það væri
ekki þannig í lífinu sjálfu.
Hann var þeirrar skoðunar að
það þyrfti að bregðast við kringum-
stæðum eins og þær lægju fyrir
hverju sinni. Hann var vafsturslaus
maður sem vildi leysa hvert mál á
sem einfaldastan hátt en ekki
flækja það. Það kom vel fram á
ferðalögum hvað sýnt honum var
um að líta á spaugilegu hliðamar en
framhjá ýmsum uppákomum.
Guðmundur var gæfumaður í
einkalífi. Hann átti góða konu og vel
gerð böm. Hann var mikill fjöl-
skyldumaður og félagi barna sinna
og barnabama. Hann var vinsæll
maður og hans verður saknað af
mörgum, við emm þeirra á meðal.
Við kveðjum Guðmund Hákonar-
son með þökk og virðingu. Stefu,
Hákoni Óla, Dóra Fjólu og þeirra
fjölskyldum sendum við okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Megi minningin um góðan mann
og vammlausan veita þeim styrk á
sorgarstundu.
Ásta og Arnfjótur.
Með þessum fáu orðum vil ég
þakka þér, Guðmundur, fyrir sam-
fylgdina, vináttuna og allt traustið
sem þú ávallt sýndir mér.
Við félagar þínir í Alþýðuflokks-
félagi Húsavíkur áttum ekki bara
góðan vin, þar sem þú varst, heldur
varst þú okkar leiðtogi sem við bár-
um virðingu fyrir. Þú þreyttist
aldrei á því að hlusta þegar við
þurftum að bera undir þig eða leita
ráða hjá þér um málefni og ákvarð-
anir sem taka þurfti. Þú veittir fús
góð ráð, og þínar skoðanir, en
minntir jafnframt á að endanlega
ákvörðun þyrftum við samt sjálf að
taka, eins og okkar eigin samviska
byði. Ekkert yfirlæti, ekkert kyn-
slóðabil, enginn hroki.
Áhugi þinn á mönnum og málefn-
um og óskir um sem bjartasta fram-
tíð fyrir bæjarfélagið okkar, vora
þín stóra áhugamál.
Þú sast sjálfur í bæjarstjórn um
árabil, og fylgdist síðan vel með og
studdir okkur sem við tókum.
Ekkert var of gott fyrir okkar
ágæta bæ.
Við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar sást þú langþráðan draum
rætast, þegar H-listinn varð til.
Þú hafðir óbilandi trú á framtíð
þessa samstarfs og oft minntir þú
okkur á það í sameiningarferlinu, að
menn þyrftu að sýna vilja og vera
tilbúnir að slá af kröfum sínum til
að ná saman, annars yrði ekki neitt
úr neinu. Þetta samstarf varð að
veraleika og þú gladdist mjög og við
öll með þér. Þér var lagið að hrífa
með þér viðstadda.
Nú er það okkar félaganna að efla
og styrkja þetta samstarf og það
ætlum við að gera.
En pólitíkin náði líka út fyrir
bæjarmörkin. Ekki var áhugi þinn
minni á landsmálunum. Og þar áttir
þú þér annan draum. Sameininguna
sem Samfylkingin stendur fyrir.
Engan þekkti ég sem hafði jafn-
mikla trú á sameiningu þessara
flokka, né hafði meiri væntingar til
þessa samstarfs en einmitt þú, Guð-
mundur.
Við ætluðum einmitt, féiagarnir,
að fylgjast með þessu öllu, halda
nokkra fundi, drekka nokkra kaffi-
bolla í Snælandi, spjalla og skiptast
á skoðunum, svona eins og við eram
vön.
Við hin mætum, en sá sem besta
mætinguna á og hefur alltaf átt,
hann mætir ekki og við munum
sakna hans sárt.
Eg heyri þig segja núna: „Þið
bara standið ykkur, það er ekki
spurning."
Eiginkonu, börnum og fjölskyld-
um þeirra flyt ég samúðarkveðjur.
Guðrán Kristín Jóhannsdóttir.
í dag er til grafar borinn norður á
Húsavík Guðmundur Hákonarson,
einn sannasti jafnaðarmaður og
tryggasti Alþýðuflokksmaður, sem
ég hef kynnst á lífsleiðinni.
Leiðir Guðmundar og Alþýðu-
flokksins hafa lengi legið saman.
Hann er einn af minnisstæðum
mönnum frá fyrstu flokksþingum,
sem ég sat - á fyrstu áram sjöunda
áratugat þessarar aldar. Þá var
Guðmundur Hákonarson í blóma
lífsins, áberandi maður hvort heldur
sem var í ræðustóli eða í hópi fé-
laga.
Hann var þá og lengi síðan í hópi
helstu forystumanna Alþýðuflokks-
manna á Norðurlandi, ekki aðeins í
forystu sinna flokksmanna í sveitar-
stjómarmálum á Húsavík heldur
ekki síður í kjördæminu. Alþýðu-
flokkurinn á Húsavík átti góðu
mannvali á að skipa auk þess sem
þaðan vora ættaðir ýmsir af fram-
mámönnum flokksins hér á suðvest-
urhominu, bæði í hópi sveitar-
stjómarmanna og alþingismanna.
Merkisberarnir í heimamanna-
hópnum vora þeir Guðmundur Há-
konarson, Sigurjón Jóhannesson og
fleiri góðir menn, karlar og konur,
og munaði um þá sveit.
Frá því leiðir okkar Guðmundar
Hákonarsonar lágu fyrst saman
hefur mikið vatn til sjávar rannið.
Ungur og lítt reyndur liðsmaður í
samtökum ungra jafnaðarmanna
hefur elst að árum og reynslu og
Elli kerling náði smátt og smátt
undirtökunum í glímunni við Guð-
mund Hákonarson. Hún fékk ekki
veikt andlegt atgervi Guðmundar
en líkamskraftarnir dvínuðu og
heilsu hrakaði. Leiðir okkar Guð-
mundar Hákonarsonar hafa legið
saman á vettvangi Alþýðuflokksins
allt frá því við sáumst fyrst,
þannig höfum við átt samleið og
getað fylgst með því hvernig fram-
rás tímans hefur haft áhrif bæði á
okkur sjálfa, samferðamennina,
flokkinn, sem við höfum aðhyllst
og stefnumálin, sem við höfum
barist fyrir. Mörg ráð hefur Guð-
mundur Hákonarson gefið bæði
mér og öðram félögum okkar á
þessari löngu leið og margt gott
verkið hefur hann á þeim tíma
unnið fyrir flokkinn sinn og sína
heimabyggð. Fyrir það flyt ég
honum þakkir okkar allra nú að
leiðarlokum. Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur Islands
þakkar einum af sínum nýtustu
fylgismönnum og farsælustu for-
ystumönnum langa samleið og
fórnfúst starf.
Sjálfur flyt ég Guðmundi Hákon-
arsyni einlægar þakkir fyrir góð
kynni og vináttu. Við hittumst síð-
ast á fundi á Húsavík fyrir um það
bil einum mánuði. Þar var til um-
ræðu stofnun nýira stjórnmálasam-
taka, Samfylkingarinnar, sem né er
unnið að. Enn sem fyrr var Guð-
mundur á þessum fundi áhugasam-
ur, bjartsýnn og hvetjandi og lagði
eins og jafnan áður allt jákvætt og
gott til málanna. Á hann var vand-
lega hlustað og tekið mikið mark á
því, sem hann sagði. Skerpan, áhug-
inn og framsýnin vora enn til staðar
eins og ávallt áður þó líkamsheilsan
væri farin að bila.
Nú kveð ég þennan gamla vin og
samstarfsmann. Aðstandendum
hans og vinum sendi ég einlægar
samúðarkveðjur. Góður maður er
genginn.
Sighvatur Björgvinsson.
Föstudaginn 8. okt. s.l. átti ég
langt samtal í síma við Guðmund
Hákonarson. Áhugi hans á velferð
Húsavíkur var einlægur sem ætíð
áður. Hann undraðist að 80 einstak-
lingar voru á brott á s.l. átta mánuð-
um. Nú er hann sjálfur farinn í þá
ferð, er bíður okkar allra. Guð-
mundur hafði barist hetjulega við
illvígan sjúkdóm í mörg ár. Stund-
um virtist, sem endalokin væra
skammt undan, en mikill vilji og
gott skap, sem einkenndi hann ætíð,
máttu sín mikils í allri baráttunni.
Síðustu orð mín við hann voru hvort
hann gæti gengið utandyra. „Ég er
með ónota stingi, við sjáum bara
til,“ og svo kveðjuorð. Endalokin
vora við næsta leiti.
Guðmundur kom úr umhverfi,
þar sem vinna og aftur vinna var
stunduð hvenær er færi gafst.
Störfin voru tengd sjósókn, land-
búnaði eða almennri verkamanna-
vinnu. Hann missti móður sína á
fyrsta ári. Faðir hans var sjómaður.
Hann sótti sjó suður eins og títt var
á þeim áram. Síld á sumrum og við
réttir og sláturverk á haustin. Guð-
mundur elst upp hjá afa og ömmu í
móðurætt fram um fermingu. Þá
tekur Fjóla móðursystir hans við
heimili fyrir Hákon mág sinn og
Guðmund, í húsinu Seli á Húsavík.
Guðmundur ólst upp við mikil og
góð kynni af sjómennsku og land-
búnaði. Hann var fjöldamörg ár í
sveit á Langavatni í Reykjahverfi
og hafði þar gott atlæti. Síðar á sjó.
A unglingsárum hans var frjálst að
leika sér á túnum beggja afanna og
sinna skepnum eftir atvikum vor og
haust. Frelsi fyrir unglingana til
leikja var algert, á túni eða í fjör-
unni. Heyskapur var yndi unglinga
á Húsavík á uppvaxtaráram hans.
Einnig að stokka og beita línu.
Ekki þurftu menn að sitja lengi
að umræðum með Guðmundi til
þess að komast að því að málefni Al-
þýðuflokksins vora honum mjög
hugleikin. Segja má að hann hafi
gersamlega helgað sig hugsjónum
jafnaðarstefnunnar alla sína tíð og
barist fyrir henni hvar sem við varð
komið. Þessa hugsjón fékk hann
þegar sem unglingur og vék ekki
frá henni. Sameiningin nú milli
gamalla hugsjónaflokka var honum
mjög hugleikin og vildi hann veg
hennar sem mestan. Það gladdi
hann mjög að vel tókst til við síð-
ustu kosningar á Húsavík. Guð-
mundur var í eðli sínu félagslyndur
og naut sín vel við spil og spjall.
í mjög langan tíma spilaði hann
brids og var vel liðtækur á því sviði.
Áhugi hans á hagsmunum og at-
vinnu fólksins var ekki eingöngu
bundinn við Húsavík. Hann var eld-
heitur baráttumaður fyrir því, að al-
menningur gæti lifað við góð kjör
hér á landi og réttmætur jöfnuður
ríkti. Hann hafði mikinn beyg af
þeirri þróun síðustu ára sem lwóta-
kerfið var að leiða yfir þjóðina.
Hann kallaði ílóttann utan af landi
þjóðflutninga og varhugaverðan.
Sanngjarn jöfnuður í lífskjörum
yrði að ríkja í landinu og möguleik-
ar til þess að njóta sín.
Það er svo að jafnaði, að hug-
sjónamenn þurfa á stuðningi að
halda heimavið sem út á við. Guð-
mundur naut þess í ríkum mæli frá
konu sinni Stefaníu Halldórsdóttur,
og síðar syni og dóttur. Heimilis-
friður er rofinn með símtölum í tíma
og ótíma.
Þessu öllu var mætt með stillingu
og velvild á heimili þeirra í tugi ára.
Liðsinni var þeim eðlislægt.
Minningin um heilsteyptan
drengskaparmann mun lifa meðal
þeirra, sem þekktu til Guðmundar.
Ég sendi fjölskyldunni innilegustu
samúðarkveðjur.
Jón Ármann Héðinsson.
Þeim fækkar nú ört húsvísku
heiðursmönnunum, sem ég kynntist
á þingmannsárunum í Norðurlandi
eystra. Ljúflingurinn Gunnar Mara
látinn fyrir nokkra og baráttujaxl-
inn Helgi Bjarna kvaddi í ágúst. Og
nú er Guðmundur Hákonar farinn.
Þessir menn settu allir mikinn lit á
samfélag sitt, vora þekktir borgarai-
og atorkusamir gæfumenn, hver á
sínu sviði.
Guðmundur Hákonarson var
jafnaðarmaður af lífi og sál og einn
helsti forystumaður Alþýðuflokks-
ins á Húsavík um langt árabil. Það
var gott til hans að leita og orðið
tímaskortur var ekki til í hans
munni, þegar eitthvað þurfti að
gera fyrir flokkinn. Hann var í hópi
þeirra, sem stundum era nefndii'
„eðalkratar". Lausleg skilgreining á
þessari nafngift er eitthvað á þessa
leið: Hefur verið jafnaðarmaður frá
því að hann hóf að hugsa um stjórn-
mál og taka þátt í þeim og hefur
ekki hvikað frá þeirri bjargföstu
sannfæringu, að engin stjómmála-
stefna önnur en jafnaðarstefnan,
séu betur til þess fallin að skapa
réttlátt þjóðfélag og betri heim.
Jafnvel þótt Guðmundi Hákonar
mislíkaði illilega við flokkinn og
gjörðir hans, þá held ég að aldrei
hafi hvarflað að honum að hverfa
frá stuðningi við baráttutæki jafn-
aðarmanna. Hann gat verið ómyrk-
ur í máli og tekið í hnakkadrambið á
þeim, sem að hans mati höfðu haldið
ranglega á málum. En öll hans
framganga mótaðist af baráttugleði
og vilja til að hafa bætandi áhrif á
samfélagið.
Guðmundur tók mikinn og virkan
þátt í atvinnulífi Húsavíkur og lagði
flestum málum lið, sem hann taldi
horfa til heilla. Þai' sem hann fór
var hreyfing og aldrei lognmolla.
Guðmundur var góður félagi í
hinni pólitísku glímu. Heimili hans
var ósjaldan miðstöð baráttunnar
og hefur vafalaust reynt á þolrif
Stefaníu, eiginkonu hans, þegar
mikið var um að vera. Sjálfur á ég
margar góðar minningar úr húsi
þeirra hjóna og þakka vináttuna og
gestrisnina.
Eg er einn þeirra, sem álíta að
störf í þágu stjórnmála séu ekki að-
eins mildlvæg, heldur lýðræðinu
lífsnauðsyn. Menn eins og Guð-
mundur Hákonarson hljóta sjaldan
umbun fyrir mikla vinnu í þágu
stjórnmálaflokka. En þeir eiga
mikla þakkir skildar fyrir að búa til
þann jarðveg, sem hið pólitíska
mótunarstarf sprettur upp af og er
grandvöllur þess, að okkar góða
þjóðskipulag fái að halda velli.
Guðmund Hákonarson kveð ég
með virðingu og jsakklæti.
Árni Gunnarsson.
Kæri vinur og félagi. í fleygum
orðum segir: „Það sem vitur maður
ætti að íhuga er ekki hvernig hann á
að deyja, heldur hvernig hann á að
lifa.“ Þú kunnir að lifa og njóta lífs-
ins allar þær stundir sem lífið gaf
þér. Þrátt fyrir erfið veikindi hin
seinni ár var það ekki í þínum anda
að kvarta yfir hlutskipti þínu heldur
var gleðin og bjartsýnin þar allsráð-
andi.
Skoðanir þínar á málefnum líð-
andi stundar mótuðust af þeirri
hugsjón sem þú settir þér sem ung-
ur maður og það var engum dulið að
þú varst ávallt sannur jafnaðarmað-
ur.
Aldrei var lognmolla í ki-ingum
þig, óbilandi eldmóður var áberandi
hvar sem þú komst og það var eins
og nálægð þinni fylgdi ólýsanlegur
drifkraftur sem hreif fólk með sér.