Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 54
>54 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Jóhann Þor- valdsson fædd- ist á Tungnfelli í Svarfaðardal 16. maí 1909. Hann lést á Sjúkrahdsi Siglu- fjarðar 9. október siðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Sig- urðardóttir og Þor- valdur Jón Bald- vinsson bóndi. Systkini Jóhanns voru átta: Þóra Sig- urrós, Baldvin Gunnlaugur, Guð- laug Ingibjörg, Sigurður, Krist- in Guðrún, Hartmann, Rósa og Elingunn. Þau eru öll látin. Jóhann kvæntist 17. desem- ber 1938 Friðþóru Stefánsdótt- ur kennara og lifir hún mann sinn. Börn þeirra eru 1) Sigríð- ur, maki Henning Finnbogason. Þau eiga tvo syni. 2) Þorvaldur, maki Dóra Sæmundsdóttir, d. Kominn heim í SigluQörð, t sjá ungtré vaxa úr Skarðdalsjörð. Pó líkamsþróttur leiti blunda þá nýt ég þeirra endurfunda. (Jóhann Þorvaidsson.) Hugur minn leitar til síðustu end- urfunda minna við afa minn, Jóhann Þorvaldsson. Síðustu jól var ég í jólaleyfi á Islandi með fjölskyldu minni. Líkamlegt þrek afa var þá Ht- ið en andlega þrekið var ótrúlegt. Eg man hvað hann var glaður og stoltur þegar hann sýndi mér ijóðabókina sína sem hann ætlaði að gefa form- lega út á afmælisdegi sínum hinn 16. *Snaí er hann yrði níræður. Þegar fregnin um lát afa barst mér settist ég niður og las nokkur Ijóð eftir hann úr ljóðabókinni hans „Lífsferð- arljóð“. Eg staldraði lengi við ljóðið „Kominn heim“ en afi fór heim til Siglufjarðar og ömmu og var þar á sjúkrahúsinu sína síðustu ævidaga. Minningar mínar frá uppvaxtar- árum mínum tengjast Siglufírði á margan hátt. Eg og systur mínar vorum þar mikið á sumrin á Hverf- isgötunni hjá ömmu og afa. Þær eru ófáar ferðimar sem ég fór með afa í skógræktina. Mjólkin var sett í læk- inn svo hún héldist köld og svo var hafist handa við að gróðursetja og hlúa að plöntunum. Afi hugsaði vel >m trén sín og hlúði að þeim með ótrúlegri nærgætni og alúð. Þetta eru góðar minningar og það er gott að geta leitað í þær á kveðjustund. Eg hef ætíð borið mikla virðingu fyrir afa. Hann var mikill maður sem ekki hræddist að fara ótroðnar slóðir eins og lífsverk hans sýna. Nú er komið að leiðarlokum. Eg kveð með hinstu kveðju afa minn Jóhann Þorvaldsson. Hafðu þökk fyrir allt. Eiísabet María Sigfúsdóttir. Jóhann Þorvaldsson fyrrverandi skólastjóri andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar laugardaginn 9. októ- ber, níræður að aldri. Mér er ákaf- •^iega ljúft að minnast Jóhanns Þor- valdssonar fyrir hans margþættu störf fyrir Siglufjörð og þá sérstak- lega fyrir Framsóknarflokkinn og Félag framsóknarmanna hér. Fyrir félagið sat hann í bæjarstjórn Siglu- fjarðar 1942-1946 og var ritstjóri Einherja, blaðs Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra, frá 1960-1974. Hann var ætíð tilbúinn að mæta sem fulltrúi félagsins á samkomur Framsóknarflokksins og vakti þar athygli með hnyttnum ræðum og góðum tillögum. Hann ^kvar sérstaklega góður félagi, sem naut trausts samborgaranna. Jóhann var einlægur samvinnu- maður og starfaði í stjóm Kaupfé- lags Siglfirðinga frá 1945 til 1971 að Kaupfélagið hætti störfum. Á þess- um árum hafði Kaupfélagið mikil umsvif, var með verslun, sfldarsölt- un o.fl. ® Að aðalstarfi var Jóhann kennari og skólastjóri en til þeirra starfa 28. maí 1998. Þau eiga sex börn. 3) Stef- anía. Hún á fimm dætur. 4) Indriði, maki Kristjana Björk Leifsdóttir. Þau eiga fjögur börn. 5) Frey- steinn, maki Jóna Ágústa Ragnheiðar- dóttir. Þau eiga fjög- ur börn. Jóhann lauk kenn- araprófi árið 1932 og var kennari í einn vetur í Ólafsvík og á Suðureyri við Súg- andafjörð næstu fimm. Hann var kennari við Barnaskóla Siglufjarðar frá ár- inu 1938 til ársins 1973 og skóla- stjóri frá 1973-1979. Hann var skólasfjóri Iðnskóla Siglufjarðar frá 1945-1973. Jóhann var forstöðumaður Gesta- og sjómannaheimilis Siglufjarðar sem stúkan Fram- sókn rak á árunum 1941-1960. kom hann til Siglufjarðar árið 1938. Hans mun samt lengst verða minnst fyrir það uppbyggingarstarf sem hann vann með bömum í stúkunni Eyrarós og skógræktina, sem nú prýðir Skarðsdal í Siglufirði. Hann var stofnandi Skógræktar- félags Siglufjarðar og lengst af for- maður, hann sá um gróðursetningu plantna og umhirðu með unglingum bæjarins, hann ræktaði þannig land og lýð, trúr þeirri hugsjón sem hann talaði oft fyrir mannrækt og land- rækt. Eg minnist hans þegar verið var að taka ákvörðun um byggingu Dvalarheimiiis aldraðra á Siglufirði, við vorum að velta fyrir okkur hvort ekki yrði færst of mikið í fang. Þá taldi Jóhann í okkur kjarkinn og sagði að þama værum við á réttri leið, bygging þessa heimilis yrði bænum mikil blessun og gæfa, við mættum ekki gefa eftir í þessu máli. Þetta gekk eftir, húsið var byggt og átti Jóhann þess kost að dvelja þar með konu sinni, Friðþóra Stefáns- dóttur. I kosningabaráttunni fyrir al- þingiskosningar sendi hann okkur kveðjur í bundnu máli sem sýndu hans einlæga baráttuvilja til þess að hafa Framsóknarflokkinn í forastu í íslenskum þjóðmálum inn í nýja öld. Við kveðjum Jóhann og þökkum fyrir hans miklu og fómfúsu störf, sem vissulega vora metin að verð- leikum. En hann var sæmdur Fálkaorðunni árið 1983, einnig var hann heiðursfélagi Skógræktarfé- lags Islands svo og Stórstúku Is- lands. Ég vil fyrir hönd Framsóknarfé- lags Siglufjarðar votta eftirlifandi eiginkonu Jóhanns svo og bömum og öðram aðstandendum okkar dýpstu samúð. Sverrir Sveinsson. Fyrstu kynni okkar Jóhanns urðu þegar ég fékk sumarvinnu við gróð- ursetningu á tijáplöntum í Hólsdal í Siglufirði undir strangri og öraggri stjóm Jóhanns. Ég man að það voru ekki margir sem trúðu á að hægt væri að rækta skóg á Siglufirði aðr- ir en hann og hann fylgdi sannfær- ingu sinni í þessu sem öðra. Ég og margir aðrir munum minnast Jó- hanns þegar rætt er um skógrækt- ina í Hólsdal vegna hans fómfúsa og óeigingjama starfs sem hann vann þar fyrir Siglufjörð. Næst lágu leiðir okkar saman í bamaskólanum á Siglufirði þar sem hann var fyrst kennari og síðan skólastjóri og hélt að sjálfsögðu uppi röð og reglu þar sem annars staðar. Jóhann neytti aldrei áfengra drykkja og gerði sitt til þess að forða bömum frá því böli og starf- rækti meðal annars bamastúkuna Eyrarrós á Siglufirði í algjörri sjálf- boðavinnu. Hann var æðstitemplar stúkunnar Framsóknar og gerður að heiðursfélaga í Stórstúku Is- Hann var ritsljóri Regins, blaðs templara, um árabil. Jóhann starfaði mikið í góðtemplara- reglunni og var heiðursfélagi Stórstúku íslands. Hann var gæslumaður barnastúkunnar Eyrarrós nr. 68 og æðstitempl- ar stúkunnar Framsókn nr. 187. Jóhann starfaði lengi að skógrækt í Siglufirði og var for- maður Skógræktarfélags Siglu- fjarðar til ársins 1987. Hann var heiðursfélagi Skógræktarfélags Siglufjarðar og Skógræktarfé- lags íslands og hann var sæmd- ur Fálkaorðunni fyrir störf að kennslu og skógrækt. Hann tók einnig virkan þátt í öðrum félagsmálum og stjórn- málum í Siglufirði, sat í bæjar- sljórn, var formaður sljórnar Kaupfélags Siglfirðinga í mörg ár og var m.a. ritsljóri Ein- heija, blaðs framsóknarmanna í Siglufirði, í fjórtíin ár. Jóhann var einn af stofnend- um Félags eldri borgara í Siglu- fírði og var fyrsti formaður þess. Utför Jóhanns fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Iands. Hann var einnig ritstjóri Regins, blaðs templara á Islandi. Hinn 17. júní 1983 var Jóhanni veitt fálkaorðan fyrir störf sín við kennslu og skógrækt. Ennþá lágu leiðir okkar saman með hugsjónum okkar um störf og stefnu framsóknarflokksins. Jóhann var mikill framsóknarmaður alla sína tíð. Hann var afar sannfærandi í sínum málflutningi og hlutu þeir sem á hlýddu mikinn innblástur um þau málefni sem hann ræddi um á hveijum tíma. Jóhann var ritstjóri Einherja (blað framsóknarmanna á N-vestra) til fjölda ára. Jóhann var mikill bridgemaður og spilaði í áraraðir með félögum sínum í Bridgefélagi Siglufjarðar. Bridge er íþrótt sem reynir mjög á skoðanaskipti milli makkera. Hann var rökfastur við græna borðið eins og víðar og því erfitt að sannfæra hann um annað en það sem hann taldi rétt á hveijum tíma. Þegar Jóhann lauk starfsferli sín- um fluttist hann í Skálarhlíð sem era leiguíbúðir fyrir aldraða. Þar sem skrifstofa mín er á jarðhæð þess húss áttum við Jóhann margar rökræður um lífið og tilverana. Hann var starfssamur maður eins og fram hefur komið og tfl þess að gera eitthvað á sínum efri árum fór hann að semja ljóð við hin ýmsu tækifæri og gaf að lokum út ljóða- bókina „Lífsferðarljóð“ sem gefin var út og gefin vinum og kunningj- um á 90 ára afmæli hans. Síðustu árin þjáðist Jóhann af erfiðum sjúkdómi og dvaldi lengi á heimili Sigríðar dóttur sinnar og eiginmanns hennar, sem önnuðust hann af mikflli alúð og óeigingimi. Síðustu mánuðina dvaldi hann í Heflbrigðisstofnuninni á Siglufirði. Þrátt fyrir mikil veikindi hélt Jó- hann alla tíð reisn sinni og verður hans minnst sem eins af fómfúsustu mönnum sem Siglufjörður hefur átt. I ávarpi sínu á 90 ára afmæli sínu sagði hann að hugurinn væri ávallt á Siglufirði og þá sérstaklega í skógræktinni og þegar hann yrði allur myndi hann horfa yfir fjörðinn fagra og að hann myndi fylgjast vel með velferð Siglufjarðar. Ég votta eiginkonu hans, böm- um, tengdabömum og bamaböm- um mína dýpstu samúð á þessari stund en veit að ljúfar minningar um mikilfenglegan mann munu verða sorginni sterkari í tímans rás. Jón Sigurbjörnsson. Þegar við systkinin fréttum að afi á Sigló væri dáinn þá fannst okkur lífið ósanngjamt og hart en þegar við náðum áttum aftur gerðum við okkur grein fyrir því að afi var bú- inn að lifa góðu, löngu og hamingju- sömu lífi og við vissum að hann var sjálfur tilbúinn að kveðja þennan heim, lífsverki hans var lokið. Veik- indi og hár aldur höfðu valdið því að þessi athafnamikli maður gat ekki lengur hugsað um sig sjálfur. Nú hvílir hann á himnum og vakir yfir okkur öllum. Við höfum verið svo lánsöm að hafa kynnst báðum öfum okkar og fyrir það eram við þakklát en það era ekki allir sem njóta þess. Bæði afi á Sigló og afi í Vogunum kenndu okkur að bera virðingu fyrir trján- um og gróðrinum. Við munum eftir afa í skógræktinni á Siglufirði með trjáklippumar í annarri hendi og límband í hinni þar sem hann gekk og hlúði að tijánum og það lá við að við heyrðum þegar trén þökkuðu honum fyrir. Rétt eins og við þá stækkuðu trén og þar er nú hinn fallegasti skógur. Við fórum oftsinn- is í skógræktina ásamt afa, pabba og mömmu og alltaf voram við með nesti sem amma hafði útbúið handa okkur og við borðuðum með bestu lyst við fossinn og seinna líka í Jó- hannslundi. Amma lét okkur alltaf hafa nóg að borða og nestiskarfan var ávallt full af heimatilbúnum vín- arbrauðum, kleinum, pönnukökum og brauði. Við munum þegar við lékum okkur við árbakkann, bus- landi og í ímynduðum veiðfleik þar sem við notuðum gamlar tijágrein- ar sem veiðistangir. Það er kannski skrítið tfl þess að hugsa, og þó, að allar minningar okkar úr skógrækt- inni segja okkur að það hafi verið sól, það var aldrei rigning. Afi og amma bjuggu lengst af á Hverfisgötu 4. Það hús hefur alla tíð hefllað okkur. Þau bjuggu á fyrstu og þriðju hæð og það eitt út af fyrir sig var sérstakt. Tfl þess að fara upp á þriðju hæð varð maður að fara fram hjá þvottahúsinu, upp þröngar tröppur, í gegnum annarra manna heimfli (það var spennandi þegar við voram yngri) og síðan upp enn fleiri tröppur þangað til komið var að hurðinni að íbúð afa og ömmu. Þar fyrir innan var margt að finna, m.a. gömul og ný blöð Æsk- unnar sem við skoðuðum og lásum. Við systkinin höfum haldið sam- bandi við afa og ömmu að hluta til með bréfaskriftum þar sem langt var á mflli okkar í kflómetram talið. Þetta vora kannski ekki löng bréf en þau sögðu þeim mun meira. Þar sögðum við aðeins frá daglegu lífi okkar, einkunnum, hvemig okkur gengi í skólanum og teiknuðum myndir. Þessi bréf era nú komin til okkar aftur og geyma dýrmætar minningar. Fyrr á þessu ári tók ég (Hrönn) viðtal við afa vegna verkefnis í Há- skólanum sem átti að fjalla um mannlegu hliðamar á lífinu. Afi hafði ákveðið að gefa út sína fyrstu ljóðabók á 90 ára afmæli sínu en hún hafði verið í smíðum í fjórtán ár. Bókin er lífshlaup afa. Ég man að hann sagði að það hefði ekki hvarfl- að að sér að yrkja Ijóð áður fyrr enda enginn tími fyrir slíkt. Afi sagði mér svo frá þeim störfum sem hann hafði gegnt um ævina og sagði að lfldega ætti orðið þúsundþjala- smiður best við um sig. Það var sem sagt þegar líkaminn bilaði sem hann tók að yrkja en flest ljóðin era sam- in eftir að hann varð 85 ára. Það er engin ljót hugsun sem kemur fram í bókinni enda sagði afi að við lestur hennar gætu margir haldið að hann hefði ekki reynt neitt misjafnt í h'f- inu en fyrir honum væri það einfald- lega svo að orðin svartsýni, bölsýni og vantrú væra hreinlega ekki til, raunveraleikinn væri allt annar. Afi skrifaði mikið og margt var prentað eftir hann á lífsleiðinn i. Höndin var hans vopn. Hann sagði mér að lífs- hyggju sína væri að finna í einu Ijóð- anna í Ijóðabók sinni en þar segir: Að gefa og þiggja er gæfunnar leið, að gefa og þiggja er ævinnar skeið. Pá ræður máttur þess góða sem mannlífið þráir og mannelskan sjálf alltaf mjög dáir. Að lifa þannig um ævinnar skeið er öllum mönnum hin farsæla leið. Pá lífið færir oss gott að gera og ævikvöldið á þannig að vera. Við biðjum Guð að blessa minn- ingu afa og styrkja ömmu sem og okkur öll í sorginni. Hrönn og Ivar Orn. JOHANN * ÞORVALDSSON Látinn er rúmlega níræður Jó- hann Þorvaldsson fyrrv. skólastjóri á Siglufirði. Langri og starfsamri ævi er lokið. Hann var mikill félagsmálamaður sem lagði fram krafta sína á hinum ýmsu sviðum og mætti þar margt tfl nefna. Ekki verður það samt tíund- að hér en minnst þeirra starfa sem áttu kannski hug hans öðra fremur og sem hann vann að af eldlegum áhuga alla tíð. Skógræktin var þetta heillandi viðfangsefni sem hann varð svo gagntekinn af. Hann hefði þó getað fundið auð- veldari stað en Siglufjörð til að stunda sitt ræktunarstarf. Það er hinsvegar ekki háttur hugsjóna- manna og eldhuga að láta erfiðleik- ana smækka sig eða draga úr sér kjarkinn. Fyrstu tilraunir tfl skóg- ræktar í Siglufírði gengu illa og margir töldu dæmið næsta vonlaust - þetta þýddi ekki neitt, væri bara sóun á tíma og kröftum. Ekki vora þó allir sáttir við slíkt og allra síst Jóhann Þorvaldsson. Hann tók við stjóm Skógræktarfélags Siglufjarð- ar 1948 og tveimur áram síðar fékkst nýtt land tfl skógræktar í Skarðdalslandi. Þar var hafist handa af miklum dugnaði og ekki fengist um það þótt margir yrðu tfl að hrista höfuðið. Menn höfðu líka flestir um nokkuð annað að hugsa í þá daga þegar ,,Sfldarævintýrið“ var í algleymingi. I þetta sinn gekk hinsvegar „skógræktarævintýrið“ upp. Það kostaði mikla vinnu og fyrir- höfn - trén uxu hægt og þau urðu fyrir áfóllum vegna fannfergis og harðrar veðráttu. Jafnt og þétt uxu þessi tré - það tók bara sinn tíma - þetta var semsagt hægt og það var einmitt það sem skipti öllu máli. Jó- hann lifði það að sjá þetta „fóstur- bam“ vaxa og dafna við harðan kost tfl þess sem það er í dag - fallegt og skemmtflegt útivistarsvæði þar sem hæstu tré ná nú 10-11 m hæð. Lagðir hafa verið göngustígar um nokkum hluta svæðisins þannig að auðvelt er að komast um það enda fjölgar þeim stöðugt sem heim- sækja skógræktina í Skarðdal. Hún er sannarlega lifandi minnismerki um einstaka elju og þrautseigju við óblíðar aðstæður. Hann gat glaðst yfir þeim árangri sem náðist - hann var stoltur af þessu verki enda full ástæða til. Meðal skógræktarmanna var hann þekktur og virtur fyrir störf sín og framgöngu. Að verðleik- um hefur hann hlotið ýmsar viður- kenningar fyrir sín margvíslegu störf og þar á meðal skógrækt. Hann varð heiðursfélagi í Skóg- ræktarfélagi Islands fyrir all- nokkram áram og sömuleiðis að sjálfsögðu í sínu félagi, Skógrækt- arfélagi Siglufjarðar. Nú að leiðar- lokum vfljum við félagar hans og samherjar þakka honum fyrir ómet- anlegt starf hans í þágu skógræktar í Siglufirði og sér í lagi fyrir seigl- una sem þurfti til að standast erfið- leikana. Guð blessi minningu Jóhanns Þorvaldssonar. F.h. Skógræktarfélags Siglu- fjarðar, Anton V. Jóhannsson. í dag er til moldar borinn í Siglu- firði heiðursöldungurinn Jóhann Þorvaldsson, fyrrverandi skóla- stjóri. Langri og merkilegri vegferð er lokið. Jóhann var fæddur í Tungufelli í Svarfaðardal 16. maí 1909. Hann út- skrifaðist kennari 1932, kenndi síð- an í Súgandafirði og í Ólafsvík en kom til Siglufjarðar sem kennari 1938 og átti þar heima síðan. Jóhann var góðum gáfum gædd- ur, mælskumaður ágætur og sköra- legur í framgöngu. Það sem ein- kenndi hann þó framar öðra var einstök þrá til að bæta heiminn, leggja góðum málum lið og beijast fyrir þeim hugsjónum er hann taldi réttar. Fómfýsi Jóhanns og ósér- plægni var einstök og sér þess hvar- vetna merki þar sem hann kom að málum. Jóhann var kennari við Bama- skóla Siglufjarðar og síðan skóla- stjóri 1973-1979. Hann var einnig
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.