Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 55

Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 5$* skólastjóri Iðnskóla Siglufjarðar 1945-1973. Síldin hvai'f frá Siglufirði um 1960 og þá fóru erfiðir tímar í hönd í bæjarfélaginu og mikill fólksflótti. Loks kom svo að ákveðið var að leggja Iðnskólann niður. Það líkaði Jóhanni ekki vel og síðustu veturna hélt Jóhann Iðnskólanum á Siglu- firði úti af eigin rammleik. Hann stýrði skólanum og kenndi án þess að fá eða eiga nokkra von í launum fyrir stjóm eða kennslu önnur en þau að verða æsku Siglufjarðar að liði og koma henni til þroska. Sama fórnfýsi einkenndi öll félagsstörf Jóhanns. Hann var bindindisfröm- uður og var forstöðumaður Gesta- og sjómannaheimilis stúkunnar Framsóknar á Siglufirði 1941-1960. Þá gaf hann út og ritstýrði blaði templara „Reginn" um árabil. Jó- hann starfaði mikið að málefnum templara og var heiðursfélagi Stór- stúku Islands. Þá var hann æðstitemplar stúkunnar Framsókn- ar nr. 187 og gæslumaður bama- stúkunnar EyraiTÓsar nr. 68. Jóhann hafði brennandi áhuga á skógrækt. Ekki þótti líklegt að skógur þrifist í Siglufirði. Jóhann gafst ekki upp og ásamt með ung- lingum Siglufjarðar kom hann upp undra fallegu skógarsvæði neðst í Skarðsdal. Þar prýða barrtré og bera elju og þrótti Jóhanns vitni um ókomin ár. Jóhann var sæmdur fálkaorðu fyrir störf að kennslu og skógrækt og var heiðursfélagi Skógræktarfélags Islands. Þá er að geta starfa Jóhanns að stjórnmálum en á þeim vettvangi kynntist ég honum best. Jóhann var framsóknarmaður af brennandi hugsjón. Hann bar fram hugsjónir flokksins af ógleymanlegri mælsku og þrótti og vísaði flokksbræðmm sínum á rétta slóð ef honum þótti sveigt af leið. Hann var ágætlega ritfær og stýrði Einherja, blaði framsóknarmanna í Siglufirði, all- mörg ár. Sparaði hann hvorki tíma sinn né atorku við að halda blaðinu úti og gera þeð sem best úr garði. Kona Jóhanns var Friðþóra Stef- ánsdóttir, myndar- og mannkosta- kona, systir kempunnar Skafta skipstjóra á Nöf. Lifir Friðþóra mann sinn og dvelur á Sjúkrahúsinu á Siglufirði. Börn þeiiTa eru fimm. Sigríður sjúkraliði í Reykjavík, Þorvaldur framkvæmdastjóri SSA Seyðisfirði, Stefanía leikskólakennari í Reykja- vík, Indriði bankamaður í Reykja- vík og Freysteinn fréttastjóri á Morgunblaðinu. Eg kveð Jóhann Þorvaldsson með miklu þakklæti fyrir margra ára- tuga trygga vináttu og óbrigðula leiðsögn. Fyrir hönd framsóknar- manna þakka ég honum mjög mikil og fómfús forystustörf, það var öll- um lærdómsríkt að kynnast honum. Jóhann þráði að bæta heiminn og ég held að heimurinn hafi batnað fyrir tilverknað hans. Jóhann var stórheiðarlegur maður og til mikill- ar fyrirmyndar. Blessuð sé minning hans. Páll Pétursson. Það er erfitt að vera langt að heiman á stundu þegai’ ástvinur fellur frá. En þó sorgin sé mikil er margs að minnast og þakka.. Eins og 90 ára afmælisdagsins hans afa, sem var svo skemmtilegur og svo dýrmætt að eiga hann í minning- unni. Þótt sjúkur væri, ljómaði afi af gleði og stolti. Hafði náð sínu tak- marki sem var að gefa út ljóðabók- ina sína, lifa 90 ára afmælisdaginn, og gat stoltur horft til baka yfir ævistarf sitt. Einhvern veginn fmnst mér afi alltaf hafa náð þeim markmiðum sem hann ætlaði sér. þó þau væru ekki alltaf hefðbundin og þessu náði hann líka. Það er ljúft að hugsa til baka, þegar lítil stelpa sat í kjöltu afa og hlustaði á „baula þú nú búkolla mín“ og íleiri sögur ,því engin sagði eins vel sögur og afi. Eða þegar við sátum saman uppi, við skrifborðið og afi leiðbeindi mér með vinnubækumar mínar veturinn sem ég var hjá afa og ömmu á Sigló. Eins alla sunnudagana þegar við fómm saman niður í stúku og svo sumrin þegar arkað var við hlið afa inn í skógrækt að hlúa að plöntun- um sem honum þótti svo undur vænt um. Að virða og lifa í sátt við náttúruna, að „rækta“ hvort sem það er skógurinn, eða tráin, og það að vera samkvæmur sjálfum sér eru meðal annars það dýrmæta vega- nesti sem afi skilur eftir, til okkar hinna. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku afi. Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir og fjölskylda, Danmörku. Jóhann Þorvaldsson var alla sína löngu starfsævi í forystusveit skóg- ræktarfólks í sínu heimahéraði í Siglufirði og lét víða til sín taka í þeim málum. Hann var í hópi braut- ryðjenda á þeim tíma þegar íslensk skógrækt átti sér fáa formælendur og lét aldrei af óbilandi trá sinni á það afl sem í íslenskri gróðurmold er fólgið. Hans hugsjón var að hægt væri að breyta blásnum melum í fagra gróðurreiti - og það væri líka hægt í skóglausum og jafnvel gróð- urvana sveitum þessa lands. Hann var kennari af guðs náð - hvort sem hann talaði til ungra eða þeirra sem eldri voru - ræktun í víðasta skilningi var honum eðlis- læg - líka þegar hún tengdist hinum huglægu þáttum. I huga okkar skógrætkarmanna er Jóhann Þorvaldsson hetja í bar- áttunni um að klæða landið þeim gróðri sem það á skilið - við minn- umst hans frá samstarfinu innan skógræktarfélaganna þar sem hann lagði allt gott til - hvatti menn til dáða í ræðum og riti - og jafnvel í bundnu máli ef svo bar undir. Hann var eldhugi sem sannarlega var gott að eiga að. Sá eldur var honum enn í huga þegar halla tók undan fæti á langri og farsælli ævi. Við skógræktarfólk minnumst hans frá samstarfinu um áratuga skeið - munum eftir honum með tindrandi augu í ræðustól - með einlægum og heitum vilja til að vinna landi sínu og þjóð allt að gagni. Nú við fráfall hans flyt ég fyrir hönd Skógræktarfélags Islands að- standendum Jóhanns innilegar samúðarkveðjur. Hans mun lengi minnst á vettvangi íslenskrar skóg- ræktar. Hulda Valtýsdóttir, fyrrv. formaður Skógræktarfélags fslands. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, LILJA JÓNSDÓTTIR frá Flateyri, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Skjóli, lést fimmtudaginn 14. október. Jón Eyjólfsson, Guðrún Indriðadóttir, Eyjólfur Jónsson. + MARÍANNA MORTENSEN, Ásbúðartröð 15, Hafnarfirði, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Þorsteinn Ingólfsson, Ingólfur Þorsteinsson, Anna Sigurjónsdóttir, Jóna Sigurjónsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGIMAR BRYNJÓLFSSON fyrrum oddviti, Ásláksstöðum, Arnarneshreppi, varð bráðkvaddur laugardaginn 9. október. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mið- vikudaginn 20. október kl. 13.30. Sigríður Axelsdóttir, synir, tengdadætur og afadrengir. t Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR JENSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á A-gangi dvalarheimilisins Hlíðar. Rósa Rósantsdóttir, Reynir Rósantsson, Fjóla Rósantsdóttir, Signý Rósantsdóttir, Benna Rósantsdóttir, Helga Rósantsdóttir, Anna Rósantsdóttir, Árni Rósantsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN BJARNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR, Garðvangi, áður til heimilis á Hringbraut 70, Keflavík, lést á dvalarheimilinu Garðvangi, fimmtu- daginn 14. október. Jarðarförin auglýst síðar. Gíslína S. Farnsworth, William W. Farnsworth, María S. Weiner, Norman G. Weiner, Ómar Steindórsson, Guðlaug Jóhannsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Jón Axel Steindórsson, Brynja Sigfúsdóttir, Guðrún Dóra S. Cabrera, Pete Cabrera, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÁRMANN ÁRNASON, Hamrahlíð 40, Vopnafirði, lést í Sundabúð fimmtudaginn 14. október. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurveig Björgvinsdóttir, Guðrún Kr. Ármannsdóttir, Sigurbjörn Á. Ármannsson, Erna Jóhannsdóttir, Hreinn Ármannsson, Rósa Ármannsdóttir, Hannes Haraldsson, Sigurvin Ármannsson, Sonja Þorsteinsdóttir, Guðbjörg Ármannsdóttir, Skæringur Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur sonur okkar, bróðir og bamabarn, NIKULÁS INGI VIGNISSON, lést sunnudaginn 10. október í Álasundi, Noregi. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu, föstu- daginn 22. október kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hitt húsið — Ung List, Aðalstræti 2, Reykjavtk. Sigurdís Ingimundardóttir, Vignir Jóhannsson, Hrafn Mar Sveinsson, Marsibil Brák Vignisdóttir, Baldur Snær Sveinsson, Erling Ormar Vignisson, Jóna Hjaltadóttir, Hjörtur Jóhann Vignisson, Vigdís Guðbjarnadóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURLAUG DAVÍÐSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni mánu- daginn 18. október kl. 15.00. Alda Jónsdóttir, Þorsteinn Egilsson, Halldóra Jónsdóttir, Hannes Baldvinsson, Þórdís Jónsdóttir, Haukur Hjaltason, Helen Þorkelsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÍÐUR GUÐRÚN SÍMONARDÓTTIR, Dverghömrum 32, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspitalans fimmtu- daginn 14. október. Þorbjörn Guðmundsson, Katrín Björk Svavarsdóttir, Bryndís fsfold Hlöðversdóttir, Árni Rúnar Hlöðversson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.