Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 63 BRÉF TIL BLAÐSINS Er samkynhneigð meðfædd og óbreytanleg? Frá Sverri Halldórssyni: UMRÆÐA um samkynhneigð hef- ur skotið upp kollinum á síðum dag- blaðanna á undanförnum misserum og er það vel því mikil þörf er á um- fjöllun um þetta málefni. Hins veg- ar er umhugsunarefni að svo virðist sem talsmenn samkynhneigðra og samtaka þeirra telji sig hafa einka- rétt á því að tjá sig um samkyn- hneigð og málefni samkynhneigðra. Reynt er að koma í veg fyrir að op- in og upplýst umræða fari fram um samkynhneigð og reynt að gera lít- ið úr þeim sem tjá aðrar skoðanir en þær sem samkynhneigðir og samtök þeirra viðurkenna. Pessar aðferðir benda ekki til sterkrar málefnastöðu hjá þessum aðilum. Tekist hefur að koma tveimur ranghugmyndum inn hjá stórum hluta fólks og þessar tvær hug- myndir hafa mikil áhrif á opinbera stefnu varðandi fjölskylduna, kyn- ferðismál og hjónaband. Þessar tvær ranghugmyndir eru: að samkynhneigð sé meðfædd, þ.e. genetísk (erfðafræðileg) að samkynhneigð sé þar af leiðandi ekki hægt að breyta Hvorug þessara hugmynda er rétt og í raun eru engar vísindaleg- ar rannsóknir sem sýna fram á réttmæti þeirra, þvert á móti. Al- varlegasta afleiðing þessara röngu fullyrðinga er e.t.v. áhrifín sem þær hafa á fjölmarga samkynhneigða. Þeii- samkynhneigðu einstaklingar sem vilja ekkert frekar en verða frjálsir frá þessari hneigð og eign- ast fjölskyldu og börn fá þau skila- boð að það sé ekki hægt. Fulltrúar samtaka samkynhneigðra minnast aldrei á þennan stóra hóp í mál- flutningi sínum, enda þjónar það ekki þeirra markmiði. Staðreyndin er hins vegar sú að til er fjöldinn allur af fólki sem tekist hefur að snúa baki við samkynhneigð og margir hafa gengið í hjónaband og eignast böm og lifa hamingjusamir í gagnkynhneigðu sambandi. Hægt er að lesa frásagnir þessa fólks t.d. á netinu á heimasíðum einhverra þeirra samtaka sem fást við að hjálpa fólki sem vill snúa baki við líferni sínu og breyta kynhneigð sinni. Einn hinna fjölmörgu sem segja sögu sína er Anthony Falz- arano, framkvæmdastjóri Trans- formation Ministries. Hann var samkynhneigður og lifði því lífi frá 17 ára aldri til 26 ára aldurs. Hann leiddist inn í þennan lífsstíl og vissi ekki að hann ætti annarra kosta völ. Hann segir: Ég vissi ekki að þó svo að ég hefði ekki valið að vera samkynhneigður þá þyrfti ég ekki að vera það. Ég hafði val, ég gat breytt kynhneigð minni. í Banda- ríkjunum eru nokkur samtök sem vinna að því að aðstoða samkyn- hneigða. Mörg okkar erum búin að fá nóg af þessum lífsstfl sem í upp- hafi virðist veita mikið frelsi en þegar á líður fjötrar hann okkur og leiðir oft til dauða. 35 af vinum mín- um og kunningjum hafa látist úr al- næmi og ég vil ekki sjá fleiri smit- ast...“ Þetta er rödd eins þeirra þús- unda sem tekist hefur að losna úr fjötrum samkynhneigðar sinnar og hann þráir að fleiri sem eins er ástatt um fái að reyna hið sama. Fyrir þá einstaklinga sem vilja kynna sér starfsemi slíkra samtaka til hjálpar samkynhneigðum er bent á eftirfarandi vefsíður: httpi/Avww.exodusintl.org' http://www.stonewalIrevisited.com/ og „Narth“, samtök lækna á þessu sviði, http7/www.narth.com/ Að lokum vil ég þakka sr. Ragnari fyr- ir ágæta grein í Morgunblaðinu 14. apntpmnpr SVERRIR HALLDÓRSSON, Teigaseli 4, Reykjavík. l.is ALL.TAf= GITTHVAÐ NÝTI 10 rósir /cr. 990 Full búð af nýjum gjafavörum. Gott verð. Opið til kl. 10 ðll kvöld Daíía Fákafeni 1 I, sími 568 9120. SKOLASKOR FRÁ KangaROOS Hlýir, flottir, sterkir, með TEX-vatnsvarnarfilmu Tegund: Shock Litir: Rauðir og svartir Stærðir: 30-40 Verð frá kr. 5.495 ; Pantanir óskast sóttar DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Reykjavík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Listaháskóli á Austur- landi Frá Einari Vilhjálmssyni: MIKIÐ hefur verið rætt um flutn- ing stofnana frá Reykjavík til ann- arra landshluta. Er slíkur flutning- ur oft næsta sérkennilegur eins og dæmin sanna. Hreppaflutningur byggðastofnunar og Landmæling- anna eru dæmigerðir fyrir pólitísk spillingamál. Almenningur þarf að borga hundruð milljóna fyrir afglöp af þessu tæi. Þetta eru þjónustu- stofnanir sem eru best settar í Reykjavík. Listaháskóli er að taka til starfa. Þar gefst tækifæri til þess að nýta skólabyggingarnar á Eiðum og efla um leið atvinnulífíð á Héraði. Þetta ætti að falla að hugmyndum menntamálaráðherra um fleiri menningarsetur utan Reykjavíkur. Hér væri ekki um flutning á stofn- un að ræða, heldur skynsamlega vistun nýrrar stofnunar. Reykjavík er ekki sjálfkjörinn staður fyrir allar menntastofnanir landsins, Háskólinn á Akureyri er dæmi um það. Austfirðingar eru sannarlega vel að því komnir að fá þennan óvistaða háskóla, enda ekki á kot vísað þar sem Eiðastaður er. íslenskar listaspú-ur ættu að þroskast vel í þessu fallega og vist- væna umhverfi, fjarri skarkala og spillingu borgarinnar. Kjarval undi löngum á þessum slóðum í óspilltri náttúrunni og í nánum tengslum við skapara sinn, líkt og Kristur sem fór út í eyðimörkina til fundar við Guð sinn. EINAR VILHJÁLMSSON, Garðabæ. mbl.is Lagersala Fjölva Smiðjuvegi 2 (bak við Bónus) SÍÐASTA SÖLUHELGI - NÝTT KORTATÍMABtL Otrúlega lágt verð. Allir fá bókagjöf í kaupbæti Þaö er handagangur í öskjunni á Lagersölu Fjölva. Nú fer hver aö veröa síöastur áb krækja sér í bækur. Úrvaliö er frábært og verbib hreint ótrúlegt. Ævisögur -Skáldsögur - Listaverka og Tónlistarbækur - Nátturufræbi - Dulræn fræöi - Heilsubækur - íslands- bækur - Leibsögurit - Barnabækur -Teiknimyndasögur. Frábærir bókapakkar á enn betri vildarkjörum. Verib velkomin — Allir fá bókagjöf í Kaupbæti Opið um helgina Laugardaginn: 10:00 - 17:00 Sunnudaginn: 12:00 - 17:00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.