Morgunblaðið - 16.10.1999, Qupperneq 76
i.
Netþjónar
og tölvur
i COMPAd
Gott upplýsinga-
kerfi borgar sig - er
þitt kerfi skifvirkt?
Það er dýrt að láta starfsfólkið biða!
Tölvukerfi sem virkar
563 3000
M0RGUNBLAÐ1Ð, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBUS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1
LAUGABDAGUR 16. OKTÓBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Leitað að
rjúpna-
» skyttum
BJÖRGUNARSVEITIR leit-
uðu að tveimur rjúpnaskyttum
í gærkvöldi og stóð enn yfir leit
að annarri þeitra á miðnætti.
Skyttan sem enn var saknað
týndist á VíðidalsfjaUi á mörk-
um Húnavatnssýslna. Maður-
inn hafði haldið ásamt félög-
um sínum á veiðar í gærmorg-
un, á fyrsta degi rjúpnaveiði-
tímans, en skilaði sér ekki af
fjalli fýrir myrkur. Björgunar-
sveitir Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu leituðu
ó’ i mannsins í gærkvöldi.
Hin skyttan týndist á
Klettshálsi mifii Kolla- og
Kvígindisfjarðar. Björgunar-
sveitir leituðu mannsins í gær-
kvöldi, en hann skilaði sér til
byggða laust fyrir miðnætti.
Heildarmynd stóra fíkniefnamálsins er óðum að skýrast
J átningar liggja fyrir
HEILDARMYND stóra fíkniefnamálsins, sem
er til rannsóknar hjá lögreglu, hefur verið að
skýrast að undanförnu. Hefur rannsóknin leitt í
ljós hvemig staðið var að innflutningi ííkniefn-
anna og hverjir eru viðriðnir málið. I málinu
liggja fyrir játningar meðal gæsluvarðhaldsfanga
á því að hafa flutt inn nokkurt magn ííkniefna og
eru tengsl þeirra við fíkniefnin einnig fyrir hendi.
Lögreglan hefur upplýst Morgunblaðið um að
málið hafi verið til rannsóknar hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar í Reykjavík frá því í maí síðastliðn-
um og heldur rannsóknin áfram enda er henni
hvergi nærri lokið. Hún hefur m.a. beinst að
þekktum aðilum úr fíkniefnaheiminum, skipu-
lagningu ætlaðra brota og fleiru sem varðar aðila
sem hafa tengst innflutningi og dreifingu efn-
anna hér á landi.
Á annað hundrað kg af fíkniefnum
eftír smyglleiðinni
Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur rann-
sókn málsins leitt í ljós að mikið af fíkniefnum
hefur komið eftir smyglleiðinni sem upprætt var
snemma í september. Er talið að smyglleiðin hafi
verið opin í um eitt ár og bendir ýmislegt til þess
að á þeim tíma kunni að hafa verið flutt inn á
annað hundrað kg af ýmiss konar fíkniefnum.
Beinist rannsóknin m.a. að því að kanna þátt
sumra gæsluvarðhaldsfanganna í sjálfum inn-
flutningi efnanna og hvaða þátt aðrir fanganna
eiga í dreifingu þein-a hérlendis og hvaða þátt
enn aðrir fanganna eiga í fjármögnun efnanna.
Hafa starfsmenn fíkniefnadeildar lögreglunnar
lagt nótt við dag undanfamar vikur við að upp-
lýsa málið, en þess ber að geta að fleiri mál eru
tfi rannsóknar hjá deildinni sem einnig þarf að
sinna.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er hins
vegar ljóst að stóra fíkniefnamálið hefur reynt
verulega á fjárhag lögreglustjóraembættisins, en
ekki virðist að jafnaði vera gert ráð fyrir svo um-
fangsmiklum rannsóknum sem þessari.
Sem dæmi um hversu tímafrek rannsókn máls-
ins er má nefna að ferðir með sakborninga og
ferðir rannsóknaraðila austur á Litla-Hraun, þar
sem sakborningar sitja í gæsluvarðhaldi, eru
orðnar um 50 talsins, en í hverri ferð eru eknir
um 100 km sem tekur a.m.k. 2-3 klukkustundir
að öllu meðtöldu. Þá hefur talsverður tími farið í
að laga vinnubrögð lögreglunnar að nýju lagaum-
hverfi, sem rakið er til nýrra ákvæða í lögum um
meðferð opinberra mála.
Umtalsverðum árangri náð í baráttunni
gegn fikniefnum
Lögreglan metur stöðuna í málinu svo, að um-
talsverður árangur hafi náðst í baráttunni gegn
fíkniefnum, en hann felst ekki síst í því að tekist
hefur að loka fyrir nokkuð örugga innflutnings-
leið fíkniefna til landsins. Þá hefur tekist að
handtaka þá sem tengjast innflutningnum og þá
er virðast hafa fjármagnað kaupin á efnunum.
Lögreglan telur að á næstunni þurfi að huga
vel að skipulagi fíkniefnamarkaðarins hér á landi
og fylgjast gaumgæfilega með þróun hans með
tilliti til breyttra aðstæðna. Til þess að svo geti
orðið þurfi góð aðstaða og nýir möguleikar til
slíks að vera til staðar hjá þeim, sem fahð er að
sinna því.
Fólki smyglað skipulega til landsins
Greiða frá hálfri
milljón fyrir að
komast
LÖGREGLURANNSÓKN er lok-
ið í máli hins 27 ára gamla
Marewans Mostafa, sem beðið
hefur um landvist hérlendis sem
pólitískur flóttamaður. Hefur mál
hans verið sent Utlendingaeftirlit-
inu til umfjöllunar.
Mostáfa var handtekinn hinn 5.
^któber og settur í viku gæslu-
varðhald samkvæmt úrskurði hér-
aðsdóms en Hæstiréttur felldi úr-
skurðinn úr gildi og var maðurinn
settur í umsjón RKI þar sem hann
er nú.
Skipulegur innflutningur
Karl Steinar Valsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að við
rannsókn málsins hefði komið í
ljós að um skipulegan ólöglegan
innflutning var að ræða þar sem
hmgað
viðkomandi einstaklingur greiddi
háa fjárhæð fyrir að komast til ís-
lands. Væru nú þegar nokkur
dæmi um slíkt hérlendis, en þær
fjárhæðir sem um ræðir nema frá
hálfri milljón króna á hvem inn-
flytjanda.
íslenskir aðilar
ekki útilokaðir
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu er ekki hægt að útiloka að
aðilar hérlendis komi að hinum
ólöglega innflutningi á einn eða
annan hátt.
Skipuleg brotastarfsemi sem
tengist ólöglegum innflutningi út-
lendinga er vel þekkt vandamál á
Norðurlöndunum og í Þýskalandi
og segir lögreglan að það sé hið
raunverulega vandamál sem blasi
við yfirvöldum hérlendis.
Hafnarframkvæmdir í Stykkishólmi
Brúin út
í Stykki
löguð
UNNIÐ er að lagfæringu brúar-
innar sem liggur út í hólmann
Stykki íyrir utan Stykkishólm.
—* Viðgerðir hófust um síðustu
mánaðamót og er gert ráð fyrir að
þeim ljúki fyrir lok nóvember. Ver-
ið er að gera við undirlag brúarinn-
ar sem og einn stöpul hennar og er
það skipasmíðastöðin Skipavík sem
að verkinu stendur.
Mennimir á myndinni þurfa ekki
^.að kvarta undan veðri þar sem þeir
Weppast við að koma brúnni í gott
horf.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Þorkell
Sjöunda Cirrus SR20 flugvélin miililenti á Reykjavíkurflugvelli í gær, á leið sinni tíl Evrópu þar sem hún
verður notuð við kynningarstarf. Á myndinni til hægri er töivumynd af vélinni hangandi í fallhlíf.
Ein af fyrstu flugvólunum frá Cirrus millilendir í Reykjavfk
Með innbyggða neyðar-
fallhlíf fyrir flugvélina
HAFIN er í Bandaríkjunum
framleiðsla á Ijögurra sæta eins
hreyfils flugvél úr trefjagleri
og með innbyggðri neyðarfall-
hlíf fyrir sjálfa flugvélina. Ein
af fyrstu vélunum af þessari
gerð, SR20, hafði hér viðdvöl í
gær í ferjuflugi austur um haf.
Að sögn Snorra Guðmundsson-
ar, flugvélaverkfræðings hjá
Cirrus Design Corporation, er
þetta fyrsta flugvélin með inn-
byggðri neyðarfallhh'f sem hlýt-
ur lofthæfisskírteini. Hann tel-
ur að hún sé tæknilega þróað-
asta smáflugvélin í heiminum
um þessar mundir.
Cirrus flugvélaframleiðand-
inn er í borginni Duluth í
Minnesota-ríki. Fyrirtækið
framleiddi og seldi vélar í hlut-
um sem kaupendurnir settu
sjálfír saman en árið 1994
kynntí það þessa nýju vél,
SR20, og fékk lofthæfisskír-
teini fyrir hana. Snorri hóf
störf hjá fyrirtækinu árið eftír
og stjórnaði tilraunaflugi vélar-
innar. Nú annast hann allt sem
snýr að flugeðlisfræði við hönn-
un og smíði flugvélarinnar.
Snorri segir að trefjaplastið
hafi mikla yfirburði yfir ál við
hönnun og smíði fiugvélar.
Auðveldara sé að móta skrokk
og vængi vélarinnar út frá
flugeðlisfræðilegum sjónarmið-
um. Sjást þess merki á vélinni,
flatarmál vængja er 30% minna
en á öðrum vélum í sama
stærðarflokki og skrokkurinn
er hafður bjúglaga, líkist fiski,
tíl að minnka viðnám. Mikil
áhersla var lögð á öryggi við
hönnun SR20, Snorri nefnir ör-
uggari sætí og stjórnklefa sem
tryggja á meira öryggi en í
sambærilegum vélum. Þá er
neyðarfallhlífin einstök. Ef
óhapp verður getur fallhlífin
borið flugvélina. Að vísu eyði-
leggst hún við lendingu en far-
þegar og flugmenn stíga heilir
út úr flakinu og það er aðalat-
riðið eins og Snorri bendir á.
Þótt framleiðsla á SR20 sé
nýlega hafin hafa 400 flugvélar
verið pantaðar. Búið er að af-
henda þrjár. Flugvélin sem
kom við á Reykjavíkurflugvelli
í gær er sú sjöunda og verður
notuð við kynningar hjá sölu-
manni fyrirtækisins í Evrópu.
Flugvélin kostar tæpa 180 þús-
und bandaríkjadali eða liðlega
tólf og hálfa milljón íslenskra
króna og eru sjálfstýring og
staðsetningartæki innifalin í
verðinu. Snorri segir að það sé
talsvert lægra verð en á þeim
flugvélum sem eru ríkjandi á
markaðnum í dag.