Morgunblaðið - 09.12.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Siv Friðleifsdóttir lætur af formennsku í norrænu ráðherranefndinni
Hefur lagt aukna áherslu
á samstarf Norður-
Atlantshafsr íkj a
AUKIN samvinna ríkja við Norður-
Atlantshafið hefur verið eitt helsta
áhersluatriðið í starfi norrænu ráð-
herranefndarinnar undir for-
mennsku Sivjar Friðleifsdóttur um-
hverfisráðherra. Hún segir að
tilgangur þess sé að gæta hags-
muna landanna á þessu svæði og
sinna sameiginlegum hagsmuna-
málum eins og sjálfbærri nýtingu
fiskistofna og verndun sjávarins
gagnvart mengun.
I vikunni var haldin ráðstefna á
vegum norrænu ráðherranefndar-
innar um samstarf þjóða á Norður-
Atlantshafssvæðinu, þar sem fram
kom m.a. að hafið og auðlindir þess
séu verðmætar eignir þjóðanna,
sem þær þurfi að sameinast um að
vernda og nýta á skynsamlegan
hátt.
Siv Friðleifsdóttir lætur af for-
mennsku í norrænu ráðherranefnd-
inni um næstu áramót og stýrði síð-
asta fundi sínum í gær. Við
formennskunni tekur Marianne
Jelved frá Danmörku. Siv segir að
norrænt samstarf hafi mun meiri
þýðingu í dag vegna breyttrar
heimsmyndar, falls Sovétríkjanna
og aukins samstarfs við Eystra-
saltslöndin í kjölfarið, styrkingar
Evrópusambandsins og umhverfis-
mála sem krefjist náinnar samvinnu
út fyrir landamæri ríkjanna.
Fyrsta áþreifanlega skrefið
I formennskutíð Sivjar Friðleifs-
dóttur hefur verið hrundið af stað
aukinni samvinnu við önnur ríki
sem liggja að Norður-Atlantshaf-
inu; Kanada, Nýfundnalands,
Labrador, Orkneyja og Hjaltlands-
eyja. Fyrsta áþreifanlega skrefið í
þeirri viðleitni var ráðstefna sem
haldin var í vikunni í Norræna hús-
inu undir yfirskriftinni „Ráðstefna
um samvinnu á Norður-Atlants-
hafssvæðinu."
Siv segist vera mjög ánægð með
hvernig til tókst á ráðstefnunni.
Akveðið var að halda samstarfinu
áfram og er nú stefnt að því að und-
irbúa aðra ráðstefnu og fund á
næsta ári. Hún segist sannfærð um
að samstarfið eigi eftir að aukast á
næstu árum, sérstaklega vegna
þeirra sameiginlegu hagsmuna sem
þjóðirnar hafi að gæta á þessu
svæði.
Siv nefnir í þvi sambandi sjávar-
útvegsmál og hvernig við stýrum
sókn okkar í auðlindir sjávar. Þá
segir hún að einnig megi nefna um-
hverfismerkingar á sjávarafurðum,
sem verði mjög til umræðu á næst-
unni, ferðaþjónustu vegna svipaðra
aðstæðna á þessum dreifbýlu og að
mörgu leyti viðkvæmu svæðum.
Heilbrigðisþjónusta er annað mál
sem rætt var á ráðstefnunni og
hvernig hægt er að nýta nútíma
tækni til að bæta heilbrigðisþjón-
ustu í dreifbýli.
Betra að leysa mál
í sameiningu
Soren Christensen, fram-
kvæmdastjóri norrænu ráðherran-
efndarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að löndin umhverfis
Norður-Atlantshafið glímdu við
ýmis sameiginleg vandamál sem
þau gætu betur leyst í sameiningu.
I því skyni væri fyrst og fremst
nauðsynlegt að ræða hver þessi
sameiginlegu vandamál væru,
hvernig þau eru til komin og hvern-
ig tekið er á þeim í dag. Til dæmis
hvernig bregðast eigi við aukinni
mengun hafsins.
Einnig telur Christensen að lönd-
in geti átt meiri samvinnu varðandi
þróun ferðamannaiðnaðarins og
uppbyggingu menntunar í dreifðari
byggðum á þessum norðlægari
slóðum álfunnar. Hann nefndi einn-
ig menntamál og sagðist hrífast af
því hvernig uppbygging menntunar
væri hér á landi, sé miðað við fá-
mennið og dreifbýlið.
Hafið og auðlindir þess eru
verðmætar eignir
Kjartan Hoydal, framkvæmda-
stjóri Norrænu Atlantsnefndarinn-
ar, fjallaði um verndun hafsins og
sjálfbæra nýtingu auðlinda í hafinu.
Meginniðurstaða hans var sú að
það sé fyrir hendi samstarfsvettv-
angur Kanada, íslands, Færeyja,
Noregs og norðurhluta Skotlands.
Hann segir að draga þurfi athygl-
ina að því að löndin eigi sameigin-
legra hagsmuna að gæta og jafn-
framt eigna sem nauðsynlegt sé að
vernda, t.d. ómengað Norður-Atl-
antshaf. Þar komi einnig til skynsa-
mleg nýting á auðlindum hafsins.
Hoydal segir að líta beri svo á að
þjóðirnar hafi þarna í höndunum
verðmæta eign sem þurfi að stjórna
á hagkvæman og arðsaman hátt, og
það sé best að gera í sameiningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðherramir fimm í norrænu ráðherranefndinni taka höndum saman um aukið samstarf. Frá vinstri talið er
Jonathan Motzfeld frá Grænlandi, Marianne Jelved frá Danmörku, sem tekur við formennsku um ármótin, Siv
Friðleifsdóttir, Jan-Erik Enestans frá Finnlandi og Högni Hoydal frá Færeyjum.
Alþjóðleg siglingakeppni milli
Frakklands og íslands í júní 2000
fslandssiglinga
franskra sjó-
manna minnst
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
alþjóðlega siglingakeppni á
næsta ári í samstarfi franskra og
íslenskra aðila. Siglt verður frá
borginni Paimpol á Bretagne-
skaga til Reykjavíkur og til baka.
Keppnin á að hefjast 18. júní
2000 og er siglingaleiðin 1.300
sjómflur. Að auki verður að lík-
indum tveimur frönskum aldar-
gömlum freigátum í eigu franska
sjóhersins siglt til Islands og
stefnt að því að þær komi í höfn
þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Keppnin, „Skippers d’Islan-
de“, sem aðilar í borginn Pa-
impol áttu frumkvæði að, var
kynnt á þriðjudag á einni
stærstu bátasýningu í Evrópu,
Salon nautique, sem haldin er í
sýningarsölunum í Porte de
Versailles. Fyrir kynningunni
stóð áhöfn skútunnar ADEPAR
og fleiri bakhjarlar keppninnar.
Boðið var upp á íslenskan mat og
ostrur frá Bretagne.
Fornar franskar freigátur
fyrir fuilum seglum
Sigríður Snævarr, sendiherra
íslands í Frakklandi, flutti ávarp
en viðstaddir voru æðstu full-
trúar Paimpol og þingmaður
borgarinnar, Þórunn Sigurðar-
dóttir fyrir hönd Reykjavíkur
menningarborgar 2000 og full-
trúar franska sjóhersins sem til-
kynntu um fyrirhugaða siglingu
freigátnanna til Islands.
Að sögn Sigríðar þótti yfirlýs-
ing franska sjóhersins um fyrir-
hugaða siglingu þessara fornu
herskipa mikil tíðindi.
Frönsku aðilarnir sem áttu
hugmyndina að keppninni settu
sig í samband við sendiráðið 1 Pa-
rís og íslenska aðila á síðasta ári
og fengu góðar undirtektir. En
að keppninni standa m.a. eftir-
taldir aðilar: Flugleiðir, Reykja-
víkurborg, menningarborg 2000,
Paimpol-borg, Comptoir d’Islan-
de, Bretagne-hérað, Conseil
Géneral des Cotes d’Armor, og
Siglingasamband Bretagne-
skaga.
Endurlífga söguleg
tengsl landanna
Tilgangur keppninnar er m.a.
sá að endurlífga söguleg tengsl
landanna en franskir sjómenn
frá Paimpol og víðar í Frakk-
landi sigldu í miklum mæli til Is-
lands, einkum á síðustu öld og
voru kallaðir „íslendingarnir" af
löndum sínum.
Yfir 20 keppendur hafa þegar
skráð sig í keppnina og útlit er
fyrir að þátttaka verði góð. Allar
gerðir af seglbátum verða með í
keppninni. Geta keppendur
skráð sig í keppnina á heimasíðu
hennar: http://perso.wanadoo.fr./
.skippers.d.islande/
Náttúruverndarsamtök Islands
Kristján standi við orð
sín úr prófkjörsbaráttu
NÁTTTÚRUVERNDARSAMTÖK
íslands telja að Kristján Pálsson,
varaformaður umhverfisnefndar Al-
þingis, muni taka undir það álit 2.
minnihluta umhverfisnefndar að
skoða beri betur aðra virkjanakosti
en Fljótsdalsvirkjun. Segjast sam-
tökin munu fagna öllum skynsamleg-
um tilraunum Kristjáns til að standa
við yfirlýsingar sínar frá því í próf-
kjörsbaráttunni fyrir ári um að Eyja-
bakkana verði að vemda.
I fréttatilkynningu sem Náttúru-
verndarsamtökin sendu frá sér í gær
segirm.a.:
„Kristján Pálsson, varaformaður
umhverfisnefndar Alþingis, slær frá
sér og ásakar náttúruverndarsinna
um að eyðileggja fyrir sér tilraunir til
að finna málamiðlunarlausnir, svo
þyrma megi Eyjabökkum. Vísar
hann einkum til svars fulltrúa Nátt-
úruverndarsamtaka Islands á fundi
umhverfisnefndar þann 3. desember
sl. við spumingu Kristjáns varðandi
afstöðu samtakanna til fyrirhugaðr-
ar Kárahnúkavirkjunar.
Virðist sem Kristjáni hafi fallið all-
ur ketill í eld við áður greint svar
Náttúmvemdarsamtaka Islands; að
honum sé fullkomlega um megn að
vinna að verndun Eyjabakka líkt og
hugur hans þó stendur til. Til að
mynda er ekki að finna í áliti 1.
minnihluta umhverfisnefndar AI-
þingis, sem Kristján hafði forgöngu
um að semja, neina tilvísun í þá mála-
miðlunarmöguleika sem Kristján
segir sjálfan sig hafa barist fyrir und-
anfarin misseri. Nefnilega Kára-
hnúkavirkjun og þann möguleika að
veita Jökulsá í Fljótsdal yfir í Háls-
lón.“
í fréttatilkynningunni segir enn-
fremur að Kristján láti sér nægja að
saka náttúruvemdarsinna og Nátt-
úruverndarsamtök íslands sérstak-
lega um skemmdarverkastarfsemi
og einstrengingslegan málflutning
en láti þess ógetið hver viðbrögð
Landsvirkjunar hafi verið við mála-
leitan hans. Hann hafi því greinilega
ekki lesið athugasemdir samtakanna
við skýrslu Landsvirkjunar um
Fljótsdalsvirkjun þar sem aðrir
virkjanakostir era m.a. tíundaðir.
Kristján standi við
stóru orðin
í niðurlagi fréttatilkynningar NÍ
segir: „Kristján Pálsson er maður
fullur metnaðar og atorku líkt og
barátta hans um 2. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjanesi bar
vott um í byrjun nóvember 1998.
Náttúravemdarsamtök íslands telja
því fullvíst að hann muni taka undir
það álit 2. minnihluta umhveriis-
nefndar að skoða beri betur aðra
virkjanakosti. Jafnvel þótt gleymst
hafi að nefna það í því áliti sem Krist-
ján hafði forustu um að semja fyrir
hönd 1. minnihluta. Náttúraverndar-
samtök íslands munu fagna öllum
skynsamlegum tilraunum Kristjáns
til að standa við stóru orðin frá því í
prófkjörsbaráttunni fyrir ári síðan
um að Eyjabakkana verði að vernda."
Nauðsyn að virkja
Kristján Pálsson segist hafa orðið
fyrir vonbrigðum með afstöðu ým-
issa náttúruverndarsinna. „Náttúra-
verndarsamtök Islands hafa fyrst og
fremst barist fyrir því, að mér finnst,
að ná fram umhverfismati fyrir
Fljótsdalsvirkjun. I því ljósi hefur
verið litið á þeirra baráttu, að þeir
telji það upphaf og endi þessa máls.
Svo þegar komið hefur að því að
kanna aðrar leiðir, eins og virkjun við
Kárahnúka, og ég hef persónulega
spurt þá að, síðast á fundi umhverfis-
nefndar fyrir nokkram dögum síðan,
þá hafa þeir lýst því yfir að umhverf-
ismat í þeirra huga þýði ekki endi-
lega viðurkenningu á því ef það er í
þeirra huga ekki hagstætt.“
Hann segir að fulltrúar N.I hafi
lýst því yfir að margir í samtökunum
mundu ekki sætta sig við , jákvætt“
umhverfismat við Kárahnúka og að
þeir mundu vinna gegn virkjun á því
svæði undir öllum kringumstæðum.
„Mér finnst þeir segja, í einu orðinu,
að þeir vilji umhverfismat, en í hinu
orðinu að þeir gefi lítið íyrir það. Og
ætli bara að vera á móti öllum virkj-
unum,“ segir Kristján.
Af þessum sökum segist Kristján
hafa komist að þeirri niðurstöðu að í
raun væri ekkert annað í stöðunni en
að halda áfram með virkjunai-áfonn-
in. „Það er búið að undirbúa þarna
virkjun í 20 ár og henni hafa tengst
mjög miklar væntingar, af hálfu
þeirra Austfirðinga. Virkjunin hefur
samkvæmt lögum verið undanþegin
umhverfismati og ef stjórnvöld gæfu
eftir Eyjabakkana þá hljóta menn að
þurfa að hafa eitthvað annað í hendi
til að geta notað í staðinn. Og ef ekki
næst samkomulag um það heldur þá
gæti barátta gegn til dæmis Kára-
hnúkavirkjun gengið ljómandi vel í
ljósi þess hve vel hefði tekist til að
koma Fjótsdalsvirkjun út af borðinu.
Málið mundi komast í svo mikið upp-
nám að það yrði ekki neitt úr neinu.“
Að mati Kristjáns hefði þurft að
nást víðtæk sátt, allra náttúrvernd-
arsamtaka á landinu, um tillögu til að
af einhverjum breytingum gæti orðið
og sú niðurstaða hefði ekki farið í
umhverfismat.