Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 13

Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 13 FRÉTTIR Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2000 samþykkt 90 millj. til nýs leik- skóla í Asahverfí Eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur verð- ur lækkað alls um fjóra milljarða Féð notað til að greiða niður skuld- ÁÆTLAÐ er að verja 625,8 milljón- um króna til beinna framkvæmda í Garðabæ á næsta ári samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun Garðabæjar fyiir árið 2000. Helsta framkvæmd ársins er nýbygging gatna í tengslum við upp- byggingu nýs íbúðahverfis í Hrauns- holti vestra (Ásum). Áætluð fjárveit- ing tO þessara framkvæmda og annarra gatnaframkvæmda er um 290,7 milljónir króna og eru fram- kvæmdirnar íjármagnaðar af gatna- gerðargjöldum. í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir óbreyttri álagningu gjalda og er útsvar áfram 11,24%. Sameiginlegar tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar rúmlega 1.486 milljónir króna og er útsvar 88,0% af sameigin- legum tekjum. Gert er ráð fyrir því að rekstrarafgangur nemi 320,7 milljón- um króna eða 21,6% af sameiginleg- um tekjum og að skuldir lækki um 18,2 millj. kr. í áætluninni er ráðgert að verja 90 milljónum króna til þyggingar nýs leikskóla í hinu nýja Ásahverfi og að leikskólinn verði tekinn í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2001. Er það í samræmi við það markmið bæjar- stjómar að stuðla að sem flestum leikskólarýmum fyrir börn á leik- skólaaldri og tryggja íbúum í nýjum hverfum bæjarins eðlilega og góða grunnþjónustu strax á uppbygging- artíma þehra að því er fram kemur í frétt frá bæjarstjóm Garðabæjar. Þar kemur einnig fram að í Ásahverfi sé búið að úthluta um 120 lóðum og búist við að íbúar muni flytja í hverfið í vaxandi mæli á árinu 2000. Fræðslumál helsti útgjaldaliðurinn Til einstakra málaflokka rennur stærstur hluti útgjalda á næsta ári til fræðslumála, eða samtals 497,5 millj. sem era 42,7% af rekstrargjöldum í heild. Framlög til félagsþjónustu verða 193,3 milljónir króna eða 16,6% af rekstrargjöldum og framlög til æskulýðs- og íþróttamála verða 93,2 milljónir króna eða 8,0% af rekstrar- gjöldum. I frétt frá bæjarstjóm segir að gert sé ráð fyrir að taka í notkun skolpdælustöð við Amarnesveg á ár- inu 2000 og að það sé liður í sameigin- legu verkefni Garðabæjar, Kópavogs, Reykjavíkur og Seltjamarnesbæjar. Þar með er lokið þeim viðamiklu framkvæmdum sveitarfélaganna að tengja saman holræsakerfi til að dæla öllu skolpi frá sveitarfélögunum út fyiár Akurey í Faxaflóa. Gert er ráð fyrir að kostnaður Garðabæjar við rekstur holræsakei'fis verði um 10,5 millj. kr. á næsta ári. I áætluninni er ennfremur gert ráð fyrir fjárveitingum til skipulagsmála eða um 20 millj. kr. Garðabær hefur þegar auglýst forval á ráðgjöfum til að vinna að rammaskipulagi á Garða- holti á Álftanesi, en skipulagssvæðið er um 130 ha. að stærð og er gert ráð fyrir að þar verði íbúðir, miðbæjar- svæði/verslunarkjarnar og svæði op- inberra stofnana auk opinna svæða til sérstakra nota. Fram kemur að við Fjölbrauta- skóla Garðabæjar er nú unnið við byggingu á hátíðarsal skólans en í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að 33,6 millj. króna fari til áframhald- andi framkvæmda við skólann. Þá kemur fram að í áætluninni sé gert ráð fyrir að leikskólagjöld hækki um 10% í byijun ársins, en tillaga þess efnis hefur ekki verið formlega af- greidd. Að síðustu má geta þess að gert er ráð fyrir fjárveitingu til áframhaldandi greiðslna til foreldra sem eiga böm á biðlista eftir leik- skólarýmum. ir borgarsjóðs GERT er ráð fyrir að færa niður eig- ið fé Orkuveitu Reykjavíkur um fjóra milljarða króna, einn milljarð á þessu ári og þrjá á því næsta. Eigið fé fyrirtækisins verður um 25 mill- jarðar króna eftir niðurfærsluna, eiginfjárhlutfall rúm 70% og skuldir þess um 10 milljarðar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segir að borgin sé með þessu að losa hluta eignar sinnar í Orku- veitunni og að féð eigi að nota til að greiða niður skuldir á næsta og þar- næsta ári. Hún segir lækkunina verða greidda með skuldabréfum sem borgarsjóður geti selt. Borgar- stjóri segir að tryggt verði að greiðslubyrði skuldabréfanna leiði ekki til hækkunar á gjaldskrá Orku- veitunnar. Borgarstjóri segir af og frá að fjárhag Orkuveitunnar sé stefnt í voða með þessari aðgerð, eiginfjárst- aða hennar sé mjög sterk. „Fyrir- tækið skilar á næsta ári í handbæm fé frá rekstri 2,7 milljörðum króna og verða skuldir borgarsjóðs greidd- ar niður að hluta til á næsta ári og að hluta árið 2001, þau lán sem hag- stæðast er fyrir borgarsjóð að greiða niður.“ Borgarstjóri segir einnig að arðgreiðslur Orkuveitunnar til borg- arsjóðs muni lækka sem nemi af- borgunum og vöxtum af skuldabréfi vegna niðurfærslu á fé hennar. Borgarbúum til hagsbóta að grynnka á skuldum Ingibjörg Sólrún var spurð hvort til greina hefði komið að lækka gjaldskrá Orkuveitunnar í stað þess að færa frá henni fjármagn til að greiða niður skuldir. „Ef hún væri með óeðlilega gjaldskrá væri ekki fráleitt að lækka orkugjöld en þau em lág. Borgarbúar eiga fyrirtækið og það er þeim til hagsbóta að grynnka á skuldum borgarsjóðs og þess vegna viljum við fara þessa leið. Því minni skuldir sem borgarsjóður ber því minni em vaxtagreiðslurnar og þeim mun líklegra er að skatt- tekjur geti staðið undir rekstri og fjárfestingu." 1600W Opið aliar helgar M12 bolla y b bolla 3 bolla EXPERT er stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í Evrópu - ekki aðeins á Norðurlöndum. - AN NO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 Aleggshnifur 8 pottasett Ryksuga VLE370 LG-Orbylgjuofn MHOi kr. 12.900 Pönnur verð fró kr. HIÉr^Tfr kr. 1.800. Hrœrivél spi90 Samlokugrill Haxi-20 MrnmmmmMML kr. 2.542,- LG-Sjónvarp Expressokönnur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.