Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
5P'”" ’-wW ~ ú
J:-- M j,# ^liii i # M
Aðalfundur Golfklúbbs Borgarness
Reksturinn
skilaði hagnaði
Borgarnesi - Aðalfundur Golf-
klúbbs Borgarness var haldinn að
Hamri 25. nóvember sl. í skýrslu
stjórnar kom fram að eitt grósku-
mesta starfsár í sögu klúbbsins er
að baki.
Þrátt fyrir erfitt veðurfar var
veruleg aukning á iðkendum, bæði
fastra félaga og gesta. Fastir félag-
ar klúbbsins eru 118 og hafa aldrei
verið fleiri. Rekstur klúbbsins var
með ágætum og skilaði hagnaði.
Símon Páll Aðalsteinsson var
ráðinn sem framkvæmdastjóri í
hlutastarf en var hann jafnframt
vallarstjóri. Hlaut hann lof fyrir
starf sitt. Sigurður Hafsteinsson
golfkennari kenndi hjá GB. Golf-
mót félagsins voru almennt vel sótt.
I sumar var unnið að ýmsum lag-
færingum á golfvellinum. Meðal
annars var plantað 2.000 trjáplönt-
um á vallarsvæðinu er RARIK gef
klúbbnum. Ingvi Árnason, sem ver-
ið hefur formaður undanfarin ár;
gaf ekki kost á sér til endurkjörs. I
hans stað var Eiríkur Ólafsson kos-
inn formaður. Með honum í stjórn
eru: Hjörtur Árnason ritari, Jón J.
Haraldsson gjaldkeri, Stefán Har-
aldsson varaformaður og Ómar Örn
Ragnarsson meðstjórnandi.
Bætt aðstaða
Tdnlistarskólans
Hvammstanga-Tónlistarskóli V-
Hún. var með opið hús nú fyrir
skömmu. Tilgangurinn var að
kynna héraðsbúum nýlegar endur-
bætur á skólahúsnæðinu. Ágætur
salur hefur verið
gerður í stað þriggja
herbergja í húsinu.
Húsið kallast Sóll-
and og hýsti fyrrum
Sparisjóðinn og var
þar áður íbúðarhús.
Nýi salurinn hent-
ar vel til smærra
tónleikahalds - eins
konar kammersalur.
Haraldur V. Har-
aldsson, starfandi
byggingatæknifræð-
ingur hjá Húnaþingi
vestra, hafði umsjón
með framkvæmd-
inni. Pólsk hjón,
Marta Marek Michalska og Jan
Michalski, sem eru nýráðin til
skólans, léku á selló og fagott, ás-
amt fleiri atriðum og foreldrar
nemenda önnuðust kaffisölu til
styrktar hljóðfærakaupasjóði skól-
ans. Voru allir mjög ánægðir með
þessa notalegu kvöldstund.
Tónlistarskóli Vestur- Húna-
vatnssýslu var stofnaður 15. júní
1968 og tók til starfa haustið 1969.
Hefur hann verið starfræktur
óslitið síðan. Frumkvöðull að
stofnun skólans var Steingrímur
Sigfússon, en fyrsti kennari og
jafnframt skólastjóri var Eyjólfur
Ólafsson. Ingibjörg Pálsdóttir var
formaður skólanefndar frá upp-
hafi, þar til Fræðsluráð Húnaþings
vestra tók við yfirumsjón skólans á
síðastliðnu ári, en sveitarfélagið er
eigandi og rekstraraðili skólans.
Nemendur við skólann eru 100
talsins og er boðið upp á kennslu á
blásturshljóðfæri, rafhljóðfæri,
slagverk, strengjahljóðfæri, píanó
og einnig í söng. Kennt er á þrem-
ur stöðum í sýslunni, Reykjaskóla,
Laugarbakka og á Hvammstanga.
Kennarar eru Ólöf Pálsdóttir,
Ingibjörg Pálsdóttir, Guðmundur
Hólmar Jónsson, Marta Marek
Michalska, Jan Michalski og Elin-
borg Sigurgeirsdóttir, sem jafn-
framt er skólastjóri.
Er þetta fjórtánda starfsár Elin-
borgar við skólann, en starfstíma-
bilið hefur ekki verið samfellt
vegna náms og starfa annars stað-
ar á landinu. Samhliða starfinu
hefur Elinborg stundað tónlistar-
nám í Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar í Reykjavík í nokkur
ár. Að sögn hennar telur hún
framhaldsnám og endurmenntun
vera mjög þroskandi og áhugavert
fyrir tónlistarkennara, einkum á
landsbyggðinni.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Elinborg skólastjóri ásamt Mörtu og Jan,
kennurum og Haraldi arkitekt.
Vetrarscda -JummtB
Þökkum undirtektir í Ifwiíatidi
10 hópar Heimsklúbbsins
til Austurlanda frá sept.-des.
*£t röðin fomin að pér?
FAGNIÐ 2000 í SUMARSÆLU
og blómadýrð THAILANDS!
Njótið lífsgœða og aukið
lífsgleði við vetrardagana!
‘Unára-‘Ifiai[and:
TUbom 99.900,-
eildir aðeins sé staðfest fvrir
áramót! Ódxr framlene. 4* hótel.
Stór Thailandsferð
12. jan. 6 sœti:
Nýtt frábært tilboð -19 dagar.
sími 562 0400
IfRDASMIIFSIOFAN
PMMAF
HEIMSKLÚBBUR INGÓIFS
Útnefnd í :il|)j«ðasamlökin KXCELLENCE IN TRAVEL
Kveikt á
jólatrénu
frá Moss
BIönduósi-Blönduósingar tendr-
uðu ljósin á jólatrénu við kirkjuna
um helgina. Tréð er gjöf frá Moss,
vinabæ Blönduóss í Noregi. Börn
úr kór grunnskóla Blönduóss
sungu nokkur jólalög í kirkjunni
áður en ljósin voru kveikt. Jóla-
sveinarnir úr Langadalsfjalli
komu í heimsókn á gamla bruna-
bflnum, gengu í kringum jólatréð
og sungu jólalög með börnunum.
Morgunblaðið/Ingimundur
Nýlqörin stjórn Golfklúbbs Borgarness. Frá vinstri: Ómar Örn
Ragnarsson meðsljórnandi, Eiríkur Ólafsson formaður, Jón .1.
Haraldsson gjaldkeri og Stefán Haraldsson varaformaður. Á
myndina vantar Hjört Árnason ritara.
Bolungarvík - Býr Þuríður í þér? er
yfirskrift hvatningardagskrár sem
haldin var í Bolungarvík um sl. helgi.
Að þessari dagskrá stóðu nokkrar
eldri konur í Bolungarvík sem áhuga
hafa á að kalla fram og örva frum-
kvæði kvenna í dreifbýli eins og í
Bolungarvík og nágrenni og höfðuðu
þær að þessu sinni til ungra kvenna á
aldursbilinu 16 til 26 ára.
Með yfirtskriftinni „Býr Þuríður í
þér?“ er vitnað til Þuríðar Sundafyll-
is sem kom frá Hálogalandi í Noregi
og nam land í Bolungarvík og með
kvenlegum dugnaði og elju, örlitlu af
göldrum og ákafa til að gefa karlpen-
ingnum ekkert eftir, skóp hún skil-
yrði til sjávar sem síðan hafa verið
lífsbjörg Bolvíkinga. Þar sem nú
vantar meira líf á Vestfirði var efnt
til þessa hvatningardags til að leita
að nýrri Þuríði.
Dagskráin var fjölbreytt, meðal
erinda sem flutt voru má nefna að
Sigurbjörg Þórarinsdóttir nemi
flutti erindi sem hún nefndi Framtíð-
arsýn ungrar meyjar. Ragnheiður
Davíðsdóttir, rithöfundur og for-
varnarfulltrúi, og Eva Bergþóra
Guðbergsdóttir fréttakona sögðu frá
reynslu sinni í námi og starfi. Þá
fluttu þær Þórunn Kristjánsdóttir og
Herdís Anna Jónasdóttir leiklestur.
Flutt var kynning á Hinu húsinu
sem er listamiðstöð ungs fólks í
Reykjavík, Dagbjört Hjartardóttir
frá Súðavík sagði frá því hvernig
Súðvíkingar nýttu sér gömlu byggð-
ina og húsin sem þar standa til að
reka orlofshúsabyggð fyrir ferða-
menn, Sóley Veturliðadóttir, versl-
unareigandi á ísafirði, flutti erindi
sem hún nefndi Ung kona í atvinnu-
rekstri og Guðrún Stella Gissurar-
dóttir, forstöðumaður svæðismiðlun-
ar Vestfjarða, fjallaði um mikilvægi
menntunar fyrir nútímakonur.
Þá var boðið uppá tískusýningu
sem verslanir í heimabyggð stóðu að.
Máluðu myndir af Þuríði
Á meðan þátttakendur meðtóku
fróðleg erindi og annað það sem í
boði var unnu fjórir listamenn hver
að sínu málverkinu þar sem þeir mál-
uðu mynd af Þuríði Sundafylli eins
og þeir sáu hana fyrir sér. Þessir
listamenn voru Sólveig Thoroddsen,
Greta Sturludóttir, Ester Ösp Guð-
jónsdóttir og Þorbjörg Sigþórsdótt-
ir.
I kaffihléinu voru myndirnar síðan
boðnar upp til að standa undir kostn-
aði við þessa dagskrá.
Að lokum var efnt til hópvinnu þar
sem reynt var að svara spurningunni
„Hvað getum við gert til að gera
heimabyggðina meira spennandi?"
Soffía Vagnsdóttir, ein þeirra
kvenna sem að þessum hvatningar-
degi stóðu, sagðist vera mjög ánægð
með hvernig til tókst og ljóst að
áfram verður haldið, þetta er aðeins
byrjunin hjá okkur. Soffía vildi koma
á framfæri innilegu þakklæti til allra
þeirra sem lögðu þessu verkefni lið
bæði þeím sem fluttu erindi á dag-
skránni, sem sumir voru langt að
komnir, listamönnunum fyrir þeirra
framlag og ekki síst þeim fyrirtækj-
um og stofnunum sem studdu þetta
verkefni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Á myndinni eru sdknar-
presturinn, Gunnar Eiríkur
Hauksson, Unnur Valdi-
marsddttir, formaður sdkn-
arnefndar, og Sigrún Jdns-
ddttir organisti að leggja af
stað með jtílakortin til að
selja bæjarbúum.
Altaristaflan
í Stykkis-
hólmskirkju
komin á kort
Stykkishdlmi-I haust var
Stykkishólmskirkju gefin ný
altaristafla og var hún helguð
10. október. Altaristaflan er
stór, yfir 8 fermetrar að stærð,
og setur því mikinn svip á
kirkjuna. Hún er eftir lista-
manninn Rristínu Gunnlaugs-
dóttur frá Akureyri og er mjög
sérstæð og falleg. Hún sýnir
Maríu með Jesúbarnið koma
færandi með son sinn til mann-
anna. Hún höfðar því vel til jól-
anna, en tilgangur þeirra er
einmitt að minnast þeirrar
gjafar ogþakka.
Nú hefur verið gefið út jóla-
kort og kort án texta með mynd
af altaristöflunni í Stykkis-
hólmi. Sóknarnefnd hefur séð
um sölu kortanna fyrir jólin.
Gengið hefur verið í hús í
Stykkishólmi og móttökur góð-
ar. Má reikna með að margar
jólakveðjurnar frá Stykkis-
hólmi fyrir þessi jólin verði með
mynd af Maríu með Guðsson-
inn. Þá er hægt að kaupa kortin
í Kirkjuhúsinu á Laugavegi í
Reykjavík. Allur ágóði af sölu
kortanna rennur til Stykkis-
hólmskirkju.