Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 51

Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 51 AUGLVSINGA ATVINNU AUGLYSIN GAR íbúar í Bessastaðahreppi eru um 1450. í Bessastaðahreppi er blómlegt mannlíf í nágrenni höfuðborgarinnar og þar er gott að búa. ísveitarfélaginu er grunnskóli sem nú stendur til að stækka, leikskóli, tónlistarskóli, íþróttamiðstöð og bókasafn. íþrótta-, skóla- og félagslíf er fjölbreytt. Mikið samstarf er við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Skrifstofustjóri Bessastaðahreppur óskar að ráða skrifstofustjóra til starfa sem fyrst. Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjárreiðum og skrifstofu- og starfsmannahaldi sveitarfélagsins. Einnig hefur hann yfirumsjón með félagslegu húsnæði á vegum húsnæðisnefndar. Skrifstofustjóri erstaðgengill sveitarstjóra í fjarveru hans. Starfssvið: • Fjármálastjórnun • Kostnaðareftirlit Starfsmannahald og launamál Bókhald Ársskýrsla Áætlanagerð Umsjón með tölvukerfi og heimasíðu Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi með þekkingu og reynslu af ofangreindum störfum. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og nákvæmur, eiga auðvelt með mannleg samskipti og hafa frumkvæði um lausn verkefna á sínu sviði. Umsóknir óskast sendar til Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar „Skrifstofustjóri" fyrir 24. desember nk. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Netfang: katrin.s.oladottir@is.pwcglobal.com PrICEWATeRHOUsEQoPERS @ Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is Laugavegi 20a Aðstoðarkokkur Ræstitæknar g Við leitum að manni eða konu með áhuga á frumlegri og spennandi matargerð sem getur unnið með enskumælandi matreiðslumanni, sérfræðingi í matreiðslu Miðjarðarhafslandanna. ■ Einnig fólki í ræstingu. Tilvalið fyrir tvo árrisula morgunhana. Nánari upplýsingar hjá Þórdísi í síma 861 3181. Trésmiðir Viljum ráða til starfa nokkra trésmiði vana móta- smíði og álklæðningum. Vinnustaðir eru í Reykjavík, Keflavík og á Grundartanga. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni, Skúlatúni 4, Reykjavík og í síma 530 2700 á skrifstofutíma. ISTAK Lúgusjoppa á stór- Reykjavíkursvæðinu Óska eftir að ráða starfskraft á „besta aldri". Um er að ræða 70—100% vaktavinnu. Nánari upplýsingar gefur Sigurður í síma 565 8050 á milli kl. 8.00 og 12.00 og 14.00 og 16.00 alla virka daga. Maður með reynslu 44 ára fjölskyldumaður óskar eftir að komast í samband við fyrirtæki/aðila, sem vantar starfs- kraft/samstarfsmann, með 25 ára reynslu af eigin atvinnurekstri í mörgum atvinnugreinum. Áhugasamir vinsamlega sendið uppl. á net- fang sveita@simnet.is fyrir 15. des. nk. Mosfellsbær Breyting Deiliskipulag þjónustu- svædis við Lækjarhlíð Áfundi bæjarstjórnar hinn 8. desember 1999 var samþykkt kynning á tillögu að breytingu á deiliskipulagi þjónustu- svæðis við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Baugs- hlíð til norðurs, Hjallahlíð og Hulduhlíð til austurs og suðurs og Lækjarhlíð til vesturs. í tillögunni felst að byggingar- reit grunnskóla er breytt og hann stækkaðurtil vesturs, í átt að Lækjarhlíð, jafnframt því sem lóð skólans er stækkuð til norðurs, í átt að Baugshlíð. Tillögurnar ásamt greinargerð verða til sýnis á Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, í afgreiðslunni á fyrstu hæð, frá 9. desember til 7. janúar 2000. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa borist skipulagsnefnd Mosfellsbæj- ar fyrir 20. janúar 2000. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Bæjarverkfræðingurinn í Mosfelisbæ. TILKYIMNIIMGAR BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Deiliskipulag og breyting á deiliskipulagi í Reykjavík Reitur sem markast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vitastíg. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 26. október 1999 deiliskipulag fyrir reit sem markast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vitastíg. Tillagan var auglýst þann 6. ágúst og var til kynningar til 3. september 1999. Athugasemdafrestur var til 17. september og bárust 8 athugasemdir og ein að honum liðnum. Umsagnir sveitarstjórnar um þær hafa verið sendar þeim er þær gerðu. Til að koma á móts við athugasemdirnar voru gerðar nokkrar breytingar á tillögunni bæði varðandi form og efni. Engar efnislegar breytingar voru gerðar nema til að koma á móts við þau sjónarmið sem fram komu í athugasemdunum. Breytingarnar eru í grófum dráttum þessar: Kvaðir voru skýrðar, fallið var frá breytingu á notkun bakhúsanna nr. 51 b og 53a við Laugaveg, húsið að Laugavegi 51 b var sett undir hverfisvernd, samþykktur skúr á Hverfisgötu 70 var teiknaður inn á uppdrátt, skýrar var kveðið á um tilhögun bílageymslna við Hverfisgötu, leiðréttar voru hæðarmerkingar á lóðunum nr. 53b og 55 auk þess sem formi og texta tillögunnar var breytt til að gera hana skýrari. Ártúnshöfði, athafnasvæði. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 1. júní 1999 deiliskipulag athafnasvæðis á Ártúnsholti. Tillagan var auglýst þann 23. mars og var til kynningar til 24. apríl 1999. Athugasemdafrestur var til 7. maí og bárust 7 athugasemdabréf. Borgarráð Reykjavíkur hefur afgreitt athugasemdirnar og hefur þeim aðilum sem þær gerðu verið sendar umsagnir. Háskóli íslands, austan Suðurgötu. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 28. september 1999 deiliskipulagsvæðis Háskóla íslands austan Suðurgötu. Tillagan var auglýst þann 23. mars og var til kynningar til 24. apríl 1999. Athugasemdafrestur var til 7. maí og bárust tvö athugasemdabréf. Borgarráð Reykjavíkur hefur afgreitt athugasemdirnar og hefur þeim aðilum sem þær gerðu verið sendar umsagnir Deiliskipulög þessi hafa verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar og hlutu gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Þeir sem óska nánari upplýsinga um skipulögin og niðurstöður borgarráðs um þær geta snúið sér til Borgarskipulags Reykjavíkur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.