Morgunblaðið - 09.12.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 53
UMRÆÐAN
Afdráttarlaus
vilji fyrir
umhverfismati
MEIRIHLUTI full-
trúa í umhverfisnefnd
Alþingis hefur lýst vilja
sínum til þess að fyrir-
hugaðar framkvæmdir
við Fljótsdalsvirkjun
fari í umhverfismat
samkvæmt lögum frá
1993. Því áliti var skilað
til iðnaðarnefndar Al-
þingis á tilsettum tíma
en sú nefnd hefur
þingsályktunartillögu
iðnaðarráðherra um
framhald framkvæmda
við Fljótsdalsvirkjun
til meðferðar. Vert er
að rifja upp að um-
hverfisnefndin fékk
umhverfisþátt tillögunnar til um-
fjöllunar, að ósk iðnaðarnefndar, og
hafði rúmlega viku til þess að ljúka
verkinu. Iðnaðamefnd bárust tvær
umsagnir frá umhverfisnefnd og eitt
Hálendi
Krafa meirihlutans, seg-
ir Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, endurómar
kröfu samfélagsins
bréf frá fulltrúum stjómarandstöð-
unnar í nefndinni. I bréfi þessu lýs-
um við, fulltrúar Samíylkingarinnar
og Vinstri hreyfingarinnar-Græns
framboðs, stuðningi í einu og öllu við
efni og niðurstöðu néfndarálits
stjórnarliðanna Ólafs Amar Har-
aldssonar og Katrínar Fjeldsted, þar
sem færð era ítarleg rök fyrir því að
framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun
undirgangist umhverfismat sam-
kvæmt gildandi lögun. Vilji 5 af 9
fulltráum í umhverfisnefnd er skýr
og afdráttarlaus í þessu máli.
Eitthvað hefur efnisleg niðurstaða
meirihluta umhverfisnefndarmanna
farið fyrir ofan garð og neðan hjá
fulltráum stjórnarflokkanna á Al-
þingi, í það minnsta hafa nokkrir
stjómarliðar kosið að
láta sem þeir skilji ekki
ótvíræða niðurstöðu
nefndarinnar. Ekkert
lýsir betur þeim mála-
tilbúnaði fáránleikans
sem einkennt hefur
umfjöllun um Fljóts-
dalsvirkjun á Alþingi
þetta haustið.
Ki-afa meirihlutans
endurómar kröfu sam-
félagsins um að farið sé
að leikreglum lýðræð-
isins í stærsta deilum-
áli samtímans. í kröf-
unni um umhverfismat
kristallast gjörbreytt
viðhorf íslendinga til
náttúrannar og nýtingar hennar.
Þorri fólks er ekki lengur reiðubúinn
til þess að fórna náttúraperlum sem
era einstakar á heimsvísu í nafni at-
vinnuuppbyggingar. Ekki síst þegar
haft er í huga að bomar hafa verið
brigður á arðsemi framkvæmdarinn-
ar og gild rök færð fyrir því að álver
á Reyðarfirði muni ekki stöðva fólks-
flutninga af Austurlandi þegar til
langs tíma er litið. Þess vegna er
þess krafist að stjórnvöld meti áhrif
fyrirhugaðra framkvæmda af rneiri
kostgæfni en gert hefur verið með
málamyndamati þingnefnda á tillögu
iðnaðarráðherra.
Dæmalaus afgreiðsla meirihluta
iðnaðamefndar á beiðni um að full-
trúar fyrirtækisins Norsk Hydro
verði kallaðir á fund nefndarinnar
hlýtur að vekja spurningar um hvort
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks á Alþingi hafi
nokkurn skilning á grandvallarregl-
um lýðræðisins. Afgreiðsla tillög-
unnar afhjúpar enn á ný sýndar-
mennsku ríkisstjórnarinnar og þá
dapurlegu staðreynd að aldrei stóð
til að ræða um framkvæmdir við
Fljótsdalsvirkjun á málefnalegan
hátt á Alþingi íslendinga.
Höfundur er þingkorm Samfylking-
arinnar og situr i umhverfisnefnd
Alþingis.
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Forsvarsmenn sam-
takanna Afl fyrir Aust-
urland hafa afhent
Davíð Oddssyni og
Finni Ingólfssyni
áskoran samtakanna
um að hvika hvergi frá
áformum um Fljóts-
dalsvirkjun án þess að
áður fari fram mat á
umhverfisáhrifum skv.
núgildandi lögum.
Komið hefur fram að
meðlimir samtakanna
séu 2.240 talsins.
Stærsta álver í
Vestur-Evrópu
Fljótsdalsvirkjun er
aðeins fyrsti áfangi í röð fram-
kvæmda, sem hafa það að markmiði
að í Reyðarfirði rísi 480 þúsund
tonna álver og til að fullnægja raf-
orkuþörf slíks risaálvers er fyrirhug-
að að ráðast í Kárahnúkavirkjun á
eftir Fljótsdalsvirkjun auk annarra
virkjana. Risaálverið, sem yrði það
stærsta í V-Evrópu, þarf álíka mikla
orku og Landsvirkjun og önnur raf-
orkufyrirtæki framleiða í dag fyrir
bæði stóriðju og almenningsveitur.
Þannig yrði hátt hlutfall íslenskrar
raforkuframleiðslu bundið áhættu-
samri álframleiðslu og hið niður-
greidda raforkuverð til stóriðjunnar
þarf almenningur að borga með
hærri rafmagnsreikningum.
En við það verður ekki látið sitja,
því ætlunin er að fá lífeyrissjóði
landsmanna til að taka þátt í þessum
áhættusama rekstri. Islendingar
ætla þannig að leggja í stórkostlega
áhættufjárfestingu til að skipta út
stærsta víðerni V-Evrópu fyrir
stærsta álverið í þeim heimshluta.
Eini aðilinn sem er líklegur til að
hagnast á þessu ævintýri þegar til
lengri tíma er litið er Norsk Hydro,
sem tekur lítinn þátt í fjárfesting-
unni en yrði ráðandi aðili í rekstrin-
um. íslendingar leggja til virkjanir
og dýnnætum landsvæðum er fóm-
að vegna þeirra. Risaálverið í hinum
þrönga og staðviðrasama Reyðar-
firði getur haft mjög skaðleg áhrif á
umhverfið. ímynd Austurlands og
landsins alls mun gerbreytast og
með harkalegum
starfsaðferðum stjóm-
valda er verið að kljúfa
þjóðina í tvær andstæð-
ar fylkingar. Öllu þessu
á að fórna til að „við-
halda byggð“ á Austur-
landi og gefið í skyn að
aðrar leiðir séu ekki
færar.
100 milljónir
á mann
Noralverkefnið svo-
nefnda miðað við full-
byggt risaálver felur í
sér fjárfestingar í
virkjunum og stóriðju á
Austurlandi, sem nem-
ur 100 milljónum ki'óna á hvern
meðlim samtakanna Afls fyrir Aust-
urland. Það má teljast nokkuð djarft
Umhverfisvernd
Noralverkefnið felur í
sér fjárfestingar í virkj-
unum og stóriðju, segir
—
Olafur F. Magnússon,
sem nemur 100 milljón-
um króna á hvern meðl-
im samtakanna Afls fyr-
ir Austurland.
af forystumönnum þessarar hreyf-
ingar að krefjast þess, að lagt sé út í
slíkt fjárfestingaræyintýri, án þess
að virða óskir mikils hluta þjóðarinn-
ar um að náttúruverðmætum sé ekki
fórnað án vandlegrar skoðunar. Auð-
vitað yrði þensla og stóraukið fjár-
streymi á Austurlandi á meðan þess-
ar 230 milljarða króna framkvæmdir
stæðu yfir, enda má líkja þessari
koUsteypu allri við fjárfestingar-
fyllerí, þar sem komandi kynslóðir
yrðu látnar borga reikninginn og
taka út timburmennina. Afkomend-
ur okkar kynslóðar munu undrast þá
skammsýni og græðgi, sem nú ræður
för hjá ráðandi öflum í þjóðfélaginu.
Mikið mætti gera tU að efla at-
vinnulíf á Austuriandi fyrir aðeins
lítið brot af þeirri ofurfjárfestingu,
sem hið þjóðhættulega Noralverk-.
efni felur í sér. Þannig mætti gera^
nokkur jarðgöng, bæta vegi, heil-
brigðisþjónustu og menntunarað-
stöðu. Einnig mætti stórefla ferða-
þjónustu og örva nýsköpunarverk-
efni. Stærsta ósnortna víðemi Vest-
ur-Evrópu mun skila þjóðinni meiri
peningalegum verðmætum en íyrir-
huguð stóriðja, ef rétt er á málum
haldið. Um mikilvægi þessa fyrir
sjálfsvitund og hamingju þjóðarinn-
ar þarf ekki að fjölyrða.
Fljótsdalsvirkjun
óhagkvæm fjárfesting
Sterkar efasemdir hafa komið^
fram um arðsemi Fljótsdalsvirkjun-
ar. Aðrir kostir eins og t.d. svonefnd
Hraunarirkjun kynnu að vera mun
hagkvæmari. Þannig mætti e.t.v.
komast hjá því að virkja stóru jöku-
lárnar tvær milli Snæfells og Herðu-
breiðar. Forsenda slíkrar málamiðl-
unar væri sú, að horfið yrði frá
Noralverkefninu og því risaálveri,
sem nú er inni í myndinni. Þess í stað
yrði unnið að iðnaðarappbyggingu,
sem hefði minni umhverfisröskun í
för með sér.
Því miður virðist ríkisstjórn ís-
lands ekki líkleg til að vilja fara
neinn milliveg í virkjanamálum eða
að leita sátta við þann stóra hluta
þjóðarinnar, sem vill að nýjustu ogv
bestu aðferðum sé beitt til að meta
umhverfisáhrif virkjanafram-
kvæmda. Fyrirgreiðslupólitík for-
ystu Framsóknarflokksins og stein-
rannin viðhorf til umhverfismála þar
á bæ virðast því miður ráða ferðinni.
Gegn þessu þarf almenningur að rísa
m.a. með því að styðja með undir-
skrift sinni áskoran um að fram fari
lögformlegt mat á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar.
Höfundur er læknir og talsmaður
Umhverfisvina.
ÞÚ GETUR
SPARAÐ
ÞÚSUNDIR
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun glcraugnaverðs á íslandi
100 milljónir
króna á mann!
Ólafur F.
Magnússon
Gáfumerki
Þungtœrt
-ekkert mat'
Aukabúnabur: Skí&abogar og skygg&ar rú&ur.
Nýbýlavegi 2 • Kópavogi •
Sem útivistarmaöur viltu eiga bí) sem uppfyllir bæöi þínar kröfur og þarfir fjölskyldunnar.
Gott rými, kraftur, lipurö og spameytni eru eftirsóttir kostir. Allt þetta uppfyllir KIA Sportage.
Sportage er alvöru jeppi, byggöur á grind meö háu/lágu drifi og tregöulæsingu á
afturhásingu. Hann er harögeröur en ekki grófur, sterkur en mjúkur, öflugur en orkunýtinn,
vel útbúinn jeppi á veröi sem hræðir engan, -nema samkeppnisaðilana.
kostur Sportage er rýmið, bæði fyrir ökumann, farþegana 4 og farangurinn.
Krafturinn er líka nægur þegar draga þarf kerru, vagn eöa bát. Og ríkulegur
staöalbúnaöurinn undirstrikar þægindin meö geislaspitara,
fjarstýröri samlæstngú, rafmagni í öllu o.fl. o.fl.
í innanbæjarakstri er Sportage eins og
sprækasti fólksbíll - kostur sem konan
á eftir aö meta mikils.
Komdu í Jöfur eða til einhvers af
‘ söiuaöilunum og reynsluaktu
Sportage, þá kemstu að því hversu
fær hann er íófærð.
Sími 550 2450
U
R
KJA Sportage 4*4
trá 1850 þúðund
*-* 1 ...með öetu.!