Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 56

Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ ,56 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 * Flísfóðraðir * anorakkar / Laugavegi 54, s. 552 5201. Þakrennur og rör úr Plastisol- vörðu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum. A SB \a BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi ____________UMRÆÐAN__ Hvert stefnum við? ÍSLAND hefur haft þá ímynd út á við í heiminum að hér sé ægifögur náttúra og óspillt. Víð íslendingar höfum verið duglegir við að halda þessu fram á alþjóðavett- vangi. Þetta var það sem ferðamálafrömuð- ir þjóðarinnar gerðu helst út á þegar þeir voru að kynna landið sem ferðamannaland erlendis. Myndir birt- ust í erlendum tíma- ritum af fannhvítum jöklum, hvitfreyðandi fossum og óspilltum víðernum öræfanna. Ekki var allt sem sýndist. Margir umgengust náttúruna af fullkomnu virðingarleysi. Akstur utan vega, netadræsur og allskyns sorp á ströndum, bílhræ á víð og dreif þar sem síst skyldi. Umgengnin var með þeim hætti að á nokkrum ára- tugum hefði landið orðið einn all- sherjar sorphaugur ef ekki yrði gripið í taumana. Fyrir 10-20 árum varð vakning meðal Islendinga. Umhverfismál komust á dagskrá. Mikið hreinsun- arstarf var unnið. Asýnd þéttbýiis- staða og sveita er nú allt annað en það var fyrir nokkrum árum. Frá- veitur eru á dagskrá í flestum sveit- arfélögum þótt víða vanti fjármagn til að hraða framkvæmdum. Um- hverfisráðuneyti var sett á laggirn- ar. Flest benti til að nýir tímar og betri væru að renna upp á Islandi. Umhverfisráðuneyti Fyrstu þrír umhverfisráðherr- arnir voru hugsjónamenn um verndun náttúrunnar og urðu sennilega ráð- herrar málaflokksins vegna áhuga á fram- vindu umhverfisvernd- ar á íslandi. Mótun ráðuneytisins gekk vel undir stjórn þessara þriggja manna. Nú voru blikur á lofti. Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var mynduð 1995 var sama manni falið að gegna ráðherraembætti land- búnaðar ásamt um- hverfisráðuneyti. Þetta var strax áhuga- mönnum um framgang umhverfis- mála áhyggjuefni. Hagsmunaá- rekstrar þessara tveggja málaflokka voru hverjum leikmanni augljósir. Einnig olli það áhyggjum að ráðherra sá sem kljást skyldi við málaflokkana var þekktur af lítilli röggsemi og áhugi hans á umhverf- ismálum var lítt þekktur. Enda fór svo að árin 1995-1999 voru síður en svo umhverfismálum á íslandi til framdráttar. Þögnin ein ríkti. Nýr umhverfís- ráðherra Áhugamönnum létti nokkuð þeg- ar ljóst varð við myndun ríkis- stjórnar nú í vor þegar umhverfis- ráðuneyti var ætlað að vera undir stjórn ráðherra sem sýnt hafði áhuga á framgangi umhverfismála, auk þess var ráðuneytið ekki í gisl- ingu annars ráðuneytis eins og verið hafði árin fjögur á undan. Ekki leið á löngu þar til að ekki var allt með felldu með núverandi Umhverfismál Ef svo heldur fram sem horfir telur Jón Ingi -------------------7--------- Cæsarsson að Islend- ingar framtíðarinnar muni erfa skemmdar- verk misviturra stjórn- málamanna. umhverfisráðherra. Ljóst varð á fyrstu dögum hennar í starfi að hug- sjónirnar sem höfðu fleytt henni í ráðherrastól höfðu líklega verið það gjald sem greiða þurfti fyrir sætið. Umhverfisráðuneytið var ekki lengur í gíslingu landbúnaðarins héldur hafði iðnaðarráðuneytið tek- ið við og réð ferðinni í málflutningi ráðherrans. Mikilvægi umhverfísmála Umhverfismál eru í dag mál mál- anna í heiminum. Flestar þær þjóðir sem telja sig standa framarlega í heiminum hafa tekið þennan mála- flokk alvarlega áram saman, sum áratugum saman. Við Islendingar teljum okkur með þeim þjóðum sem fremstar standa í heiminum í dag. Hvað varðar umhverfismál erum við íslendingar í alvarlegri stöðu. Meðan til þessa ráðuneytis veljast ráðherrar sem ekki skilja hlutverk sitt mun engin framþróun verða í umhverfismálum á Islandi. Gegn henni mun verða staðið af hags- muna- og gróðaástæðum. Það þýðir að við munum enn dragast aftui- úr Jón Ingi Cæsarsson þeim þjóðum sem við helst viljum líkjast. Við munum fá þann stimpil að á Islandi sé hægt að bjóða ráða- mönnum upp á hvað sem er í stór- iðju. Menn sem tilbúnir eru að gleypa við hverju sem er án skoðun- ai'. Iðnaður sem enginn vill sjá í sið- uðum umhverfisverndarlöndum er boðinn velkomin á Islandi vegna skammtíma gróðasjónarmiða. Framsóknarmennska Það er kominn tími til að úthýsa Framsóknarmennsku úr umhverfis- málum hér á landi. Þjóðin verður að fá umhverfisráðherra sem skilur sitt hlutverk. Alþingi verður einnig að vakna, sérstaklega stjórna- randstaðan. Málflutningur hennar er linur og ómarkviss. Vinstri - grænir gáfu sig út fyrir að vera um- hverfisverndarflokkur en það fór sem marga grunaði, umhverfishlut- inn var aukaatriði til að afla at- kvæða, gamla vinstrið var aðalatrið- ið. Þeir (hann) hafa gleymt sér í persónunni Steingrími Sigfússyni þannig að ekki er von til að sá flokk- ur verði líklegur til stórræða á þessu sviði. Varla er von að hann láti aðrar raddir heyrast í Vinstri - grænum en sína eigin. Erum við að tapa? Umhverfismál eru framtíðin. Við Islendingar megum ekki tapa því forskoti sem við höfum á aðrar þjóð- ir. Forskoti sem við höfðum vegna þess að okkur hafði ekki tekist að skemma landið eins mikið og flest- um öðrum þjóðum. Ef svo heldur fram sem horfir munu íslendingar framtíðarinnar erfa skemmdarverk misviturra stjórnmálamanna sem hafa haft skammtímasjónarmið að leiðarljósi. Þessu verður að breyta, því verð- um við að treysta að Alþingi geri. Höfundur er formaður umliverfís- nefndar á Akureyri. Skráðu þig strax á mbl.is frá og með deginum í dag ti! næsta miðvikudags. Pá átt þú möguleika á að vinna: Miða fyrir tvo á tónleikana með Jagúar, Páli Óskari og Quarashi. Miðarnir gilda á báða tónleikana Nýjustu geisladiska Jagúars, Páls Óskars og Quarashi TALfrelsispakka: Bosch GSM-síma, símkort og 1000 kr. hleðslukort ásamt myndbandsspólu rneð Fóstbræðrum I tilefni af tónleikum Jagúars, Páls Óskars og Quarashi í Háskóiabíói fimmtudaginn 16. desember býður mbl.is þér að vinna veglega vinninga Forsala aðgöngumiða fer fram í verslunum TALs í Kringlunni, Smáratorgi, Skífunni Laugavegi og Síðumúla 28 og í verslunum JAPIS á Laugavegi og í Kringlunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.