Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 70

Morgunblaðið - 09.12.1999, Síða 70
MORGUNBLAÐIÐ ,v. 70 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 Dýraglens EN PAÐ ER EINS ,OS PEIR VIRKI EKKI KANNSKI K| ER S(.ÖKKV/\RI A ÞEIM Hundalíf Nú óskar hann þess örugglega að hafa slegið flötina !____ Hann hefur týnt lyk/unum eínhvers staðar milli bílsins og hússins Ljóska Ferdinand I HAVE to do a report on the NILE RIVER..TELL ME ALL YOU KNOUIA600TTHENILE RIVEK.. Ég á að skrifa ritgerð um Nfl. Segðu mér allt sem þú veist um Nflarfljót. Alltílagi, ég náði þessu. IMorgtmTiIaíiilíi BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Jón Stefánsson kórstjóri og Lára Bryndís Eggertsdóttir undirleikari ásamt Gradualekór Langholtskirkju við Icelandic River eftir tónleika kórsins í bænum Arborg í Manitoba. Grallarar í Kanada! Frá Auði Öglu Óliidóttur og Regínu Unni Ólafsdóttur: SÍÐASTLIÐIÐ sumar lagði Gradualekór Langholtskirkju land undir fót í þriðja skipti á sjö ára ferli sínum. I þetta sinn var farið til Kan- ada, til tveggja vikna dvalar. Ástæð- an fyrir ferðinni var að þiggja boð um þátttöku í stóru alþjóðlegu kóra- móti í St. Catherines sem er skammt frá Niagara-fossunum og einnig að syngja fyrir afkomendur íslendinga í Vesturheimi. Hinn 25. júní lögðum við af stað frá Langholtskirkju rúmlega 40 tals- ins. Þar voru meðtalin Jón Stefáns- son kórstjóri og Lára Bryndís Eggertsdóttir undirleikari auk fjög- urra síkátra foreldra sem héldu utan um allt skipulag og sáu um að allir kæmust á áfangastað. Fyrri vikuna heimsóttum við Gimli, Arborg og Winnipeg. Þar búa mjög margir af- komendur íslendinga, sem fóru til yesturheims fyrir síðustu aldamót. A öllum þessum stöðum héldum við tónleika og var alls staðar tekið mjög vel á móti okkur. Við dvöldum í heimahúsum og nutum sérlega mikillar gestrisni og hlýju. I Gimli fannst okkur sérstak- lega áhugavert að koma. Þar hafa íbúarnir haldið vel í íslenska tungu og menningu og voru þeir mjög glað- ir að fá tækifæri til að tala íslensku við okkur Grallarana. I blaðið þeirra, „Lögberg-Heimskringlu“ var skrif- að mjög fallega um okkur og forsíðu- fyrirsögnin var „Komu, sáu og sigr- uðu“. Seinni vikunni eyddum við í St. Catherines, þar sem kóramótið „Ni- agara Intemational Music Festival" fór fram. I mótinu tóku þátt átta kór- ar frá Bandaríkjunum og Kanada auk okkar Grallaranna. Það var stór- kostleg upplifun að taka þátt í svona stóru móti og þrátt fyrir stífar æf- ingar þótti okkur frábært að fá að vera með. Aðalstjórnandi á mótinu var Jean Ashworth-Bartle sem er mjög eftirsóttur stjórnandi og hafði hún góða stjórn á öllum krakkaskar- anum. Fleira var til gamans gert en að syngja. Meðal annars sigldum við upp að hinum mikilfenglegu Niag- ara-fossum og urðum öll rennblaut í úðanum frá fossunum. Við vorum samt ekki lengi að þorna vegna þess að hitastigið var frekar hátt eða um 40 stig. Meðan við vorum á hátíðinni gist- um við ásamt hinum kórunum á stú- dentagarði þar sem okkur var séð fyrir öllu. Þar gafst okkur gott tæki- færi til að kynnast hvert öðru og læra af hinum kórunum. Þar upp- lifðum við líka gestrisni Kanadabúa. Þeir vildu allt fyrir okkur gera og þegar við vorum alveg að gefast upp á hitanum bauð rútubílstjórinn okk- ur óvænt í sundlaugina í garðinum hjá sér. Það var að sjálfsögðu vel þegið. Kóramótinu lauk með sameigin- legum tónleikum allra kóranna. Þar voru flutt þau verk sem æfð höfðu verið undanfarna daga. Tónleikarnir tókust mjög vel og voru allir í góðu skapi en þó þreyttir og fegnir að þeim loknum. Síðasta kvöldið okkar í Kanada héldum við Grallararnir kvöldvöku okkur til mikillar skemmtunar. Var slegið á létta strengi og voru mömm- urnar fremstar í flokki, vöktu þær mikla lukku með atriðum sínum, þar sem þær brugðu sér í gervi Grallara með öllu tilheyrandi og tóku nokkur lög af dagskrá kórsins. Allir komust svo heilir heim en ekki var laust við að sumir væru svolítið þreyttir eftir langa og erfiða ferð. Þrátt fyrir alla erfiðleika lærð- um við heilmikið og minnumst ferð- arinnar með gleði. Við viljum að lok- um þakka öllum þeim sem tóku svo hlýlega á móti okkur og vonum að þeir hafi líka haft gagn og gaman af. F.h. Gradualekórs Langholts- kirkju AUÐUR AGLA ÓLADÓTTIR OG REGÍNA UNNUR ÓLAFSDÓTTIR. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.