Morgunblaðið - 09.12.1999, Qupperneq 70
MORGUNBLAÐIÐ
,v. 70 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
Dýraglens
EN PAÐ ER EINS
,OS PEIR VIRKI EKKI
KANNSKI K|
ER S(.ÖKKV/\RI
A ÞEIM
Hundalíf
Nú óskar hann þess örugglega
að hafa slegið flötina !____
Hann hefur týnt
lyk/unum eínhvers staðar
milli bílsins og hússins
Ljóska
Ferdinand
I HAVE to do a report on the
NILE RIVER..TELL ME ALL YOU
KNOUIA600TTHENILE RIVEK..
Ég á að skrifa ritgerð um Nfl.
Segðu mér allt sem þú
veist um Nflarfljót.
Alltílagi,
ég náði þessu.
IMorgtmTiIaíiilíi
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Jón Stefánsson kórstjóri og Lára Bryndís Eggertsdóttir undirleikari
ásamt Gradualekór Langholtskirkju við Icelandic River eftir tónleika
kórsins í bænum Arborg í Manitoba.
Grallarar
í Kanada!
Frá Auði Öglu Óliidóttur og
Regínu Unni Ólafsdóttur:
SÍÐASTLIÐIÐ sumar lagði
Gradualekór Langholtskirkju land
undir fót í þriðja skipti á sjö ára ferli
sínum. I þetta sinn var farið til Kan-
ada, til tveggja vikna dvalar. Ástæð-
an fyrir ferðinni var að þiggja boð
um þátttöku í stóru alþjóðlegu kóra-
móti í St. Catherines sem er skammt
frá Niagara-fossunum og einnig að
syngja fyrir afkomendur íslendinga
í Vesturheimi.
Hinn 25. júní lögðum við af stað
frá Langholtskirkju rúmlega 40 tals-
ins. Þar voru meðtalin Jón Stefáns-
son kórstjóri og Lára Bryndís
Eggertsdóttir undirleikari auk fjög-
urra síkátra foreldra sem héldu utan
um allt skipulag og sáu um að allir
kæmust á áfangastað. Fyrri vikuna
heimsóttum við Gimli, Arborg og
Winnipeg. Þar búa mjög margir af-
komendur íslendinga, sem fóru til
yesturheims fyrir síðustu aldamót.
A öllum þessum stöðum héldum við
tónleika og var alls staðar tekið mjög
vel á móti okkur.
Við dvöldum í heimahúsum og
nutum sérlega mikillar gestrisni og
hlýju. I Gimli fannst okkur sérstak-
lega áhugavert að koma. Þar hafa
íbúarnir haldið vel í íslenska tungu
og menningu og voru þeir mjög glað-
ir að fá tækifæri til að tala íslensku
við okkur Grallarana. I blaðið þeirra,
„Lögberg-Heimskringlu“ var skrif-
að mjög fallega um okkur og forsíðu-
fyrirsögnin var „Komu, sáu og sigr-
uðu“.
Seinni vikunni eyddum við í St.
Catherines, þar sem kóramótið „Ni-
agara Intemational Music Festival"
fór fram. I mótinu tóku þátt átta kór-
ar frá Bandaríkjunum og Kanada
auk okkar Grallaranna. Það var stór-
kostleg upplifun að taka þátt í svona
stóru móti og þrátt fyrir stífar æf-
ingar þótti okkur frábært að fá að
vera með. Aðalstjórnandi á mótinu
var Jean Ashworth-Bartle sem er
mjög eftirsóttur stjórnandi og hafði
hún góða stjórn á öllum krakkaskar-
anum. Fleira var til gamans gert en
að syngja. Meðal annars sigldum við
upp að hinum mikilfenglegu Niag-
ara-fossum og urðum öll rennblaut í
úðanum frá fossunum. Við vorum
samt ekki lengi að þorna vegna þess
að hitastigið var frekar hátt eða um
40 stig.
Meðan við vorum á hátíðinni gist-
um við ásamt hinum kórunum á stú-
dentagarði þar sem okkur var séð
fyrir öllu. Þar gafst okkur gott tæki-
færi til að kynnast hvert öðru og
læra af hinum kórunum. Þar upp-
lifðum við líka gestrisni Kanadabúa.
Þeir vildu allt fyrir okkur gera og
þegar við vorum alveg að gefast upp
á hitanum bauð rútubílstjórinn okk-
ur óvænt í sundlaugina í garðinum
hjá sér. Það var að sjálfsögðu vel
þegið.
Kóramótinu lauk með sameigin-
legum tónleikum allra kóranna. Þar
voru flutt þau verk sem æfð höfðu
verið undanfarna daga. Tónleikarnir
tókust mjög vel og voru allir í góðu
skapi en þó þreyttir og fegnir að
þeim loknum.
Síðasta kvöldið okkar í Kanada
héldum við Grallararnir kvöldvöku
okkur til mikillar skemmtunar. Var
slegið á létta strengi og voru mömm-
urnar fremstar í flokki, vöktu þær
mikla lukku með atriðum sínum, þar
sem þær brugðu sér í gervi Grallara
með öllu tilheyrandi og tóku nokkur
lög af dagskrá kórsins.
Allir komust svo heilir heim en
ekki var laust við að sumir væru
svolítið þreyttir eftir langa og erfiða
ferð. Þrátt fyrir alla erfiðleika lærð-
um við heilmikið og minnumst ferð-
arinnar með gleði. Við viljum að lok-
um þakka öllum þeim sem tóku svo
hlýlega á móti okkur og vonum að
þeir hafi líka haft gagn og gaman af.
F.h. Gradualekórs Langholts-
kirkju
AUÐUR AGLA ÓLADÓTTIR
OG REGÍNA UNNUR
ÓLAFSDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.