Morgunblaðið - 09.12.1999, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
FÓLK í FRÉTTUM
Tilraun til tilraunastarfsemi
TOJVLIST
G e i s 1 a d i s k u r
HERBERGI 313
Herbergi 313, geisladiskur hljóm-
sveitarinnar Land og synir. Sveit-
ina skipa þeir Hreimur Orn Heimis-
son (söngur, raddir), Birgir Nielsen
(trommur og slagverk), Jón Guð-
finnsson (bassi), Njáll Þórðarson
(hljómborð, raddir) og Gunnar Þór
Eggertsson (gítar). Arnþór Örlygs-
son sá um forritun. Aðrir hljóðgjaf-
ar eru Samúel S. Samúelsson
(strengjaútsetningar), Nora
Kornblueh (selló), Þórunn Ósk Mar-
ínósdóttir (vióla), Zbigniew Dubik
(fiðla) og Szymon Kuran (fiðla). Öll
lög eru eftir Hreim Örn Heimisson
og eitl þeirra (,,stríð“), semur hann
í félagi við Gunnar Þór gítarleik-
ara. Textar eru eftir Hreim Örn
Heimisson, Gunnar Þór Eggertsson
og Jón Guðfinnsson.
Upptökum stýrði Addi 800.43,47
mín. Spor og Skífan gefa út.
EITT af sígildum deilumálum
poppheimsins snýst um hið graf-
alvarlega mál hvort menn séu að
meina eitthvað með lagasmíðum sín-
um. Era þeir að skapa tónlistarinnar
vegna eða era þeir einfaldlega að
stíga í vænginn við Mammon? ís-
lenskar ballsveitir hafa þurft að þola
mikla gagnrýni vegna þessa í gegn-
um tíðina þar sem margir vilja meina
að lagasmíðar þeirra séu bara léleg
afsökun til að slá upp enn einu
sveitaballinu. Kannski rétt í ein-
hverjum tilvikum. En bara það að
spila tónlist í þyngri kantinum er
ekki næg forsenda til að verða að
heiðarlegum tónlistarmanni. Það er
fyrir öllu að menn séu sannir í því
sem þeir gera, hvort sem um er að
ræða gleðipopp eða dauðarokk.
Hljómsveitin Land og Synir, sem
myndi flokkast sem dæmigerð ball-
sveit, gerir meðvitaða tilraun til að
brjótast frá hressipoppsstimplinum
á „Herbergi 313“, sem er þeirra önn-
ur plata. Fyrsta merki þessa blasir
reyndar við um leið og maður ber
diskinn augum. Umslagið er svona
hæfilega „avant garde“, gæti þess
vegna tilheyrt einhverri tilrauna-
kenndri raftónlistarsveit. Þessar
þreifingar Lands og sona í átt að ein-
hverju bitastæðara en gleðiglaums-
poppi eru nokkuð farsælar í sumum
tilvikum.
Lagið „Öi-magna“ stendur sér-
staklega upp úr. Trommuleikur í
skrýtnari kantinum leiðir hlusta-
ndann inn í íburðarmikið og drama-
tískt lag sem gengur afar vel upp.
Strengjanotkun í laginu kemur vel
út og era strengjaútsetningar á plöt-
unni allri smekklegar. Synirnir
koma nokkuð á óvart á plötunni með
óhefðbundnum nálgunum við laga-
smíðar en það hefur ekki verið
þeirra von og vísa til þessa. Það fer
t.d. mikið fyini’ skapandi trommuleik
á plötunni og oft bregður fyrir
óvanalegum gítarhljómum. í laginu
„Freistingar" bregður fyrir
skemmtilegum reggí-dub tilraunum
og einnig er fyrsta lag plötunnar
„Undraland“ vel heppnað stílbrot
sem byrjar fremur furðulega en líð-
ur svo áreynslulaust áfram á alveg
hreint indælis vegu.
Inn á milli era svo lög sem era með
báða fætur fasta í gleðipoppinu og
era þau flest öll fremur þunnur
þrettándi, því miður, fyrir utan lagið
„Saga“, en það kom út í sumar á
safndisknum „Svona er sumarið 99“
og hefur það elst alveg þrælvel.
Nú er nauðsynlegt að fara út í smá
samanburðarfræði. Hljómurinn á
„Herbergi 313“ er þyngri en sam-
nefnd plata svipaðrar sveitar, Skíta-
mórals, en hún kom út fyrr á þessu
ári. Skítamóralsplatan gerði þó ná-
kvæmlega það sem hún átti að gera,
var stútfull af grípandi og hressu
þriggja gripa gleðipoppi og var plat-
an bara nokkuð vel heppnuð sem
slik. Það vill nefnilega bregða við að
þegar þessum annars vel heppnuðu
tilraunum sleppir hjá Landi og son-
um, þá standa eftir ósannfærandi
annars flokks popplög. Þeir ættu
kannski að snúa sér alfarið að
nýbylgjunni á næstu plötu?
Textagerð léttpoppsveita er oft í
klénna lagi og er þessi plata því mið-
ur engin undantekning. Textarnir
hér era lítt safaríkir, það er mikið
flogið áframj svifið um á skýi með
þér o.s.frv. I hinum bamalega titl-
uðu, en dágóðu lögum, „Stríð“ og
„Fordómar“ era þessar „hér ert þú,
ég er þar“ klisjur reyndar góðu heilli
brotnar upp. Lagið „Fordómar“ er
reyndar eitt besta lag plötunnar,
með sterkt og tilflnningaríkt viðlag
og þar hljómar Hreimur söngvari
einna mest sannfærandi. Það er að
sjálfsögðu hið besta mál að menn
takist á við hluti sem skipta máli í
textagerð sinni. Það er þó grátbros-
legt að þegar maður flettir við blað-
síðunni sem inniheldm- þessa hug-
sjónaríku texta blasir við auglýsing
frá einhverju gallabuxnafyrirtæki!
„Herbergi 313“ er líklega einlæg
og metnaðarfull tilraun til að gera
tilraunir og fyrir að þora að taka þá
áhættu fá Synirnir stórt prik frá
undirrituðum. Þetta er þó fremur
meinlaus poppplata er allt kemur til
alls, þó vissulega sé hún stór framför
frá síðustu plötu. Land og synir
fljúga því áfram og það á réttri leið.
Gangi ykkur vel strákar.
Arnar Eggert Thoroddsen
r
KAMINUR
Vandaðar, fallegar.
Ótrúlega hagstætt verð.
-MIKIÐÚRVAL-
Frestar tónleikum
ÁSTARKARLINN
sjálfur, Barry White,
hefur frestað tónleik-
um í annað sinn á þessu
ári og er ástæðan
þreyta að sögn tals-
manns söngvarans.
Whit e er 55 ára að
aldri og flaug fyrr en
aætlað var heim úr
Evrdpuför sinni sem
þýðir að Ijöldi tónleika, aðallega í
Bretlandi, frestast um óákveðinn
tíma. I ágúst frestaði hann sjö tón-
leikuin í Bandaríkjunum. Hann
mún nú gangast undir ítarlega at-
hugun á sjúkrahúsi í
San Diego þar sem
hann býr.
Wliite var á tónleika-
ferðalagi til að kynna
nýju plötuna sína
„Staying Power“ sem
hefúr selst í milljónum
eintaka í Banda-
rílijunum. Tónleika-
ferðalög virðast hins
vegar fara illa í söngvarann því ár-
ið 1995 var hann lagður inn á
sjúkrahús eftir slíka ferð með of há-
an blóðþrýsting.
PFAFF
cHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Hvert er mikilvægasta
Norðurlandamálið?
www.tunga.is
Bingó alla fimmtudaga kl. 19.15
í félagsheimilinu Ásgarði, Glæsibæ.
Frítt kaffi. Sér reyklaus salur. Nýtt kortatímabil. Öllum opið.
Upplýsingar í síma 588 2111.
Ásgarður, Glæsibæ.
7V
OLYMPIA f
Sölustaðir:
Reykjavík: Nettó Mjódd - Nóatún Hringbraut - Ellingsen Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga
Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Hjá Marfu ísafjörður: Olíufélag útvegsmanna
Hvammstangi: Kaupfélag V-Húnvetninga Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga
Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga Siglufjörður: Strax Ólafsfjörður: Strax
Akureyri: Nettó - Hrfsalundur Húsavík: Þingey Hvolsvöllur: KÁ. Hella: K.Á. Vestmannaeyjar: K.Á.
Dreifingaraðlli: Rún heildverslun. Sfmi 568 0656.
MARATHON 5?
- By OLYMPIA