Morgunblaðið - 09.12.1999, Qupperneq 77
ÞcegUegir og vandaðir
sjóiwarpssófar
113.050,- Stgr.
Möikinni 1 • 10« Reykjíivik
Sími; 5,'k'i .'{500 • la\: 5.55 .'{510 • w\s vv
ww H’.niarco.is
Vlð atyðjum vlð bakið á þór!
www.tunga.is
GoodLife
Nýi dömuilmurinn
Jólagjafirnar
RCWELLS
Kringlunni 7,
sími 5 88 44 22
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 77
FOLKI FRETTUM
ræðu Ceciliu tekur Mel Smith, sem
kynnir hátíðina ásamt leikkonunni
Carole Bouquet, fram kassa með va-
saklútum og segir kersknislega við
áhorfendur: „Við bjuggumst við
Gwyneth Paltrow."
Einhvern veginn hefur það verið
svo að Evrópsku kvikmyndaverð-
launin hafa verið í minni metum hjá
fjölmiðlum í gegnum tíðina en til að
mynda óskarinn, þótt verðleikarnir
séu síst minni hjá evrópskum kvik-
myndagerðai-mönnum. Ástæðan
kann að vera framtaksleysi, að minna
sé kostað til eins og almennt gerist í
evrópskri kvikmyndagerð eða að
fjölmiðlar séu einfaldlega minna
glysgjarnir en kollegar þeirra vest-
anhafs. Ef marka má ófarir Díönu og
bresku konungsfjölskyldunnar er sú
ekki raunin.
En reynt hefur verið að breyta
ímynd hátíðarinnar
undanfarin ár og sér
þess stað í Berlín; ein-
staka óhöpp eiga sér
þó stað eins og þegar
seinheppin leikkona
rekur höfuðið í heið-
ursstyttuna sem hún
afhendir Morricone
og er Almodovar æðir
upp á svið til að taka við áhorfenda-
verðlaunum sínum fyrir bestu leik-
stjóm áður en búið er að kalla hann
upp og sér þann kost vænstan að
snúa aftur til sætis síns.
Þegar hann loks er kallaður upp á
svið eftir að sýnt hefur verið brot úr
myndinni Allt um móður mína segist
hann vel geta komið aftur í þriðja
sinn ef þess gerist þörf. Áhorfendur í
salnum hlæja en hann reynist sann-
spár. Hápunktur kvöldsins er þegar
hann tekur við verðlaunum fyrir
bestu kvikmynd ársins.
„Það er mjög einfalt líf sem ég
deili með áhorfendum mínum í hverrí
viku," segir hann. ,Án þeirra er ég
ekkert. I upphafl ferils míns kunni ég
ekki að meta þetta land sem ég á allt
að þakka. Þessi tuttugu ár sem ég hef
unnið að kvikmyndum eru staðreynd
vegna þess að fólk fór á þessar
hneykslanlegu myndir mínar. Fólk
var forvitið og sá ástæðu til að mæta
og það á jafn mikið í þessum verð-
launum og ég.“
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
„Við skulum vona
að við eigum eftir
að sjá Lars Von Trier
og Björk ganga eftir
rauða dreglinum
í Cannes í vor.u
svarar:
Hvaða málsvæði gefur
út flestar bækur?
Hann er yfír sig
þakklátur og sér
ástæðu til að halda
áfram: „Hvað alla þá
sem unnu að mynd-
inni varðar; þið vitið
hver þið eruð. Þetta
er langur listi og ég
elska ykkur öll, eða,
jújæja..." Svo fer
þessi litríki leikstjóri af sviðinu.
Það er framorðið. Hátíðin er að
baki, blaðamannafundur, viðtöl og
bros í gegnum tárin (að þessu sinni
runnu þau af hvörmum Ralph Fienn-
es sem valinn var besti leikari).
Stjömustóðið er horfið til kvöldverð-
ar í risastórum sal þar sem blaða-
maður sest einnig að snæðingi. Ung-
um Þjóðverja sem situr við borðið er
ekki boðið til veislunnar heldur
stundar hann að svindla sér inn í
veislur og státar af því að hafa komist
á uppákomur með helstu stórmenn-
um Þýskalands úr röðum stjórnmála-
manna og dægurstjama. Hann ætlar
að flytja til Los Angeles, slá í gegn
sem poppstjarna og smygla sér inn á
óskarsafliendinguna. Maður verður
nú einu sinni að sýna metnað í lífínu...