Morgunblaðið - 09.12.1999, Side 84
ftgmiMiifeife
Traust,
íslenska
muruoru
Slðan 1972 |J ..
Leitið tilboða! « SfSÍIipi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Uti að leika sér
SNJÓRINN liggur yfír öllu landinu. lög en kætir krakkana sem leika
Hann tálmar umferð og tefur ferða- sér í honum af hjartans lyst.
Kortleggja vanda-
mál við nýtingu
RANNSÓKNASTOFNUN fískiðn-
aðarins hlaut nýverið 600 þúsund
króna forverkefnastyrk frá Rann-
sóknarráði Islands til að greina
vandamál er lúta að nýtingu ís-
lenskrar villibráðar. I lok for-
verkefnisins á að meta áhuga og
þörf á þróunarverkefni um bætta
nýtingu íslenskrar villibráðar og
koma saman samstarfshópi um
markvissari nýtingu villibráðar á
Islandi.
Að sögn Gunnars Páls Jónsson-
ar, matvælafræðings og verkefnis-
stjóra, er markmiðið með rann-
sókninni að kortleggja vandamál
sem lúta að nýtingu villibráðarinn-
ar og verður rannsóknin unnin
m.a. með því að taka viðtöl við
þær starfsstéttir og áhugahópa
sem hafa með nýtingu og vinnslu
villibráðarinnar að gera. Kannað
verður hvaða kröfur yfírvöld gera
með tilliti til öryggis, bæði til heil-
brigðis og nýtingar stofna. Einnig
á að skoða meðferð, vinnslu og
geymsluþol auk markaðssetningar
villibráðarinnar og er reiknað
með þvi að rannsókninni ljúki í
vor.
Gunnar Páll segir að rannsókn-
in muni beinast að öllum dýrateg-
undum, öðrum en fiskum, sem telj-
ast til íslenskrar villibráðar og má
þar nefna endur, gæsir, hreindýr,
sel, rjúpu og svartfugl svo fátt eitt
sé nefnt. Að rannsókninni kemur,
auk Gunnars Páls, Guðjón Þor-
Aflaverðmæti Arnars
HU yfír milljarður
AFLAVERÐMÆTI frystitogarans
Arnars HU frá Skagaströnd var í
gær orðið rúmlega einn milljarður
króna á þessu almanaksári. Aflinn
upp úr sjó er ríflega 6.100 tonn og
uppistaðan þorskur. Ekkert skip
hefur áður fískað fyrir meira en einn
milljarð króna á einu ári.
Fyrra metið átti Samherjatogar-
inn Baldvin Þorsteinsson EA. Hann
fiskaði fyrir 790.000 milljónir króna í
fyrra, en þá var aflaverðmæti Arn-
ars 760 milljónir króna.
Miðað við að enginn skipverji fari
meira en tvo af hverjum þremur túr-
um er hlutur háseta á Arnari í ár um
átta milljónir króna og hlutur skip-
stjóra tvöfalt hærri. „Við erum auð-
vitað ánægðh' með árangurinn.
Hann skapast fyrst og fremst af
góðri kvótastöðu, góðri útgerð og
góðum mannskap, en úrslitum ræð-
ur að við erum með rúman þorsk-
kvóta,“ sagði Guðjón Guðjónsson af-
leysingaskipstjóri við Morgunblaðið
í gær, en þá var skipið úti fyrir
Norðurlandi á leið austur. Þorsk-
kvóti Skagstrendings er um 4.000
tonn og er hann að mestu á Arnari.
„Frátafir hafa verið litlar, en reynd-
ar vorum við í slipp í upphafi árs og
fórum ekki út fyrr en 17. janúar.
Þetta byggist einfaldlega á veiði-
heimildum, hvað er mikið skammtað
í menn og okkar skammtur er stór.“
Guðjón sagði að vinnsla og pökkun
færi eftir því hvar markaðurinn væri
bestur. „Frystigetan er á milli 40 og
kelsson matvælafræðingur og
hefst rannsóknin innan skamms en
hcildarkostnaður við hana er
1.200 þúsund krónur.
„Við munum taka viðtöl við þá
aðilia sem meðhöndla villibráðina
með ólíkum hætti, s.s. aðila í veit-
ingahúsarekstri, kjötiðnaðar-
menn, matreiðslumenn, Náttúru-
fræðistofnun, veiðistjóra og ýmis
hagsmunasamtök, m.a. Skotveiði-
félag Islands og Bændasamtökin,"
segir Gunnar Páll.
„Hugmyndin með rannsókninni
er sú að leggja grunn að frekari
rannsóknaverkefnum í framtíð-
inni, sem yrðu afmarkaðri en sú
rannsókn sem hér er að hefjast."
Að sögn Gunnars Páls verður
leitast við að svara ýmsum rann-
sóknarspurningum eins og þeim,
hvernig vinnslu og verkun villi-
bráðarinnar sé háttað, matreiðslu
hennar og margra annarra. Síðan
verður upplýsingunum safnað
saman um aðferðir og vinnubrögð
hinna ólíku aðila sem meðhöndla
villibráðina og reynt að komast að
því hvaða vandamál er helst við að
eiga. „Meginþema rannsóknarinn-
ar er enda að kortleggja vanda-
málin svo unnt sé að einangra þau
og takast á við þau í frekari rann-
sókn,“ segir Gunnar Páll.
Litlar sem engar rannsóknir af
þessu tagi hafa verið gerðar hér á
landi svo vitað sé en að sögn
Gunnars Páls er engu að síður
vaxandi áhugi fyrir hendi og mun
rannsóknin einnig byggjast á
heimildaleit um rannsóknir á villi-
bráð hérlendis sem eriendis.
»
50 tonn á sólarhring, en það reynir
ekkert á það í flakavinnslunni. Það
er mikil vinna við þetta, sérstaklega
flakavinnslan sem er mjög seinleg.
Við verðum því að passa okkur á því
að taka ekki of mikið í holi og draga
þannig úr gæðunum. Við reynum að
takmarka okkur við 8 til 10 tonn í
holi, en auðvitað kemur stundum
meira. Við slökum ekki á gæðum til
að koma meiru í gegn.“ sagði Guðjón
Guðjónsson.
■ Slökum ekki/30
■BB
Frávísunarkröfu í morðmáli hafnað í héraðsdómi
Krafðist frávísimar vegna ófull
nægjandi lögreglurannsóknar
Styrkur til rannsókna á villibráð
Fjárfest-
um boð-
inn hlutur
í Kaupási
STEFNT er að því að bjóða
fagfjárfestum að fjárfesta í
Kaupási í byrjun næsta árs, að
sögn Þorsteins Pálssonar, for-
stjóra Kaupáss. Seinna á át'inu
er hugsanlegt að almenningi
bjóðist að fjárfesta.
Þorsteinn segir alltaf hafa
verið stefnt að því að Kaupás
yrði skráður á markað en
ákvörðun um hvenær það yrði,
liggi ekki fyrir. Ekki heldur
ákvörðun um hversu stór hluti
verður boðinn fagfjárfestum
eftir áramót.
Þorsteinn mun halda erindi á
ráðstefnu um fjármál og um-
breytingu fyrirtækja se_m hald-
in verður á vegum Islands-
banka F&M í dag.
í samtali við Morgunblaðið
- -it sagði Þorsteinn jafnframt að
stefnt væri að opnun fjögurra
nýrra verslana á næstu sex
mánuðum, í Hafnarfirði,
Reykjanesbæ, á Höfn í Horna-
firði og Djúpavogi.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði í gær frávísunarkröfu lög-
manns Þórhalls Ölvers Gunnlaugs-
sonar, sem ákærður er fyrir
manndráp, með því að hafa banað
Agnari W. Agnarssyni á heimili
hans við Leifsgötu í sumar.
Mál ríkissaksóknara gegn ákærða
var tekið fyrir í gær og var kröfu um
lokað þinghald ennfremur hafnað.
Aðalmeðferð í málinu hefst 10. jan-
úar en gæsluvarðhald ákærða renn-
ur út 14. janúar.
Öflun sýnilegra sönnunargagna í
málinu lauk í gær og lagði ákæru-
valdið fram fjóra hnífa sem tengjast
málinu og mun síðar leggja fram
myndbandsupptöku af brotavett-
vangi. Sækjandi og verjandi ákærða
deildu um réttmæti þess að lögð
yrði fram mappa verjanda með
rannsóknargögnum, sem ekki voru
lögð fram af hálfu ákæruvalds og
mótmælti sækjandi framlagningu
möppunnar þar sem gögn í henni
hefðu ekki þýðingu í málinu að svo
stöddu. Dómurinn tók þá ákvörðun
að taka við möppu verjanda sem
framlögðu málsgagni þar sem ekki
þótti sýnt fram á þarfleysi gagn-
anna.
Dómurinn hafnaði hinsvegar
kröfu verjanda fyrir hönd ákærða
um að málinu yrði vísað frá dómi en
krafan var byggð á því að lögreglu-
rannsókn hefði verið ófullnægjandi
og hefði ákærði ekki fengið að gefa
skýrslu hjá lögreglu þrátt fyrir ósk
sína þess efnis. Sagði verjandi enn-
fremur í rökstuðningi sínum fyrir
frávísunarkröfunni að ef ákærði
hefði fengið að koma að sínum sjón-
armiðum á rannsóknarstigi hefði
ákæruvaldið litið málið öðruvísi aug-
um en raun bæri vitni.
Sækjandi mótmælti frávísunar-
kröfu verjanda og vísaði til þess að
samkvæmt lögum um meðferð opin-
berra mála væri dómara ekki heim-
ilt að vísa máli frá dómi þótt lög-
reglurannsókn væri ófullnægjandi.
Stefnt er að því að aðalmeðferð og
málflutningur í málinu fari fram 10.
til 12. janúar.