Morgunblaðið - 09.01.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
7. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lestarslysið í Noregi
Bráðabirgða-
skýrsla af-
hent lögreglu
Ósld. AP.
RANNSAKENDUR lestarslyssins í
Noregi afhentu í gær lögreglu bráða-
birgðaskýrslu sína um orsakir slyss-
ins, en niðurstöður hennar voru ekki
kynntar opinberlega að svo stöddu.
„Það er ekki búið að ganga frá
skýrslunni," sagði Per Erik Skjef-
stad, talsmaður lögreglunnar. Akveð-
ið hefði verið að opinbera ekkert um
niðurstöðurnar fyrr en á mánudag.
Eiginkonan
svaraði
Trento. Reuters.
ÍTALSKUR karlmaður, sem
hringdi í erótíska símaþjónustu
sem hét að koma honum í sam-
band við „heita húsfrú", varð
fyrir áfalli lrfs síns er eiginkona
hans svaraði.
Maðurinn, sem er á sextugs-
aldri og býr í bænum Trento
nyrst á Italíu, komst að því að
eiginkonan hefði leiðzt út í að
starfa fyrir símaþjónustuna
vegna þess að henni leiddist
heima hjá sér. Greindi dagblað-
ið La Repubblica frá þessu.
Reuters
Skólabörn í Cardenas, heimabæ föður Elians Gonzalez á Kúbu, veifa kúbverska fánanum á fjöldafundi til stuðnings föðurnum í hápólitiskri for-
ræðisdeilu hans og ættingja í Bandaríkjunum. Castro Kúbuleiðtogi hefur heitið stöðugum mótmælum unz drengurinn hefur verið sendur til Kúbu.
Pútín segir enga refsingu felast í tilfærslu hershöfðingja
Bandarískur þingmaður grípur til sinna
ráða í „Kúbudrengsdeilunni“
Arásahlé sagt í þágu
óbreyttra borgara
Stefnt fyrir
þingnefnd
Grosní, Moskvu. AP, AFP.
VLADIMÍR Pútín, settur forseti
Rússlands, hélt því fram í gær að
tveimur af æðstu yfirmönnum rúss-
neska hersins í Tsjetsjníu hefði ekki
verið skipt út vegna þess að stjórnin
í Moskvu hefði verið óánægð með
frammistöðu þeirra í stríðinu; að-
eins hefði verið um venjubundna til-
færslu manna í herstjórninni að
ræða.
Hlé var gert í gær á sókn Rússa í
Grosní, héraðshöfuðborg Tsjetsjníu.
Sagði Pútín hléið vera gert til að
hlífa óbreyttum borgurum, en nú
stendur yfir jólahátíð Austurkirkj-
unnar, sem og trúarhátíð múslima
við lok Ramadan-föstumánaðarins.
Pútín útskýrði í sjónvarpsávarpi
ákvörðunina um að gera hlé á hern-
aðaraðgerðunum, en hún kom
mörgum á óvart. „Hér er ekki um
neina breytingu að ræða,“ sagði
hann. „Eins og þið vitið hefur það
verið meðal markmiða okkar í þess-
ari baráttu [að hlífa óbreyttum
borgurum]. Við höfum ekki breytt
markmiðum okkar og þeim mun
verða náð.“
Á föstudag var tilkynnt, að hlé
yrði gert á árásum í Grosní og að
Gennadí Troshev og Vladimír
Shamanov, hershöfðingjar víglínu-
hersveita Rússa í Tsjetsjníu, hefðu
verið færðir til í starfi. Staðgenglar
þeirra tækju við. En Pútín vísaði því
á bug að verið væri að refsa þeim.
Þýzka dagblaðið Sáchsische Zeit-
ung greindi frá því í gær, að Pútín
hefði verið vísað frá Vestur-Þýzka-
landi í lok áttunda áratugarins, sak-
aður um njósnir. í frétt blaðsins er
vísað í þýzkar leyniþjónustuupplýs-
ingar og sagt frá því að Pútín hafi
komið til starfa í Bonn árið 1975, þá
opinberlega í hlutverki fréttaritara
sovézku TASS-fréttastofunnar.
Og í nýjasta hefti þýzka frétta-
tímaritsins Der Spiegel er greint frá
því, að njósnarar sem Pútín hafi
fengið til starfa fyrir sovézku leyni-
þjónustuna KGB, gætu enn verið að
verki í þágu stjórnvalda í Moskvu í
Þýzkalandi og hugsanlega annars
staðar á Vesturlöndum.
Míami. AP.
BANDARÍSKUR þingmaður, mik-
ill baráttumaður gegn stjórn Fidels
Castros á Kúbu, hefur stefnt hinum
sex ára gamla ílóttadreng Elian
Gonzalez sem vitni fyrir þingnefnd
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.
Vegna þessa má ekki senda dreng-
inn úr landi í að minnsta kosti mán-
uð, eða þar til dómstólar hafa ákveð-
ið hvort rétt sé að senda drenginn í
forsjá föður síns á Kúbu.
Dan Burton, sem er einn af full-
trúadeildarþingmönnum repúblik-
ana, tilkynnti um stefnuna á föstu-
dagskvöld, rétt eftir að ættingjar
drengsins í Flórída höfðu stigið
íyrstu lagalegu skrefin í þá átt að fá
dæmt forræðið yfir honum.
Juan Miguel Gonzalez, faðir Eli-
ans á Kúbu, brást ókvæða við frétt-
inni af stefnu Burtons. „Hvaða rétt
þykist þessi maður hafa?“ spurði
hann æstur, fyrir framan frétta-
menn í heimabæ sínum Cardenas,
þar sem fjöldi fólks var saman kom-
inn til að styðja forræðiskröfu föð-
urins. Á miðvikudag úrskurðuðu
bandarísk innflytjendayfirvöld,
INS, að eðlilegt væri að faðirinn
hefði forræðið yfir drengnum og því
skyldi hann sendur aftur til Kúbu.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Janet Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, hafa bæði lýst sig
samþykk úrskurði INS.
Útlaga-Kúbverj'ar æstir
Forræðisdeila þessi hefur vakið
gífurlega athygli í Bandaríkjunum.
Mikil reiði ríkir meðal útlaga-
Kúbverja þar í landi og í Miami hafa
þeir staðið fyrir háværum fjölda-
mótmælum gegn úrskurði INS.
Hafa þeir hótað að leggjast á flug-
brautina ef tilraun verði gerð til að
fljúga með drenginn tii Kúbu.
MORGUNBLAÐIÐ 9. JANÚAR 2000