Morgunblaðið - 09.01.2000, Page 4
4 SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 2/1 - 8/1
M ''JæIIŒQ
► V erslunarmannafélag
Reykjavfkur hyggst í kom-
andi kjarasamningum leggja
áherslu á vinnustaðasamn-
inga og að samið verði um
markaðslaun sem endur-
spegli vinnuframlag og
ábyrgð félagsmanna VR í
starfi. Ennfremur að vinnu-
ti'minn verði styttur og gerð-
ur sveigjanlegri, settur verði
á laggirnar endurmenntun-
arsjóður og loks að tryggð
verði viðunandi lágmarks-
laun. Framkvæmdastjdri
Samtaka atvinnulífsins segir
að við fyrstu sýn virðist ým-
islegt jákvætt vera í fram-
setningu VR.
► LOÐNUVERTÍÐ fer vel af
stað og síðari hluta vikunnar
fékkst góður afli úti fyrir
Austfjörðum. Meðal annars
kom Hólmaborgin með um
2.200 tonn til Eskifjarðar á
föstudag og er það næst-
mesti loðnuafli sem íslenskt
loðnuskip hefur komið með
að landi. Loðnu var að fínna
frá Reyðarfjarðardýpi norð-
ur að Glettingi. Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur
segfir torfurnar þéttar og fal-
legar, en slíkt, hafí ekki verið
raunin í mörg ár. Hann telur
að loðnan sem þarna er á
ferðinni skipti hundruðum
þúsunda tonna.
í andstöðu við
jafnræðisreglu
ÖNNUR málsgrein 7. greinar laga um
stjórn fiskveiða er í andstöðu við jafn-
ræðisreglu stjórnarslo-ár að mati Hér-
aðsdóms Vestfjarða. I dómi í Vatneyr-
armálinu svokallaða þar sem Svavar
Guðnason, útgerðarmaður á Patreks-
firði, er sýknaður af ákæru um veiðar
án afiaheimilda, kemur fram að ekki sé
nauðsynlegt að lögbinda um ókomna tíð
þá mismunun sem tíðkast hafi við út-
hlutun aflamarks, enda eigi löggjafinn
að geta mótað reglur sem afnemi þessa
mismunun en stuðli um leið að verndun
fiskistofna. Sjávarútvegsráðherra segir
að dómi þessum verði að öllum líkindum
áfrýjað. Verði það gert eru líkur taldar
á að málið fái flýtimeðferð í Hæstarétti.
Vannýta
læknisþjónustu
ÍSLENDINGAR nota læknisþjónustu
of lítið í veikindum sínum sé miðað við
áætlaða þjónustuþörf samkvæmt er-
lendum stöðlum. Læknaheimsóknir ís-
lendinga í veikindum eru í heildina 45%
færri en erlendir sérfræðingar ráð-
leggja. Þetta er meðal þess sem fram
kemur í niðurstöðum nýrrar rannsókn-
ar á aðgengi að heilbrigðisþjónustu á
íslandi. í niðurstöðunum kemur jafn-
framt fram að verulegur munur sé á að-
gengi einstakra hópa að heilbrigðis-
þjónustunni og að töluvert vanti upp á
að því markmiði sé náð að öllum íslend-
ingum sé gefinn kostur á fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu sem völ er á.
Lestarslys í Noregi
UM tuttugu manns létu lífið á þriðju-
dag, er tvær farþegalestir rákust saman
á einbreiðu lestarspori nærri lestarstöð-
inni Aasta norðan við bæinn Elverum,
um 160 km norðan við Ósló. Lestimar
skullu saman á fullri ferð, um 80-90 km
hraða, og brauzt út mikill eldur. Um 90
manns voru í lestunum, en önnur þeirra
var hraðlest á leið frá Þrándheimi til
bæjarins Hamar, hin var á leið frá
Hamar til Rena. 68 komust lífs af og 30
þeirra slösuðust, þar af 18 alvarlega.
Mikil umræða spannst í kjölfarið um ör-
yggismál í norska lestakerfinu. Spurn-
ingar vöknuðu strax um það, hvernig
það gat gerzt að lestirnar fóru á sama
lestarsporið og hvers vegna þær voru
ekki stöðvaðar. Norskir fjölmiðlar
sögðu að umferðarstjórar á lestarstöð-
inni í Hamar hafi gert sér grein fyrir
árekstrarhættunni um fimm mínútum
fyrir slysið. Þeir hafi reynt að hringja í
lestarstjórana með farsíma en ekki get-
að það þar sem listinn yfir farsímanúm-
er norskra lesta hafi verið úreltur. Enn-
fremur hefur komið fram, að á járn-
brautarsporinu þar sem slysið varð
hafði ekki verið komið upp öryggiskerfi,
sem stöðvar lestir sjálfkrafa ef hætta er
á að þær lendi í árekstri. Við rannsókn-
ina á orsökum siyssins hefur komið
fram, að lestin sem var á norðurleið hafi
farið fram hjá rauðu ljósi og verið fáein-
um mínútum á undan áætlun; hraðlestin
að norðan hafi hins vegar verið nokkr-
um mínútum á eftir áætlun.
Hart barizt í Grosní
SÓKN Rússa í Tsjetsjníu hélt áfram af
fullum þunga í vikunni. Sögðu talsmenn
rússneskra hernaðaryfirvalda að á fóstu-
dag hefðu rússneskir hermenn náð á sitt
vald aðaljárnbrautastöðinni í Grosní,
héraðshöfuðborg sjálfstjórnarlýðveldis-
ins, eftir hörð átök við tsjetsjenska að-
skilnaðarsinna. Fregnir herma að tölu-
vert mannfall hafi orðið í átökunum í
Grosní í vikunni, en þau kváðu hafa verið
sérlega hörð í suðvesturhluta borgarinn-
ar, þar sem jámbrautastöðin er. A fóstu-
dag var skipt um tvo yfírmenn í herliði
Rússa í Grosm', en skýringar á manna-
breytingunum voru misvísandi.
Borís Jeltsín, fyrrverandi forseti Rúss-
lands, sagði á fimmtudag að eftir tvo
mánuði muni fáni Rússlands blakta yfir
Grosní. Síðar sama dag sagði hann að-
eins einn mánuð í að þetta gerðist. Ljóst
þykir að Vladimír Pútín, starfandi for-
seti, og menn hans leggi áherzlu á að
hægt verði að lýsa yfir fullnaðarsigri á
Tsjetsjenum áður en gengið verður til
forsetakosninga 26. marz.
►EHUD Barak, forsætisráð-
herra ísraels, og Farouk al-
Shara, utanrflásráðherra
Sýrlands, áttu á föstudag sín-
ar fyrstu beinu viðræður si'ð-
an á þriðjudag; þegar nýrri
samningalotu Israela og Sýr-
lendinga var hleypt af stokk-
unum í Sheperdstown f Vest-
ur-Virginíurfld í Bandaríkj-
unum. Eru þetta fyrstu beinu
viðræður ríkjanna eftir að
upp úr friðarsamningaum-
leitunum þeirra slitnaði fyrir
fjórum árum. Hafa viðræður
vikunnar gengið treglega en
vonir jukust um árangur á
fostudag er Bill Clinton
Bandarfkjaforseti lagði fram
viðræðuáætlun sem heimild-
armenn sögðu að báðir deilu-
aðilar hefðu fallizt á.
►BANDARÍSK innflytjenda-
yfirvöld úrskurðuðu á mið-
vikudag, að Elian Gonzales,
6 ára drengur sem fyrr f vet-
ur lifði af tilraun til að
smygla flóttafólki á báti frá
Kúbu til Flórída, skyldi færð-
ur í hendur föður síns á
Kúbu. Brugðust ættingjar
drengsins í Flórída og
kúbverskir útlagar í Banda-
ríkjunum ókvæða við úr-
skurðinum og hafa þeir síð-
arnefndu efnt til æsingamót-
mæla í Miami til að mótmæla
áformum um að senda piltinn
aftur til Kúbu.
►BANDALAG vinstri- og mið-
flokka vann stórsigur i' þingkosn-
ingum í Króatíu, sem frain fóru
á mánudag. Sigurvegaranúr
taka við stjómartaumunum af
þjóðemissiimuðum flokksmönn-
um Fraiyos Tudjinmis, forsetans
nýlátna, og þeir lýstu þvf þegar
yfir að verkefin þeirra yrði að
endurreisa efnahag landsins og
ijúfa þá alþjóðlegu einangrun
sem fyrri valdhafar hefðu komið
þvíí.
►FLOKKSSTJÓRN Kristi-
legra demókrata í Þýzka-
landi samþykkti á fundi f
Norderstedt í Slésvík-Holt-
setalandi á föstudag ályktun,
þar sem hún skorar einróma
á Helmut Kohl, fyrrverandi
kanzlara og heiðursformann
flokksins, að greina frá nöfn-
um þeirra sem létu hann fá
nafnlaus framlög í lcynilega
sjóði flokksins.
Morgunblaðið/Jónas
Kerlingadalsá uppbólgin vegna skafrennings og frosts. Ragnhildur Jónsdóttir horfir á ána.
Ar í Mýrdal bólgna upp
KERLINGADALSÁ í Mýrdal hefur
bólgnað mjög upp vegna skafrenn-
ings og krapa undanfarna daga og
er fylgst vandlega með vexti í ánni,
að sögn Bjarna Jóns Finnssonar,
starfsmanns Vegagerðarinnar.
Lýsir vöxturinn sér þannig að krapi
í ánni byrjar að stranda á grynning-
um, hleðst svo upp og veldur því að
vatnið hækkar.
Bjarni segir menn vonast til að
Kerlingadalsá, sem rennur vestur
með þjöðvegi 1 fram að bænum
Fagradal í Mýrdal, og áin Klifandi,
sem einnig hefur bólgnað mikið
undanfarna daga, nái sér niður á
nýjan leik en vandamál gætu skap-
ast ef aftur skæfi í árnar. Væri þá
hætta á að mun meira myndi hækka
í ánum sem gæti valdið því að vatn
færi yfir veginn heim að bænum
Kerlingadal. Hins vegar kvaðst
Bjarni ekki telja að Suðurlandsveg-
ur yrði í hættu.
Tveir teknir við
innbrot í Eyjum
TVEIR menn um tvítugt voru hand-
teknir aðfaranótt laugardags við inn-
brot í hús í Vestmannaeyjum. Voru
þeir látnir sofa úr sér áfengisvímu og
yfirheyrðir síðdegis í gær. Ekki voru
miklar skemmdir unnar á íbúðinni,
aðallega við útidyr. Unnið er að
rannsókn málsins.
Fjölmenni var við þrettándagleði í
Eyjum á föstudagskvöld, skemmti-
staðir voru vel sóttir og mikill fjöldi
tók þátt í skrúðgöngu frá Hásteini og
upp á gamla malarvöllinn ásamt
tröllum, huldufólki og jólasveinum
að sögn varðstjóra lögreglunnar í
Eyjum.
Viðraði sérlega vel til útivistar og
því tóku margir þátt í að kveðja jóla-
hátíðina með virktum.
Lögregla þurfti lítil afskipti að
hafa af gleðskapnum, tilkynnt var
um minniháttar líkamsárás sem þó
hefur ekki verið kærð og þá voru
tveir ökumenn teknir grunaðir um
ölvun við akstur.
Fjölmennt á Selfossi
Fjölmennt var einnig á þrettánda-
gleði á Selfossi á föstudagskvöld. Að
sögn lögreglu var mikill mannfjöldi í
blysför frá Tryggvaskála suður á
íþróttavöll. Veður var með besta
móti, stillt og gott og allt fór vel
fram.
Athuga-
semd vegna
fréttar
SÍMON Sigvaldason, skrifstofustjóri
Hæstaréttar, vill koma á framfæri
athugasemd vegna fréttar Morgun-
blaðsins í gær um dóm í Vatneyrar-
máli. Þær upplýsingar sem veittar
hafi verið blaðamanni hafi lotið al-
mennt að meðferð einkamála fyrir
Hæstarétti og flýtimeðferð sérstak-
lega í því sambandi. Um meðferð op-
inberra mála gildi aðrar reglur. Rík-
issaksóknari hafi 8 vikur til að áfrýja
opinberu máli. Málsmeðferðartími sé
til muna styttri en í einkamálum, þau
séu jafnan reiðubúin til málflutnings
eftir um 3-4 mánuði frá áfrýjun. Eng-
ar lögfestar reglur eru til um sér-
staka flýtimeðferð opinberra mála.
Uppsteypa nýs barnaspftala á Landspítalalóð boðin út
Aætluð verklok 2002
ÚTBOÐ á uppsteypu nýs barnaspít-
ala á lóð Landspítalans var auglýst
á Evrópska efnahagssvæðinu nú um
helgina en áætluð verklok eru í júní
2002. Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýbyggingunni í nóv-
ember 1998 en eins og kunnugt er
hafa tafir orðið á framkvæmdum
m.a. vegna kærumála. Gert er ráð
fyrir því að byggingarkostnaður
verði um 1,3 milljarðar króna.
„Barnaspítalinn á eftir að ger-
breyta allri aðstöðu bæði fyrir
sjúklinga, aðstandendur þeirra og
starfsfólkið,“ segir heilbrigðisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið.
„Þá kemur nýi spítalinn til með að
auka svigrúm innan Landspítalans
til annarra breytinga vegna þess að
með nýju húsnæði fáum við aukið
rými,“ segir ráðherra ennfremur.
Aukinheldur segir hún að göngu-
deildarþjónusta við börn eigi eftir
að verða betri með tilkomu barna-
spítalans.
Byggingin verður 6.500 fermetrar
að stærð og eru arkitektar Sigríður
Magnúsdóttir og Hans-Olav Ander-
sen, teiknistofunni Tröð.