Morgunblaðið - 09.01.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2000 37
SIGURRÓS
G UÐBJARTSDÓTTIR
tSigurrós Guð-
bjartsdóttir
fæddist á Meiri-
bakka í Skálavík 30.
maí 1912. Hún and-
aðist á Landspítalan-
um hinn 2. janúar
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Guðbjartur Sigurðs-
son og Halldóra Mar-
grét Sigurðardóttir
frá Bolungarvík.
Eiginmaður Sigur-
rósar var Steinn Ingi
Jóhannesson, f. 20.
desember 1906, d. 8.
júlí 1987. Börn þeirra eru: Val-
geir, f. 19. desember
1929, d. 5. maí 1930;
Erla, f. 9. apríl 1931;
Kristín, f. 27. maí
1932; Valgerður, f.
26. september 1935;
Ingibjörg, f. 13. apr-
fl 1938; og fóstur-
dóttir og frænka,
Svanhvít Hallgríms-
dóttir, f. 22. septem-
ber 1947.
Utför Sigurrósar
fer fram frá Ás-
kirkju á morgun,
mánudaginn 10. jan-
úar, og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Elsku mamma mín. Þá er kveðj-
ustundin runnin upp og þú ert búin
að fá langþráða hvíld. Mig langar til
að kveðja þig með nokkrum orðum.
Þú gekkst mér í móðurstað þegar ég
tæplega eins árs missti móður mína.
Móðir mín og þú voruð systradætur.
Margs er að minnast og sakna. Eg
minnist bernskuára minna þegar þú
sast við saumavélina þína, allt lék í
höndunum á þér, enda varstu fyrir-
myndar húsmóðir og mai’gan falleg-
an fatnaðinn saumaðir þú á mig og
prjónaðir. Þú og pabbi sem einnig
var mér yndislegur faðir reyndust
mér góðir foreldrar og er ég þakklát
fyrir að hafa alist upp hjá ykkur og
átt yndislegt heimili. Þú varst með
afbrigðum góður bakari og varst
dugleg að baka og alltaf til bakkelsi
með kaffinu. Ég man að vinkonur
mínar höfðu orð á því hve góð brúna
lagtertan væri hjá þér. Tónlistar-
uppeldi hlaut ég hjá ykkur og var
mikið sungið heima enda hafði pabbi
sungið í kór og þú varst söngelsk og
margar hjómplötur voru til heima,
þú hélst mikið uppá Hauk Morthens
söngvara og lagið Til eru fræ, einnig
hélstu upp á lagið Fjallið eina sem
Sigurður Ólafsson söng. Þú kenndir
mér snemma bænir og vers og gafst
mér fallega bænabók sem ég hef
kennt börnum mínum vers úr. Þú
varst trúuð og áttir Drottin þinn og
frelsara. Elsku mamma, það er svo
margs að minnast, sérstaklega eftir
að ég flutti frá Grindavík til Reykja-
víkur var mjög náið samband á milli
okkar. Það veitti mér mikla ánægju
að koma til þín á Hrafnistu og rifja
upp liðna tíð og hlusta með þér á seg-
ulbandsspólur. Þú baðst mig ásamt
vistfólkinu á deildinni þinni að spila
stundum á 'píanóið fyrir ykkur og var
þá sungið með, stundum söng Guð-
rún einsöng, það gladdi þig mjög.
Þannig var síðasta aðventan okkar.
Þú varðst fyrir því að brotna illa á
Þorláksmessu og fórst á Landspítal-
ann, þar áttum við fallega jólastund
á aðfangadag og á jóladag lásum við
saman jólakortin og kom Þorgerður
með kórinn sinn og stöðvaði við
dyrnar á sjúkrastofunni og þau
sungu Heims um ból fyrir okkur, það
var eftirminnileg stund sem ég
gleymi aldrei. Elsku mamma mín,
mér var ljúft að fá að sitja hjá þér
síðustu ævistundirnar þínar og vera
hjá þér þar til yfir lauk á sjúkrahús-
inu. Innilegar þakkir færi ég hjúkr-
unarfólkinu sem þar annaðist þig og
veittu okkur og Stinu systur styrk í
þínum veikindum. Ég er stolt af þér
og dugnaði þínum og að hafa átt þig,
pabba og dætur ykkar að sem for-
eldra og systur og þakka fyrir allt
sem þið hafið veitt mér.
Elsku mamma, ég kveð þig með
þessum sálmi sem ég las við andlát
þitt og bið guð að blessa minningu
þína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk iyrir allt og allt.
GekkstþúmeðGuði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hþóta skalt.
(V. Briem.)
Þín dóttir
Svanhvít Hallgrímsdóttir.
Við leiðarlok langar mig að minn-
ast fyrrverandi tengdamóður minn-
ar, Sigurrósar Guðbjartsdóttur, sem
lést 2. janúar sl. Eftir að ég kynntist
dóttur hennar, Svanhvíti, árið 1977
var ég fljótlega kynntur fyrir Sigur-
rósu og manni hennar, Steini Inga
Jóhannessyni, sem er látinn fyrir all-
mörgum árum. Mér var strax ákaf-
lega vel tekið af þeim hjónum, enda
indælis manneskjur bæði tvö, ættuð
og uppalin vestur á fjörðum en þá
löngu flutt til Reykjavíkur.
Sigurrós var ákaflega sterk og
ákveðin kona sem lét aldrei bugast
þótt erfiðleikar steðjuðu að, bæði
vegna veikinda húsbóndans um tíma,
og uppeldis á börnum bæði sínum og
annarra heldur vann sig fram úr
hverjum vanda með ákveðni, festu
og einstökum dugnaði.
Börnum mínum og Svanhvítar var
hún ákaflega góð amma, en þau eiu
yngstu barnabörnin hennar og
fylgdist hún vel með uppvexti þeirra
og á ég henni þar margt að þakka og
þeim hjónum báðum. Bið ég þeim
guðs blessunar fyrir handan móðuna
miklu.
Einar Óskarsson.
Elsku amma, nú var þinn tími
kominn. Mikið leið mér vel að fá að
sitja hjá þér þessar síðustu stundir
því það var svo mikill friður og ró yf-
ir þér. Þótt það tæki þig nokkra daga
að kveðja þennan heim þá varst þú
tilbúin.
Minningarnar eru margar og afi
er alltaf með í þeim. Á sunnudags-
morgnum þegar ég heyrði að afi fór
fram þá læddist ég uppí til þín.
Stuttu seinna kom afi með kaffisopa
og kandís til okkar. Þetta voru ljúfar
stundir og ennþá fæ ég kaffitár í
rúmið. Helgi minn sér um það núna.
Eitt sumarið vantaði Ólöfu húsaskjól
og fékk að vera hjá ykkur. Hún kom
með lítinn gimstein með sér. Það var
hún Rannveig sem gaf okkur svo
mikla gleði og líf. Ég man enn eftir
ljómanum í augunum ykkar þessar
stundir sem þið áttuð með henni. í
hvert skipti sem ég varð veik var það
mitt fyrsta verk að spyrja mömmu
hvort hún væri búin að hringja og
láta hana ömmu vita því amma kom
alltaf með eitthvert góðgæti í poka
og þá var batinn ekki langt undan.
Amma var mikil saumakona og
þegar ég varð sextán ára komu
amma og afi með glænýja saumavél
handa mér og ég varð alveg hvumsa
yfir þessari gjöf, ég sem kunni ekki
neitt að sauma, en það breyttist fljótt
og er þessi vél enn í notkun.
Árið 1972 giftist ég, eignaðist
mína fyrstu íbúð og son. Éinn daginn
veður mér litið út um gluggann og sé
ég hvar amma og afi eru að bisast
Erfisdrykkjur
dUcKbigaM/lð
GAPi-iim
Dalshraun 13
S. 555 1477 ♦ 555 4424
með gulan stól á milli sín. Jú, jú, það
var ekki hægt að gefa barni brjóst
nema stóllinn væri með örmum. Eld-
húskollur eða svefnbekkur, nei, það
gekk ekki upp.
Elsku amma, ég veit að afí tekur á
móti þér og strýkur þér um vangann
með sinni ljúfu og hlýju hendi. Góður
guð geymi ykkur.
Sigurrós Halldórsdóttir.
Elsku amma mín. Það er sár til-
finning sem býr í brjósti mér, sökn-
uður. Það er með ólíkindum hvað ég
sakna þín nú þegar þú hefur lokið
þessari jarðvist. Margs er að minn-
ast og man ég vel þegar ég lék mér á
Jökulgrunni þar sem þið afi bjugguð,
svo þegar afi var orðinn heilsulítill þá
fóruð þið yfir á Hrafnistu, þar bjóstu
allt til dauðadags. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa átt þig að ömmu.
Eftir að ég hóf störf hjá Skjóli
voru stundir okkar fleiri og þú varst
svo stolt af mér, gekkst með mér um
gangana og sagðir og sýndir öllum
hvað þú værir stolt af mér, ég væri
nafna þín og ég væri að vinna í
Skjóli. Svona varstu, þú varst svo
stolt af öllu þínu fólki.
Mikið þótti mér líka gaman þegar
þú talaðir um hvernig allt var í gamla
daga, hversu erfitt það var að kom-
ast í gegnum lífið, lífskjörin voru
ekki eins og þau eru í dag. Um allt
gátum við spjallað og á meðan
prjónaðirðu og horfðir ekk á það sem
þú prjónaðir á meðan. Handlagin
varstu, það gladdi þig svo mikið þeg-
ar ég sagði þér að ég ætti vin og til
þess að þú gætir verið viss um að
hann væri mér góður spurðir þú
mömmu um allt varðandi hann og
varðst líka svo ánægð fyrir mína
hönd. Þú vildir mér allt það besta og
ekki bara mér heldur öllum.
Elsku amma, ég þakka þér fyrir
að hafa átt hlutdeild í lífi mínu, allar
stundir okkar saman og allt sem þú
hefur gert fyrir mig. Þú munt alltaf
eiga stað í hjarta mínu og ég mun
aldrei gleyma þér. Ég bið algóðan
guð að varðveita þig og minningu
þína.
Sigurrós Einarsdóttir.
Elsku amma mín, mikið sakna ég
þín óskaplega. Þótt ég sé ung á ég
margar minningar um þig, til dæmis
þegar ég kom í heimsókn til þín á
Hrafnistu baðstu mig alltaf að lakka
á þér neglurnar og þú varst svo
ánægð með það, og eins þegar ég
kom áttirðu alltaf ömmubrjóstsykur,
það var alltaf eitthvað á boðstólum
handa þeim sem til þín komu, og þó
ekkert tilefni væri til að vera í kjól og
fín, þá var alltaf tilefni hjá þér. Þú
vildir vera svo sérstök enda varstu
það á þinn hátt. Þú varst mér svo
góð, amma. Ég þakka þér fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig. Megi
guð vernda þig og passa, elsku
amma mín.
Þín
Bergljót Ólafía Einarsdóttir
(Begga).
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar
til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf-
ang þess (minning@mbl.is) —vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við
meðallínubil og hæfilega línulengd - eða
2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI BJARNASON
áður bifreiðarstjóri á BSR,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 11. janúar kl. 15.00.
Bjarni Helgason, Lea Kristín Þórhallsdóttir,
Júlíana Helgadóttir, Óskar Sigurðsson,
Ingibjörg S. Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
EINAR J. THORLACIUS,
Bjarnastíg 11,
Akureyri,
andaðist fimmtudaginn 6. janúar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hrund Kristjánsdóttir,
Þuríður Schiöth, Reynir Schiöth,
Einar Tr. Thorlacius, Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elsku faðir okkar, sonur, vinur, bróðir og afi,
EINAR ÞORSTEINSSON,
Blikastöðum 1,
Mosfellsbæ,
lést af slysförum að kvöldi fimmtudagsins
6. janúar.
Helga Hrund Einarsdóttir,
Arnheiður Dögg Einarsdóttir,
Hjalti Knútur Einarsson,
Þuríður Annabell Tix,
Yvonne Dorothea Tix,
Arnheiður Einarsdóttir, Þorsteinn Hörður Björnsson,
Ása Kristín Knútsdóttir,
systkini og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SÓLVEIG D. JÓHANNESDÓTTIR,
Seljahlíð, Hjallaseli 55,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 7. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ögmundur Guðmundsson, Kristín Guðjónsdóttir,
Þórhildur Guðmundsdóttir, Páll Franzson,
Hallberg Guðmundsson, Guðfinna Jónsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Kristján Gunnlaugsson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Ljósheimum 6,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 3. janúar á Vífilsstaða-
spítala, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðju-
daginn 11. janúar, kl. 10.30.
Þeim, sem viidu minnast hennar, er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Margrét Svavarsdóttir,
Stefán Svavarsson,
Svanhildur Svavarsdóttir,
Páll Svavarsson,
Árni Svavarsson,
Þorbjörn Guðjónsson,
Þórlaug Jónsdóttir,
Sigurður Viggó Kristjánsson,
Margrét Thorsteinson,
Guðrún Bjarnadóttir,
Svavar Garðar Svavarsson, Guðrún Svava Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/