Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mögulegt að
tengjast vef-
síðu mbl.is
með farsíma
NY gerð farsíma gerir notendum nú
mögulegt að sækja upplýsingar á
vefsíður og notfæra sér margs konar
þjónustu þeirra. Byggist þetta á
tækni sem nefnd er Wireless Applic-
ation Protocol (WAP) eða þráðlaus
samskiptastaðall. Morgunblaðið get-
ur nú boðið lesendum sínum að
tengjast slíkri þjónustu hafi þeir yfir
að ráða gsm-síma með WAP-tækni.
Þetta gerist tæknilega á þann hátt
að með WAP-væddum síma er beðið
um vefsíðu, WAP-miðlarinn tekur
við beiðninni og sendir hana til við-
komandi vefþjóns, les síðuna í viðeig-
andi búning og sendir í símann. Með
þessu geta notendur sótt margs kon-
ar efni frá vefsíðum, til dæmis
ákveðna flokka frétta frá mbl.is,
upplýsingar um veitingastaði, fiug-
ferðir og aðra þjónustu og hægt
verður einnig að stunda banka- og
verðbréfaviðskipti. Notendur geta
kallað á vefsíður og sett í bókamerki
á símum sínum á sama hátt og gert
er í dag á tölvum. Benda má á að þar
sem skjáir símanna eru litlir verður
að hanna sérstakt útlit til að þjóna
þeim og skilaboð verða að vera stutt
og skilmerkileg.
Fréttir, íþróttir
og viðskipti
Með því að hringja í síma
595 2400, sem er hjá Islandssíma,
geta lesendur Morgunblaðsins með
WAP-síma tengst mbl.is eða öðrum
Stillingar fyrir
Nokia 7110
WAP síma
Úr aðalvalmynd símans er
valið MENU. Veljið sk
eftirfarandi:
SERVICES
Settings
Connection settings
Set 1
Edít
Homepage
Connection type
Connection securíty
Bearer
Dial-up number
IP Address
Authentication type
Data call type
Data call speed
Usemame
Password
heimasíðum og þannig nýtt upplýs-
ingar þeirra án þess að vera bundnir
af notkun tölvu. Með því að tengjast
mbl.is má nú í fyrstunni skoða f'réttir
á forsíðu fréttavefjarins, veður,
íþróttafréttir og viðskipti en þar má
m.a. fá upplýsingar um gengi gjald-
miðla og hlutabréfaviðskipti. Gert er
ráð fyrir að fjölga möguleikum þess-
arar þjónustu innan tíðar.
Á meðfylgjandi skýringarmynd
má sjá hvernig stilla á Nokia 7110
síma til þess að nálgast efni af frétta-
vef mbl.is.
Hér sést hvernig lesa má fréttir af mbl.is á gsm-síma. Með hjólinu
miðju er flett upp og niður í textanum.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, telur að
veltan á laxveiðimarkaðnum nemi 1,8 milljörðum
500 milljónir í veiði-
leyfí síðastliðið sumar
GERA má ráð fyrir að íslendingar
hafi varið um hálfum milljarði króna
til kaupa á lax- og silungsveiðileyfum
á síðastliðnu sumri og að veltan sam-
anlagt á þessum markaði muni í
sumar nema um 1,8 milljörðum
króna. Af þeirri upphæð greiða út-
lendingar bróðurpartinn og er þá
búið að taka tillit til ýmissa annarra
tekna en eingöngu af sölu veiðileyfa,
svo sem vegna gistingar, leiðsagnar
við árnar og ýmislegs annars, að
sögn Sigurðar Guðjónssonar, for-
stjóra Veiðimálastofnunar.
Sigurður sagði í samtali við Morg-
unblaðið að í sumar og haust hefði
verið framkvæmd samnorræn könn-
un á þessum málum á öllum Norður-
löndunum. Að mestu ætti eftir að
vinna úr niðurstöðum könnunarinn-
ar og ekki væri gert ráð fyrir að end-
anlegar niðurstöður lægju fyrir fyrr
en í vor, en bráðabirgðaniðurstöður
bentu til þess að íslendingar hefðu
varið 500 milljónum króna til kaupa
á veiðileyfum á síðastliðnu sumri.
Þar væri auðvitað fyrst og fremst
um kaup á laxveiðileyfum að ræða,
en einnig að nokkru vegna kaupa á
silungsveiðileyfum og áætlað væri að
heildarveltan á komandi sumri í
þessum efnum yrði 1,8 milljarðar
króna.
Greinileg tekjuaukning
síðustu tvö ár
Sigurður bætti við að tekjur af lax-
og silungsveiðum hefðu aukist hægt
en örugglega mörg undanfarin ár.
Hins vegar væri greinilegt að tekjur
af laxveiðum hefðu aukist verulega
síðustu tvö árin og það væri bæði
vegna aukinnar eftirspurnar innan-
lands og ekki síður frá útlöndum.
Hann sagði að í gegnum árin hefðu
orðið sveiflur í eftirpurninni í takt
við veiðina, þannig að þegar veiðin
dalaði minnkaði eftirspurnin í kjöl-
farið. Nú hefði hins vegar veiðin
glamrað undir og í meðaltalinu, en
samt væri um greinilega aukningu
að ræða. Það endurspeglaðist í veru-
legum hækkunum á verði þeirra áa
sem hefðu losnað úr leigu og verið
boðnar út á nýjan leik
Sigurður sagði áhugavert að fá
endanlegar niðurstöður úr könnun-
inni, ekki síst hvað varðaði hlutfall
og aldursdreifingu þeirra sem stund-
uðu veiðar. Þeir hefðu nokkrar
áhyggjur af því, þó ekkert lægi í
sjálfu sér fyrir í þeim efnum, að það
vantaði dálítið á að yngra fólk iðkaði
veiðar í sama mæli og þeir sem eldri
væru. Það væri synd því nóg væri af
vannýttum en góðum silungsvötn-
um, sem auðvelt og ódýrt væri að
komast í. Laxveiðiárnar væru hins
vegar nánast fullnýttar, en einnig
yrði greinilega vart við vaxandi sókn
í sjóbirting og sjóbleikju.
Mikil
spurn
eftir nýju
flensulyfí
MIKIL spurn var í gær eftir
nýju flensulyfi sem komið er á
markað hérlendis. Lyfið heitir
Relenza og hefur hemil á fjölg-
un inflúensuveira af stofni A og
B og dregur að auki úr ein-
kennum.
Páll Guðmundsson, lyfsali í
Lyfjum og heilsu í Ki-inglunni,
sagði við Morgunblaðið í gær
að lyfið hefði komið eins og
sprenging inn í alla flensuum-
ræðuna að undanförnu. „Það
er geysilega mikið spurt um
lyfið og einnig hefur sala á því
verið mjög rnikil," sagði hann
og taldi einsýnt að það ætti eft-
ir að seljast mjög vel á næst-
unni.
Relenza er í úðaformi og lyf-
seðilsskylt, en Tryggingastofn-
un tekur ekki þátt í kostnaði
sem er 3.360 kr. skammturinn.
Páll segh- gi-einilegt að lyfið
freisti þeirra sem þegar hafi
fengið snert af flensunni og
einnig þeirra sem vilji fyrir-
byggja að þeir smitist af henni.
Hann bætti því við að rífandi
sala hefði verið undanfarnar
vikur á hvers kyns vörum sem
tengdust flensunni og öðrum
pestum, t.d. hóstamixtúrum,
beiskum hálstöflum og nefúða
af ýmsu tagi.
Vestfírðir
Atvinnu-
leysi í
sögulegu
hámarki
ÁTTATÍU og fjórir eru skráðir
atvinnulausir á Vestfjörðum,
samkvæmt upplýsingum frá
Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða
sem Bæjarins besta birti í gær.
Þar af eru 45 konur og 39 karl-
ar.
Svo margir munu ekki áður
hafa verið skráðir atvinnulausir
á Vestfjörðum. Tæplega helm-
ingur atvinnulausra er búsett-
ur á ísafírði og í Hnífsdal, eða
39 manns.
Nýjar umsóknir um skrán-
ingu fara fyrir úthlutunarnefnd
sem hittist hálfsmánaðarlega.
Næsti fundur nefndarinnar er
nk. þriðjudag og munu líkur til
þess, skv. frétt BB, að þá bætist
enn verulega á skrána.
Nýja e-töflumálið
Gæsluvarð-
hald fram-
lengt
FJORIR menn, sem setið hafa í
gæsluvarðhaldi um nokkuiTa
vikna skeið vegna rannsóknar
lögreglunnar á nýja e-töflumál-
inu, voru úrskurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald í gær í
Héraðsdómi Reykjavíkur að
kröfu lögreglunnar í Reykja-
vík.
Tveir mannanna voru úr-
skurðaðir í gæslu til 2. febrúar
og tveir til 9. febrúar. Til við-
bótar situr fimmti maðurinn í
gæsluvarðhaldi, sem rennur út
1. febrúar. Gæsluvarðhalds-
fangarnir eru á aldrinum 17-25
ára.