Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 47 UMRÆÐAN Land og þjóð? Á TÍMAMÓTUM er eðlilegt að litið sé á stöðuna eins hún er þá stundina, litið til beggja hliða, fram og aftur. Land og þjóð á undir högg_ að sækja. Við erum íslendingar og gleymum oft alveg að velta fyrir okkur hvað gerist nú þegar umheimurinn þrengir sér stöðugt lengra inn í þjóðarsálina með til- komu aukinnar tækni og markaðshyggju. En það er líka litla ísland sem á í vök að verjast. Landið er undir stöð- ugum árásum manna og náttúruafla sem keppast um að hafa yfirhöndina og í dag eram það við sem höfum yf- irhöndina. Þjóðin íslenska þjóðin hefur í gegnum aldirnar þróað með sér sérkenni sem eru afleiðing afskekktrar legu lands- ins og eiginleika þess, harðinda, arf- leifðar og fleiru. Þessi sérkenni hafa staðið af sér erlend yfirráð og harð- ræði. Oft á tíðum af illri nauðsyn. Forfeður okkar börðust fyrir sjálf- stæði og tilverurétti íslands í samfé- lagi þjóðanna og höfðu að lokum sig- ur. Þó svo að ísland sé enn sjálfstæð þjóð þá hverfur sífellt meira af þeim sérkennum hennar sem við tengjum við hugtakið íslendingur. Á meðal þeirra mörgu siða og venjum sem samanlagt gera okkur að Islending- um era auk tungumálsins slátur- gerð, laufabrauðs- og smáköku- bakstur en ekki er langt síðan fjölskyldur komu saman við þessa iðju. Nú þykir hentugra að kaupa þessar vörar útí búð. Það er ekki langt síðan að þessir siðir voru ómissandi hluti af fjöl- skyldulífinu. En því miður er fólk orðið inn- stillt á það að komast yfir hlutina með sem minnstri fyrirhöfn. Allt skal vera svo einfalt. Aldrei höfum við tíma eða réttara sagt - við gefum okkur aldrei tíma. En að sjálfsögðu höf- um við eignast ýmsa ný-siði sem einkennast af þeirri ofboðslegu markaðs- og neyslu- hyggju sem hefur hel- tekið þjóðina: jeppa- menning, óstöðvandi uppbygging verslunarmiðstöðva og blikkandi jólaseríur era nærtæk dæmi. Erlendir siðir s.s. hrekkja- Tímamót Of algengt er að trjám sé plantað út um allar trissur eins og þau væru sumarblóm, segir Jó- hann Sigurðsson. Guði sé lof að pálmatré þríf- ast ekki hér. vaka (halloween) og Valentínusar- dagur era einnig famir að ryðja sér til rúms í ríkara mæli. Við hverja hefð sem glatast nálgumst við meira aðra Vesturlandabúa (sem allir nálg- ast hver annan meir og meir í venj- um og siðum) og verðum minna virði sem þjóð, - stöðluð. Þjóð sem telur 270.000 höfuð er lítils virði við hliðina Jóhann Sigurðsson á hundraðum milljóna ef.hún hefur ekkert sérstakt fram að færa um- fram þær. Landið En Island er meira en hefðir fólks- ins sem búa í landinu. Við eigum land með sérstöðu hvað varðar náttúra og stórar óraskaðar víðáttur. En landið á undir högg að sækja sökum hug- myndaleysis ráðamanna, en nú þarf ekki að hafa hugmyndaríkar áætlan- ir til þess að fá vilyrði um virkjanir og ódýra raforku. Nei, ansi þykir mér landið mitt selt ódýrt ef það er minna virði en eitt álver. Enginn virðist hafa velt fyrir sér að framtíðin er fljót á sér og senni- lega verður stutt í sjálfvirkni álvers- ins. Vonum þá að Austfirðingar hafi lagt fyrir allan gróðann. Eftir sitjum við Islendingar og horfum á tær okk- ar gramir yfir heimsku okkar, hafðir að fíflum. Aðhlátursefni fjármála- manna en grætiefni fyrir náttúraun- nendur og ferðamenn. Við búin að brjóta allar brýr að baki okkur. í Reyðarfirði vinna þeir C3PO og R2D2 í álverinu. Því er lofað að umræddar virkjan- ir muni verða lítið sýnilegar og því séu umhverfissinnar að búa til storm í vatnsglasi. Það er ekki mikilvægast hvort mannvirkið sjáist eða ekki heldur óafturkræf náttúran sem verður undir og vitneskjan um að þetta svæði sé ekki lengur ónumið af manneskjunni og geti aldrei orðið það aftur. Vitneskjan um það að maður sé ekki einn þó að það líti út fyrir að svo sé. Byggjum þá heldur skærgulan minnisvarða sem er þó heiðarlegur í sjálfu sér og er það sem hann er. Byggjum þá minnisvarða um heimsku okkar - komandi kyn- slóðum víti til vamaðar -reyndar allt of seint. Ailt allt of seint. En til era þeir sem komast upp með náttúruspjöllin en þurfa aldrei að svara íyrir gjörðir sínar. Það er skógræktarfólk og þá sérstaklega „frístunda skógræktarfólk“ sem vill jú vel en planta trjám þar sem því persónulega finnst tómlegt. íslend- ingar hafa alltaf verið vitlausir í skóg. Draumur flestra hefur verið að eiga skóg eins og aðrir Evrópubúar. Sagan segir að ísland hafi verið skógi vaxið við landnám en sökum of- beitar og niðurhöggs forfeðra okkar hafi skógurinn horfið. Það álíta því margir að það sé hlutverk afkomend- anna að bæta fyrir þessi mistök for- feðranna. En það era fleiri þættir en bara maður og hans sauður sem valda og allir era þeir hluti af gangi náttúrannar (þ.m.t maður og sauð- ur). Loftslagsbreytingar og eldgos hafa ekki síður haft áhrif og því ekki skilyrðislaust okkar að ákveða að nú skuli sá skaði sem náttúran hefur veitt sjálfri sér lagfærður. Að ætla að bæta fyrir gjörðir forfeðranna yrði eins og að byggja gervi fornminjar eða að rækta formæka. Kapp fram yfir forsjálni hefur að mínu mati skil- ið eftir sig stór lýti í formi stærð- fræðilega uppbyggðra skógarreita sem eiga lítið skylt með kjarrinu á landnámsöld hvort sem hugsað er um útlit eða tegundir. Verður að hafa í huga að með plöntun trjáa er á sama hátt og með virkjun búið að manneskjugera viðkomandi svæði og ef hugmyndin er sú að færa nátt- úrana til baka í uppranalegt horf er það skot yfir markið. Það ætti planta trjám - á sama grandvelli og við gerð mannvirkja - enda í raun um mann- virki að ræða. Of algengt er að trjám sé plantað út um allar trissur eins og þau væra sumarblóm. Guði sé lof að pálmatré þrífast ekki hér. Lítið dæmi (en raunhæft?) Þekkt nafn frá Norðurlandi sæk- ist eftir því að byggja vin á miðjum Sprengisandi - spilavíti og skógur gervijólatrjáa í kring. Beitt væri rök- um um byggðastefnu og nýsköpun auk þess sem nú væri komið að Norðlendingum að fá eitthvað. Það er sorglegt til þess að hugsa hvert svarið gæti orðið. Við getum ekki tekið öll þau mis- tök sem við höfum gert til en við ætt- um að hafa lært af þeim að breytt hugsunarhætti okkar og koma þann- ig í veg fyrir að þau gerist aftur og aftur því í rauninni erum við ansi skynugar skepnur. Höfundur er nemandi við Arki- tektaskólann í Bergen. faoflfts TÆTARAR Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699 Vefsíða: www.oba.is inek Fegurðin kemur innan fró Laugavegi 4, simi 551 4473 Þú færð meira fyrir« PENINGANA þína ? ? ? Gleraugnaverslunin SJÓNARHÓLL HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á fslandi Aðsendar greinar á Netinu ^mbl.is --ALLTAT Œ/TTH\SA£) NÝ7T ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu húsnæði í Ármúla 306 fm skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. 18 her- bergi, fundarherbergi og kaffistofa. Innréttting- ar góðar, mjög gott rafmagn og lýsing. Einnig 306 fm iðnaðar- eða lagerhúsnæði í kjallara. Upplýsingar í símum 897 2394 og 562 7666/67. Skagfirðingafélagið í Reykjavík Minnum á áður auglýstan aðalfund sem haldinn verður 22. janúar kl. 14.00 í félagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17. FÉLAGSSTARF KENNSLA Sjálfstæðisfélag Grindavíkur Aðalfundur sjálfstæðisfélags Grindavíkur verður haldinn þriðjudaginn 25. janúar 2000 kl. 20.30 á Víkurbraut 46 (verkalýðshúsinu). Gestur fundarins verður Árni Matthiesen sjávarútvegsráðherra. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Gestur fundarins, Árni Matthiesen, flytur ávarp. 3. Önnur mál. Stjórnin. FUNDIR/ MANNFAGNABUR Halldór Ásgrimsson á opnum fundi Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, verður frummælandi á opnum fundi um stjórnmálaviðhorfið í Ársal, Hótel Sögu, í kvöld, 20. janúar, kl. 20.00. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Reykjavíkur. íþróttaskóli barnanna íþróttaskóli barnanna hjá KR er byrjaður. Skráning og upplýsingar eru hjá Mörtu í síma 510 5314. Gítarnámskeið fyrir fullorðna 6 vikna kvöldnámskeið í gítarleik fyrir byrjendur, eitt kvöld í viku. Námskeiðið hefst 24. janúar og fer fram í Tónskóla Hörpunnar, Gylfaflöt 5 í Grafarvogshverfi. Innritun í síma 567 0399. Verð kr. 8.000. Keramiknámskeið á Hulduhólum hefjast í febrúar. Upplýsingar í síma 566 6194. Steinunn Marteinsdóttir. TI L £5 LÁ L. U Byggingarkrani til sölu Liebherr byggingarkrani, 48k, árgerð '80, þarfnast viðgerðar, varahlutir fylgja. Upplýsingar í síma 892 5605. FÉLA6SLÍF I.O.O.F. 11 = 1801208 = E.I.* \v---7/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.00. Umsjón Dr. Björn Sigurbjörnsson. Upp hafsorð: Sigurbjörn Sveinsson Hugleiðing: Sr. Bragi Friðriksson Allir karlmenn velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Kynningarfundur vegna Alfa nám- skeiðs í kvöld kl. 19.00. Námskeiðið hefst siðan 28. janúar kl. 19.00. Verð 3.500 kr. Allir velkomnir. I.O.O.F. 5 = 1801198 = E.l* Landsst. 6000012019 VIII Hjálpræðis- herinn Kirkjustrætí 2 Kl. 20.30 Samkoma í samkirkju- legri bænaviku. Séra Hjalti Guðmundsson talar. Allir hjartanlega velkomnir. KENNSLA Þýskunámskeið Germaníu eru nýhafin. Boðið er upp á byrj- endahóp, fjóra framhaids- hópa og tvo talhópa. Upplýsingar í símum 551 0705 (kl. 16.30—17.45, símsvari kl. 12.00-22.00) og 892 4145. Enn er hægt að bæta vi<K nemendum í alla hópa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.