Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jónas Erlenddon Aurskriður í Mýrdal AURSKRIÐUR hafa fallið niður hlíðar Höfðabrekkuháls í Mýrdal, skammt austan við bæinn Höfða- brekku, í votviðrinu undanfama daga. Ekki er nein hætta á ferðum fyrir vegfarendur um þjóðveginn en töluverðar skemmdir hafa orðið á gróðri. EQiðin hefur verið að gróa hægt og bítandi í áratugi og aur- skriðurnar skilja eftir sig sár. Hættir sem markaðsstjóri Máls og menningar JÓHANN Páll Valdimarsson, mark- aðsstjóri Máls og menningar, hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu og mun hverfa til annarra starfa. Auk þess sem Jóhann Páll hefur gegnt starfi markaðsstjóra hjá fyrirtæk- inu hefur hann einnig verið fram- kvæmdastjóri Forlagsins hf., sem er í meirihlutaeigu Máls og menningar. Jóhann Páll taldi í gærkvöld ekki tímabært að tjá sig um ástæður starfslokanna eða um það til hvaða starfa hann myndi hverfa. í fréttatilkynningu frá Máli og menningu segir að Jóhann Páll hverfi nú til annarra starfa og sé það gert í fullri sátt við Mál og menn- ingu. Þar hafi hann starfað í hartnær tíu ár af dugnaði og trúmennsku og kunni fyrirtæk- ið honum miklar þakkir fyrir það. Verðstríð ferðaskrifstofa jhl v Samanburður* ag ) og verði tveggj Fargjald fram og til b Y Samvinnuferðir- r Landsýn 1 áfangastöðum a ferðaskrifstofa aka án flugvallarskatts Úrval-Útsýn Verð Gildistími Verð Gildistími Kaupmannahöfn kr. 14.800 25. maí -14. sept. kr. 14.900 28. júní - 9. sept. London 16.200 26. maí - 6. okt. 14.900 28. júní - 9. sept. Berlín 18.800 16. júní - 31. ág. 24.900 1. maí-15. sept. Frankfurt 18.800 16. júní - 31. ág. 24.900 1.maí-15. sept. Amsterdam 24.900 1. maí-15. sept. París 24.900 1.maí-15. sept. Ósló 24.900 1. maí-15. sept. Stokkhólmur 24.900 1.maí-15. sept. Boston 29.700 1.maí-15. sept. Munchen 18.800 16. júní - 31. ág. Zurich 18.800 17. júní-11. ág. Basel 18.800 2. júní - 5. ág. Mallorca 28.800 29. maí - 2. okt. Benidorm 35.800 24. maí - 25. okt. Rimini 35.800 20. maí - 9. sept. Samtals sæti 25.000 15.000 Hjá Úrval-Útsýn verður að fljúa utan og heim frá sama flugvelli í tilfelli Kaupmannahafnar og London. (öðrum tilfellum er hægt að fljúga utan til einnar borgar en heim frá annarri. Þetta síðara gildir um alla áfangastaði Samvinnuferða-Landsýnar. ÚRVAL-Útsýn auglýsti í gær ferðir til nlu erlendra borga á sérstöku tilboðsverði og því virðist sem hafið sé verðstríð á milli tveggja stærstu ferðaskrifstofa landsins, því um helgina auglýstu Samvinnuferðir- Landsýn, ferðir til tíu er- lendra borga á niðursettu verði. Ferðaskrifstofumar hófu báðar sölu á ferðunum í gær og að sögn Helga Jóhanns- sonar, forstjóra Samvinnu- ferða-Landsýnar, bókaði ferðaskrifstofan um 1.900 ferðir þenna fyrsta dag. Páll Armannsson, sölu- og markaðsstjóri Úrvals-Útsýn- ar, sagði að ferðaskrifstofan hefði bókað í 850 ferðir. Hörður Gunnarsson, for- stjóri Úrvals-Útsýnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að það verð sem auglýst hefði verið í gær hefði í raun verið í boði fyrir almenning í rúma viku, en vegna útspils Sam- vinnuferða um síðustu helgi hefði verið ákveðið að auglýsa það nú. „Það má því segja að frels- ið hafi verið komið áður en Helgi (forstjóri Samvinnu- ferða) auglýsti það,“ sagði Hörður. „Við erum hinsvegar að reyna að selja okkar vöru líkt og samkeppnisaðilinn og eðlilega gerum við það á sama tíma og hann.“ Úrval-Útsýn mun bjóða upp á 15.000 sæti í þessar tilteknu ferðir, en Samvinnuferðir-Landsýn upp á 25.000. Ferðaskrifstofurnar bjóða báðar ferðir til Kaupmannahafnar og kosta þær nánast það sama. Þær bjóða einnig báðar upp á ferðir til London, Berlínar og Frankfurt, og eru þær ódýrari hjá Samvinnuferð- um. Hjá Samvinnuferðum er enginn lágmarksdvalartími, en hjá Úrvali- Útsýn er lágmarksdvöl að jafnaði vika. Ef flogið er með Samvinnuferð- um er hægt að fljúga til baka frá hvaða borg sem er, svo lengi sem sú borg er ein hinna tíu sem tilboðið nær tii. Hjá Úrvali-Útsýn er einnig hægt að gera þetta nema flogið sé til Kaup- mannahafnar, London, eða Boston. Samvinnuferðir-Landsýn bjóða upp á flug með Atlanta, Islandsflugi og nokkrum erlendum flugfélögum en allar ferðir Úrvals-Útsýnar eru með Flugleiðum. Borgarstjóri um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar R Jarðgöng með gangbraut og akrein til vest- urs frá Kringlu 1 Ú ■ ti & -n nJr^inbV s V ar Jarðgöng að Kringlu Tillaga að mislægum gatnamótum Þessi er einn af 6 valkostum mislægra gatnamóta á Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Umferð um Miklu- braut verður óhindruó en hún verður lækkuð um 5-6 metra undir núverandi yfirborð. Kringlumýrarbrautin verður Ijósastýrð á brú og hækkuð um 1-2 metra frá núverandi yfirborði. miklabraut: Hætt við fram- kvæmdir vegna um- h verfíssj ónarmiða í ENDURSKOÐUÐU Aðalskipu- lagi Reykjavíkur 1996-2016, er ekki gert ráð fyrir mislægum gatnamót- um Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar eins og gert var ráð fyrir í fyrri tillögu. Þess í stað er lagt til að akreinum verði fjölgað og sett upp ný umferðarljós með sérstökum ljósum fyrir vinstri beygjur. Samkvæmt umferðarspá, sem gerð var árið 1996 er gert ráð fyrir að 74 þúsund bílar fari um gatnamótin á sólarhring árið 2008. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segir að þegar hafi verið ákveðið að á þessu ári verði Aðal- skipulag Reykjavíkurborgar endur- skoðað í heild sinni og segir aðspurð hvort ekki sé ástæða til að endur- skoða aðalskipulagið í ljósi aukinnar umferðar í Kringluna, að ekki sé rétt að taka gatnamót Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar sérstaklega út úr heildarsamhengi umferðarmála borgarinnar. „Umferð hefur aukist mjög í borg- inni á undanfórnum árum og það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvemig við ætlum að bregðast við heildstætt við þeim vanda sem það skapar. Við endurskoðun Aðal- skipulagsins sem nú er að fara af stað munum við fara yfir öll þessi mál,“ segir Ingibjörg Sólrún. A fundi borgarstjórnar í kvöld verður lögð fram tillaga borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokks um að breyta núgildandi aðalskipulagi 1996-2016 í fyrra horf og gera ráð fyrir mislæg- Beygjur til vinstri á gatnamótunum verða allar á sérstökum beygjuljósum um gatnamótum en við endurskoðun aðalskipulags árið 1997, ekki 1987 eins og misritaðist í frétt í blaðinu í gær, voru mislægu gatnamótin felld niður. Ingibjörg Sólrún segir að um- hverfissjónarmið hafi ráðið því að mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar voru tekin út af Aðalskipulagi árið 1997. „Þegar kemur að umferðarmálum takast gjaman á tvö veigamikil sjónarmið. Annars vegar er sú skoðun að auka þurfi rými fyrir umferðina, m.a. af öryggisástæðum og hins vegar um- hverfissjónannið þar sem varað er við þeim tolli sem umferðin tekur af umhverfinu. Mislæg gatnamót eru mjög plássfrek og umferð hefði færst nær íbúðabyggð með tilheyrandi mengun ef af gerð þeirra hefði orð- ið,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Um- hverfissjónarmiðin urðu því ofan á. Við vildum fyrst gera breytingar á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar með því að breikka Miklubrautina og breyta Ijósastýringunni við gatnamótin og sjá hverju það annaði áður en farið væri úti ákvarðanir um mislæg gatnamót." Að sögn Stefáns Hermannssonar, borgarverkfræðings, var árið 1996 unnin skýrsla um Miklubraut, sem lögð var fyrir skipulags- og umferð- amefnd. I henni eru sýndir mögu- leikar á gerð Miklubrautar, þar á meðal valkostir fyrir gatnamótin við Kringlumýrarbraut. Annars vegar að fjölga akreinum og setja upp fjög- urra fasa umferðarljós til að auka umferðaröryggið. Hinn möguleikinn var mislæg gatnamót og voru í skýrslunni sýndir sex valkostir. „Al- mennt er hægt að segja að gildandi aðalskipulagið geri ekki ráð fyrir mislægum gatnamótum við Kringlu- mýrarbraut og Miklubraut á núver- andi skipulagstímabili," sagði Stefán. „Þar eru með öðrum orðum ekki sýnd mislæg gatnamót á þessum stað en það hefur alltaf verið gert ráð fyr; ir því að Ioka ekki þeim möguleika.“I skýrslu borgarverkfræðings frá 1996 voru gefnir þrír valkostir varðandi umferð um Miklubraut frá Elliðaám að Snorrabraut. Einn gerði ráð fyrir að ekki yrðu nein mislæg gatnamót vestan Elliðaáa, annar að gerð yrðu mislæg gatnamót við Skeiðarvog og við Snorrabraut og að Miklabraut yrði í göngum við Miklatún að Hring- braut eftir að Hringbraut hefur verið flutt. Þetta var sá kostur, sem varð fyrir valinu en þriðji kosturinn gerði ráð fyrir mislægum gatnamótum við Skeiðarvog, Grensásveg, Háaleitis- braut og Kringlumýrarbraut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.