Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 20. JANTJAR 2000 63
Tískuþáttur
á Netinu
í TILEFNI af vali Reykjavíkur sem
menningarborgar árið 2000 hefur
tímaritið Hár & fegurð hafið sýning-
ar á tískuþáttum á Netinu. Þátturinn
fjallar um ýmsa þætti íslenskrar
tísku og er sá fyrsti í röð fjölmargra
sem sýndir verða á Netinu á næstu
misserum.
„I framhaldi af sýningunni Tískan
2000 sem haldin verður 5. mars nk.
verður ennfremur sýndur þáttur á
Netinu sem endurspeglar það besta
sem fram fór. Sýning tískuþátta á
Netinu er framlag íslensks fagfólks í
tískugeiranum til vals Reykjavíkur
sem menningai’borgar árið 2000.
Framlagið hefur þegar vakið al-
þjóðlega athygli enda í fyrsta sinn í
sögu Netsins sem þættir um tísku og
tískutengd efni eru sýndir á verald-
arvefnum.
Þeim, sem vilja skoða tískuþætt-
ina, er vinsamlegast bent á að það
tekur á bilinu 10 til 15 mínútur að
hlaða inn þáttinn til skoðunar. Eins
og fram hefur komið hjá Landssím-
anum stendur til að auka flutnings-
getu með meiri bandbreidd sem mun
stytta þann tíma verulega og valda
enn frekari byltingu í netmálum Is-
lendinga. Þangað til verður að sýna
smá þolinmæði," segir í fréttatil-
kynningu frá Hári & fegurð.
----------------
Starfsmennta-
styrkir
félags-
málaráðu-
neytisins
STARFSMENNTARÁÐ félags-
málaráðuneytisins hefur auglýst eft-
ir umsóknum um styrki vegna
starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr.
lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í
atvinnulífinu. Styrkir eru veittir til
að styðja skipulega starfsmenntun,
undirbúning, náms- og kennslu-
gagnagerð, kennslu og starfsþjálfun.
Miðað er við að styrkir séu veittir
vegna viðfangsefna sem ljúka á fyrir
vorið 2001.
Rétt til að senda umsóknir eiga:
Samtök atvinnurekenda og launa-
fólks, einstök atvinnufyrirtæki,
einkaaðilar eða opinberir aðilar sem
standa fyrir starfsmenntun í at-
vinnulífinu, starfsmenntaráð ein-
stakra atvinnugreina og samstarfs-
verkefni á vegum tveggja eða fleiri
framangreindra aðila. Umsóknir frá
skólum koma aðeins til greina þegar
um er að ræða samstarf við framan-
greinda aðila, einn eða fleiri.
Á árinu 2000 hefur starfsmennta-
ráð ákveðið að leggja áherslu á að
styðja annars vegar verkefni sem er
ætlað að efla starfsmenntun á Iands-
byggðinni og hins vegsu- starfs-
menntun er stuðlar að nýsköpun og
hagræðingu. í fréttatilkynningu
kemur fram, að hvatt er til samstarfs
ólíki-a aðila. Gerð náms- og kennslu-
gagna mun njóta forgangs umfram
rekstur námskeiða.
Umsóknum skal skilað á sérstök-
um eyðublöðum til Vinnumálastofn-
unar, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
101 Reykjavík, eigi síðar en 12. febr-
úar 2000. Umsóknareyðublöð fást
hjá Vinnumálastofnun og þau má
einnig nálgast á heimasíðu Vinnu-
málastofnunai- (http://www.vinnum-
alastofnun.is).
------*-♦-♦-----
Opinn fundur
um þjóð-
lendumál
OPINN fundur um þjóðlendumál
verður í Aratungu, Biskupstungum,
þriðjudagskvöldið 25. jan. nk. kl.
20.30.
Frummælendur: Björn Sigurðs-
son, bóndi, Uthlíð, Oddur Her-
mannsson landslagsarkitekt, Páll
Lýðsson sagnfræðingur, Ólafur
Björnsson hrl. og Sigurður Jónsson
hrl.
Færðu
Félagi heyrnar-
lausra gjöf
MENNTUNARSJÓÐUR Félags
lieyrnarlausra hefur hlotið veg-
lega gjöf frá rafiðnaðarverslun-
inni ISKRAFT ehf., Smiðjuvegi 5,
Kópavogi. Undanfarin ár hefur
ÍSKRAFT ánafnað líknar- eða
góðgerðarsamtökum ákveðinni
upphæð í stað þess að senda við-
skiptavinum j ólakort.
f ár ákvað fyrirtækið að styrkja
Menntunarsjóð Félags heyrnar-
lausra. Tilgangur sjóðsins er að
stuðla að menntun heyrnarlausra,
heymarskertra og daufblindra,
formlegrar og óformlegrar og
einnig starfsþjálfunar.
Uthlutað er úr sjóðnum tvisvar
áári.
Berglind Stefánsdóttir, formaður Félags heyrnarlausra, Valur
Hreggviðsson, forstjóri ÍSKRAFT, og Snorri Hreggviðsson, fram-
kvæmdastjóri sölusviðs.
Nýr stoður fyrir
notoðo otvinnubílo
Bílaland B&L er ein stærsta bílasala landsins með notaða bíla af öllum stæróum og
gerðum. Bílaland er í nýja B&L húsinu við Grjótháls 1 (rétt ofan við Select við
Vesturlandsveg) og þú gengur inn frá Fosshálsi
FORD ESCORTVAN VSK.
Nýskr. 05.1995, 1400cc,
3 d, 5 g, hvítur,
.'vÁ, ..X ekinn 46 þ.
BprRENAULT EXPRESS 1.4.
FNýskr. 06.1993, 1400cc,
r3 d, 5 g, rauður, /
ekinn 115 þ. >4
VW TRANSPORTER
Nýskr. 12.1998,
2000cc, 4 d,
5 g, hvítur, . i
ekinn 22 þ. -«*
Veró áður 750 þús. nú 690 þús
Verð 490 þuií
NISSAN TRADE 100 VAN
DIESELVSK. Nýskr.
10.1997, 3000cc,
_____ * 5 d, 5 g, hvítur,
v. ekinn 35 þ.
RENAULTTRAFFIC.
Nýskr. 04.1995,
2200cc, 5 d, 5 g,
hvítur, /
ekinn 111. þ. ftÉ
RENAULT EXPRESS 1.4
VSK. Nýskr. 11.1997,
1400cc, 3 d, 5 g,
rauður, ekinn 34 þ. f//
Veró 990 þus.
HYUNDAI H100 2.4 VSK.
Nýskr. 05.1995,
\ 2400cc,4d, 5g,
\ rauóur,
ekinn 103. þ.
HYUNDAI H100 2.4 VSK.
Nýskr. 07.1995,
2400cc, 4 d,
5 g, hvítur, /
ekinn 62 þ.
RENAULT CLIO VSK
Nýskr. 04.1997, 1400cc,
3 d, 5 g, hvítur, Jfk
ekinn 40 þ.
RENAULT CLIO VSK. Nýskr.
04.1997, 1400cc,
3 d, 5 g, hvítur,
ekinn 37 þ
NISSAN SUNNYVAN
VSK. Nýskr. 02.1995,
1600cc 3 d,
5 g, hvítur, , "
ekinn 87 þ. ...„j
Verð 850 þús.
RENAULT EXPRESS 1.4.
Nýskr. 09.1996, 1400cc,
3 d, 5 g, rauður, A
ekinn 60 þ. ,4»^
Gfjóthálsi 1, sími S75 1230 V«rð 820 þús.
uol.iðir btt.ir
K