Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 20.01.2000, Blaðsíða 72
■72 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Stutt Læti á ströndinni ► LÖGREGLAN í Rio de Janeiro hefur komist á snoðir um baðströnd þar sem allir liggja í sólbaði berir að ofan og er það að þeirra mati óviðunandi athæfi. Fimm strandlögg- ur hafa gengið um strendurnar í stutterma- bolum og stuttbuxum og beðið ber- brjósta konur sem á vegi þeirra hafa orðið að hylja brjóst sín. Flest- ar konumar tóku það ekki í mál og gripu þá lögreglumennimir til þess ráðs að kalla á liðsauka og fengu til sín tuttugu starfsfélaga sína, gráa fyrir járnum. En ein kona, Rose Moura, sem lá í sakleysi sfnu á mag- anum neitaði samt að klæða sig og var hún handtekin á stundinni fyrir ósiðlegt athæfi á opinberam vett- vangi. Eiginmaður konunnai- reyndi að skerast í leikinn en var þá sjálfur handtekinn. Kóngur í dulargervi ► HINN ungi Jórdaníukonungur, Abdullah, heimsótti sjúkrahús í dul- argervi á dögunum og komst framhjá öryggisvörðum án þess að þeir þekktu hann. Kóngurinn var að kanna aðbúnað sjúklinga á sjúkra- húsinu en ■"•þetta er í annað sinn síðan hann tók við krún- unni fyrir ári sem hann freistar þess að skoða lífið í landinu sem almennur borgari. Hann hyggur á fleiri slíkar ferðir í dulargervi og vonast til að op- inberir starfsmenn og æðri embætt- ismenn vinni þá sína vinnu betur en fyrr. Kóngurinn hafði fjölmiðlafull- trúa sinn sér til fulltingis í njósnaför- inni á dögunum og kom við í ýmsum opinberum stofnunum auk sjúkra- Hússins. Ekki var gefið upp í hvers íconar gervi hann hefði verið en í júlí á síðasta ári dulbjó hann sig sem blaðamann. Isklumpum rignir í Madrid ► NÚ ER talið að ísklumpar á stærð við melónur sem rignt hefur yfir borgina Madrid komi frá loftsteini sem hafi komist inn í lofthjúp jarðar en ekki af mannavöldum líkt og áð- ur var talið. Samkvæmt vísinda- mönnum í borginni em litlar líkur á að um sé að ræða samanþjappaðan saur frá loftforum af einhverri teg- und. „En samt vantar klumpana þá íiferð og lit sem vænta mætti af brotum úr Ioftsteini,“ sagði vísinda- maðurinn Enrique Martinez. í sfðustu viku slapp maður naum- lega er einn klumpanna sem var íjögur kíló að þyngd lenti á bíl hans í borginni. Síðan þá hefur verið til- kynnt um níu fsklumpa. Engir peningar - engin lækning ► MAÐUR einn í Naírobí komst í hann krappan á dögunum er honum var neitað um sjúkrahúsvist eftir að hann var barinn til óbóta því hann hafði enga peninga á sér. Vinir mannsins hlúðu að honum eftir fremsta megni og báru hann á börum í bankann svo hann gæti tekið út pen- inga en því miður láðist honum í öll- um hamaganginum að hafa banka- kortið sitt meðferðis og fékk því ekkert fé í bankanum. Myrkrahöfðinginn í Panorama á kvikmyndahátíðinni í Berlín Hilmir Snær og Sara Dögg sem Síra Jón og vinnustúlkan hans. Alexandra Rappaport 1 hlutverki sinu 1 Myrkrahöfðmgjanum. Myrkrahöfðingi Hrafns Gunnlaugssonar hefur verið valin til þátttöku í Panorama-dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Berlín sem hefst um miðjan febrúar. Hildur Loftsdóttir hringdi í kvikmynda- leikstjórann, Blm: Til hamingju, Hrafn! Hrafn: Þakka þér fyrir! Blm: Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mynd eftir þig er valin í þessa dagskrá. Hrafn: Það var á sínum tíma þegar Hrafninn flýgur hafði fengið feiknar- lega litla aðsókn hér heima, að henni gekk svona vel á Panorama í Berlín. Það varð til þess að ég fór aftur að trúa á myndina, og á þess vegna mjög góðar minningar af Panorama. Blm: Myrkrahöfðinginn hefur víst ekki gengið nógu vel. Hrafn: Ég veit það ekki, ég er ekki framleiðandi myndarinnar þannig að það er Friðrik Þór sem verður að hafa áhyggjur af aðsókninni. En ég er ekk- ert síður sáttur við Myrkrahöfðingj- ann en Hrafninn flýgur á sínum tíma. Þetta staðfestir þann grun sem ég hafði um myndina að hún gæti gert það ansi gott erlendis. Friðrik Þór er náttúrlega í skýjunum yfir þessu, en ég hef engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Blm: En hvers vegna heldurðu að Myrkrahöfðinginn gangi ekki nógu vel? Hrafn: Ég held að efnið hræði eitt- hvað. Og umfjöllunin um myndina hefur verið frekar glannaleg. Menn hafa verið að festa sig í einhveijum smáatriðum sem eru bara krydd í allri steikinni, í stað þess að sjá verkið sem eina stóra heild. Blm: Er þetta ekki mikill heiður fyrirþig? Hrafn: Jú, og ekki síst þar sem myndin fjallar um mikið og flókið Gat ekki átt mér aðra ósk Morgunblaðið/Kristinn Hrafn við verk Odds Nerdrum; altaristöflu biskups í Myrkrahöfðingjanum. sögulegt efni. Þannig mynd- ir eru nánast ekki gerðar í dag, og hún þarf því að hafa mikið til að bera. Flestar myndir sem komast þama inn eru nýbylgjumyndir og tískumyndir. Þetta er hin opinbera dagskrá hátíðar- innar, og síðan eru ákveðnar myndir settar í keppni. Og Myrkrahöfðing- inn er auðvitað ekki mynd sem færi að keppa þar því hún er svo sér á parti, og þetta er því það lengsta sem myndin gæti mögulega komist á svona hátíð. Blm: Og er þetta ekki næststærsta hátíð í heimi? Hrafn: Jú. Eftir að Hrafninn flýgur var í Pano- rama var hann kominn um allan heim. Það sama gerist með Hin helgu vé, en það er minni mynd sem hefur gengið mjög vel í sjónvarpi. Það hlýtur að vera sérlega ánægjulegt íyrir Friðrik að fá þetta upp í hendurnar ef hann spil- ar rétt úr þessu. Blm: Það hlýtur að vera líka mjög skemmtilegt fyrir þig. Hrafn: Jú, fyrir mig sem listamann er þetta eitt það ánægjulegasta sem gæti gerst. Ég gat ekki átt mér aðra ósk en að koma myndinni á aðaldag- skrána í Berlín. Ég var ekki viss um að það myndi gerast því hún er svo öðruvísi. Hún er afskaplega íslensk og var gerð fyrst og fremst fyrir ís- lendinga. Blm: Þá er þetta enn ánægjulegra. Hrafn: Já, þetta kom mér skemmtilega á óvart. Svona eins og happdrættisvinningur. Manni þykir alltaf vænt um það ef menn í útlönd- um kunna að meta mann sém lista- mann. Blm: Er öruggt að hún fari víða eft- ir að hafa verið í Panorama? Hrafn: Það er allt sem bendir til þess. Myndir í opnunardagskrá í Berlín fara nær sjálfkrafa um allan heim. Skömmu eftir að Hrafninn flýg- ur var í Berlín, var hún orðin mjög vinsæl á Indlandi, í Kóreu, sló í gegn í Brasilíu og í Madríd. En þar sem ég var ekki heldur dreifingaraðili að þeirri mynd vissi ég lítið um það. I norskum og sænskum umfjöllunum þykir Myrkrahöfðinginn gefa sér- staka sýn á miðaldir sem aldrei áður hefur sést í kvikmynd. Líkt og Hrafn- inn flýgur var sérstök skoðun á vík- ingatímann. Maður veit aldrei fyrr en það gerist endanlega, en það getur vel verið að þessi mynd eigi eftir að verða einhvers konar „költ“-mynd. Og það á sjálfsagt eftir að hjálpa myndinni mikið að listmálarinn Odd Nerdrum, sem er útlitshönnuður myndarinnar, er mikið í tísku. Hann gefur henni þetta dularfulla yfirbragð sem er mjög sérstætt og gerir hana öðruvísi en allar aðrar myndir, og það skiptir máli. Er þakklátur í hjarta sínu Blm: Nú hafa tveir leikarar úr Myrkrahöfðingjanum, Hilmir Snær og Alexandra Rappaport, verið valin í Shooting-Star, hóp ungra leikara sem verða sérstaklega kynnt á hátíð- inni fyrir fjölmiðlum og kvikmynda- gerðarfólki í Berlín. Hrafn: Já, það virðist vera að menn hafi kveikt svona feikilega á leik Hilmis í þessari mynd, og Alexöndru líka. En það var aldrei fjallað neitt um hana í gagnrýninni hér heima. Mér finnst hún meiriháttar sem þessi for- dekraða ólétta kerling. Hún hefur leikið mjög mikið í sjónvarpi í Svíþjóð og er talin ein af þeirra rísandi stór- stjömum. Það besta sem hún hefur gert á tjaldinu hingað til finnst mér hún gera í Myrkrahöfðingjanum. Hlutverkið er ekki stórt en hún skilar því alveg feiknarlega vel. Hún nær að verða einhver allt önnur manneskja en allir aðrir í myndinni sem er alls ekki auðvelt. Mér fannst rosalega gaman að vinna með henni því hún er svo klár. Blm: Og verður þá sjálfsagt stjama? Hrafn: „Já, hún hefur alla burði í það. Alveg eins og með hana Söru Dögg sem mér finnst hafa fengið al- veg fáránlega gagnrýni, og maður hefur það á tilfinninguni að það sé vegna þess að hún er ekki í leikarafél- aginu. En hún er líka efni í stjömu. Eg fann Mariu Bonnevie á sínum tíma, sem lék í Hvíta víkingnum og er núna alþjóðleg stjama. Sara Dögg hefur jafn mikið tO að bera og hún. En þetta er allt mjög ánægjulegt. Maður er þakklátur í hjarta sínu að einhver kunni að meta þessi listaverk sem maður er að búa til, og ég vona að þetta verði kannski til þess að íslend- ingar taki við sér og fari að sjá mynd- ina. Það þurfti þetta til með Hrafninn flýgur," segir Hrafn Gunnlaugsson að lokum og hlær. KVIKMYNDIR/Laugarásbíó frumsýnir banda- rísku myndina Næsta föstudag eða „Next Friday“ ______með Ice Cube í aðalhlutverki._ Fleiri föstudagar Ice Cube slappar ærlega af í Næsta föstudag. Frumsýning CRAIG (Ice Cube) býr enn hjá foreldrum sínum í South Central í Los Angeles. Hann er atvinnulaus en fyrir fjómm ámm hafði hann betur í átökum við aðal- fantinn í hverfinu, Debo (Tommy „Litli“ Lister). Nú hefur Debo flúið úr fangelsi og er staðráðinn í því að ná fram hefndum. Faðir Craig (John Witherspoon) óttast um öryggi sonar síns og sendir hann til bróður síns Elroys (Don „DC“ Curry) og frænda, Day - Day (Mike Epps), sem keypt hafa sér hús í fallegu úthverfi fyrir lottóvinning- inn sinn. Craig kemst þó fljótt að því að það er sama hvar maður býr þeg- ar vandræðin steðja að. Þannig er söguþráðurinn í banda- rísku myndinni Næsti föstudagur eða „Next Friday" en hún mun vera framhald myndarinnar Föstudagur eða „Friday“ frá árinu 1995. Með að- alhlutverkin fara Ice Cube, Tommy Lister, John Witherspoon og Don Curry en leikstjóri er Steve Carr. Reyndar er Ice Cube allt í öllu í framhaldsmyndinni. Hann skrifar handritið, er framleiðandi og hann fer með aðalhlutverkið. „Fyrri myndin var mjög vinsæl þegar hún var sýnd á sínum tíma í kvikmyndahúsum,“ er haft eftir framleiðandanum Michael De Luca hjá New Line Cinema. „Það, ásamt því hversu vel hún gekk á mynd- bandi, sagði okkur að áhugi á fram- haldi væri fyrir hendi og við lögðum hart að okkur við að finna út hvemig við gætum haldið áfram með söguna án þess að endurtaka okkur.“ „Þetta er í reynd gamanmynd þar sem persónugerðirnar eru í fyrir- rúmi,“ er haft eftir leikaranum og rapparanum Ice Cube. „Og það er það sem mér líkar við hana. Það eru engar sprengingar og engar ástar- sögur í myndinni. Craig er bara venjulegur náungi og fólk kann að meta það.“ Og Cube heldur áfram: „Mig hefur alltaf langað til þess að gera mynd eins og „Car Wash“, sem fólk hafði mikið dálæti á. Föstudagur, fyrri myndin, hefur snert þannig við fólki að það kann samtölin úr henni utan- að og einnig heilu atriðin." Gamanleikarinn Chris Tucker var með áberandi hlutverk í fyrri mynd- inni en kemur ekki fram í þessari nýju. í stað hans leituðu framleið- endurnir til ungs grínara að nafni Mike Epps, sem leikur Day - Day. Hann var valinn úr hópi 250 gaman- leikara og grínara. „Mér líður eins og ég sé heppnasti maður í heimi,“ er haft eftir honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.