Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 15
AKUREYRI
Fjárhagsaðstoð á vegum Akureyrarbæjar hækkaði um 10% milli ára
Þrefalt fleiri sækja um aðstoð
í desember en aðra mánuði
F JÁRHAGSAÐSTOÐ á vegum Akureyrarbæjar
hækkaði nokkuð milli áranna 1998 og 1999 eða um
10%. Á milli áranna á undan, 1997 og 1998, var
hins vegar um lækkun að ræða og nam hún 18%.
Fjölskyldudeild hefur verið falið að skoða hvort
breytingar hafl orðið á samsetningu umsækjenda
eða aðrar breytingar orðið sem skýrt gætu þessa
hækkun milli ára.
Ekki svigrúm til að halda dýr jól
Oktavía Jóhannesdóttii-, formaður félagsmála-
ráðs, sagði að árið í heild sinni hefði að mestu leyti
verið með svipuðum hætti og árið á undan hvað
vai'ðar fjárhagsaðstoð, nema að því leyti að des-
embermánuður skar sig úr. „Aukningin nú í des-
ember var umtalsverð samanborið við sama mán-
uð árið á undan. Það virðist vera að stór hópur
fólks hafl ekki svigrúm til að halda dýr jól. Margir
spjara sig hversdags, skrimta milli mánaða en
þegar kemur að útgjöldum umfram það vanalega
ræður fólk ekki við slíkt,“ sagði Oktavía.
Á síðasta ári var veitt fjárhagsaðstoð fyrir sam-
tals rúmar 22,4 milljónir króna, sem er um 2 millj-
ónum króna meira en var árið á undan þegar fjár-
hagsaðstoðin nam 20,5 milljónum króna. Sú
upphæð var 18% lægri en greidd var árið 1997.
I síðastliðnum desembermánuði lágu fyrir 177
umsóknir um fjárhagsaðstoð. Veittir voru 158
styrkir að upphæð tæplega 5,4 milljónir króna og
fimm lán að upphæð tæplega 300 þúsund krónur.
Þá var 11 styrkumsóknum hafnað og þremur
frestað. Nokkru færri umsóknir um fjárhagsað-
stoð lágu fyrir í desembermánuði árið 1998, eða
132 samtals, og voru það ár veittir 127 styrkir að
upphæð tæpar 3,4 milljónir króna og tvö lán að
upphæð tæplega 92 þúsund.
„Umsóknirnar núna í desember voru þrefalt
fleiri en vant er í öðrum mánuðum ársins, en þær
voru frá 41 þegar minnst var og upp í 69. Þannig
að miðað við þá aukningu sem verður í desember
er greinilegt að ekkert má út af bregða hjá stór-
um hópi fólks,“ sagði Oktavía.
Gerð var ítarleg úttekt á fjárhagsaðstoð á veg-
um Akureyrarbæjar fyrir fáum árum í kjölfar
þess að hún jókst umtalsvert. Þá kom í ljós að
meginskýringuna mátti finna í auknu atvinnuleysi
í bænum. Oktavía sagði að enn væri það svo að at-
vinnulaust fólk leitaði eftir fjárhagsaðstoð, en í
hópnum væru einnig öryrkjar og ellilífeyrisþegar
sem og fólk sem væri í vinnu en hefði því miður
svo lág laun að þau dygðu vart til framfærslu.
UA styrkir yngri flokka KA og Þórs
Selja Akur-
eyringum físk
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hefur ákveðið að styrkja yngri
flokka KA og Þórs í knattspyrnu
með því að gefa þeim afurðir til að
selja Akureyringum. Annars vegar
er um að ræða litla brauðaða bita,
fiskmola og hins vegar brauðaða
fiskborgara. Hvort félag fær gef-
ins 725 poka en heildarverðmætið
nemur um 640 þúsund krónum
þegar miðað er við söluverðmæti
fyrir félögin. Næstu daga munu
félagar úr yngri flokkum íþrótta-
félaganna ganga í hús og bjóða
þessar afurðir til sölu en þær
verða svo afhentar skömmu síðar.
Þessar afurðir hafa verið í til-
raunaframleiðslu fyrir innanlands-
markað, en ÚA hefur um nokkurt
skeið framleitt brauðaðar afurðir,
einkanlega á Þýskalandsmarkað.
Félagið hefur einsett sér að auka
framhaldsvinnslu afurða á kom-
andi árum og er brauðun fyrsta
skrefið í því. Vöruþróun hefur í því
skyni verið efld og nýlega var opn-
uð hjá fyrirtækinu þróunarstöð.
Megintilgangurinn með aukinni
vöruþróun er að innleiða fram-
haldsunnar afurðir sem skapa auk-
in verðmæti bæði fyrir framleið;
andann og kaupandann. I
þróunarstöðinni er góð aðstaða til
tilraunavinnslu, uppskriftir eru
prófaðar frá grunni og vörurnar
svo framleiddar í smáum stíl áður
en farið er út í tilraunir í fram-
leiðslutækjum ÚA. Gott tilrauna-
eldhús er í stöðinni til að prófa
hinar ýmsu matreiðsluaðferðir og
kynna matinn viðskiptavinum.
Þegar hafa verið þróaðar nokkrar
nýjar framleiðsluvörur og á þessu
ári verður gert sérstakt átak í
markaðssetningu þeirra á helstu
mörkuðum ÚA í Evrópu.
Skákfélag Akureyrar
Akureyrarmótið
að hefjast
ARI Friðfinnsson sigraði á tíu mín-
útna móti Skákfélags Akureyrar
sem fram fór fyrir skömmu, hlaut
7,5 vinninga af 10 mögulegum. Sig-
urður Eiríksson hafnaði í öðru sæti
með 6,5 vinninga og Halldór Hall-
dórsson í því þriðja með 6 vinninga.
Á laugardag fer fram sveita-
keppni í skák milli grunnskóla á
ffi
FASTEIGNASALAN
BYGGÐ
Veitingahús í Mývatnssveit
Sala - leiga
Veitingahúsið Hverinn í Mývatnssveit er til sölu eða leigu. Á
heimasíðu Hversins, http://simnet.is/hverinn, er að finna
upplýsingar um fyrirtækið.
Upplýsingar í símum 464 4189 og 464 4186 eða hjá fast-
eignasölunni Byggð, sími 462 1744.
Morgunblaðið/Kristj án
Fulltrúar Þórs og KA með Guðbrandi Sigurðssyni, framkvæmdastjóra
ÚA. Vinstra megin Þórsararnir Eva Sigurjónsdóttir og Pétur Kristjáns-
son og til hægri systkinin Ragnhildur og Páll Árnabörn úr KA.
Héraðsdómur
Norðurlands
eystra
Skilorð
vegna
vítaverðs
aksturs
UNG stúlka hefur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra verið dæmd í 30
daga fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára, fyrir hegningar- og um-
ferðarlagabrot. Þá var hún svipt öku-
réttindum í fjóra mánuði auk þess
sem henni var gert að greiða allan
sakarkostnað.
Mál var höfðað á hendur stúlkunni
fyrir hegningar- og umferðarlaga-
brot fyrir að hafa í júlímánuði síðast-
liðnum ekið bifreið austur Hafnar-
stræti og ekki virt nægilega
biðskyldumerki á gatnamótum við
Drottningarbraut með þeim afleið-
ingum að árekstur varð. Bifreið
stúlkunnar lenti á annarri sem ekið
var suður Drottningarbraut, en við
það slasaðist ökumaður hennar alvar-
lega. Stúlkan var nýlega orðin 17 ára
þegar áreksturinn varð og hafði ein-
ungis haft ökuréttindi í um mánuð.
Fyrir dómi gat stúlkan ekki skýrt
frá ástæðum þess að bifreiðimar
tvær rákust á. Áð mati dómsins þykir
sannað, m.a. með framburði vitna, að
stúlkan hafi misst bifreiðina yfir á
rangan vegarhelming þegar hún var
að rétta hana af eftir að hafa beygt út
úr Hafnarstræti út á Drottningar-
braut með þeim afleiðingum að hún
skall á aðvífandi bíl. Þótti dómnum
akstur stúlkunnar í umrætt sinn víta-
verður.
Akureyri og Eyjafirði, tólf ára og
yngri. Keppnin fer fram í Lundar-
skóla og hefst kl. 13.30. Á sunnu-
dag hefsta Akureyrarmótið í skák
kl. 14.00 í Skipagötu 18. Umhugs-
unartími er 1,5 klst. á 30 leiki og
svo 45 mínútur til viðbótar til að
ljúka skák. Tefldar verða tvær um-
ferðir á viku.
MENNTASMIÐJAN Á AKUREYRI
NÁM í LÍFSLEIKNI
MENNTASMIÐJA KVENNA • VINNUKLÚBBURINN • NÝBÚANÁMSKEIÐ
SAMNINGSBUNDIN NÁMSKEIÐ • NÁMSKEIÐ FYRIR ALMENNING
V anadísir
námskeið um menntasmiðjur kvenna
haldið í Menntasmiðjunni á Akureyri 1.-6. febrúar 2000
Fyrir konur sem starfa að menntun og ráðgjöf kvenna og/eða hafa áhuga
á stofnun og rekstri menntasmiðja kvenna á Islandi
Menntasmiðjan á Akureyri er þátttakandi í norrænu/baltnesku verkefni um óformlegt nám kvenna.
Verkefnið ber heitið FREYJA og auk íslands eru þátttökulöndin Eistland, Lettland, Litháen, Rúss-
land og Svíþjóð. í júní sl. var haldið fjölþjóðlegt námskeið í Gautaborg.
Áformað er að fylgja því eftir með námskeiðum í þátttökulöndunum, sem haldin verða á fyrri hluta
ársins 2000. ísland verður þar fyrst í röðinni. Á námskeiðinu munu konur læra grundvallaratriðin í
þeirri hugmynda- og aðferðafræði, sem nýtt er í Menntasmiðju kvenna og sambærilegum skólum
erlendis.
Menntasmiðja kvenna á Akureyri var stofnuð árið 1994 á vegum embættis jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa Akureyrarbæjar. Fyrirmyndin var fengin frá kvennadagháskólum Norðurlandanna, en
aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Nú, rúmum fimm árum síðar, hefur safnast mikil og dýrmæt
reynsla um nám í lífsleikni fyrir konur, sem mikilvægt er að miðla til þeirra er starfa að menntun
kvenna og/eða hyggjast koma á svipaðri starfsemi víða um land.
Hugmyndin er að námskeiðið verði grundvöllur framtíðarsamvinnu þátttakenda, þ.e. að myndað
verði eins konar tengslanet menntasmiðja kvenna á íslandi og jafnvel víðar. Það gæti lagt grunn að
áframhaldandi öflugri þróun óformlegs náms kvenna.
Vanadís er eitt af mörgum heitum Freyju. Hún var æðsta dís Vananna,
sem voru þjóð gleði, friðar, auðs og ástar.
Námskeiðið er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni.
Skráning og nánari upplýsingar um verð og tilhögun í Menntasmiðjunni
á Akureyri í síma 462 7255 eða í tölvupósti: menntasmidjan@nett.is
Vinsamlegast látið skrá ykkur sem fyrst og ekki síðar en 25. janúar nk.