Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 16

Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Nýr mengunarvarnarbúnaður settur upp við Krossanesverksmiðjuna Kostnaður um 76 millj- ónir króna UNNIÐ er að því að setja upp mengunarvarnarbúnað við verk- smiðjuna í Krossanesi og er stefnt að því að verkinu verði lokið fyrir sumarvertíð eða í byrjun apríl. Hilmar Steinarsson, verksmiðju- stjóri í Krossanesi, sagði að áður hefði verið settur upp olíuketill sem tók við afsoginu frá verksmiðjunni en hann ekki dugað og því var ákveð- ið að kaupa nýja búnaðinn. Kostnað- ur við hann er um 41 milljón króna, þá þarf að byggja yfir hann hús sem kostar um 20 milljónir króna og ann- ar kostnaður vegna þessa verkefnis nemur um 15 milljónum. Heildar- kostnaður vegna þessa verkefnis nemur því um 76 milljónum króna. „Við erum að leggja í verulegan kostnað til að fyrirbyggja mengun frá verksmiðjunni til þess að koma til móts við kröfur sem gerðar hafa verið til okkar, m.a. af bæjarbúum," sagði Hilmar. Hann sagði að eftir að nýi mengunarvarnarbúnaðurinn yrði tekinn í notkun yrði Krossa- nesverksmiðjan ein sú fullkomnasta í landinu á þessu sviði. Allt afsog frá verksmiðjunni mun fara um nýja búnaðinn og er hitinn í tækinu þar sem hann er mestur um 1.200 gráð- ur. Hilmar sagði að á síðasta ári hefði verið tekinn í notkun búnaður sem skilur allan vökva sem út úr húsinu fer, þannig að einungis rynni úr hús- inu hreint vatn. Loks nefndi hann að um árabil hefði verksmiðjan tekið á móti rækjuskel, sem ella hefði verið fleygt, og unnið úr henni mjöl. Tekið er á móti rækjuskel frá Strýtu á Ak- ureyri og Fiskiðjusamlagi Húsavík- ur og er magnið á bilinu 70 til 80 tonn á viku. ■'. 'J ......................................................... Morgunblaðið/Kristján Hilmar Steinarsson, verksiniðjustjdri í Krossanesi, við hinn nýja mengunarvarnarbúnað sem verið er að setja upp við verksmiðjuna, en hann verður kominn í gagnið fyrir sumarvertíð í byijun aprfl. ' V v Hi'eyfing - tónlist - spuni - leiklist - dans (Ennþá laust i:) Tónlist - Leiklist Jazz Þórey leiklist Astros leiklist H e I e n a leiklist N a n n a tónlist ttÚSI&s Símar 551 5105 og 551 5103 Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi; Eyrina norðurhluta Borgarsíðu og Móasíðu Gerðahverfi Keilusíðu og Kjalarsíðu Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn Góður göngutúr sem borgar sig Morgunblaðið ► Kaupvangsstræti 1, Akureyri sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er i upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Gunnar Ragnars hefur flogið 1.900 ferðir á milli Akureyr- ar og höfuðborgarinnar á rúmum þrjátíu árum Fyrsta flugið það versta GUNNAR Ragnars hefur verið framarlega í atvinnulífi Akureyr- inga undanfarna áratugi og sem framkvæmdastjóri Slippstöðvar- innar og síðar Útgerðarfélags Ak- ureyringa verið mikið á ferðinni á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Frá því Gunnar flutti til Akureyr- ar fyrir 32 árum, hefur hann flog- ið 950 sinnum með Flugfélagi ís- Iands og Flugleiðum á flugleiðinni Akureyri Reykjavík, eða samtals 1.900 ferðir fram og til baka. Gunnar hefur samkvæmt þessu flogið um 30 sinnum á ári á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þdtt hann hafi látið af störfum sem framkvæmdastjdri ÚA er hann nú að sýsla í eigin nafni, auk þess sem hann situr í stjdrnum nokk- urra fyrirtækja Off því enn tölu- vert á ferðinni. „Eg flaug sérstak- lega mikið á milli á árunum 1975-1980 þegar ég var í Slipp- stöðinni en þar starfaði ég í 20 ár. Þetta hafa verið áfallalaus flug en oft verið dfært og þá sér- taklega áður en aðflugið kom inn- an úr firði. Hins vegar er hægt að telja þau skipti á fingrum annar- rar handar sem ég hef orðið fyrir því að fara af stað í flugi en ekki getað lent á áfangastað," sagði Gunnar í samtali við Morgunblað- ið. Aðspurður sagðist Gunnar ekki vera flughræddur en í fyrstu ferð sinni norður árið 1969 hafi verið stdr suðvestanstormur og að þá strax hafí hann lent í sínu versta flugi. „Þetta hefur þd alltaf geng- Morgunblaðið/Kristján Friðrik Adolfsson, starfsmaður Flugfélags íslands, færði Gunnari Ragnars bldmvönd í tilefni tímamdtanna er hann kom með Fokker-vél félagsins til Akureyrar í fyrrakvöld, ásamt konu sinni, Guðríði Eiríks- ddttur. ið vel enda vélarnar gdðar.“ Gunnar sagðist enn vera tölu- vert á ferðinni og því ekki dlík- legt að hann næði eitt þúsundustu ferðinni seint á næsta ári. Hann sagðist alltaf hafa geymt alla farmiða sína í ákveðinni skúffu í borði sínu og svo talið þá eftir ár- ið. Gunnar sagði að ýmsir fleiri hefðu oft flogið á milli en taldi ekki dlíklegt að hann ætti þd met- ið. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Svalbarðs- kirkju sunnudaginn 23. janúar kl. 14. Fermingarfræðsla í safn- aðarstofunni kl. 11. Kyrrðar- stund verður í Grenivíkur- kirkju kl. 21 næstkomandi sunnudagskvöld, 23. janúar. Til sölu gistiheimili á Akureyri Eitt besta og vlnsælasta gistiheimilið á Akureyri er nú til sölu. Um er að ræða tvær fasteignir, sem staðsettar eru hlið við hlið og gerðar hafa verið að einni rekstr- areiningu. Gistiheimilið telur 14 herbergi og er í fullum rekstri. Allur búnaður fylgir. dYCjvJL/ Frábær Staðsetning. Strandgötu 29, Akureyri, sími 462 1744, fax 462 7746. FASTEIGNASALAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.