Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
URVERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Góð loðnuveiði
í flottrollið
LOÐNAN mokveiðist nú í flottroll
fyrir austan land og voru sum
trollskipin á landleið í gær eftir
innan við 20 tíma á veiðum. Treg-
lega gengur hins vegar að nálgast
loðnuna með nótinni en nótaskip-
stjórar eru þó alls ekki farnir að
örvænta. „Veiðin hefur verið frek-
ar léleg síðustu vikuna en menn
hafa þó náð að kroppa upp nokkur
tonn,“ sagði Bjarni Bjarnason,
skipstjóri á nótaskipinu Súlunni
EA, þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gær. Skipin voru þá að veið-
um í blíðuveðri um 30 mílur suð-
austur af Hvalbak. „Okkur gengur
illa að ná til loðnunnar, hún heldur
sig fremur djúpt, auk þess sem
straumar hafa verið þungir og gert
þetta erfiðara en ella. En það er
mikið af loðnu á ferðinni og hún er
að síga hér upp á grunnið. Pá fer
hún að gefa sig í nótina en það
kæmi mér ekki á óvart þó að það
yrði ekki fyrr en undir mánaða-
mót,“ sagði Bjarni.
Síldarkvótinn er nú að klárast,
enda hafa borist um 90 þúsund
tonn af síld á land á vertíðinni og
því tæp 13 þúsund tonn eftir af
kvótanum. Vel hefur hins vegar
fiskast hjá þeim fáu skipum sem
enn eru á síldinni. Húnaröst SF og
Jóna Eðvalds SF hafa bæði verið á
síldinni síðustu daga en Asgrímur
Ingólfsson, skipstjóri á Húnaröst
SF, átti von á því að landa síðasta
farmi vertíðarinnar á Hornafirði í
gær. Hann sagðist hafa fengið góð
köst um 50 mílui' vestur af Malar-
rifi í gær. „Við höfum fengið ágæt
köst, allt upp í 600 tonn, að undan-
förnu, enda talsvert af síld ennþá á
þessu svæði.
Við reynum að vinna þessa síld
til manneldis en mér skilst að það
sé farið að þrengjast um á mörkuð-
um fyrir síld. Þó að við eigum enn
talsvert eftir af síldarkvóta á ég
von á því að við hættum á síldinni í
bili og snúum okkur að loðnunni,"
sagði Asgrímur.
Morgunblaðið/Kristján
Sjómenn eru nú fullir bjartsýni á góða loðnuvertíð og hór er Stefán Laufdal Gíslason,
skipverji á Sigurði VR með handfylli af loðnu.
Auðveldasta og hagkvæmasta leiðin til
að eignast sparifé er með áskrift og nú
getur þú búið til þitt eigið verðbréfasafn
úr innlendum og erlendum verðbréfum
fyrir allt frá 5.000 kr. á mánuði!
Með áskrift
að verðbréfasjóðum VÍBfœrðu:
• 40% afslátt af gengismun
• val um 15 mismunandi sjóði
• lægsta kostnað sem völ er á hérlendis
• ráðgjöf sérfræðinga við val á verðbréfum
Nú getur þú einnig keypt
erlend hlutabréf í áskrift!
Agla E. Hendriksdóttir,
deildarstjóri Einstaklingsþjónustu
EIKNIR
Komdu a netið með VI6
Líka þú getur
gerst áskrifandi að
milljónum hjá okkur
Nú getur þú farið beint á nýja
Netreikninn okkar á vib.is og gert
nákvæma áætlun um fjárfestingar
þínar. Sjáðu með eigin augum
hvað mismunandi kostir geta þýtt
fyrir heildarávöxtun þína.
Þannig virkar Netreiknir:
1. Þú slærð inn aldur þinn og t.d. hvenær þú vilt fara á eftirlaun.
2. Þú velur hve mikið þú vilt spara mánaðarlega.
3. Þú slærð inn hver núverandi eign þín er.
4. Þú velur hlutfall hlutabréfa, skuldabréfa og erlendra
hlutabréfa.
5. Þú slærð inn hlutfall núverandi eignar I hlutabréfum,
skuldabréfum og erlendum hlutabréfum.
6. Netreiknir reiknar fyrir þig.
Þú færð niðurstöðurnar.
VIB
VEKÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA
Kirkjusandi. Sími: 560 8900. www.vib.is
Útíbú íslandsbanka. Súni:575 7575
Hæð við ísland
Ovænt
verðhrun
á þorski
á Englandi
GANDÍ VE kom til Grimsby á Eng-
landi í gær með tæplega 70 tonn af
þorski. Ekki er gert ráð fyrir góðri
sölu, því vegna óvenju mikils fram-
boðs hefur verð fallið mjög mikið í
vikunni eftir að hafa verið með hæsta
móti í liðinni viku.
í vikunni sem leið fékkst frá sem
samsvarar um 200 kr. til 270 kr. fyrir
kflóið af þorski á ensku mörkuðunum
en verðið hefur farið niður í 150 til
190 kr. þessa viku.
Gott tíðarfar og
allir á sjó
Páll Sveinsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Icebrit í Grimsby og
umboðsmaður Gandís, segir að
ástandið sé óeðlilegt miðað við árs-
tíma en því valdi kyrrstæð hæð, sem
hefur verið suður af íslandi í viku til
10 daga. Fyrir vikið sé gott tíðarfar
kringum Bretlandseyjar, allir á sjó
og mikið framboð af fiski, jafnt frá
heimamönnum sem Færeyingum.
„Hafnir, sem hafa verið meii-a og
minna fisklausar síðan fyrir jól, eru
allar komnar með fisk. Eðli markað-
arins er að fiskneysla dregst saman
þegar framboð er lítið og verðið hátt,
eins og í allt haust, en þegar fram-
boðið verður allt í einu mjög mikið
þarf tíma til að fá neytendur til baka.
Þegar Gandí lagði af stað var verðið
mjög hátt, allt að því sprengiverð, en
það hefur snarlega lækkað. En það
er þessi kyrrstæða hæð og það þarf
að fara mörg ár aftur í tímann til að
finna eitthvað sambærilegt í viku eða
10 daga í janúar. Iðulega hefur það
verið þannig að skipin hérna hafa
komist út í einn eða tvo daga en síðan
hrökklast aftur inn undan veðri. Því
hefur yfirleitt verið fisklítið hérna í
janúar en Gandí er óheppinn núna.“
Verðið fljótlega
upp aftur
Að sögn Páls hefur íslenski fiskur-
inn verið í vernduðu umhverfi á Eng-
landi frá því í haust, en búast hefði
mátt við verðlækkun með betra tíð-
arfari. I fyiTa hefði þetta gerst upp
úr miðjum febrúar og því væri aukið
framboð óvenju snemma á ferðinni
að þessu sinni en verðið færi fljót-
lega upp aftur. „Veðurfarið er mjög
ótryggt hérna á þessum árstíma og
það þarf ekki að blása mikið til að
flotinn hrökklist í land og þá hækkar
verðið örugglega aftur," segir Páll.