Morgunblaðið - 20.01.2000, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
FRUMSÍND 21. JANlAR
Afsögn Kohls stöðvar
ekki hneykslismálin
Berlín. AP, Reuters, AFP.
Reuters
Gagnrýni á hegðun Kohls í tengslum við fjármálahneykslið sem nú
skekur CDU eykst stöðugt innan flokksins. Orðið „Raus“ þýðir „út“.
AÐ HELMUT Kohl skuli hafa sagt
af sér heiðursformannstitli sínum í
Kristilega demókrataflokknum í
Þýzkalandi, CDU, dugar ekki til að
kveða niður fjármálahneykslið sem
skekur nú flokkinn. Þetta viður-
kenndu forystumenn í flokknum í
gær.
Flokksforystan hefur heitið því að
opinbera nöfn þeirra sem látið hafa
flokknum í té nafnlausar greiðslur til
að létta af honum ásökunum um að
hafa þegið fé fyrir pólitíska greiða,
en með fullu óljóst er hvemig þeir
ætla sér að gera það með tilliti til
þess að Kohl harðneitar að láta það
uppi sem hann veit um málið.
Kohl sagði í fyrradag af sér heið-
ursformannstitlinum frekar en að
láta undan kröfu flokksstjómarinnar
um að hann gæfi upp nöfn gefenda
greiðslna inn á leynilega - og þar
með ólöglega - reikninga flokksins,
sem Kohl hefur viðurkennt að hafa
haldið úti í flokksleiðtogatíð sinni.
Húsleit hjá fv. samstarfs-
mönnum Kohls
Hneykslið vindur æ meir upp á
sig. A þriðjudag var á vegum sak-
sóknaraembættisins í Bonn, sem er
að kanna forsendur til málshöfðunar
gegn Kohl vegna meintra lagabrota,
gerð húsleit á heimilum og einka-
skrifstofum tveggja fyrrverandi ná-
inna samstarfsmanna Kohls, Hans
Terlinden, sem í stjómartíð Kohls
var háttsettur starfsmaður í höfuð-
stöðvum CDU í Bonn, og Horst
Weyrauch, fyrrverandi skattaráð-
gjafa flokksins. Terlinden og Wey-
rauch em að sögn saksóknara gmn-
aðir um að hafa hjálpað Kohl að
halda hina leynilegu bankareikn-
inga. Skjöl vom einnig gerð upptæk
á skrifstofu héraðshöfuðstöðva CDU
í Hessen í Wiesbaden og á heimili
féhirðis Hessen-flokksdeildarinnar,
Casimir prins af Sayn-Wittgenstein.
Leiðarahöfundar
hrista höfuðið
Þvermóðska Kohls varð fleimm
innan CDU í gær tilefni til gagnrýni
á hann, og fjölmiðlar greindu frá vís-
bendingum um að eitt og annað bita-
stætt ætti eftir að koma fram um
fjármái flokksins.
Leiðarahöfundar dagblaðanna
sögðu flokkinn hafa misst af tæki-
færi til að bæta ímynd sfna á flokks-
stjómarfundinum í fyrradag, þar
sem lýst var trausti á Wolfgang
Schauble, sem um árabil var skjól-
stæðingur Kohls og óskaarftaki hans
í flokksleiðtogasætinu. „Flokks-
stjórnin vissi að þótt framtíðin væri
ekki endilega tryggð með Schauble,
þá væri hún alveg örugglega glötuð
með Kohl,“ skrifaði Suddeutsche
Zeitung.
Die Welt sagði að þessi mesti
þungavigtarflokkur Þýzkalands eftir
lok síðari heimsstyrjaldar virtist
hjálparvana. „CDU leysir ekki
vanda sinn með þessu,“ segir í for-
ystugrein blaðsins. „Allur flokkurinn
og trúnaðartraust fólks á honum er í
húfi.“
Flest námskeiðin eru 20 kennslustundir og eru þau kennd á fjórum kvöldum.
Þá er jafnframt boðið upp á 6 og 10 stunda námskeið. Styttri námskeiðin eru kennd á einu til tveimur kvöldum.
KFjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðisskólinn; A- og V-álmur skólans, Ármúla 12, Reykjavík.
Námskeiðin byrja flest á miðvikudögum og enda á þriðjudögum (20 stunda námskeið). .
diðvikudagar, fimmtudagar, mánudagar og þriðjudagar. /
jklgn 17.00 til 20.50 miðað við 5 kennslutíma hvern dag nema annað sé tekið fram.
29. mars -4. apríi
Uppbygging líkama/lyfjafræði náttúrulyfja
(Algeng náttúrulyf, samanburður við lyf, hvað ber að varast,
verkanir) - 20 stundir
Kennari: Bryndís Þóra Þórsdóttir, lyfjafræðingur - stofa A2I
5.-11. apríl
Hjúkrun og sjúkragögn - 10 stundir
Kennari: Svava Þorkelsdóttir, hjúkrunarfræðingur - stofa A2I
Kennt er tvö kvöld, 5. og 6. apríl
Internet/tölvupóstur - 20 stundir
Kennari: Páll Thayer, tölvufræðikennari - stofa V24
Kennt er frá kl. 17.30 til 21.20
• 20 stunda námskeið kosta kr. 10.000
• Tölvunámskeið kosta kr. 14.500
• 6 stunda námskeið kosta kr. 3.500
• 10 stunda námskeið kosta kr. 6.000
• Námskeiðið Sýklar og menn kostar kr. 13.000,
(bók innifalin).
1.-7. mars
Sýklar og menn - 20 stundir
Kennari: Bogi Ingimarsson, líffræðingur - stofa A22
Athugið að kennt er dagana 2/3, 6/3, 7/3 og 9/3
8.-14. mars
Hjúkrun sjúklinga m. meltingarfærasjúkdóma - 20 st.
Kennari: Ólöf Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur -stofa Al I
Fætur og sykursýki - 6 stundir
Kennari: Sólrún Siguroddsdóttir, fótaaðgerðafr. - stofa Al I
Kennt miðvikudaginn 8. mars frá kl. 17.00 til 21.30
Word (ritvinnsla o.fl.) - 20 stundir
Kennari: Páll Thayer, tölvufræðikennari - stofa V24
Kennt er frá kl. 17.30 til 21.20
15.-21. mars
Ónæmiskerfið/sjúkdómar - lOstundir
Kennari: Bogi Ingimarsson, líffræðingur - stofa A22
Kennt fimmtudaginn 16/3 og mánudaginn 20/3
Vellíðan og slökun sjúkra - 20 stundir
Kennarar: Erla Sigtryggsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir,
hjúkrunarfræðingar og nuddarar - stofa A10
22. -28. mars
Árangursrík samskipti á sjúkrastofnunum - 20 stundir
Kennarar: Herdís Hólmsteinsdóttir og Unnur Heba
Steingrlmsdóttir, hjúkrunarfræðingar - stofa A22
Tölvugrunnur (Umhverfi Windows 95, fylgiforrit) - 20 stundir
Kennari: Páll Thayer, tölvufræðikennari - stofa V24
Kennt er frá kl. 17.30 til 21.20
9.-15. febrúar
Árangursrík samskipti á sjúkrastofnunum - 20 stundir
Kennari: Herdís Hólmsteinsdóttir og Unnur Heba Steingrímsdóttir,
hjúkrunarfræðingar - stofa A22
Töivugrunnur (Umhverfi Windows 95, fylgiforrit) - 20 stundir
Kennari: Páll Thayer, tölvufræðikennari - stofa V24
Kennt er frá kl. 17.00 til 21.30
16.-22. febrúar
Oldrunarsjúkdómar - 6 stundir
Kennari: Bogi Ingimarsson, líffræðingur - stofá A22
Kennt fimmtudaginn 17. febrúar frá kl. 17.00-21.30
23.-29. febrúar
Pre- og post aðgerðarhjúkrun - 20 stundir
Kennari: Ásgeir Valur Snorrason, hjúkrunarfræðingur o.fl. - stofa AI0
Internet/tölvupóstur - 20 stundir
Kennari: Páll Thayer, tölvufræðikennari - stofa V24
Kennt er frá kl. 17.30 til 21.20
Hjúkrun aldraðra, (umönnun aldraðra og sjúklinga) - 20 stundir
Fj ölbrautaskólinn
við Armúla
Ármúla 12, 108 Reykjajoík
Sími 5S1 4022 • Bréfasími 568 0335
lieimásíöa www.fa.is
HEILBRIGÐIS
SKÓLINN
Ármúln 12, 108 Reykjavik
Simi 5S1 4022 • Bréfnsími 5óö’ 03.
HeimaéiÖn wnnv,fa;is
KennslustaðuriJyfj[l3
NámskeiðstímhlSM
Kennsludaganlil&W
KennslutímiiJSBláH
Verð á námskeiðum:
Innritað verður á öll námskeiðin
alla virka daga fyrstu vikuna milli
kl. 9.00 og 12.00 í síma 581 4022
Eftir það er innritað
alla daga nema föstudaga
milli kl. 10.00 og 12.00
Staðfesta verður skráningu með
greiðslu námskeiðsgjalds við pöntun