Morgunblaðið - 20.01.2000, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 20.01.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 33 ERLENT Tilraun Bandaríkjamanna úti í geimnum mistókst Gagnflaugin hitti ekki skotmarkið AP. Washington. ÁFORM Bandaríkjamanna um að koma upp takmörkuðu gagnflauga- kerfi árið 2005 urðu fyrir hnekki á þriðjudag er tilraunaflaug hitti ekki skotmarkið, gervisprengju sem skot- ið var upp með langdrægri Minute- man-flaug frá Kaliforníu. Verkefnið er afar flókið og hefur verið líkt við að reyna að hitta riffilkúlu með ann- arri riffilkúlu. Líkt er eftir hugsanlegri árás flaugar með kjamorkuvopn en Bandaríkjamenn gera sér vonir um að draga úr hættunni á að slík árás af völdum óstöðugra einræðisríkja á borð við Norður-Kóreu, Irak eða Ir- an heppnist verði hún einhvem tíma gerð. Fyrsta velheppnaða tilraunin með gagnflaugina var gerð í október ífyrra. Gagnflauginni var skotið upp frá eynni Kwajalein í Marshall-eyjaklas- anum á Kyrrahafi á þriðjudag um 20 mínútum eftir að skotmarkið hóf sig á loft frá Vandenberg-herflugvellin- um í Kaliforníu. Sjálfur búnaðurinn er á oddi gagnflaugarinnar sem not- uð er til að koma honum á loft og losnar frá þegar flaugin er komin út fyrir gufuhvolfið. Sprengjan er um 54 kíló að þyngd og 140 sentimetrar að lengd, smíðuð hjá hátæknifyrir- tækinu Raytheon. Beitt er ratsjár- sendingum tU að miða óvinaflaugina út og innrauðum geislum tU að leið- beina sprengjunni, sem kölluð er EKV eða Drápstólið, að skotmark- inu. Óljóst um orsakir „Við vitum ekki ennþá hvað olli því að flaugin hitti ekki skotmarkið,“ sagði fulltrúi vamarmálaráðuneytis- ins, Rick Lehner ofursti, í gær. „Okk- ur er ekki kunnugt um hvað gerðist eftir að hún var komin út í geiminn." Lehner sagði að farið yrði vel yfir gögnin um flugið en liðið gætu tveir sólarhringar áður en bráðabirgða- skýrsla lægi fyrir. Næsta tilraun með flaugina er fyrirhuguð í apríl. Kenn- eth Bacon, talsmaður ráðuneytisins, sagði fréttamönnum nokkrum stund- um fyrir tilraunina að gengi allt að óskum hefðu menn náð þeim árangri sem fyrirfram hefði verið talinn skil- yrði þess að ráðuneytið treysti sér til að mæla með kerfinu. Varnarmálaráðuneytið, Pentagon, gerir ráð fyrir að áætlunin muni kosta um 12,7 milljarða dollara eða um 900 milljarða króna. Sögðu full- trúar ráðuneytisins að þótt ekki hefði að þessu sinni tekist að hitta skot- markið hefðu menn öðlast dýrmæta reynslu af ýmsum búnaði sem nota þarf við kerfið, m.a. tölvubúnaði sem notaður er til að fylgjast með gagn- Gagnflaugatilraunir Bandaríkjamanna ; . í*m Bandarísk stjórnvöld urðu fyrir nokkru áfalli á þriðjudag er tilraun vísindamanna þeirra með gagnflaug mlstókst. Gervi-sprengjuflaug var skotið á loft frá Kaliforníu og tilrauna- gagnflaug frá kóraleynni Kwajaleín í Marshalleyjum á Kyrra- hafi. Hinni síðarnefndu var ætlað að finna sprengjuflaugina og granda henni en hún hitti ekki skotmarkið. Þrátt fyrir þetta segja talsmenn varnarmáiaráðuneytisins Belgur í Washington að mikilvæg reynsla hafi fengist á öðrum sviðum rannsóknanna sem miða aö því að komið verði upp gagnflaugakerfi fyrir landiö. E3 Sprengjan og belgur sem á að rugla gagnflaugina losna frá Minuteman-eldflauginni. ARflSIN Minuteman II langdræg ' eldflaug □ Minuteman II eldflaug sem miðað er á eyjuna Meck er skotið upp og hún fer út úr gufu- hvolfinu VORNIN Eldflaug „EKV“- eða Drápstólið Vandenberg herflugstöðin Drápstólinu er skotið upp 21. mínútu eftir að Minuteman' flaugin fer áloft. Meck eyja „EKV" Drápstóiið Q Áreksturinn milli sprengjuhleðslunnar og óvinaflaugarinnar ætti að verða með um 25.000 km hraða og báðir hlutirnir sundrast í geimryk i um 200 km hæð yfir jörðu 0 Tólið losnar frá eldfauginni f um 1.400 mílna eða rúmlega 2.000 km fjarlægð frá skot- markinu og finnur sjálft rótta leið með hjálp innrauðra geisla □ Ratsjárkerfi sendir merki til Drápstólsins og nákvæmari upp- lýsingar um braut d óvinaflaugarinnar. Ratsjárkerfi |á nálægri eyju) Heimildir: Varnarmáiaráöuneytiö, Raytheon Co. Kína Ástralfa •’lt/leck-eyja (Skotstaður „EKV‘‘eða Drápstólsins) ''•^vBanda- i ríkin Vandenberg herflugstöðin (skotstaður langdrægrar eldflaugar) KYRRA- HAF AP flauginni á ferð hennar út í geiminn. Pótt reiknað sé með því að kerfið geti verið tilbúið árið 2005 eru margir embættismenn á því að þær hug- myndir lýsi of mikilli bjartsýni. Gagnrýni Rússa og Kínverja á gagnflaugahugmyndir Margir þingmenn repúblikana hafa stutt áætlunina af kappi og lík- legustu forsetaframbjóðendur flokksins, þeh- George W. Bush ríkis- stjóri og John McCain öldungadeild- arþingmaður, eru í þeim hópi. Búist er við að tekin verði lokaákvörðun um það í sumar hvort haldið verði áfram með gagnflaugaáætlunina sem hefur verið harðlega gagnrýnd í Rússlandi og Kína. Segja þarlendir ráðamenn að með áætluninni séu Bandaríkjamenn að efna til nýs vopnakapphlaups. Taka þeir lítið mark á fullyrðingum stjómvalda í Washington um að eingöngu sé ætl- unin að veijast ógn frá ríkjum eins og Norður-Kóreu sem gætu gripið til fífldirfsku og örvæntingaraðgerða vegna upplausnar innanlands. Repúblikanar hafa þrýst á Bill Clinton forseta um að hrinda hug- myndinni um gagnflaugakei'fi í fram- kvæmd en meðal demókrata eru skiptar skoðanir um málið. A1 Gore varaforseti segir að taka verði tillit til ýmissa þátta við ákvörðunina, þar á meðal kostnaðarins og áhrifa á al- þjóðamál. Annar líklegur forseta- frambjóðandi demókrata, Bill Brad- ley, er enn meiri efasemdamaður og segist álíta að núverandi kjarnorku- varnir Bandarílgamanna nægi til að fæla óvini frá því að gera árás. ÚTSALAN - SÍÐUSTU DAGAR Á morgun, föstudaginn 21. janúar, verður lokað frá kl. 14-17 vegna útfarar Jóns Björgvins Björnssonar fyrrv. sölustjóra Dæmi úr sportveiðideild: VÖÐLUJAKKAR VEIÐIVESTI FELULITAFATNAÐUR BYSSUP0KAR SK0TBELTI SB Loðfóðraðir kuldaskór Góðir skór úr svörtu rúskinni. með riflás. Litir: Rautt og stærðir 37-46. blátt. Stærðir 22-34. Svartar herramokkasínur. Stærðir 41-46. 0PIÐ í DAG, FIMMTUDAG FRÁ 8-18 FÖSTUDAGINIM 21/1 ER 0PIÐ FRÁ 8-14 0G 17-19 LAUGARDAGINN 22/1 ER 0PIÐ FRÁ 10-16 SUNNUDAGINN 23/1 ER 0PIÐ FRÁ13-17 Frábær útivistarjakki frá REGATTA með lausum flísjakka. ISOTEX-einangrun og útöndun. Fyrir allar árstíðir. Kostaði áður 10.400-. Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500 og 800-6288 NÆG BÍLASTÆÐI - SENDUM EINNIG í PÓSTKRÖFU Fóðruð barnastígvél. Moonboots á krakka. Verð áður 1.490- Kvenskór úr leðri. Litir: Svart og brúnt. St. 37-41. Mjúkir kvenskór úr Nabuk- leðri með öndun. St. 37-42 Vandaðar krakkaúlpur. Áður 5.940- Vönduð vattúlpa í rauðum og bláum lit. Gallabuxur frá 1.795- Kuldaskór með ískló í hæl og riflás. Litur: Svart
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.