Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 45

Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 45 UMRÆÐAN Burt með dönskuna, upp með frönskuna! ÍSLENDINGAR hafa á undanfömum ámm bundist Evrópu sífellt nánari böndum. Með aðild okkar að Evrópska efnahags- svæðinu er komin upp sú staða að mikill hluti þeirra Jaga sem sett era á íslandi eiga sér uppruna í franskri lagahefð. íslendingar hafa tekið upp í einu lagi „l’acquis commun- autaire“, allan lagabálk innri markaðar Evr; ópusambandsins. I hverjum mánuði berast lög og tilskipann- frá Brussel sem hafa áhrif á daglegt líf íslendinga. Á sama tíma hafa íslendingar sótt af meiri krafti en nokkru sinni inn á Frakklandsmarkað. íslensk sjávar- útvegsfyrirtæki hafa byggt sölu- aukningu sína að töluverðu leyti upp á sókn á Frakklandsmarkað og nú er svo komið að íslendingar hafa fest kaup á frönskum fyrirtækjum. Flugleiðir hafa breytt áherslum sínum og nú er flogið til París- ar nærri daglega árið um kring. Islendingar ferðast til Frakklands - fjölsóttasta ferða- mannalands heims sem aldrei fyrr enda búa Frakkar yfir einhverri auðugustu menningu sem um getur í verald- arsögunni. Á nýrri öld er að- gangur að upplýsing- um mikilvægari en nokkuð annað. Samkeppnin er harð- ari en nokkru sinni fyrr hvort heldur sem er í viðskiptum eða í menningu og listum. Þekking á aðstæðum og kunnátta í tungumáli og menningu hvers staðar fyrir sig, gefur mönnum forskot í harðri samkeppni. Og óvíða opnast jafn margar dyr og í Frakklandi ef mælt er á tungu heimamanna. Enska er „lingua franca" okkar Tungumálanám Sú breyting hefur orðið að franskan er ekki lengur þarfaþing bók- hneigðra listaspíra og samkvæmisljóna dipló- mataheimsins, segir Árni Snævarr, heldur ávísun á árangur og starfsframa í hinum harða heimi alþjóðavið- skipta og stjórnmála. tíma, um það er ekki deilt. Hana þurfa allir að læra og reyndar er ég þeirrar skoðunar að enskukennslu þurfi að auka frekar en minnka. Reyndar væri óskandi að íslending- Ámi Snævarr ar lærðu almennilega ensku í skóla en létu sér ekki nægja að láta hana síast inn í sig úr sjónvarpinu. Marga Englendinga rekur í rogastans þeg- ar þeir hitta ljóshærða og bláeyga íslendinga sem tala ensku eins og þeir hafi alist upp í Harlem! Það er aftur á móti sorglegt að horfa upp á þá tímaskekkju ár efth' ár, áratug eftir áratug, öld eftir öld (!) að ís- lendingar skuli halda áfram að kenna dönsku í skólum. Dönum finnst það sjálfum hlægilegt og líta niður á íslendinga ef þeir sýna þá þrælslund að reyna að tala (oftast með misheppnuðum árangri) danska tungu sem þeim sjálfum dettur ekki í hug að bera nokkra virðingu fyrir, vitandi sem er að það opnar engum neinai- dyr. Sjálfur var ég um þriggja ára skeið fréttamaður RÚV í Kaup- mannahöfn og kynntist því af eigin raun að fátt þykir verra í Danmörku en að vera Islendingur, nema ef vera skyldi Færeyingur eða Grænlend- ingur. Heyrist norð-vestur Atlants- hafshreimur á máli manns fær mað- ur verri þjónustu á veitingastöðum. Það er hins vegar okkur nauðsyn, efnahagslega, pólitískt og menning- arlega að hafa fleiri kosti en ensku eina. Ætli íslendingar sér að vera í fremstu röð á nýrri öld, nýju árþús- undi er mikilvægara en nokkru sinni að búa yfir sérþekkingu. Okkur er nauðsyn að hafa fólk á sem flestum sviðum sem talar frönsku, spænsku, þýsku og portúgölsku að ekki sé minnst á kínversku og japönsku. Fæstum nægir sú kennsla sem boðið er upp á í íslenskum mennta- skólum til að ná tökum á tungumál- um. Alliance frangaise hefur um ára- tugaskeið boðið upp á frönsku- kennslu auk þess að hlúa á ýmsan hátt að þekkingu á franskri tungu og menningu. Þetta starf hefur aldrei verið mikilvægara en nú. Sú breyting hefur orðið að fransk- an er ekki lengur þarfaþing bók- hneigðra listaspíra og samkvæmis- ljóna diplómataheimsins, heldur ávísun á árangur og starfsframa í hinum harða heimi alþjóðaviðskipta og stjórnmála. Til þess að koma til móts við þarfir nýrra tíma hefur Alliance frangaise ákveðið að bjóða upp á þá nýjung að halda frönskunámskeið sem sérstak- lega era ætluð fyrirtækjum. Um er að ræða almenn frönskunámskeið fyrir annars vegar byrjendur og hins vegar lengra komna og að auki sér- hæfð námskeið, hvort heldur sem er miðað við þarfir viðskiptalífsins eða ferðaþjónustunnar. Eftir sem áður verða almenn frönskunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna, unga sem aldna, aðalstarf félagsins og hefjast að venju nú í janúar. Höfundur er forseti Allmnce franfaise. C Gijótliáls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Það eru 4 loftpúðar í öllum Renault Mégane Þegar þú velur bíl skaltu gæta þess að öryggið standist ströngustu kröfur. Renault Mégane fékk hæstu einkunn allra bíla í sínum flokki í NCAP árekstrarprófinu enda eru 4 loftpúðar staðalbúnaður í öllum útgáfum Renault Mégane; öryggisbúnaður sem varla finnst nema í mun dýrari bílum. Hliðarloftpúðarnir vernda þig sérstaklega vel í hliðarárekstrum sem ella gætu valdið meiðslum. Hafðu öryggið í lagi. Veldu Renault Mégane. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.