Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 60

Morgunblaðið - 20.01.2000, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Okkar ástkæri, ÖRLYGUR ARON STURLUSON, Draumahæð 6, Garðabæ, til heimilis í Lágmóa 1, Njarðvík, lést af slysförum sunnudaginn 16. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Elvar Þór Sturluson, Særún Lúðvíksdóttir, Valdimar Björnsson, Sturla Örlygsson, Andrea Gunnarsdóttir, Örlygur Þorvaldsson, Erna Agnarsdóttir og hálfsystkini hins látna. Elskulegur eiginmaður minn og bróðir okkar, HÖSKULDUR AGNARSSON, Kirkjuvegi 41, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja þriðjudaginn 18. janúar. Áslaug Sigurðardóttir, Hulda, Sigþrúður, Svava, Agnes, Hjaltlína, Guðmundur, Erna, Margrét, Sigmundur og Eyjólfur Agnarsbörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR JENSDÓTTIR, Unnarbraut 28, Seltjarnesi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 11. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Örn Bogason, Bogi Jónsson, Laufey Oddsdóttir, Fríða Bogadóttir, Oddur Bogason, Jón Örn Bogason, Axel Bogason og Björk Bogadóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA BENEDIKTSDÓTTIR, frá Ljósalandi í Lýtingsstaðahreppi, síðast til heimilis í sambýlinu Gullsmára 11, Kópavogi, er lést föstudaginn 14. janúar, verður jarð- sungin frá Digraneskirkju á morgun, föstudaginn 21. janúar, kl. 15.00. Sigurgeir Jóhannsson, Fríður Sigurðardóttir, Jóhann Jóhannsson, Magnea Guðmundsdóttir, Snorri Jóhannsson, Stefanfa Sigfúsdóttir, Ingimar Jóhannsson, Kristín Helgadóttir, Frosti Jóhannsson, Steinunn Jónsdóttir, Jökull Jóhannsson, Guðný Sveinsdóttir, Hjálmar Jóhannsson, Erla Stefánsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Valgerður Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og frænka, SOFFÍA ÁSGEIRSDÓTTIR, Háalundi 7, Akureyri, sem lést á FSA fimmtudaginn 13. janúar, verð- ur jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 24. janúar, kl. 13.30. Þorsteinn Friðriksson, fris Þorsteinsdóttir, Friðrik B. Kristjánsson, Ólafur Ásgeirsson, Bente Lie Ásgeirsson, Halldór Ásgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson, Sigríður Óladóttir, Gunnar Ásgeirsson, Ásrún Ásgeirsdóttir, Halldór Þórisson, Haukur Ásgeirsson, Guðrún Ásgeirsdóttir og frændsystkinin. ÞORÐUR ARASON + Þórður Arason, síðast til heimilis að Sléttuvegi 13 í Reykjavík, fæddist á Suðureyri við Súg- andafjörð, 25. maí 1917. Hann lést á Sól- vangi í Hafnarfirði 11. janúar síðastlið- inn. Foreldrar Þórð- ar voru Ari Jónsson og Þórdís Magnús- dóttir á Suðureyri. Bróðir Þórðar var Jón, kvæntur Jór- unni Eyjólfsdóttur og eru þeirra börn Eyj- ólfur og Þórdís. Þórður var kvæntur Þóru As- geirsdóttur frá fsafirði. Þau slitu samvistum 1965. Þóra lést 1970. Synir þeirra eru: 1) Jón, bóndi í Grænuhb'ð í Hjaltastaðarþinghá, kvæntur Emih'u M. Jónsdóttur. Þeirra börn eru Arnþór, Sigríkur, Freyja, Geirþrúður, Dagbjartur, Trausti og Eygló. 2) Birgir, heil- brigðisfulltrúi á Selfossi, var kvæntur Geirlaugu H. Magnús- dóttur og eiga þau dæturnar Ragnheiði og Herdísi. 3) Sigur- geir, kennari á Kleppjárnsreykj- um, hans börn eru Sveinn, Þóra og Símon Ari. 4) Ari, d. 1965. Þórður stundaði margvísleg störf á sjó og landi. Hann var sjó- maður um árabil á yngri árum og stundaði nám við Veitinga- og matreiðsluskóla Islands og Iauk meistaraprófi í mat- reiðsluiðn. Síðar á ævinni kenndi hann um margra ára skeið við þann sama skóla. Hann vann við iðn sína í mörgum betri eldhúsum landsins, var lengi t.d. á Hótel Loftleiðum og rak eigin veitingahús, m.a. Báruna á Akra- nesi. Hann starfaði um margra ára skeið í mötuneyti Hrafn- istu í Reykjavík. Auk matreiðslustarfa vann Þórður einnig við verslunar- störf. Hann vann m.a hjá Árna kaupmanni við Miklubrautina og hjá Þorvaldi í Sfld og fisk og rak síðar eigin matvöruverslun í Kjörgarði. Mörg síðari árin rak hann mötuneyti Pósts og síma við Aust- urvöll, þar sem áður hafði verið Sj álfstæðishúsið. Eftir að starfsdegi lauk ferðað- ist Þórður mikið hér heima og er- lendis. Hann bjó síðari árin í húsi eldri borgara við Sléttuveg í Reykjavík. Á áttugasta og fyrsta aldursári kenndi hann heilsu- brests og dvaldist eftir það á Sól- vangi í Hafnarfirði. Þórður verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 13:30. Þórður Arason var ekki allra en leitun var að traustari og tryggari vini þeim hann tók. Þórður var smár maður vexti, grannur, kvikur og léttur á fæti og þótti góður að stíga dansinn. And- litsdrættir voru skarpir, hárið þykkt. Hann gekk mikið og var í hópi fárra sem stunduðu gönguskíði af miklu kappi fyrir áratugum. Hann var ein- stakt prúðmenni, fágaður og kurteis. Þá var hann fagurkeri, hafði unun af fallegum hlutum, og konum eins og hann sagði sjálfur, mikill smekkmað- ur í klæðaburði enda ætíð fínn í tau- inu. Örlögin höguðu því þannig að leið- ir okkar Þórðar lágu saman fyrir þremur áratugum er hann varð afí dóttur minnar, Þóru, er fékk nafn þá nýlátinnar föðurömmu sinnar. Þórð- ur var góður afi, hann heimsótti tát- una sína reglulega einu sinni í viku alveg þangað til hann hætti að aka bíl vegna sjóndepru, og axlaði í raun föðurskyldu sonar síns er bjó fjarri. Þóra mín var umvafin ástúð, átti tvo afa, ígildi feðra, óþreytandi að hampa henni og móðurömmu sem gekk henni í móðurstað. Á milli Þórðar og foreldra minna varð sterk taug sem aldrei slitnaði þótt árin færðust yfir. Aðdáun vakti sú fölskvalausa hlýja og gagnkvæma Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGRÚN FJÓLA ÞÓRLINDSDÓTTIR, frá Hvammi, Fáskrúðsfirði, síðast til heimilis á Garðvangi, Garði, sem andaðist á Landspítalanum fimmtudag- inn 13. janúar, verður jarðsungin frá Innri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 21. janúar, kl. 14.00. Stefanía María Hávarðsdóttir, Hörður Gilsberg, Bergþór Hávarðsson, Hrönn Hauksdóttir, Sigrún Harpa Hauksdóttir, Richard Olsen Runólfsson, Guðbjörg Alda Hauksdóttir, Jörgen Frisfoss, Sigurlaug Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir, systir og amma, HELGA BJÖRG HILMARSDÓTTIR, Lyngholti 17, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið- vikudaginn 19. janúar. Hermann Jónsson, Steina Jóna Hermannsdóttir, Númi Ingimarsson, Rúnar Hermannsson, Ragnheiður Jakobsdóttir, Áslaug Þorleifsdóttir, Sigfús Stefánsson, Gunnhildur Hilmarsdóttir, Guðbjörn Jónsson, Gytfi Hilmarsson, María Ýr Donaire og barnabörn. virðing sem þau báru hvert í annars garð, einkum og sér í lagi voru Þórð- ur og móðir mín náin enda um margt lík, ómannblendin en höfðingjar heim að sækja. Ófáar eru stundirnar þeirra tveggja í hlýlegu eldhúsinu á Álfaskeiði 72 í Hafnarfirði þar sem viðkvæm mál voru ugglaust brotin til mergjar. Þau jól sem Þórður dvaldi ekki í suðlægum löndum var hann á heimili foreldra minna og fylgdi þeim jafnan brygðu þeir sér á aðra bæi. Örlagadísirnar voru Þórði mínum hliðhollar þegar hann vistaðist á Sól- vangi í Hafnarfirði á þriðju hæð, þá genginn langt af sínum Alzheimer- sjúkdómi. Leitun er að eins úrvalsst- arfsfólki og Sólvangur getur státað sig af. Þórður fékk eins og aðrir frá- bæra umönnun, natni, hlýju og þolin- mæði. Ungu stelpunum fannst hann „krúttlegur“ og voru óþreytandi að greiða þykkt og fallegt hár hans og snurfusa á alla lund og það hefur Þórði mínum án efa líkað vel því fá- um snyrtimönnum, bæði í útliti og umgengni, hef ég kynnst í gegnum dagana, nema ef vera skyldi faðir minn. En á sömu hæð var líka góð vinkona, móðir mín, heimilisföst á Sólvangi til 13 ára. Ekki er fjarri því að tár hafi blikað í auga móður minn- ar að sjá glampann í augum Þórðar sem gaf til kynna að hann þekkti hana á ný og margar voru ferðirnar hans inn á herbergi til hennar enda þótt hann hafi ekki verið þess um- kominn að spjalla við hana. Þóra launaði fóstrið vel, ekki af skyldurækni heldur af heilum og sönnum hug, og þegar hún oft og ein- att flögraði með þrá æskunnar til út- landa, gaf sér hún alltaf góðan tíma að skrifa öfum sínum og ömmu enda þótt kveðjur væru strjálar til okkar hinna. Eftir að afi hennar varð óf- erðafær heimsótti hún hann og jafn- an var haft samband við hana bjátaði eitthvað á hjá Þórði. Þórður var ein- stæðingur síðari ár sín eftir að heilsa batt hann heima og samferðamenn hans heltust einn af öðrum úr lest- inni og ekki er örgrannt um að ein- hverrar biturðar hafi gætt. Það var hans lán að komast í hendur á færu hjúkrunarfólki sem þekkti sjúkdóm hans og gerði honum kleift að lifa sína síðustu ævidaga og kveðja með mannlegri reisn. í þessum fáu kveðj- uorðum til hans Þórðar míns langar mig til að nota tækifærið og koma að innilegu þakklæti til starfsfólks 3. hæðar á Sólvangi sem hugsaði svo vel um foreldra mína, Ingimund Halldórsson og Jóhönnu Þórarins- dóttur og núna síðast heimilisvin okkar allra systranna fjögurra, Þórð Arason. Með nokkurra mánaða millibili hafa kvatt móðurafi og amma Þóru og föðurafi og mikið lagt á herðar ungrar og ábyrgðarfullrar konu. Megi Þóra mín berast mjúklega á öldum sorgarinnar, minnug þess alls dýrmæta sem hún hefur fengið í veg- anesti frá öfum sínum og ömmum. Ég veit að þar nýtur hún dyggs stuðnings Jóns Snorra síns og tveggja ára sólargeislans þeirra; hans sem lýsti svo skært en stutt langöfum sínum og -ömmu, öllum á Sólvangi er þau lögðu í sína hinstu langferð. Systur mínar og fjölskyldur okkar senda hjartans Þóru okkar og öðrum aðstandendum hugheilar kveðjur. Guð geymi Þórð Arason og blessuð veri hans minning. Hallfríður. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Ótfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.