Morgunblaðið - 27.01.2000, Síða 1
22 TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alexander Lúkasjenkó formaður nýs sambands Rússlands og Hvíta-Rússlands
Brestir í sam-
stöðu stjórnar-
andstöðunnar
Moskvu. AP, AFP, Reuters.
HLUTI stjórnarandstöðunnar á
rússneska þinginu hunsar þingfundi,
aðra vikuna í röð, en margt bendir
til, að látið verði af mótmælum fljót-
lega. Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvita-Rússlands, hefur verið skip-
aður formaður hins nýja sambands
Rússlands og Hvíta-Rússlands, sem
tók formlega gildi í gær.
Þingmenn, sem tilheyra annars
vegar Sambandi hægriflokka og
Jabloko og hins vegar Föðurlandi-
Öllu Rússlandi, gengu út af fyrsta
fundi rússneska þingsins í vikunni
sem leið til að mótmæla samningi
Einingar - flokks Vladímírs Pútíns
forsætisráðherra - og kommúnista,
en í kjölfar hans var kommúnistinn
Gennadí Seleznjov kosinn þingfor-
seti, en öðrum embættum skipt með
flokkunum. Hefur samningurinn
vakið efasemdir um hollustu Pútíns
við lýðræðislegar umbætur.
Vill að mótmælum verði hætt
Sergei Kíríjenko, leiðtogi Sam-
bands hægriflokka, sagði í gær eftir
viðræður við frammámenn í Ein-
ingu, að þeir hefðu fallist á að styðja
tillögur um aukið frjálsræði auk
þess sem þeir fullyrtu, að samstarfið
við kommúnista yrði ekki til lang-
frama. Því myndi hann reyna að fá
Jevgení Prímakov, frammámann í
Föðurlandi-ÖUu Rússlandi, og Gríg-
orí Javlínskí, leiðtoga Jabloko, til að
taka aftur þátt í þingstörfunum, þótt
Javlínski teldi slíkt ekki líklegt fyrr
en embættaskipan þingsins hefði
verið endurskoðuð.
Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rúss-
lands, var skipaður formaður hins
nýja sambands við Rússland. Hann
sagðist vona að það væri aðeins
fyrsta skrefið í fullri sameiningu
ríkjanna, en samningurinn, sá þriðji
á þremur árum, er aðallega tákn-
rænn og felur í sér, að embættis-
mannanefndum verður falið að sam-
ræma stefnu ríkjanna. Taka á upp
sameiginlegt skattkerfi árið 2001 og
sameiginlega mynt 2005.
Hvorki gengur né rekur í sókn
rússneska hersins í Grosní og hafði
Tass-fréttastofan eftir heimildum
innan hersins, að skæruliðar hefðu
komið sér vel fyrir í byrgjum og í há-
hýsum í borginni.
Þá sögðu hermenn, sem beijast í
Grosní, í gær að bardagarnir um
Minutka-torg í miðborginni væru
þeir mannskæðustu frá því að sókn
hófst 16. janúar. Ekkert væri hins
vegar hæft í staðhæfingum rússn-
eskra stjórnvalda um að hersveitim-
ar hefðu náð úthverfum í norð-
austurhluta borgarinnar á sitt vald.
Formaður öryggisráðs Dagest-
ans, nágrannahéraðs Tsjetsjníu,
sagði í gær að tsjetsjenskir skæru-
liðar væru að búa sig undir að laum-
ast inn í héraðið til að geta hafið nýja
hrinu sprengjutilræða í rússneskum
borgum. En her- og lögreglumenn
væru nú á varðbergi vegna hættu á
sprengjutilræðum.
Rússneskir fjölmiðlar segja að
óánægja með stríðsreksturinn fari
vaxandi meðal almennings. Vaxandi
óánægja með stríðið virðist þó ekki
bitna á vinsældum Pútíns forsætis-
ráðherra, því samkvæmt skoðana-
könnun, sem birt var í gær ætla 60%
rússneskra kjósenda að greiða hon-
um atkvæði í forsetakosningunum
26. mars nk.
„Kúbudr engurinn* ‘
hittir ömmur sínar
Persson varar við andlýð-
ræðislegum samtökum
Stokkhdlmi. AP.
GÖRAN Persson varaði við auknum
iveuujrs
Rússnesk skytta horfir yfír Grosní úr þyrlu. Bardagarnir um Minutka-torg í miðborginni eru sagðir þeir
mannskæðustu frá því að sókn rússneska hersins hófst 16. janúar.
Blix
formaður?
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær að mæla
með Svíanum Hans BIix sem for-
manni nýrrar vopnaeftirlitsnefnd-
ar sem ráðgert er að verði send til
íraks. Óskað verður eftir því að
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, tilnefni Blix, en írakar hafa
áður hafnað tilnefningu Svíans
Rolfs Ekeus.
Miami.AP, AFP.
KÚBVERSKI flóttadrengurinn
Elian Gonzalez, sem fannst á reki
á gúmmíslöngu undan strönd
Flórída í lok síðasta árs, hitti
ömmur sínar á Miami í gær. Engir
aðrir voru viðstaddir fundinn.
Faðir Elians hafði óskað eftir
þvf að ömmurnar hefðu farsíma
með sér á fundinn svo að hann og
aðrir ættingjar á Kúbu gætu talað
við Elian. Ættingjar drengsins á
Miami, sem vilja að hann fái
bandarfskan ríkisborgararétt,
voru sagðir áhyggjufullir vegna
fundarins, en þeir höfðu áður boð-
ið þeim Raquel Rodriguez og
Marielu Quintana að hitta Elian á
heimili sínu.
Ljóst þykir að Elian muni ekki
fá að fara með ömmum sfnum
heim til Kúbu en þær héldu til
Elian Gonzalez
Bandaríkjanna sl. föstudag til að
reyna að hafa áhrif á gang for-
ræðisdeilunnar.
vinsældum andlýðræðislegra sam-
taka á borð við nýnasista við setn-
ingu þriggja daga ráðstefnu um hel-
förina gegn gyðingum, sem hófst í
Stokkhólmi í gær.
Persson sagði menn siðferðilega
ekki geta snúið baki við hörmungum
síðari heimsstyrjaldarinnar. Helför-
in hefði ekki verið slys, því kerfis-
bundin morð á gyðingum, sígaunum
og fötluðum hefðu aðeins viðgengist
af því að fólk mótmælti ekki og tók
þátt í framkvæmd morðanna. „Þau
áttu sér ekki hvað síst stað vegna
þess að fólk þagði,“ sagði Persson.
Viktor Klima kanslari Austurríkis
situr ráðstefnuna, en stjómarmynd-
unarviðræður Frelsisflokks Jörgs
Haider og austuríska Þjóðarflokks-
ins hafa víða vakið ugg og gaf Pers-
son til kynna að ríkisstjórn Frelsis-
flokksins ætti ekki heima innan
Evrópusambandsins.
Um 600 þátttakendur taka þátt í
alþjóðaráðstefnunni um helfórina.
Scanpix
Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra fslands, við setningarathöfn ráðstefnu um helförina.
Meðal þeirra er íjöldi stjórnmála-
leiðtoga, m.a. forsætisráðherra ísra-
els, Ehud Barak, Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, og Davíð Odds-
son, forsætisráðherra Islands.
■ Fortíðar minnst/34
MORGUNBLAÐH) 27. JANUAR 2000
690900 090000
Reykingabann á
skemmtistöðum?
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Noregs, Dagfinn Hoybráten,
íhugar nú að fara að tillögu norsku
tóbaksvamarnefndarinnar um að
lögleiða allsherjarbann við reyk-
ingum á veitinga- og skemmti-
stöðum.
Tóbaksvamamefnd norska rík-
isins hefur nú skilað skýrslu til
heilbrigðisráðuneytisins í Ósló,
sem byggist á ítarlegri könnun
sem gerð var á vegum nefndarinn-
ar á ástandinu á skemmtistöðum
Noregs. Með skýrslunni er lagt
mat á virkni þeirra reglna sem í
gildi era um reykingar á veitinga-
og skemmtistöðum og lagt til, að í
nafni heilsuvemdar almennings
verði reykingar bannaðar með
öllu á þessum stöðum.
Segir Aítenposten að Hoybrát-
en hafi lengi sagt að til stæði að
grípa til viðeigandi ráðstafana til
að vemda fólk fyrir óbeinum
reykingum. „Atvinnugreinin verð-
ur að vera undir það búin að
reglumar verði hertar,“ hefur
blaðið eftir ráðherranum.