Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minn túni er kominn, minn tími er líka kominn, og minn líka, og minn... og minn.
Ráðherra vill breyta lögum um skipulag ferðamála
Leiðsöguskólinn heyri undir
menntamálaráðuneytið
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra, hefur kynnt frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
skipulag ferðamála, sem felur í sér
að nám í Leiðsöguskólanum heyri
framvegis undir menntamálaráðu-
neytið.
Ráðherra sagði að samkvæmt lög-
um hefði það verið verkefni ferða-
málaráðs að hafa með höndum nám
leiðsögumanna, og þarf með hefði
það heyrt undir Samgönguráðaneyt-
ið. Frumvarpið sem hann hefði
kynnt rítósstjóminni gerði ráð fyrir
að kennslan færðist yfir til mennta-
málaráðuneytisins. „Þetta hefur í
raun verið hjá báðum ráðuneytunum
og valdið óþægindum en nú verður
það í skólakerfinu og verður eins og
annað nám,“ sagði Sturla. Ráðuneyti
samgöngumála telur sig eiga mjög
erfitt með að hafa forræði á máli sem
að meginstefnu snýst um menntun.
Það telur núverandi fyrirkomulag
óviðunandi og valdi þeim , sem telja
að á sér hafi verið brotið, óþolandi
óöryggi.
KALDIRDAGAR
Í2800
(T)inDeSIT A ©Husqvarna
Tíunda Náttúruverndarþingið haldið
Mikil þörf á um-
ræðum um nátt-
úruverndarmál
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
Náttúruvemdarþing
verður haldið á
Hótel Loftleiðum
og er það umhverfisráð-
herra, Siv Friðleifsdóttir,
sem boðar til þingsins. Þar
verður fjallað um fjögur
meginþemu; vistkerfi og
gróðurvinjar á hálendinu,
mat á vemdar- og verð-
gildi náttúrunnar, hvað
felst í mati á umhverfis-
áhrifum og loks verður
rætt um hlutverk Nátt-
úruverndarráðs og
frjálsra félagasamtaka.
Þingið stendur í tvo daga
og hefst á morgun klukkan
9.30. Seinni daginn verður
yfirlitserindi um stöðu
náttúruverndar, niður-
stöður umræðuhópa
kynntar og tilkynnt um
kjör í nýtt Náttúruvemdaráð.
Olöf Guðný Valdimarsdóttir er
formaður Náttúmverndarráðs.
„Samkvæmt lögum um nátt-
úravemd skal umhverfisráðherra
boða til náttúraverndarþings að
loknum alþingiskosningum og
síðan tveimur áram síðar. Þessi
þingboðun er í samræmi við þessi
lög. Þetta er tíunda náttúra-
vemdarþingið sem haldið er.
Náttúraverndarþing er vettvang-
ur til að fjalla um náttúravemd-
armál og eiga þar sæti Náttúra-
verndarráð, fulltrúar náttúra-
stofa, náttúravemdamefnda,
hagsmunaaðila, náttúravemdar-
og útivistarsamtaka, og annarra
aðila sem vinna að náttúravemd,
svo og forstjóra á sviði náttúra-
fræða.“
-Er óvcnjulega mikið á dag-
skrá þingsins að þessu sinni?
„Dagskrá þingsins er að vissu
leyti hefðbundin, en umræða um
náttúravemdarmál hefur verið
óvenjulega mikil undanfarin ár og
náttúravemdarmál gegna sífellt
veigameira hlutvertó í samfélag-
inu. Þetta var því meira spuming
um að velja um hvað ætti að fjalla
því viðfangsefnin era næg.“
- Hvert er veigamesta við-
fangsefnið á þinginu að þínu
rnati?
„Öll málefnin era mikilvæg,
vistkerfi og gróðurvinjar á há-
lendinu og upplýsingar um það
efni, mat á verndargildi náttúr-
unnar er einnig geysilega mikil-
vægt og fremur nýtt í umræð-
unni, í þriðja lagi er athyglisvert
erindi Ragnars Árnasonar um
mat á verðgildi náttúrannar þar
sem kynntar era aðferðir til að
leggja slíkt mat á náttúrana. Þá
vil ég nefna erindi um hvað felst í
mati á umhverfisáhrifum þar sem
ég vænti þess að fram komi ný og
athyglisverð sjónarhom sem nýst
gætu.“
- Hvað viltu segja um hlutverk
Náttúruvcrndarráðs - hefur það
breyst í takt við aukna umræðu
um náttúruverndarmál?
„Hlutverk Náttúra-
vemdarráðs breyttist
með lögum um nátt-
úravernd frá 1996, þar
sem Náttúravernd rík-
isins tók við hlutvertó
ráðsins en Náttúravemdarráð
varð ráðgjafarráð fyrir umhverf-
isráðherra og Náttúravernd rík-
isins um náttúraverndarmál. Aft-
ur á móti hefur mismunandi
skilningur verið af hálfu umhverf-
isráðherra og Náttúraverndar-
ráðs á því hvernig þessu ráðgjaf-
arhlutverki er háttað."
- Hvernig eru þau mismunandi
sjónarmið?
► Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
fæddist á Núpi í Dýrafirði 21.
september 1954. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
ísafirði árið 1976 og prófi í arki-
tektúr frá arkitektaskólanum í
Árósum 1983. Auk þess lauk hún
prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá
Háskóla íslands 1991. Ólöf hefur
unnið sem arkitekt, bæði sem
launþegi og með eigin rekstur.
Hún hefur tekið þátt í félagsmál-
um, sat í stjórn Arkitektafélags
Islands og var framkvæmda-
stjóri þess frá 1995 til 1. sept. sl.
og var hún kjörin formaður fé-
lagsins á aðalfundi þess í nóvem-
ber sl. Ólöf var skipuð formaður
Náttúruvemdarráðs af Guð-
mundi Bjamasyni umhverfis-
ráðherra á Náttúmverndarþingi
1997 og er varaþingmaður
Framsóknarflokksins á Vest-
fjörðum. Ólöf á tvær dætur og er
í sambúð með Gísla Má Gíslasyni,
prófessor í líffræði og forseta
Raunvisindadeildar Háskóla ís-
lands.
„Ég hefði talið eðlilegt að þetta
ráðgjafarráð sem stópað er níu
sérfræðingum á sviði umhverfis-
mála ætti að virka sem afgerandi
ráðgjafarráð fyrir umhverfisráð-
herra en ráðgjafarhlutverk gagn-
vart ráðuneytinu hefur að mestu
falist í umsögnum um friðlýsing-
armál og reglugerðir."
- Hefur hlutverk Náttúru-
verndarráðs ekki verið í sérstök-
um brennidepli vegna Eyja-
bakkamálsins að undanfomu?
- Allt frá árslokum 1997 höfum
við ítrekað lagt til við stjómvöld
að Fljótdalsvirkjun fari í lögform-
legt mat á umhverfisáhrifum,
bæði við rítósstjóm, Alþingi og
umhverfisnefnd Alþingis en það
hefur verið fátt um svör. Af þess-
um sökum m.a. hef ég ákveðið að
gefa ektó kost á mér til endur-
kjörs sem formaður Náttúru-
vemdarráðs, enda ekki verið leit-
að eftir því. Ég tel tíma
mínum betur varið til
umhverfismála á öðr-
um vettvangi.“
-Áttu von á fjörug-
um umræðum um vist-
fræði hálendisins og friðlýsingar-
málá Náttúruverndarþingi núna?
„Ég á von á miklum og góðum
umræðum um náttúraverndarmál
almennt. Þetta er jú vettvangur
náttúruverndarfólks til að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri
og álykta um náttúraverndarmál
og aldrei hefur verið meiri ástæða
til málefnalegrar umræðu um
náttúravemd en einmitt núna.“
Gefur ekki
kost á sér til
endurkjörs