Morgunblaðið - 27.01.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2000 13
Júlíus Vífíll Ingvarsson borgarfulltrúi
Sakar meirihlut-
ann um að dylja
fjárhagsstöðu
JÚLÍUS Vífíll Ingvarsson, borgar-
fulltrúi sjálfstæðismanna, sakar
meirihluta borgarstjórnar um að
reyna að dylja raunverulega fjár-
hagsstöðu borgarinnar. Þetta kem-
ur fram í bókun, sem borgarráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu,
á borgarráðsfundi sl. þriðjudag, að
fengnu svari um að ekki verði að svo
stöddu orðið við óskum þeirra um að
leggja fram í borgarráði útreikninga
á áætluðum heildarskuldum og pen-
ingalegri stöðu samstæðureiknings
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2000.
Fyrirspurninni var svarað á borg-
arráðsfundinum með bréfi fjármála-
stjóra borgarinnar. I svarinu kemur
fram að upplýsinganna verði aflað
eftir að gerð ársreiknings ársins
1999 lýkur í mars.
Júlíus Vífill sagði í samtali við
Morgunblaðið að sjálfstæðismenn
teldu þessar upplýsingar nauðsyn-
legar til að meta í heild skuldaaukn-
ingu og skuldastöðu borgarinnar.
Þeir teldu heildarstöðuna aldrei
hafa verið verri og aukninguna
aldrei jafnmikla og undanfarin ár,
m.a. vegna skuldsetningar Orku-
veitu Reykjavíkur. Með millifærsl-
um og sölu eigna borgarinnar hefði
verið búin til villandi mynd af stöðu
borgarsjóðs og borgarinnar í heild. í
ljósi þess að t.d.
Kópavogur geri
áætlun um hvert
stefni í heildar-
skuldastöðu,
sem lögð sé fram
með fjárhags-
áætlun, kvaðst
Júlíus Vífill
hissa á því að
meirihlutinn
treysti sér ekki
til þess í dag
leggja fram áætlaða heildarskulda-
stöðu í árslok en vísi málinu áfram
til gerðar ársreikninga.
Nauðsynlegt sé að meta við gerð
fjárhagsáætlunar hvert stefni í fjár-
málum borgarinnar hvað skuldir
varðar og hver áhrif fjárhagsáætl-
unarinnar verði á heildarskuldir
borgarinnar.
Hann kvaðst furða sig á að meiri-
hlutinn neitaði að afla upplýsinga
sem auðvelt væri að sækja í bókhald
borgarinnar og Júlíus Vífill kvaðst
halda því fram að meirihlutinn væri
að dylja raunverulega skuldastöðu
með því að leita ekki þessara upp-
lýsinga. „Þetta er hluti af því hvern-
ig meirihluti borgarstjórnar hefur
hagað sínum áróðri um að faglega sé
staðið að stjórn borgarinnar en í
rauninni er þar óráðsía," sagði Júl-
íus Vífill.
Unnið að lokinni gerð
ársreiknings
í svari fjármálastjóra borgarinn-
ar, sem lagt var fram á borgarráðs-
fundi í gær, segir að stefnt sé að því
að vinnu við uppgjör borgarsjóðs og
fyrirtækja borgarinnar vegna 1999
ljúki í marslok og þá liggi ársreikn-
ingur borgarsjóðs og samstæðu-
reikningur fyrir. Áætlaðar heildar-
skuldir og peningaleg staða
samstæðu hafi ekki verið birt áður í
tengslum við fjárhagsáætlunargerð
og því hafi nauðsynlegum upplýs-
ingum ekki verið safnað við þá
vinnu. Til að reikna þessa liði þurfi
að afla upplýsinga frá fyrirtækjum
og hlutafélögum borgarinnar, þ.m.t.
Landsvirkjun.
Rétt sé talið að bíða eftir að vinnu
við ársreikning 1999 ljúki áður en
umbeðnar upplýsingar séu birtar,
m.a. til að gæta samræmis og vegna
hættu á að gerð ársreiknings tefjist.
Tillaga um að frumvarp að fjár-
hagsáætlun taki til allra fyrirtækja
sem borgarsjóður á eignarhluta í
verði tekin til skoðunar við undir-
búning fjárhagsáætlunar ársins
2000.
Lesendakönnun ferðatímaritsins Condé Nast Traveler
Flugleiðir fjórða besta
evrópska flugfélagið
Á HVER JU ári velja lesendur banda-
ríska ferðatímaritsins Condé Nast
Traveler þau flugfélög, bílaleigur og
hótel sem þykja skara fram úr hvert á
sínu sviði. I nóvember-hefti síðastlið-
ins árs voru birtar niðurstöður könn-
unar tímaritsins fyrir árið 1999.
Könnunin leiddi meðal annars í ljós
að Keflavíkurflugvöllur þykir að mati
lesenda áttundi besti flugvöllur í
heimi og að Flugleiðir þykja fjórða
besta evrópska flugfélagið.
Samkvæmt upplýsingum frá Flug-
leiðum fær Keflavíkuflugvöllur góða
einkunn hjá lesendum Condé Nast.
Aðeins tveir aðrir flugvellir í Evrópu
náðu hærra á heimslistanum,
Amsterdam og Zurich.
Aðeins einn flugvöllur í heiminum,
Singapore/Changi, þótti bjóða upp á
auðveldari tengimöguleika en Kefla-
víkurflugvöllur en þar bíða tengifar-
þegar að jafnaði ekki lengur en eina
klukkustund á jörðu niðri. Flugvöll-
urinn í Singapore þótti bera af og var
kosinn besti flugvöllur í heimi.
Lesendur tímaritsins töldu Flug-
leiðir tólfta besta flugfélag í heimi en
alls komust 53 félög á blað. Flugleiðir
geta hins vegar talist fjórða besta
evrópska flugfélagið þar sem aðeins
þrjú evrópsk flugfélög komast ofar á
heimslistann, Virgin Atlantic (2.
sæti), Svrissair (4. sæti) og British
Airways (11. sæti).
Hvað varðar matarþjónustu urðu
Flugleiðir í 8. sæti á listanum. Singa-
pore Airlines var kosið besta flugfé-
lag í heimi.
Samningar á ný
um greiðslu-
kortaviðskipti á
nektarstöðum
Tveir
handteknir
vegna
innbrota
LÖGREGLAN handtók í fyrrakvöld
karlmann á þrítugsaldri, sem grun-
aður var um að hafa stolið verkfær-
um úr nýbyggingu við Borgartún
síðastliðna helgi að verðmæti um 1,5
milljónir króna. Við húsleit lög-
reglunnar fundust nánast öll verk-
færin og var þeim skilað til eigenda.
I framhaldi af yfirheyrslu hjá lög-
reglu var maðurinn færður til af-
plánunar 9 mánaða fangelsisdóms.
Þá var maður á fimmtugsaldri
handtekinn í fyrradag, grunaður um
innbrot í sex íbúðir á austanverðu
miðbæjarsvæðinu. Hluti af því sem
þar var stolið hefur komið í leitimar.
Maðurinn gerði lögreglu grein fyrir
málunum og eru þau í rannsókn lög-
reglunnar.
VISA ísland hefur með skilyrðum
opnað á ný samninga um greiðslu-
kortaviðskipti við þá tvo nektar-
dansstaði, sem lokað var á fyrir um
mánuði, Club Clinton og Maxim í
miðborg Reykjavíkur.
Samkvæmt tilkynningu frá Visa
Islandi taka nýju samningarnir jafnt
til viðskipta með debet- og kredit-
kort innan viss eyðsluhámarks á dag.
Þá séu sett ströng skilyrði sem stað-
imir skuldbinda sig til að fylgja í
einu og öllu, auk óskráðra reglna um
vandað viðskiptasiðferði.
Meðal þeirra skilyrða sem stöðun-
um em sett, er að söluaðili fari í einu
og öllu eftir reglum samstarfssamn-
inga um greiðslukortaviðskipti, ekki
hvað síst ákvæði sem varðar áritun
korthafa á sölunótur. Þá gangi stað-
imir tryggilega úr skugga um að
handhafi korts sé eigandi þess. Visa
ísland áskilur sér rétt til sérstakra
áhættustýringa í þessum viðskiptum
og að setja þak á hámarksúttektir á
kort á sólarhring. Einnig er það sett
að skilyrði að Visa íslandi sé látið í té
afrit af gjaldskrá viðkomandi staða
hverju sinni og fái upplýsingar um
allar breytingar á henni.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Eiríkur Þör Magnússon í Neskaupstað að þvo saltið af húsi sínu.
N óg að gera við
gluggaþvott
Neskaupstað. Morgunblaðið.
í BLÍÐUNNI sem verið hefur hér
undanfamar vikur hafa veðurguð-
irnir minnt menn á hvaða árstími er
því með stuttu millibili hefur tvisv-
ar gert mikið hvassviðri með til-
heyrandi sjóroki yfir bæinn sem
sest á hús og bfla íbúanna.
Mikil örtröð hefur því verið á
eina bflaþvottaplaninu sem í bæn-
um er og fyrir skömmu er frétta-
ritari átti leið um bæinn vom menn
mjög víða með garðslönguna úti við
að spúla saltið af húsum sínum og
sérstaklega rúðum, því segja má að
mjög illa hafi sést út um glugga fyr-
ir saltstorku og núna þegar sólin er
farin að teygja sig upp fyrir íjalla-
toppana eftir um tveggja mánaða
íjarveru vilja menn hafa rúðumar í
gluggum húsa sinna hreina til að
hleypa geislum hennar óhindrað
inn í hús sín.
Lægsta verðið
tii London
1.7.900
í sumar
með Heimsferðum
Heimsferðir kynna nú flug
sín til London í sumar, en
við munum fljúga alla
fímmtudaga til London frá
og með 18. maí á hreint ein-
stökum kjörum.
Nú getur þú valið um 4 daga helgarferð til heims-
borgarinnar í sumar, 11 daga eða 18 nætur, flogið út á
fímmtudegi og heim á mánudegi.
Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og
menningarlífi og hjá Heimsferðum getur þú valið um
gott úrval hótela, frá 2-4 stjörnu á frábærum kjörum.
Við bjóðum nú forsölu á 400 fyrstu sætunum til
London á frábæru verði og tryggjum þér besta verðið
til London í sumar.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600. www.heimsferdir.is
Verð kr.l I4.20Í )
Flugsæti fram og tilbaka. Flugvallarskattar kr. 3.790 ekki innifaldir. Fyrstu 400 sætin.
Verð kr.7.900
Fiugsæti aðra leiðina til London í sumar.
Flugvaliarskattar kr. 1.830 ekki innifaldir.